Alþýðublaðið - 29.07.1994, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 29.07.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ UMRÆÐA Föstudagur 29. júlí 1994 MMLABIB HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Sími: 625566 - Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140 ✓ Kostir Islands gagnvart Evrópusambandinu Síðustu vikur hefur átt sér stað afar gagnleg umræða um af- stöðu íslendinga til Evrópusambandsins, og þá kosti og galla sem myndu fylgja umsókn um aðild. Forystumenn í Alþýðu- flokknum - Jafnaðarmannaflokki íslands, hafa reifað nauð- syn þess, að íslendingar endurmeti stöðuna, og ígrundi hvort rétt sé að neyta þess færis sem gefst með inngöngu hinna Norðurlandaþjóðanna í Evrópusambandið, til að setja fram umsókn. Á sama máli eru greinilega nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, og margir forystumenn úr atvinnulíf- inu. Öðrum finnst umræðan ótímabær; það sé ekki á dagskrá hjá íslendingum að sækja um. í þeim hópi er meðal annars að finna formann utanríkismálanefndar Alþingis, sem telur að engar aðstæður hafi breyst og því ástæðulaust að velta fyrir sér umsókn. Það er hins vegar staðreynd, að aðstæður hafa breyst tals- vert frá því aðild okkar að evrópska efnahagssvæðinu varð að veruleika. Mikilvæg breyting felst til dæmis í því, að miklar líkur eru á því að innan skamms verði allar frænd- þjóðir okkar á Norðurlöndum orðnar að fullgildum félögum í Evrópusambandið. Hver verður þá staða íslands? Einungis þessi breyting réttlætir það, að menn leyfí sér þann munað að velta fyrir sér möguleikum íslands og framtíðarstöðu. s I annað stað liggur það nú fyrir, að tækju íslendingar skjóta ákvörðun um að kanna hvað er í boði hjá Evrópusamband- inu með því að láta reyna á umsókn, þá myndu þeir njóta af- dráttarlauss stuðnings hinna Norðurlandaþjóðanna, auk hins valdamikla Þýskalands. Áhrif Þjóðverja innan Evrópusam- bandsins endurspeglast ef til vill best í þeirri staðreynd, að það var fyrst og fremst fyrir atbeina þeirra að Norðurlöndin fengu kost á aðild miklu fyrr en áður hafði verið lýst af hálfu Evrópusambandsins. Miklu skipta líka fyrir Islendinga hinar vinsamlegu yfirlýsingar leiðtoga Belgíu og Lúxemborgar síðustu dægur. „Þeir sem ekki spyrja, fá ekki svar,“ sagði utanríkisráðherra í sjónvarpsþætti í fyrrakvöld. Menn velta eðlilega íyrir sér hvað yrði í boði fyrir íslendinga, ef þeir myndu sækja um aðild. Við því fæst ekki svar nema með umsókn. ísland stendur og fellur með sjávarútvegi, og forsenda inngöngu í Evrópusambandið eru full yfirráð yfir miðunum. Menn draga í efa að það náist. Forsætisráðherra Belgíu hefur hins vegar bent á, að Norðmenn fengu varanlega undanþágu frá landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins fyrir stóran hluta af landbúnaði sínum, og að mögulega gætu íslendingar fengið svipaða undanþágu fyrir sjávarútveg sinn. Á það reynir hins vegar ekki nema með umsókn. Umsókn um aðild, og samningaviðræður í kjölfar hennar, leiddu í ljós, hvaða kjör væru í boði fyrir Islendinga. Síðan er það þjóðarinnar sjálfrar að fella sinn dóm í þjóðarat- kvæðagreiðslu, hvort niðurstaða slíkra samninga væru ásætt- anleg fyrir framtíð og stöðu íslands. Það verður því dómur þjóðarinnar í heild, sem ræður endanlega úrslitum en ekki vilji eða langanir einstakra forystumanna, eða stjómmála- flokka. Það er ljóst, að með inngöngu hinna Norðurlandaþjóða í Evrópusambandið skapast skammvinnt Iag fyrir mögulega aðild íslendinga í fylgd frændþjóðanna. Umræðan, sem utanríkisráðherra hefur beitt sér fyrir með fulltingi forystu- manna í atvinnulífi, beinist eingöngu að því að menn meti, hvort eigi að nota þetta lag. Ella liggur fyrir, að aðild íslend- inga kæmi ekki til greina fyrr en á næstu öld, og við aðstæð- ur sem væm miklu óhagstæðari. Umræða af þessu tagi getur ekki verið hættuleg neinum. Enn stefnir allt í að lax- veiði sumarsins ætli að skiptast í tvö hom á land- inu. Á Suður- og Suðvestur- landi hefur veiðin verið á köfl- um eftir væntingum, en á öllu Norður- og Norðausturlandi hefur eins árs laxinn nánast ekki látið sjá sig ennþá. Fari það ekki að breytast á allra næstu dögum er hætt við að vonbrigði margra verði mikil sem eiga veiðileyfi sín í ágúst og september. 22 pundari úr Sandá í Þistilfirði Fyrir nokkm lauk einn veiði- hópur ferð sinni í Sandá í Þistil- firði. Þrátt fyrir mikið af dapur- legum veiðifréttum af norðaust- ursvæðinu var árangurinn 24 laxar. Sá minnsti var 13 pund og sá stærsti 22 pund, en veitt er á þijár stangir í Sandá. Stórir lax- ar og há meðalþyngd hefur oft fylgt þessari stórelfu Þistilíjarð- ar og hefur hún iðulega státað af hæstu meðalþyngd allra áa eftir veiðitímabilið. Rólegt í Ormarsá Ormarsá á Sléttu er ein af þeim ám sem á ósa sína á norð- austurhominu, nánari til tekið rétt austur af Raufarhöfn. Síð- asta sumar var veiði þar betri en nokkm sinni áður, en hún end- aði í 366 löxum. Þar, eins og í Sandá í Þistilfirði, er veitt á þijár stangir. Nú er hins vegar allt annað yfirbragð yfir veiðinni í Ormarsá og svo dæmi sé tekið fóm þaðan vanir veiðimenn fyr- ir örfáum dögum með sex laxa eftir þrjá daga við veiðar. Meiri sveiflur á Norður- og Norðausturlandi Sú staðreynd er þekkt að ám- ar á þessu svæði taka mun meiri sveiflur í veiðinni en gerist hér á Suðvesturlandi. Svo dæmi séu tekin um þessar gríðarlegu sveiflur datt veiðin í Ormarsá á árabilinu 1981 til 1874 niður í 65 laxa að meðaltali og léleg- asta árið 1982 gaf 45 Iaxa. Með- alveiðin í Ormarsá frá árinu 1974 er 193 laxar og því veiðin 1982 aðeins 23% miðað við þá tölu. Vopnafjarðarárnar virð- ast jafnvel meiri sveiflum háðar. Á ámnum 1981 til 1984 var meðalveiði Hofsár 182 laxar. Lélegasta árið var 1982 sem gaf 141 lax eða um 14% af meðal- veiði árinnar frá árinu 1974 sem er 1012 laxar. Þrátt fyrir þetta er Hofsá ein af þrettán laxveiðiám landsins sem frá árinu 1974 hef- ur gefið yfir 1000 laxa meðal- veiði á ári. Sé litið til þekktra áa hér sunnanlands em sveiflumar ekkert í líkingu við þetta, þó vissulega megi finna undan- tekningar frá reglunni - rétt eins og fyrir norðan. Meðalveiðin í Elliðaánum frá 1974 er 1420 laxar, en lélegasta árið á tíma- bilinu var 1980 með 938 laxa. Það er, þrátt fyrir allt, 66% af meðalveiði áranna frá 1974. Laxá í Leirársveit gaf að meðal- tali frá árinu 1974, 1010 laxa, eða nánast upp á fisk það sama og Hofsá, en langlélegasta árið var 1982 með 545 laxa, eða 54% af meðalveiði. I samræmi við þetta er veiðin núna mun meira í líkingu við meðal ástand hér sunnanlands í sumar, þó enn sé kannski fullsnemmt að af- skrifa seinnihluta sumarsins fyr- ir norðan. Þverá og Norðurá báðar komnar yfír 1100 laxa Einungis tvær veiðiár á land- inu em komnar yfir 1000 laxa múrinn, það er Þverá og Norð- urá í Borgarfirði, sem væntan- lega em nú báðar komnar yfir 1100 fiska. Þær hafa undanfarna daga verið svo hnífjafnar að best er að láta ósagt hvom meg- in forystan liggur á þessari stundu. Svo enn sé vitnað til meðaltalna, þá þarf Norðurá einungis að bæta við sig um það bil 400 löxum til að ná meðal- veiði frá 1974, en heldur lengra í land Þverármegin eða um það bil 900 laxar. Meðalveiði þess- ara áa er raunar í efstu sætunum yfir landið. Þverá er í 2. sæti frá 1974, aðeins örfáum löxum á eftir Laxá í Aðaldal, sem gefið hefur að meðaltali 1985 laxa á tímabilinu. Norðurá er í 3. sæti með 1492 laxa að meðaltali og saxar nú hvert árið af örðu hratt á forskot systra sinna. Fari sem horfir á þessari stundu er hugs- anlegt að Þverá verði komin með efsta sætið í lok sumarsins því ennþá ganga veiðamar af- spymu rólega í Aðaldalnum. Til þess þarf Þverá að gefa urn það bil 530 löxum meira en Aðal- dalurinn í sumar, en forskotið sem hún hefur á þessari stundu er ekki fjarri þeirri tölu, því Laxá í Aðaldal hefur nú gefið um 600 laxa. Samband ungra jafnaðarmanna * STOFNAÐ 1929 * SkrifstofurSUJ oprni ú mónudaginn! Nœstkomandi MÁNUDAG, 1. cígúst, opna skrifstofur Scimbctnds ungra jofnciðarmanna ú nýjan leik eftir stutt sumarfrí. Nýr framkvœmdastjóri Sambands ungra jafnaðarmanna hefur verið rúðinn: BALDUR STEFÁNSSON. Kappinn kemur sterkur inn og mun héðan ífrcí verct bakbeinið í daglegum rekstri og starfi Sambands ungra jafnaðarmanna. Vegnct stjórnmálaústandsins er afar ÁRÍÐANDI að formenn astanefnda og málefnanefnda Sambands ungra jafnaðarmanna og formenn Félagct ungra jafnaðarmanna hafi samband við framkvœmdastjórann sem fyrst. Skipulagning HAUST- og VETRARSTARFS ungra jafnaðarmanna erfyrst á dcigskrá. Hvað gerist í ágúst? SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA Heimilisfang: Hverfisgata 8 - 10, II. hœð, 101 Reykjavík Sími: 91 -29244 + Fax: 91 - 62 91 55 (Heimasímiframkvœmdastjóra SUJ: 91 - 2 53 66)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.