Alþýðublaðið - 29.07.1994, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 29.07.1994, Qupperneq 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Föstudagur 29. júlí 1994 VERÐBRÉFASJÓÐIR vaxa Frá því í ársbyrjun hafa verðbréfasjóðir Landsbréfa hf. vaxið um hvorki meira né minna en 2 milljarða króna og þar hafa um 4.000 aðilar fjárfest. Ástæðumar fyrir þessu segja þeir Landsbréfamenn að séu þær helstar að eignasamsetning sjóðanna sé traust sem og að ávöxtunin er góð, í mörgum tilvikum sú besta þegar miðað sé við sambærilega verðbréfasjóði... Bullandi SAMKEPPNI Omega Farma heitir nýjasta lyíjafyrirtækið á Islandi og er það til húsa að Kársnesbraut 108 í Kópavogi. Þar vinna 10 starfsmenn og er Friðrik Kristjánsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann segir í viðtali við Lyfjatíðindi að samkeppnin á markaðnum sé' hörð, sérstaklega við erlendu fyrirtækin. Fyrirtækið kappkosti að bjóða 20 til 30% lægri verð en á fruinlytjunum, en nú hafi erlendu lyíjafyrirtækin í auknum mæli lækkað verð sinna lyfja. Friðrik segir það þversögn að á sama tíma og talað sé um að draga úr lyfjakostnaði séu samþykkt lög sem gera munu erlendum lyfja- framleiðendum kleift að halda uppi háum verðum á einkaleyfis- vernduðum lyfjum. Hann segir að það yrði íslenskum lyfjaiðnaði lyftistöng ef aðlögunartíminn yrði lengdur í að minnsta kosti 10 ár. Islenska ríkið myndi spara hundruð milljóna á hveiju ári aðlögun- artímans, enda séu íslensk lyf yfirleitt ódýrari en samsvarandi er- lend lyf... ÍSLENSKT og gott Tæknisvið Flug- leiða hugsar stórt. Það býr yfir úr- vals húsnæði og úrvals mannskap, vel menntuðum flugvirkjuin og öðrum sem að tæknimálum flug- véla koma. Nú hefur tæknisviðið gert tilboð í stórskoðanir á sex Fokker 50 flug- vélum írska flugfélagsins Air Lingus og fleiri tilboð erlendis í at- hugun. Unnið er að 12 þúsund tíma skoðunum á Fokkervélum norska flugfélagsins Norwegian Air Shuttle, einni skoðun lokið og tvær eftir. Norðmenn eru afar ánægðir með alla þjónustu Flug- leiða. „Þetta er tiltölulega lítill markaður og fljótt að spyrjast út hvemig vinnu og þjónustu menn fá“, segir Guðmundur Pálsson framkvæmdastjóri tæknisviðs Flugleiða. Hann segir að öllu skipti að hægt sé að bjóða hagstæð verð og fyrsta flokks þjónustu. Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða, taka við staðfestingu á viðurkenningu Evrópusambands flugmála- stjóma, sem Flugleiðir fengu fyrr í sumar. Með honum á myndinni er hluti af hinum fæm flugvirkjum félagsins og Björn Bjarnason deildarstjóri flugöryggisdeildar íslensku flugumsjónarinnar... FERÐAHELGIN mikla Um helgina er um að gera að vanda sig í umferðinni. Spáð er góðu veðri - og þarafleiðandi verður umferðin á vegum landsins með allra mesta móti um verslunarmannahelgina, mestu umferðarhelgi ársins. Umferðarráð> mun í samstarfi við lögregluna um land allt staifrœkja upplýsingamiðstöð á skrifstofu ráðsins alla helg- ina. Útvarp Umferðarráðs mun verða með útsendingar á öllum útvarpsstöðvum eftir þörfum. Umferðarráð hvetur ökumenn til að aka með jöfnum hraða, framúrakstur er klára vitleysa í umferð verslunamiannahelgar. Varúð skal höfð í hávegum næstu daga sem endranær... Nýr ÚTIBÚSSTJÓRI Nýr útibússtjóri hefur verið ráðinn að útibúi Islandsbanka í Lækj- argötu í Reykjavík. Þrjátíu og fjórir umsækjendur voru um stöðuna en fyrir valinu varð Árni Gunnarsson viðskiptafræðingur. Ámi er 43 ára gamall, fyrmrn framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins og síðar Fóðurblöndunnar. Ámi er nú framkvæmdastjóri Rekstrar- félagsins Sólar hf. og tók við því starfi þegar lánastofnanir tóku yfir rekstur Sólar hf. í fyrra. Ami mun hefja störf í bankanum 15. ágúst... MOLAR 6. ágúst opna þrjár sýningar á KJARVALSSTÖÐUM: Kristínn G. Harðarson, Sigurður Ami Sigurðsson og Kjarval Það er margt á döfínni á Kjarvals- stöðum um þessar mundir. Laugar- daginn 6. ágúst, klukkan 16:00, verða þar formlega opnaðar hvorki meira né minna en þrjár sýningar; það er á verk- um Kristins G. Harðarsonar og Sigurð- ar Árna Sigurðssonar ásamt sumarsýningu á verk- um Jóhannesar Sveinsson- ar Kjarval. Sýningamar em opnar daglega til 11. septem- ber frá klukkan 10 til 18. Hin rómaða kaffistofa Kjarvals- staða er opin á sama tíma. I Miðsal verður sýning á verkum Kristins G. Harðar- son. Hann hefur markað sér persónulegt svið með list- sköpun sinni, sem umfram allt felst í því að taka hvers- dagslega viðfangsefni - oft- ast byggð á reynslu úr hinu daglega lífi - úr sínu upp- runalega umhverfi og gefa þeim nýja og óvænta merk- ingu. Þótt verk hans séu oft fátækleg að efni og gerð búa þau ávallt yfir furðulegri ljóðrænu. Kristinn G. dvelst nú vestan hafs og hefur gert um nokkurt skeið. í Vestursal verður Sigurð- ur Ami Sigurðsson með sýn- ingu. Hann hefur verið bú- settur í París undanfarin ár og hafa verk hans vakið at- hygli þar og víðar í Evrópu. Sigurður Arni sýnir málverk og teikningar. Meðal þeirra em verk unnin út frá hug- myndum um almennings- garða. I verkum sínum bygg- ir hann á náttúruformum en forðast rökhyggju natúral- ismans. I Austursal verður sýning á verkum úr eigu Kjarvals- safns. Jóhannes Sveinsson Kjarval er óumdeilanlega einn helsti meistari íslend- inga á myndlistarsviðinu og skipa verk hans sérstakan sess í hugum þjóðarinnar. Hann fæddist á Efriey í Með- allandi árið 1885 og lést í Reykjavík árið 1972. Kjarval skildi eftir sig lífsstarf sem verður að telja einn af mikil- vægari hlutunum í menning- ararfi íslensku þjóðarinnar. Kjar- valsstaðir eiga mikið safn verka eítir listamanninn og stofninn af því er gjöf hans til Reykj avíkurborgar sem afhent var ár- Sýnum henni þá virðingu sem hún verðskuldar. Umhverfisráðuneytið AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA ið 1968. Síðan þá hafa íjölmargir einstaklingar gefið safninu ómetanleg verk og hafa þann- ig með velvilja sínum stuðlað að því, að halda minningu hins stórkostlega Kjar- vals hátt á lofti á verðugan hátt. Sýningin verður að teljast einstakt tækifæri fyrir al- menning til að skoða verk eftir meistarann. SPARISKIRTEINA RIKISSJœS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1984-1 .fl. 01.08.94-01.02.94 kr. 66.678,20 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Alþýðublaðsmynd / EinarÓlason Reykjavík, júlí 1994. SEÐLAB ANKIÍSLANDS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.