Alþýðublaðið - 29.07.1994, Page 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Föstudagur 29. júlí 1994
VERÐBRÉFASJÓÐIR vaxa
Frá því í ársbyrjun hafa verðbréfasjóðir Landsbréfa hf. vaxið um
hvorki meira né minna en 2 milljarða króna og þar hafa um 4.000
aðilar fjárfest. Ástæðumar fyrir þessu segja þeir Landsbréfamenn
að séu þær helstar að eignasamsetning sjóðanna sé traust sem og
að ávöxtunin er góð, í mörgum tilvikum sú besta þegar miðað sé
við sambærilega verðbréfasjóði...
Bullandi SAMKEPPNI
Omega Farma heitir nýjasta lyíjafyrirtækið á Islandi og er það til
húsa að Kársnesbraut 108 í Kópavogi. Þar vinna 10 starfsmenn og
er Friðrik Kristjánsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann
segir í viðtali við Lyfjatíðindi að samkeppnin á markaðnum sé'
hörð, sérstaklega við erlendu fyrirtækin. Fyrirtækið kappkosti að
bjóða 20 til 30% lægri verð en á fruinlytjunum, en nú hafi erlendu
lyíjafyrirtækin í auknum mæli lækkað verð sinna lyfja. Friðrik
segir það þversögn að á sama tíma og talað sé um að draga úr
lyfjakostnaði séu samþykkt lög sem gera munu erlendum lyfja-
framleiðendum kleift að halda uppi háum verðum á einkaleyfis-
vernduðum lyfjum. Hann segir að það yrði íslenskum lyfjaiðnaði
lyftistöng ef aðlögunartíminn yrði lengdur í að minnsta kosti 10 ár.
Islenska ríkið myndi spara hundruð milljóna á hveiju ári aðlögun-
artímans, enda séu íslensk lyf yfirleitt ódýrari en samsvarandi er-
lend lyf...
ÍSLENSKT og gott
Tæknisvið Flug-
leiða hugsar stórt.
Það býr yfir úr-
vals húsnæði og
úrvals mannskap,
vel menntuðum
flugvirkjuin og
öðrum sem að
tæknimálum flug-
véla koma. Nú
hefur tæknisviðið gert tilboð í stórskoðanir á sex Fokker 50 flug-
vélum írska flugfélagsins Air Lingus og fleiri tilboð erlendis í at-
hugun. Unnið er að 12 þúsund tíma skoðunum á Fokkervélum
norska flugfélagsins Norwegian Air Shuttle, einni skoðun lokið
og tvær eftir. Norðmenn eru afar ánægðir með alla þjónustu Flug-
leiða. „Þetta er tiltölulega lítill markaður og fljótt að spyrjast út
hvemig vinnu og þjónustu menn fá“, segir Guðmundur Pálsson
framkvæmdastjóri tæknisviðs Flugleiða. Hann segir að öllu skipti
að hægt sé að bjóða hagstæð verð og fyrsta flokks þjónustu. Á
meðfylgjandi mynd má sjá Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða,
taka við staðfestingu á viðurkenningu Evrópusambands flugmála-
stjóma, sem Flugleiðir fengu fyrr í sumar. Með honum á myndinni
er hluti af hinum fæm flugvirkjum félagsins og Björn Bjarnason
deildarstjóri flugöryggisdeildar íslensku flugumsjónarinnar...
FERÐAHELGIN mikla
Um helgina er um að gera að vanda sig í umferðinni. Spáð er góðu
veðri - og þarafleiðandi verður umferðin á vegum landsins með
allra mesta móti um verslunarmannahelgina, mestu umferðarhelgi
ársins. Umferðarráð> mun í samstarfi við lögregluna um land
allt staifrœkja upplýsingamiðstöð á skrifstofu ráðsins alla helg-
ina. Útvarp Umferðarráðs mun verða með útsendingar á öllum
útvarpsstöðvum eftir þörfum. Umferðarráð hvetur ökumenn til að
aka með jöfnum hraða, framúrakstur er klára vitleysa í umferð
verslunamiannahelgar. Varúð skal höfð í hávegum næstu daga
sem endranær...
Nýr ÚTIBÚSSTJÓRI
Nýr útibússtjóri hefur verið ráðinn að útibúi Islandsbanka í Lækj-
argötu í Reykjavík. Þrjátíu og fjórir umsækjendur voru um stöðuna
en fyrir valinu varð Árni Gunnarsson viðskiptafræðingur. Ámi er
43 ára gamall, fyrmrn framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins og
síðar Fóðurblöndunnar. Ámi er nú framkvæmdastjóri Rekstrar-
félagsins Sólar hf. og tók við því starfi þegar lánastofnanir tóku
yfir rekstur Sólar hf. í fyrra. Ami mun hefja störf í bankanum 15.
ágúst...
MOLAR
6. ágúst opna þrjár sýningar á KJARVALSSTÖÐUM:
Kristínn G. Harðarson, Sigurður Ami Sigurðsson og Kjarval
Það er margt á döfínni á Kjarvals-
stöðum um þessar mundir. Laugar-
daginn 6. ágúst, klukkan 16:00,
verða þar formlega opnaðar hvorki meira
né minna en þrjár sýningar; það er á verk-
um Kristins G. Harðarsonar og Sigurð-
ar Árna Sigurðssonar
ásamt sumarsýningu á verk-
um Jóhannesar Sveinsson-
ar Kjarval. Sýningamar em
opnar daglega til 11. septem-
ber frá klukkan 10 til 18. Hin
rómaða kaffistofa Kjarvals-
staða er opin á sama tíma.
I Miðsal verður sýning á
verkum Kristins G. Harðar-
son. Hann hefur markað sér
persónulegt svið með list-
sköpun sinni, sem umfram
allt felst í því að taka hvers-
dagslega viðfangsefni - oft-
ast byggð á reynslu úr hinu
daglega lífi - úr sínu upp-
runalega umhverfi og gefa
þeim nýja og óvænta merk-
ingu. Þótt verk hans séu oft
fátækleg að efni og gerð búa
þau ávallt yfir furðulegri
ljóðrænu. Kristinn G. dvelst
nú vestan hafs og hefur gert
um nokkurt skeið.
í Vestursal verður Sigurð-
ur Ami Sigurðsson með sýn-
ingu. Hann hefur verið bú-
settur í París undanfarin ár
og hafa verk hans vakið at-
hygli þar og víðar í Evrópu.
Sigurður Arni sýnir málverk
og teikningar. Meðal þeirra
em verk unnin út frá hug-
myndum um almennings-
garða. I verkum sínum bygg-
ir hann á náttúruformum en
forðast rökhyggju natúral-
ismans.
I Austursal verður sýning
á verkum úr eigu Kjarvals-
safns. Jóhannes Sveinsson
Kjarval er óumdeilanlega
einn helsti meistari íslend-
inga á myndlistarsviðinu og
skipa verk hans sérstakan
sess í hugum þjóðarinnar.
Hann fæddist á Efriey í Með-
allandi árið 1885 og lést í
Reykjavík árið 1972. Kjarval
skildi eftir sig lífsstarf sem
verður að telja einn af mikil-
vægari hlutunum í menning-
ararfi íslensku
þjóðarinnar. Kjar-
valsstaðir eiga
mikið safn verka
eítir listamanninn
og stofninn af því
er gjöf hans til
Reykj avíkurborgar
sem afhent var ár-
Sýnum henni
þá virðingu
sem hún verðskuldar.
Umhverfisráðuneytið
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
ið 1968. Síðan þá
hafa íjölmargir
einstaklingar gefið
safninu ómetanleg
verk og hafa þann-
ig með velvilja
sínum stuðlað að
því, að halda
minningu hins
stórkostlega Kjar-
vals hátt á lofti á
verðugan hátt.
Sýningin verður
að teljast einstakt
tækifæri fyrir al-
menning til að
skoða verk eftir
meistarann.
SPARISKIRTEINA RIKISSJœS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1984-1 .fl. 01.08.94-01.02.94 kr. 66.678,20
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Alþýðublaðsmynd /
EinarÓlason
Reykjavík, júlí 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS