Alþýðublaðið - 01.07.1994, Qupperneq 5
Föstudagur 1. júlí 1994
HÁSKÓLINN
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Ræða Sveinbjöms Bjömssonar háskólarektors á Haskólahátíð:
Endurskoðun skólakerfís á háskólastigi
SVEINBJÖRN BJÖRNSSON: „Ég hef kosið að verja mestum tíma þessarar rœðu
til að fjalla um nauðsyn þess að endurskoða skólakeifi okkar á háskólastigi og
bjóðaþar jjölbreyttari háskólamenntun en verið hefur.“
Menntamálaráðherra Ólafur
G. Einarsson, rektor
Kennaraháskóla íslands,
doktores honoris causa, kæru kand-
idatar og gestir, ágætir samstarfs-
rnenn. Við erum hér saman komin
til að fagna fríðum hópi æskufólks
sem tekur við vitnisburði um árang-
ur sinn í erftðu námi. Nú er hópur-
inn einn hinn stærsti sem braut-
skráður hefur verið, 510 manns,
auk 74, sem lokið hafa viðbótar-
námi og fá skírteini sitt afhent við
annað tækifæri. Ef með eru taldir
þeir sem brautskráðust fyrsta vetr-
ardag og á miðjum þoiTa, verða
kandidatar á þessu háskólaári alls
809, auk 128, sem luku viðbótar-
námi. Þið kandidatar hafið varið
mörgum árum í strangt nám og bíð-
ið þess nú með óþreyju að nýta Ijöl-
breytta þekkingu ykkar til hagsbóta
fyrir land og þjóð. Við erum vön að
fagna miklum sjávarafla og lifum
enn í voninni um ný síldarævintýri.
Líkt og aðrar þjóðir hljótum við
einnig að binda miklar vonir við
ykkar starf að bættum þjóðarhag.
Að okkur setur hins vegar kvíða að
okkur takist ekki að þróa fábreytta
atvinnuhætti okkar til að nýta þekk-
ingu ykkar og menntun sem skyldi.
Okkur er ljóst að við getum ekki
byggt velferð okkar á aukinni sókn
í auðlindir náttúrunnar. Við verðum
að auka verðmæti þeirra afurða sem
náttúran gefur og skapa ný verð-
mæti með þekkingu og hug-
kværnni. Til þess þurfum við
trausta almenna menntun í grunn-
skólum og framhaldsskólum, nú-
tímalega verkmenntun sem laðar til
sín hæf ungmenni, og fjölbreytta
háskólamenntun sem veitir þroska
og yfirsýn og þjálfun til sérhæfðra
starfa og rannsókna. Nútímaþjóðfé-
lag þrífst á þekkingu. Hún veitir
ánægju í líf okkar og gerir hvem
starfsmann hæfari til að átta sig á
nýrri tækni og breyttum viðhorfum.
Við setjum því traust okkar á ykkur
kandidata að þið beitið kröftum
ykkar og þekkingu til að varðveita
þau lífsgæði sem við njótum og
vinna að framþróun lands og þjóð-
ar.
Ekki auðvelt nám
Háskólanám er ekki auðvelt. Há-
skólar nota alþjóðlega viðmiðun í
kröfum sínum til prófa. Margir
námsmenn valda ekki þessum kröf-
um og hverfa frá námi. Undanfarin
ár hafa um 2000 nemendur innritast
í Háskóla íslands á hveiju hausti.
Um tveir þriðju þeirra eru nýnemar,
en einn þriðji nemendur sem eru að
hefja nám aftur þar sem náðu ekki
tilskildum árangri á 1. ári. Um 600
hverfa frá skólanum árlega án þess
að ljúka námi. Flestir heltast úr lest-
inni þegar á fyrsta námsári. Könnun
meðal þeirra bendir til þess að þeir
sætti sig allvel við orðinn hlut. Þó
hlýtur sú hugsun að verða áleitin
hvort við rækjum skyldur okkar við
þennan hluta námsmanna sem
verður ífá að hverfa. Hvort það
nám sem er í boði á háskólastigi sé
í samræmi við þarfir þeirra og þjóð-
arinnar? Háskóli íslands hefur ffá
upphaft verið í hópi rannsóknahá-
skóla. Honum er ætlað að vera í
senn vísindaleg rannsóknastofnun
og vísindaleg fræðslustofnun. Allir
kennarar hans hafa skyldu til rann-
sókna jafnhliða kennslu og í öllum
námsgreinum er fýrst lagður traust-
ur fræðilegur grunnur áður en nám-
ið sveigist að þjálfun til sérhæfðs
starfs eða rannsókna og lokaprófi
með alþjóðlegri viðmiðun eftir 3 til
4 ár hið skemmsta. Það er hinn
fræðilegi grunnur sem reynist
mörgum stúdentum ofviða. Þeim
gæti hins vegar vegnað ágætlega í
öðru háskólanámi sem legði minni
áherslu á fræðilegan gtunn og rann-
sóknir, en beindist þegar í upphafi
að verkmenntun og þjálfun til
staifa. Við eigum ágæta skóla með
þessu sniði svo sem Samvinnuhá-
skólann að Bifröst, Tölvuháskóla
Verzlunarskólans, sumar náms-
brautir Tækniskólans og Háskólans
á Akureyri, en þessir skólar geta að-
eins tekið fáa nemendur. Þversögn-
in í námsframboði á háskólastigi
hér á landi felst í því að eini skólinn
sem stendur öllum stúdentum op-
inn er rannsóknarháskóli sem býður
fræðilegt nám, en það er ekki við
hæfi helmings þeiiTa sem til hans
sækja. Sá ljöldi úr hveijum árgangi
sem hér lýkur ffæðilegu háskóla-
námi er svipaður og gerist með
skyldum þjóðum, en við eigum
ekki sambærilega skóla og aðrar
þjóðir sem bjóða aðgengilegra há-
skólanám með áherslu á verk-
menntun.
Úrræði í þrengingum
Finnar hafa á síðustu árum geng-
ið gegnum miklar efnahagsþreng-
ingar sem em mun alvarlegri en
þær sem við höfum mætt á sama
tíma. Þótt fyrstu viðbrögð þeirra
hafi meðal annars verið að lækka
útgjöld til menntamála hafa þeir nú
blásið til sóknar í þeim málum. Líkt
og við eiga þeir hefðbundna rann-
sóknarháskóla en aðrir skólar á há-
skólastigi hafa verið minna þróaðir.
Aðsókn að námi á háskólastigi fer
hins vegar vaxandi og þeir gera nú
ráð fyrir að 60-65% hvers aldursár-
gangs muni stunda háskólanám af
einhverri gerð. Þar af verði einn
þriðji í rannsóknaháskólum en tveir
þriðju í fagháskólum eða öðmm há-
skólum sem bjóða skemmri verk-
menntun. Lög voru sett árið 1991 til
að byggja upp verk- og fagmenntun
á háskólastigi jafnhliða hinni fræði-
legur menntun sem þar var fyrir.
Um 85 sérskólum sem áður önnuð-
ust æðri verkmenntun hefur nú ver-
ið breytt í 22 fagháskóla sem verða
reknir næstu ár með tilraunasniði.
Markinið finna með þessari tilraun
er að auka gæði og virðingu verk-
og fagmenntunar, efla sjálfræði
stofnananna, styrkja almennan
þekkingargmnn þeirra sem hljóta
þjálfun til sérhæfðra starfa og
tengja nám þeirra þörftim atvinnu-
vega í hveiju héraði. Þessi tilraun
Finna gæti orðið okkur gagnleg fyr-
irmynd.
Glímt við aukna aðsókn
A þessu vori átti ég þess kost að
kynna mér málefni háskóla í
Bandaríkjunum í boði Upplýsinga-
þjónstu þeirra. Þróun háskóla þar í
landi er sérlega forvitnileg vegna
þess að sú aukna aðsókn að háskól-
um sem orðið heíur í Evrópu á síð-
asta áratug og við emm að byija að
glíma við nú var þar fyrr á ferð.
Margur vandi sem við emm nú að
átta okkur á er þeim vel kunnur og
reynsla er komin á þau úrræði sem
til var gripið. Athyglisverð er dreif-
ing stúdenta innan háskólastigsins.
Um þriðjungur þeirra er við nám í
rannsóknarháskólum sem byggja á
fræðilegri undirstöðu, en fullur
helmingur stúdenta er við nám í
skólum sem nefnast „community
colleges" eða héraðsháskólar. Þeir
leggja litla áherslu á rannsóknir en
bjóða nám með lokaprófi eftir tvö
ár, fjölbreytta verkmenntun auk al-
mennra námskeiða sem stúdentar
geta fengið metin sem byrjun á
lengra námi í öðmm skólum. Þessir
skólar standa öllum stúdentum opn-
ir og einnig öðmm fullorðnum sem
vilja stunda nám með starfi eða
hljóta endurmenntun til starfa.
Þessir skólar henta vel þeim stúd-
entum sem vilja þreifa fyrir sér í há-
skólanámi áður en þeir setja sér
ákveðnari maikmið hvort þeir eigi
að stefna á lengra nám í rannsókn-
arháskóla eða fagháskóla. Þar sem
lokapróf úr bandarískum frarn-
haldsskólum felur yfirleitt í sér einu
til tveimur ámm minna nám en evr-
ópskt stúdentspróf má segja að
þessir skólar svari til efsta bekks í
framhaldsskóla og fyrsta árs í há-
skóla hér á landi. Við eigum enga
skóla af þessu tæki en við gætum
auðveldlega komið þeim upp með
því að heimila bestu menntaskól-
um, verkmenntaskólum og fjöl-
brautaskólum okkar að gera tilraun
í þessa átt. Slíkir héraðsháskólar
gætu sérhæft sig í þeirri verkmennt-
un sem best hæfði hverju héraði og
gert stúdentum kleift að stunda nám
sitt lengur heima en ella. Ef til þess
kemur sem nú er til umræðu að
námsár í gmnnskóla og framhalds-
skóla verði lengt svo að unnt verði
að ljúka stúdentsprófi ári fyrr, gæti
eins árs héraðsháskóli komist fyrir í
sama húsnæði og nýtt þá kennslu-
krafta sem þegar em við framhalds-
skólann. Full ástæða er einnig til að
endurskoða markmið „öldunga-
deilda“ sem vel hafa þjónað við
marga framhaldsskóla. Auk þess að
opna fullorðnum leið til náms að
stúdentsprófi ættu þessar deildir að
bjóða styttri verkmenntun og end-
urmenntun og væm þannig eðlileg-
ur hluti héraðsháskóla.
Athyglisverð fjarkennsla
Annar þáttur í bandarísku há-
skólastarfi sem gæti orðið okkur
gagnleg fyrirmynd er framkvæmd
endurmenntunar og samvinna há-
skóla um fjarkennslu í stijábýlum
ríkjum. I flestum ríkjum er sjón-
varpstækni notuð til að samnýta
fyrirlestra. Fræðsluefni er sent um
Ijósleiðara milli byggðarlaga og
skóla og því er einnig dreift um
byggðir með örbylgjum. Háskólar
og framhaldsskólar eiu tengdir með
tvívirku sjónvarpsneti. Fólk sem
vill stunda háskólanám með fjar-
kennslu getur sótt tíma í nálægan
framhaldsskóla, hlýtt á fyrirlesara í
sjónvarpi og spurt þá spuminga þar
sem kennarinn sér spytjandann f
sínu sjónvarpstæki. Þessi tækni er
einnig notuð til endurmenntunar
þjónandi starfsfólks í dreifbýli,
meðal annars fólks í heilbrigðis-
störfum og annarra sem ekki eiga
heimangengt. Hér á landi em allar
tæknilegar forsendur til að nýta
Ijósleiðara og örbylgju til sömu
nota. Háskóli íslands hefur unnið
að undirbúningi slíkrar íjarkennslu
í samráði við Kennaraháskóla Is-
lands og Háskólann á Akureyri, en
æskilegast væri að allir skólar á há-
skólastigi og Ifamhaldsskólar
stæðu saman um not af þessari
tækni. Reyndar liggur beinast við
að sameina krafta slíks fræðslu-
sjónvarps og íslenska menntanets-
ins því að ljarkennsla myndi einnig
nýta tölvupóst til orðaskipta milli
kennara og nemenda, svo og bóka-
og gagnasafnskerfi Þjóðarbókhlöð-
unnar. Stofnkostnaður og reksturs-
kostnaður þessa fræðslunets mundi
fljótt vinnast aftur í því hagræði
sem ljarkennsla færði með sér í
dreifðum byggðum.
Mikilvægi upplýsingatækni
Mikilvægi upplýsingatækni í nú-
tímasamfélagi er óumdeilt og notk-
un slíkrar tækni er ekki síður mikil-
væg í háskólastarfi. Þróun í upplýs-
ingatækni er mjög ör í Bandaríkj-
unum og í raun forgangsverkefni
við flesta háskóla. Segja má að
mikilvægasta byltingin sem fylgdi
tölvum hafi ekki verið aukin geta til
reikninga heldur aukin geta til
miðlunar. Miðlun upplýsinga og
meðhöndlun þeirra með tölvutækni
er nú orðin svo ríkur þáttur í dag-
legu starfi háskóla að tryggja verð-
ur öllum greiðan aðgang að gmnn-
þjónustu þessarar tækni án endur-
gjalds. Not þessarar tækni í Ijar-
kennslu em augljós en hún mun
einnig valda straumhvörfum í
kennsluháttum innan háskóla og
auðvelda kennurum að eiga sam-
skipti við nemendur utan kennslu-
stunda og leiðbeina þeim í sjálfs-
námi.
Bætt samband við skóla
A undanfömum ámm hefur Há-
skóli Islands unnið markvisst að því
að nýta þá möguleika sem tölvu-
tækni og upplýsingatækni bjóða
bæði t' kennslu og rannsóknum.
Tölvunet hafa verið lögð innan
húsa Háskólans og milli þeina.
Fyrir rúmu ári öðluðust allir nem-
endur rétt til aðgangs að tölvum og
tölvuneti sem gerir þeim meðal
annars kleift að skiptast á tölvupósti
við innlenda og erlenda aðila og
tengjast kerfí Þjóðarbókhlöðu,
Gegni og erlendum bóka- og
gagnasöfnum. Þessi tækni mun
gegna lykilhlutverki f upplýsinga-
öflun og miðlun í framtíðinni. Mik-
il og ör þróun er i' tölvubúnaði,
tengingum og íjarskiptum. Ætlun
Háskólans er að fylgjast vel með
þessum málum og vera leiðandi á
þessu sviði meðal íslenskra rann-
sóknastofnana. Nú er unnið sérstak-
lega að því að bæta sambandið við
erlenda háskóla með því að fá hrað-
virkari tengingu við útlönd.
Endurskoðun skólakerfisins
Ég hef kosið að veija mestum
tíma þessarar ræðu til að íjalla urn
nauðsyn þess að endurskoða skóla-
kerfi okkar á háskólastigi og bjóða
þar Ijölbreyttari háskólamenntun en
verið hefur. Ég hef nefnt héraðshá-
skóla sem byðu eins til tveggja ára
almennt nám, skemmri verkmennt-
un og endurmenntun og tengja
mætti bestu framhaldsskólum, fag-
háskóla, sem veittu lengri verk- og
fagmenntun á háskólastigi með
áherslu á þjálfun til sérhæfðra
starfa, og rannsóknarháskóla, sem
legðu traustari fræðilegan grunn
áður en kemur að þjálfun til rann-
sókna eða sérfræðistarfa. Með vilja
hef ég forðast að raða skólum okk-
ar á háskólastigi inn í þetta kerfi. Þá
röðun verður hver þeirra að íhuga
fyrir sig. Á vegum menntamálaráð-
herra er nefnd að kanna hugsanlega
samvinnu þeirra skóla sem sinna
uppeldismálum og vonandi verður
þess skammt að bíða að vinna heij-
ist við heildarendurskoðun skóla-
kerfisins á öllu háskólastiginu.
Menntamálaráðherra
Ég vil nota jretta tækifæri til að
þakka menntamálaráðherra fyrir öt-
ula forgöngu hans í málefnum
Þjóðarbókhlöðu, fyrir lög að hans
frumkvæði um Landsbókasafn Is-
lands - Háskólabókasafh og lög um
Rannsóknaráð íslands. Tímans
vegna geymi ég nánari umræðu um
þessi merku mál til haustsins.
Áætlun og stjórnun fjármála
Margt er það í starfi Háskóla ís-
lands sem vert væri að rekja, en ég
kýs að takmarka mál mitt við stutta
lýsingu á nýjum aðferðum við áætl-
un og stjómun íjármála. Háskólinn
hefur alla tíð verið ábyrgur og gæt-
inn í sínum Ijármálum. Undanfarin
ár hefur nemendum farið fjölgandi
og jafnhliða hefur kostnaður við
kennslu aukist meir en fjárveiting-
ar. Kostnaður við kennslu er vissu-
lega háður nemendaljölda en tala
innritaðra nemenda er þó ekki ein-
hlítur mælikvarði í þeim efnum. Þar
skiptir einnig máli virkni nemend-
anna og þær greinar sem þeir velja í
námi. Þetta hefur orðið tilefni til
þess að grandskoða allan rekstur
skólans og huga að því hvemig best
mætti nýta knappar fjárveitingar til
kennslu- og rannsóknarstarfsemi.
Samhliða þessu hefur verið reynt
að meta starf skólans með saman-
burði við hliðstæðar stofnanir í ná-
grannalöndunum. Santanburður á
milli háskóla í mismunandi löndum
er ætíð vandasamur. Kemur þar
margt til. Munur getur verið á
skólakerfi og skólahefð. Launakerfi
og skattakerfi geta verið mjög ólík.
Þá skiptir stærð skóla og kennslu-
hópa einnig miklu máli. Starfsemi
Háskóla íslands er í eðli sínu al-
þjóðleg. Próf frá skólanum veita í
mörgunt tilvikum starfsréttindi á
erlendri gmnd og víða em þau met-
in sem undirstaða til frekara náms.
Slík viðurkenning er bundin því að
skólinn geti sýnt fram á að tiltekn-
um gæðakröfum sé fullnægt. Al-
þjóðlegt samstarf í kennslu og rann-
sóknum er stöðugt að aukast. Nefna
má sem dæmi þátttöku okkar í
rannsóknaáætlunum Evrópusam-
bandsins og umsóknir okkar um
styrki þaðan. Ef við ætlum okkur
þar eðlilega hlutdeild í samræmi
við íslensk fjárframlög verða að-
stæður heima fyrir að veita okkur
jafnræði við það sem gerist annars
staðar. Það er skylda Háskóla Is-
lands að skoða með vissu millibili
stöðu sína í alþjóðlegu samhengi og
kynna yfirvöldum menntamála nið-
urstöður slíkra athugana.
Marktækt mat á kostnaði
Þrátt fyrir mismunandi aðstæður
ætti vinna við kennslu söntu há-
skólagreina að vera sambærileg. 1
samanburði á kennsluvinnu er
stuðst við gögn frá Vestur-Evrópu,
einkum nýlegt mat Svía á þess hátt-
ar gögnum. Þegar áætlað umfang
kennslu samkvæmt þessum stöðl-
um er umreiknað í kostnað er hins
vegar stuðst við íslenska launakerf-
ið og ákvæði í kjarasamningum há-
skólakennara. Eingöngu er reiknað-
ur kostnaður við námsleiðir sem
þegar hafa verið viðurkenndar af
stjómvöldum og allt val er haft í
lágmarki.
Helsti kostur við þetta verklag er
að það gefur marktækt mat á þeim
kosmaði sem fylgir hverri náms-
braut og hveijum „námsþætti" í
skólanum. Slíkir taxtareikningar
em notaðir víðast erlendis og þá
jafnframt lagðir til grundvallar þeg-
ar fjárveiting til skóla er ákveðin.
Kostnaðartölur af þessu tagi auð-
velda mönnum einnig að meta
hvort og hvenær er æskilegt að
ganga til samstarfs við aðra aðila,
erlenda eða innlenda, um tilteknar
námsleiðir. Samráð hefur verið við
menntamálaráðuneytið um þróun
þessara nýju aðferða við fjárhags-
áætlanir skólans og hefur mennta-
málaráðherra lýst vilja sínum til að
þetta verklag verði tekið upp.
Bráðabirgðaniðurstöður þessa
mats benda til þess að þrátt fyrir að
reiknað sé með íslenskum launa-
kjömm, sé kostnaður við þá
kennslu sem nú fer fram í Háskól-
anum um 300 milljónum króna
undir því marki sem staðlamir telja
hæfilegt. Þótt ýmsum atriðum í
kennslu sé áfátt, skortir mest á að
fjárveitingar til reksturs og aðstoð-
arfólks séu sambærilegar við þær
tölur sem staðlamir gefa. Háskólinn
hefur farið fram á auknar fjárveit-
ingar næstu ár til að jafna þennan
mun. Það veltur hins vegar á Al-
þingi hvemig þau mál þróast. Og
minna má á að útgjöld íslendinga til
fræðslumála em vemlega lægri en
frændþjóða okkar á Norðurlöndum
þegar þau em reiknuð sem hlutfall
af vergri landsframleiðslu.
Staðgott vegarnesti
Kæm kandidatar, nú er komið að
þeirri stundu að þið takið við vitnis-
burði Háskólans urn árangur ykkar
í námi. Háskólinn er metinn eftir
menntun þeirra sem frá honum
koma hvort sem það er til frekara
náms í öðmm háskóla eða til starfa
í þjóðfélaginu. Við vonum að ykk-
ur famist vel og þið berið héðan
staðgott vegamesti.
Háskólinn mun alla tíð vera fus
að veita ykkur aðstoð og stuðning
og hverja þá viðbótarnienntun sem
þið kunnið að kjósa og hann rnegn-
ar að veita. Við þökkum ykkur
ánægjulegt samstarf og samvem og
óskurn ykkur og fjölskyldum ykkar
gæfu og gengis á komandi árum.
Guð veri með ykkur.
Fyrírsögn og millifyrírsagnir:
Alþýðublaðiö