Alþýðublaðið - 13.07.1994, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 13.07.1994, Qupperneq 3
Miðvikudagur 13. júlí 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Tjaldstæðisflóð á Búðum Þeir voru heldur óheppnir gestirnir á tjaldstæðinu á Búðum á Snæfellsnesi um síðustu helgi. Stórstreymt var á laugardags- kvöldinu og flæddi inná hluta tjaldstæðisins þar sem það liggur að sjónum. Þrátt fyrir að stæðið væri troðfullt af fólki þá vildi svo vel að ekki höfðu nema nokkrir tjaldað næst sjónum. Vörður sem gætti tjaldstæðisins hafði engan grun um að svonalagað gæti gerst og gat þar af leiðandi ekki varað fólkið við. Sem betur fer urðu litlar skemmdir á búnaði og ástandið varði ekki nema tæpar fjór- ar klukkustundir. Annars var veðrið þessa helgi á Búðum frá- bært, mikil og góð stemmning og fólk á öll- um aldri skemmti sér hið besta. Að sögn staðar- haldara á Búðum sköp- uðust engin vandræði vegna drykkjuskapar og er það nokkur breyting frá því sem stundum hef- ur verið á þessum vinsæla ferðamannastað. 55 krár í STOKKHOLMI: Missa vínveitingaleyfin -og86 knæpur hafa verið viðvaraðar. Hinsvegar fá um 60 slíkar að hafa opið til klukkan 05 aðfaramótt næstkomandi föstudags vegna HM ’94 Dagens Nyheter og Svenska Dagbladet greina frá því að hvorki fleiri né færri en 55 krár í Stokkhólmi og nágrenni hafi misst vínveitingaleyfi sín. Þetta gerðist í kjölfar opinberra aðgerða sem miðast að því að gera rekstrarlegt umhverfi knæpanna „heilbrigð- ara“, en hún hófst fyrir ári síðan. Enn fleiri, eða 86 knæpur, hafa fengið aðvaranir. Venjulega er ástæðan til lokun- ar að veitingamaðurinn hefur „gleymt“ að greiða sín gjöld til ríkisins, eða að bókhaldið er í rúst. Það er líka fréttnæmt úr pöbbalífi Svíþjóðar að á mánudag fengu fjórar vínbúllur til viðbótar leyfi til að hafa opið frameftir nóttu í nótt vegna leiks Svíþjóðar og Brasilíu í undanúrslitum heimsmeistara- keppninnar í knattspymu. Alls 50-60 krár munu standa opnar á fimmtudagsnótt og fá að afgreiða brennivín og bjór til klukkan 5 um morguninn til þyrstra fótboltaáhugamanna. Slíkt leyfi hafa sænsk yfirvöld aldrei fyrr veitt. Atvínnulausír tæplega 5.600 í júnímánuði - Á landsbyggðinni er ástandið áberandi verst á NORÐURLANDIEYSTRA s Aætlað er að atvinnuleysi í júní- Tölur um atvinnuleysi í júní eru að meðaltali í júní. Tæplega 5.300 er atvinnuleysi áberandi mest á mánuði hafi verið tæp 4,2% á ekki endanlegar þar sem Vinnu- voru atvinnulausir í lok mánaðarins Norðurlandi eystra þar sem 722 landinu og nærri 5.600 manns verið málaskrifstofu félagsmálaráðu- en 6.435 í lok maí. I lok júní í fyrra vom skráðir atvinnulausir. Á höfuð- atvinnulausiraðmeðaltali. Atvinnu- neytisins gekk erfiðlega að fá at- voru 4.995 skráðir atvinnulausir. borgarsvæðinu vom l .299 karlar án leysið er meira á höfuðborgarsvæð- vinnuleysistölur frá nokkmm stöð- Áætlað er að á höfuðborgarsvæð- atvinnu og 2.147 konur. Á lands- inu en á landsbyggðinni og mun um vegna sumarleyfa. Sem fyrr seg- inu hafi 3.446 verið atvinnulausir og byggðinni vom 871 karlar skráðir fleiri konur atvinnulausar en karlar. ir vom tæplega 5.600 atvinnulausir 2.140 á landsbyggðinni. Uti á landi atvinnulausir en 1.269 konur. Góðar bækur MM um GÖNGULEIÐIR Mál og menning hefur gefið út fjórar ágætar bækur fyrir ferðafíklana. í fyrsta lagi Göttguleiðir eftir Pál Asgeir Ás- geirsson, leiðsögurit um ljórar vinsælustu gönguleiðir lands- ins. skemmtilega leiðarlýsingar. í öðru lagi þrjár handhægar bækur í bókaflokki sem heitirÁ ferð um lattdid. Björn Hró- arsson fjallar um Ámes- og Rangárvallasýslur, Borgartjarð- arsýslu og Mýrar, - og Þingeyjarsýslu. Allt eru þetta útgáfúr sem bæta úr brýnni þöif, enda fer þeim Ijölgandi. íslending- unum, sem vilja skoða landið sitt með augu og eym opin... Til KÍNA með Unni Kínaklúbbur Unnar stendur fyrir nýjung í ferðum sínum til Kína og skipuleggur ferð á haust-vömsýninguna í Canton í Suður-Kína, en hún hefst 15. október. í ferðinni verður kom- ið við í Hong Kong og Peking. Áður en þessi ferð verður far- in er áætluð almenn skemmti- og fróðieiksferð til Kína 16. september og stendur í 22 daga. Á meðfýlgjandi mynd má sjá kínverskan og evrópskan iðnjöfur spjalla sanaan - væntan- lega um kindsins gagn og nauðsynjar... Ólympíukeppnin í STÆRÐFRÆÐI Síðastliðinn sunnudag, 10. júlí, lögðu tjórir íslenskir kepp- endur af stað til Hong Kong til að taka þátt í alþjóðiegu Ólympíukeppninni í stœrðfrœði. Keppnin hefst í dag og lýk- ur þriðjudaginn 19. júlí. Keppendur íslands er þau Alfreð Hauksson, Bjarni Rúnar Einarsson, Magnús I>ór Torfa- son og Ingileif Hallgrímsdóttir. Fararstjóri er Lárus H. Bjarnason menntaskólakennari og Jón Kr. Arason prófess- or er fulltrúi íslands í dómnefnd keppninnar. Keppendur em valdir í landsliðið að undangenginni landskeppni sém haldin er í tveimur hlutum, forkeppni í október og lokakeppni í mars. Ennfremur er höfð hliðsjón að framnústöðu í Norður- landakeppni sem haldin er árlega í aprfl. Keppendur mega ekki hafa náð 20 ára aldri og þeir mega ekki hafa hufið nám í háskóla. Vegna þessara skilyrða em eðlilega ör skipti á þátt- takendum og hefur aðeins einn þeirra nú, Alfreð Hauksson, áður tekið þátt í alþjóðlegu Ólympíukeppninni í stærðfræði... VERÐBÓLGAN er 1,2% á ársgrundvelli Undanfama þrjá rnánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 0,3%, sem jafhgildir 1,2% verðbólgu á ári. Sam- bærileg breyting á vísitölu vöm og þjónustu á þrem síðustu mánuðum svaiar til 0,2% verðbólgu á ári, samkvæmt nýjustu útreikiúngum Kauplagsnefndar, sem reiknar út vísitölumar. í júlíbyrjun var vísitala framfærslukostnaðar 170,4 stig og hafði hækkað um 0,2% frá því í júní. Vísitaia vöm og þjón- ustu reyndist vera 174,2 stig og hafði hækkað um sama hlut- fall frá í júnf. Það sem hækkaði vísitöluna lítillega er meðal annars 50% hækkun á verði kartallna og kosmaður við notk- un ávísanahefta um 217,3%. Kartöflumar þýða 0,1% liækk- un, heftin 0,06% hækkun...

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.