Alþýðublaðið - 29.07.1994, Qupperneq 3
Föstudagur 29. júlí 1994_____________________________wr B _____________________ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Alagning OPINBERRA GJALDA1994:
- ÞORVALDUR í Sfld og fisk og FJARMALARAÐUNEYTIÐ með breiðust bök
ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON í Síld & fisk. Heildargjöld á einstaklinga ogfyrírtœki íReykjavík 1994 nema
samtals 30,2 milljörðum króna samkvœmt skattskrá sem var lögð fram ígœr. Einstaklingar greiða bróðurpart
gjaldanna eða liðlega 21 milljarð. Af þeim ber Þorvaldur hœst gjöld eða 40,7 milljónir.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
böm greiða 3,9 milljónir í út-
svar.
Lögaðilar eða fyrirtæki sem
borga tekjuskatt em liðlega tvö
þúsund talsins og greiða sam-
tals 2,5 milljarða króna. Trygg-
ingagjald 3.153 fyrirtækja nem-
ur samtals 5,5 milljörðum
króna.
Alagningarskráin liggur
frammi á Skattstofu Reykjavík-
ur til loka 10. ágúst og þar geta
allir kynnt sér hvað hver og
einn borgar í opinber gjöld.
Skattar á
Suðurlandi:
Ragnar á Flúðum
hæstur
Ragnar Kr. Krist jánsson
sveppabóndi á Flúðum er
gjaldahæsti einstaklingurinn í
Suðurlandsumdæmi með 7,9
milljónir króna. Mjólkurbú
Flóamanna greiðir hæstu gjöld
lögaðila eða 62,5 milljónir
króna.
Næstur einstaklinga á eftir
Ragnari er Hannes Sigurðsson
í Ölfusi með 4,3 milljónir í op-
inber gjöld og í þriðja sæti er
Agnar Pétursson á Selfossi
sem borgar 3,8 milljónir króna.
Kaupfélag Ámesinga á Sel-
fossi greiðir næst hæst gjöld
lögaðila eða 20,5 milljónir og í
þriðja sæti er Selfosskaupstaður
með tæpar 11 milljónir króna.
Heildarálagning í Suður-
landsumdæmi nam tæplega 2,6
milljörðum króna.
Gjöld í Eyjum:
Kristmann
heildsali hæstur
í Vestmannaeyjum nema
álögð gjöld liðlega 1,2 millj-
örðum króna. Kristmann
Karlsson heildsali er gjalda-
hæstur einstaklinga með rúmar
10 milljónir króna.
Næstur er Sigurjón Jónsson
lyfsali með tæpar átta milljónir
og í þriðja sæti er Bragi Júlí-
usson framkvæmdastjóri með
6,4 milljónir í opinber gjöld.
Þeir Sigurður G. Þórarinsson
og Gunnlaugur Ólafsson
borga einnig yfir 6 milljónir
króna.
Af lögaðilum borgar
Vinnslustöðin mest eða 23
milljónir og síðan kemur Vest-
mannaeyjakaupstaður með
19,6 milljónir og í þriðja sæti er
Isfélag Vestmannaeyja hf. með
16,3 milljónir í opinber gjöld.
Vestfirðir:
Rut bakaði
skipstjórann
Rut Tryggvadóttir bakari á
Isafirði er gjaldahæst einstak-
linga á Vestljörðum með tæpar
5,7 milljónir króna íopinber
gjöld. Guðbjartur Ásgeirsson
skipstjóri er í öðru sæti með 4,2
milljónir króna.
I þriðja sæti yfir gjaldahæstu
einstaklinga er Tryggvi
Tryggvason framkvæmdastjóri
með 4,2 milljónir króna.
Sparisjóður Bolungarvíkur
greiðir mest lögaðila eða 15,5
milljónir en Isaijarðarkaupstað-
ur er í öðru sæti með 13,2
milljónir. í þriðja sæti er Hrönn
hf. með 10,6 milljónir og Orku-
búið er með nær sömu upphæð
í gjöld.
Einstaklingar í Vestfjarða-
umdæmi borga samtals 1,9
milljarða í gjöld en lögaðilar
338 milljónir króna.
Norðurland
vestra:
SR-mjöl borgar
mest
Það kemur ekki á óvart að
SR-mjöl hf. á Siglufirði borgar
mest í opinber gjöld af lögaðil-
um á Norðurlandi vestra. Fyrir-
tækið greiðir samtals 37 millj-
ónir króna en Kaupfélag Skag-
fírðingar kemur næst með 24
milljónir.
I þriðja sæti yfír lögaðila er
Kaupfélagið á Hvammstanga
með 12,8 milljónir og síðan
kemur Þormóður rammi með
12,6 en Skagstrendingur á
Skagaströnd greiðir 12 milljón-
ir.
Af einstaklingum greiðir
Guðjón Sigtryggsson skip-
stjóri á Skagaströnd hæst gjöld
eða samtals 3,5 milljónir króna.
Næstur er Sveinn Ingólfsson
framkvæmdastjóri á Skaga-
strönd með 3,4 og Lárus Ægir
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri á sama stað borgar 3,3
milljónir.
Heildarálagning á Norður-
landi vestra nemur 1,8 milljarði
króna.
Norðurland
eystra: KEA
borgar
70 milljónir
Á Norðurlandi eystra er
Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri
langhæsti greiðandi opinberra
gjalda með 70,3 milljónir
króna. Valdimar Snorrason
skipstjóri á Dalvík er hæstur
einstaklinga með 6,7 milljónir
króna í opinber gjöld.
Akureyrarbær borgar næst
hæst gjöld í umdæminu eða
tæpar 62 milljónir króna og í
þriðja sæti er Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri með 49 millj-
ónir króna. Utgerðarfélag Ak-
ureyringa greiðir 37 milljónir
en Samheiji 26 milljónir.
Af einstaklingum er Eiríkur
Björn Ragnarsson næst hæst-
ur með 5,2 milljónir og Vigfús
lyfsali Guðmundsson á Húsa-
vík borgar 5,2 milljónir króna.
Næstir koma þeir Samheija-
menn Þorsteinn Vilhelmsson
með fimm milljónir og Þor-
steinn Már Bald vinsson með
fjórar milljónir.
Austurland:
Þorsteinn
skipstjóri hæstur
Sá einstaklingur sem borgar
hæstu gjöldin á Austurlandi er
Þorsteinn Kristjánsson skip-
stjóri á Stöðvarfírði sem greiðir
4,4 milljónir króna. Síldar-
vinnslan á Neskaupstað ber
hæstu gjöld lögaðila eða liðlega
13 milljónir króna.
Annar í röðinni yfir skatta-
hæstu einstaklingana er Atli
Viðar Jóhannesson matsmað-
ur á Eskifírði sem borgar 3,3
milljónir og í þriðja sæti er
Hannes Sigmarsson með 3,1
milljón króna.
Hraðfrystihús Eskifjarðar
borgar 13,3 milljónir króna og
Hraðfrystihús Fáskrúðsljarðar
12,5 milljónir.
Heildargjöld á einstak-
linga og fyrirtæki í
Reykjavík 1994 nema
samtals 30,2 milljörðum króna
samkvæmt skattskrá sem var
lögð fram í gær. Einstaklingar
greiða bróðurpart gjaldanna
eða liðlega 21 milljarð. Af
þeim ber Þorvaldur Guð-
mundsson hæst gjöld eða 40,7
milljónir. Af lögaðilum borgar
starfsmannaskrifstofa fjármála-
ráðuneytisins mest eða tæpa
tvo milljarða króna.
Næstur á eftir Þorvaldi á lista
yfir hæstu skattgreiðendur er
Jón I. Júlíusson með 14,8
milljónir og í þriðja sæti er
Gunnar Hafsteinsson með
12,7 milljónir. Þá kemur Ivar
Daníelsson sem greiðir 11,9
milljónir og í fímmta sæti er
Ingimundur Ingimundarson
með 11,7 milljónir. Andrés
Guðmundsson greiðir 10,4
milljónir og þá eru þeir einstak-
lingar upptaldir sem borga yfir
10 milljónir króna í opinber
gjöld í Reykjavík.
Af lögaðilum ber starfs-
mannaskrifstofa fjármálaráðu-
neytisins höfuð og herðar yfir
aðra með tæpa tvo milljarða
króna. Reykjavíkurborg kemur
næst með tæpar 400 milljónir
og í þriðja sæti er Eimskip með
230 milljónir. Fiskveiðisjóður
greiðir 188 milljónir, Lands-
bankinn 183 milljónir, Olíufé-
lagið tæpar 149, Flugleiðir 148
milljónir og Borgarspítalinn
125 milljónir króna. Aðrir lög-
aðilar greiða undir 100 milljón-
ir.
Mestí
tekjuskatt
Af einstökum gjöldum á ein-
staklinga er tekjuskatturinn
hæstur en 42.627 manns er gert
að borga samtals 12,9 milljarða
í tekjuskatt. Næst er útsvar en
76.928 manns greiðir samtals
6,2 milljarða í útsvar. í þriðja
sæti er svo eignarskattur en
22.472 einstaklingar borga
rúman milljarð í eignarskatt.
Liðlega 34 þúsund einstak-
lingar fá tæpar 940 milljónir
króna í skattafslátt til greiðslu
útsvars. Þá fá 18.346 einstak-
lingar 1,2 milljarða króna í
vaxtabæturog 13.300 fá
greiddan bamabótaauka sem
nemur samtals 727 milljónum
króna.
Bömum er gert að greiða
samtals 11,7 milljónir í opinber
gjöld. Tvö böm greiða samtals
108 þúsund krónur í eignarskatt
en 2.884 böm greiða 7,7 millj-
ónir í tekjuskatt og jafnmörg