Alþýðublaðið - 01.07.1994, Síða 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ
ERLENT
Föstudagur 1. júlí 1994
Uggvænlegt ástand hefiir skapast í Prag, höftiðborg Tékklands.
Þetta er borg sem nú er ein heLsta miðstöð eiturlyfjadreifingar í Evrópu:
, JHér eru marijúanareykingar
jafii algengpr og viskýdrykkja4 6
- segir sérfrtMSngnr í eituriyljiuiiáluni í Prag. Rkniefhalögreglan segir austiir-evnípskii
eitiiriytjamafíuna vera sérstaklega hættulega þar san hún sé mestmegnis skipuð
fyrrum niedimiun leyniþjónustu koinmúnista
Stuttu eftir hrun kommún-
ismans í Tékkóslóvakíu
setti einhver kaidhæðinn
kappi haug af mold á stað í mið-
bæ Prag þar sem sty tta af Lenín
hafði áður staðið. Kaldhæðinn
kappi? Jú, þannig var að vorið
eftir stungu kraftmiklar grænar
plöntur hausnum uppúr moldinni
og þær náðu að vaxa upp í eina
65 sentimetra áður en lögreglan í
borginni tók eftir að frækom lýð-
ræðisins höfðu getið af sér há-
gæða kannabis. „Grasið“ var um-
svifalaust fjarlægt en það skipti
litlu máli. Höfuðborg Tékklands
hafði um þetta leyti skapað sér
nafn sem höfuðborg eiturlyfja-
neyslu í Austur- Evrópu.
Eiturlyf einsog marijúana,
hass, amfetamín, LSD og ýmis
kókaínefni fást fyrir hlægilega
lágt verð í mörgum af hinum
blómstrandi börum og klúbbum í
miðborg Prag.
Marijúanað er reyndar svo
ódýrt og þarafleiðandi algengt að
á mörgum stöðum er hægt að fá
það ókeypis.
„Hér eru marijúanareykingar
jafn algengar og viskýdrykkja,“
segir doktor Jiri Presl, sérfræð-
ingur í eiturlyfjamálum.
Það er ekki ólöglegt að eiga
eða nota eiturlyf í Tékklandi. Og
ekki nóg með það heldur var
Prag ein af fáum austur-evrópsk-
um borgum þar sem eiturlyfja-
neysla var vaxandi jafnvel fyrir
flauelsbyltinguna svokölluðu, ár-
ið 1989.
Framsæknir spennufíklar í
Tékkóslóvakíu á tímum komm-
únismans höfðu til að mynda
þróað nokkurskonar gervikókaín
sem kallað var Pervitin - Pico
heitir útgáfan sem sniffuð var í
nös og Tékkó nefnist útgáfan
sem notuð var til útflutnings.
Kannabis var vinsælasta eitur-
lyfið fyrst eftir fall kommúnism-
ans en Pico hefur stöðugt sótt sig
í veðrið vegna hagstæðs verðs,
en það kostar um þriðjung af
verði kókaíns og er álitið mun
karlmannlegra en kannabisið.
En Prag er ekki bara staður
mikillar eiturlyljaneyslu því nú
er svo komið að borgin er orðin
helsta miðstöð dreifmgu eitur-
lyfja í bæði gjörvallri Evrópu.
Þetta kemur einna helst til
vegna þess að stríðið í Bosníu
hefur lokað fyrir flutninga her-
óíns frá Tyrklandi, eftir gömlu
Balkanskagaleiðinni og til Vest-
ur-Evrópu. Þessir flutningar fara
nú um Tékkland.
Eiturlyfjasalar vinna nú í Prag
að þróun markaðar fyrir heróínið
með því að bjóða það á ótrúlega
lágu verði til viðskiptaelítunnar
og glamúraðalsins.
Ungir og velmenntaðir Tékkar
halda hinsvegar meira upp á
„Trip“ sem er útgáfa af LSD sem
er innflutt frá Hollandi.
Viðleitni stjómvalda til að
hemja og stjóma eiturlyfjaheim-
inum að einhverju leyti er ennþá
veikburða og á frumstigi.
Milena Havlova, yfirmaður
eiturlyfjadeildar heilbrigðisráðu-
neytisins, giskar á það séu um 10
þúsund langtleiddir eiturlyfja-
neytendur í landinu. Þessi hópur
mun hafa þrefaldast að stærð ffá
árinu 1989.
Nefnd innan ráðuneytisins
vinnur nú að nýrri löggjöf sem er
líkleg til að styrkja forvamir.
Gert er ráð fyrir að leyfdegt verði
að eiga litla skammta af eiturlyfj-
um en harðari refsingar verði
teknar upp fyrir meira magn.
Lögreglan gerir hvað hún get-
ur til að ráðast gegn heildsölu-
viðskiptunum sem tengjast sér-
staklega Tyrklandi, Rússlandi og
Úkraínu - en með takmörkuðum
árangri.
„Austur-evrópska eiturlyfj-
amafían er afar hættuleg," út-
skýrir Jiri Komorous, aðstoðar-
forstjóri fíkniefnadeildar alríkis-
lögreglunnar, „vegna þess að hún
er aðallega skipuð fyrrum með-
limum leyniþjónustu kommún-
ista.”
Byggt á NEWSWEEK.