Alþýðublaðið - 29.07.1994, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FOSTUDAGSMAÐURINN!
Föstudagur 29. júlí 1994
BALDUR STEFÁNSSON, 24 ára stjórnmálafrœðinemi, var Jyrir skömmu ,
Baldur ákvað að ganga til liðs við hreyfingu jafnaðarmanna síðastliðið vor eftir ,
sem nœr svo skjótum frama innan flokks sem stœrir sig afþví að vera laus við öll j
úr Baldri sem víða hefur komið við. Hann var sendill á Þjóðviljanum, sendiherra á,
barþjónn í Ingólfscafé og kynntist grimmum Inúítum. Nú er Baldur jafnaðarmaður t
Hér berjast systkinin Gaman ogAlvara uppá líf ogdauða:
Einsog allir ættu að vita
var Reykjavíkurlist-
inn svo gott sem
skapaður af ungu fólki og
það var einnig unga fólkið er
reyndist öflugast í kosninga-
baráttunni; sögulegum slag
við borgaríhaldið sem end-
aði í vor með sigri félags-
hyggjumanna. Að vonum
hefur farið mest fyrir þætti
ungs, flokksbundins fólks í
Reykjavíkurlistanum og stór
hópur óflokksbundinna hef-
ur sennilega ekki fengið það
lof sem þetta fólk á vissu-
lega skilið. Viðmælandi
okkar í dag tilheyrði einmitt
þessum hópi óflokksbund-
inna og lét víða til sín taka í
starfí Reykjavíkurlistans
sem kosningastjóri unga
fólksins. Þetta sýndist kraft-
mikill strákur sem vflaði fátt
fyrir sér, þótti fylginn sér og
sjarmerandi. Kappinn heitir
BALDJJR
STEFANSSON
og ungliðahreyfingamar á
vinstri vængnum hugsuðu
sér flestar gott til glóðarinn-
ar. Þennan mann væri gott
að næla klónum í. Það
reyndist rétt sem margir
spáðu, að ekki yrði Baldur
lengi óflokksbundinn. I dag
er hann á góðri leið með að
festa sig kyrfilega í sessi
innan flokkakerfisins. Það
var snemma í vor sem hann
gerði upp hug sinn í stjóm-
málum, lýsti því yfir að
hann væri jafnaðarmaður og
gekk til liðs við Samband
ungra jafnaðarmanna. Ein-
sog gengur og gerist innan
hreyfingar jafnaðarmanna
með menn á borð við Baldur
varð frami hans skjótur og
eftir verslunarmannahelgina
tekur hann við starfi fram-
kvæmdastjóra SUJ.
Útsendari Alþýðublaðsins
tók hús á Baldri að heimili
hans í notalegu timburhúsi
að Suðurgötu 4 í Reykjavík.
Myndatökum var aflokið í
hvelli og svo létum við
móðan mása:
- Segðu okkur til að
byrja með hver þú ert
og hvar þú hefur verið.
„Ég er fæddur í Stokk-
hólmi 2. aprfl 1971. Þar sem
foreldrar mínir, Stefán
Baldursson [Þjóðleikhús-
stjórij og Þórunn Sigurðar-
dóttir [leikritaskáld], vom
við nám. Þriggja mánaða
gamall fluttist ég til Islands
og þá í Vonarstræti 8. Hírðist
ég þar uppá háalofti fyrstu
þrjú ár ævinnar. Þá fluttist ég
í Hólana og sleit þar bams-
skónum fram að ellefu ára
aldri við ýmis spellvirki og
bellibrögð. Það var í Hólun-
um sem ég fékk svo hina
yndislega systur mína, Unni
Ösp, í fimm ára afmælis-
gjöf. Við emm tvö systkinin,
passleg kjamafamilía. Unn-
ur Ösp hefur reynst mér sem
bróðir en er að öðm leyti
kyni sínu til sóma í hví-
vetna. Frostaskjól 93 var
síðan heimili mitt með útúr-
dúmm þar til í vor að ég
fluttist hingað á Suðurgöt-
una og er hér með góða
granna á alla vegu.“
- Hvað hefurðu verið
að gera fram á þennan
dag?
„Vinnan göfgar manninn
og verkamaðurinn er verð-
ugur launa sinna. Ég hef
unnið með skóla frá átta ára
aldri. Fyrst sem sendill á
Þjóðviljanum með barna-
skóla og síðan gegndi ég
stöðu sendiherra á Alþingi
með gagnfræðaskóla. Þrett-
án ára gamall vann ég eitt
sumar í fiski á Gmndarfirði
og þaðan rúllaði boltinn í
allan íjandann af sumarstörf-
um. Aukatekjumar hafa auk
þess streymt inn af spila-
mennsku í hinum ýmsustu
hljómsveitum. Þar ber hæst
hina alræmdu stuðgrúppu
Fyrirbæri sem tryllti landann
um langt árabil. í Fyrirbær-
um plokkaði ég djúprafs-
laggígju. [Og fer nú nostal-
gíuhrollur um útsendara Al-
þýðublaðsins.] Það verður
að viðurkennast að allt þar
til að hljómsveitin Kjól og
fíflskitumar náði ekki til-
skildum frama taldi ég að í
bassanum væri framtíð mín
hulin. Ennfremur hef ég í
hjáverkum unnið sem verk-
stjóri hjá borginni og sem
dyravörður og barþjónn á
Ingólfscafé. Hvað varðar
skólagönguna sjálfa þá lá
leiðin frá Hagaskóla í
Menntaskólann í Reykjavík
og þaðan skundaði ég glaður
í bragði í stjómmálafræði-
nám við Háskólann. Sei, sei,
já“
- Afhverju ákvað
ferskur strákur einsog
þú að ganga til liðs við
stjórnmálaflokk; Jafn-
aðarmannaflokk ís-
lands, eina af tákn-
myndum gamla flokka-
kerfisins? Varþetta
svona „Ifyou can’t beat
them -Join them“?
„Nei. Ég myndi frekar
segja að ég hafi valið Jafn-
aðarmannaflokk íslands
vegna þess að hans hug-
myndafræði stóð mér næst.
Ég sá þama vettvang til að
virkja mína krafta og hug-
myndaauðgi. Auk þess tel
ég Jafnaðannannaflokk Is-
lands eina flokkinn á íslandi
sem er blessunarlega laus
við hagsmunatengsl. Þannig
getur þessi stjómmálahreyf-
ing tekið ákvarðanir sem al-
farið eru byggðar á skyn-
semi, án þess að þurfa að
ráðfæra sig fyrst við einhver
baklönd í hagsmunahreyf-
ingum eða hringja í stór-
bokkana."
- Nú hefurðu fengið
smjörþefinn af
Sambandi ungra
jafnaðarmanna
og Alþýðuflokknum.
Hver er forsagan
að þessum
kynnum og hvernig
lístþérá?
„Ég kynntist Ingvari
Sverrissyni [núverandi
varaborgarfulltrúa Reykjav-
íkurlistans] í Háskólanum
fyrir tæpu ári og felldum við
strax hugi saman. [Ingvar er
í sambúð - með konu.] Síð-
an tók ég þátt í ævintýrinu
um Reykjavíkurlistann. Ég
einfaldlega rölti á fund Ein-
ars Arnar Stefánssonar
kosningastjóra og bauð fram
krafta mína, sem hann og
þáði. Þeir einstaklingar sem
mér þótti mest til um þar
voru jafnaðarmenn. Ég,
Magnús Árni [Magnússon,
formaður SUJ] og Ingvar
áttum þar farsælt samstarf
og vomm þeir menn sem
drifu ungliðastarfið á listan-
um áfram. Eftir að ég gekk í
flokkinn síðastliðið vor hef
ég tekið þátt í starfi SUJ, sat
sambandsþing þeirra og síð-
an 47. flokksþingið í Suður-
nesjabæ. Mér líst vel á starf-
ið og á von á að ég finni
þeim hafsjó af hugmyndum
sem ég hef farveg innan
hreyfingarinnar. “
- Nú varstu valinn
framkvæmdastjóri SUJ
um daginn. Er þetta
ekki nokkuð skjótur
frami? Afhverju þú, en
ekki einhver annar?
„Hafandi starfað í stærstu í
kosningabaráttu aldarinnar í
Reykjavík - og gegnl því
starfi sem ég var í þar - þá lá
þetta nokkuð beint við. Þeir
vildu mig í starfið og töldu
mig hæfastan. Ég vildi starf-
ið og taldi mig hæfastan.
Búið mál.“
- Hver verða fyrstu
verk þín sem fram-
kvæmdastjóra SUJ?
Munu verða einhverjar
áherslubreytingar á
starfinu, svosem ein-
sog að gera starfið
skemmtilegra, laða að
fleiri konur og yngra
fólk?
„Ég byrja á mánudaginn
með því að korna mér fyrir
og rússíbaninn húrrar af
stað. Hugmyndirnar eru
nægar. Númer eitt er að
virkja fólkið í hreyfingunni
betur og hafa starfið kröftugt
allt árið. Það gemm við með
því að hafa starfið skemmti-
legra, bjóða uppá fleira en
hráa pólitflc þar sem menn
virðast hafa fest sig í tor-
meltum klisjum sem enginn
venjulegur maður tengir við.
Gera verður hreyfinguna eft-
irsóknarverða, þama sé fé-
lagsskapur hugsandi fólks;
venjulegs fólks sem á sér
draum, kvenna jafnt sem
karla.“
- En nú hefur SUJ
vaxið úr hálfgerðri
sellu upp í það að
vera þúsund manna
hreyfing á fjórum árum.
Er þetta ekki bara
ágætt?
„Samband ungra sjálf-
stæðismanna er átta sinnum
stærri en SUJ. Ekki hættu
þeir við þúsundið og sögðu:
Þetta er harla gott. SUJ gæti
til að mynda verið virkara á
landsvísu og öflugra í fram-
halds- og háskólum."
- Hvað með að lækka
einfaldlega hámarks-
aldurinn í
SUJ úr 35 árum
í 30, létta þannig
yfirbragð
hreyfingarinnar?
„Aldur er afstætt hugtak.
Þeir sem á annað borð eru
gamlir við 35 ára aldurinn
hafa sennilega verið það
þegar um tvítugt."
- Hvað finnst þér um
hugsanlegan
samruna félagshyggju-
manna?
„Við skulum alveg hafa
það á hreinu, að kosninga-
kerfið hér á landi ýtir undir
fjölflokka kerfi. Varanlegt
tveggja flokka kerfi mun
ekki komast á fyrr en kosn-
ingakerfinu hefur verið um-
bylt. Hinsvegar er ástæðu-
laust fyrir vinstriflokkana
fjóra að beijast innbyrðis.
Félagshyggjumenn eyða
alltof miklu púðri í þennan
slag þegar þeir ættu að ein-
beita sér að baráttunni við
íhaldsmenn. í raun ber
minna á milli fjórflokksins á
vinstri vængnum en flokks-
brota innan Sjálfstæðis-
flokksins. Þetta veit hvert
ungabam.“
- Nú eru allar áætlanir
miðaðar við
aldamótin, hvernig
sérðu
Samband ungra
jafnaðarmanna og
Alþýðuflokkinn fyrirþér
árið 2000?
„Ég tel að 70% íslendinga
séu jafnaðarmenn. Ég tel
einnig að eini raunhæfi val-
kosturinn á vinstri vængnum
sé Jafnaðarmannaflokkur ís-
lands. Óvinsæl ríkisstjórn og
deilur forystumanna flokks-
ins hafa tímabundið veikt
stöðu hans. Samband ungra
jafnaðamianna er fólkið sem
tekur við flokknum. Sá sam-
henti og kraftmikli hópur
fólks sem starfar þar innan
dyra mun senn taka völdin.
Hvort sem það verður í risa-
stórum jafnaðarmannaflokki
í tvegggja flokka kerfi eða í
gamla, góða Alþýðuflokkn-
um... Það skiptir ekki máli.