Alþýðublaðið - 18.08.1994, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÁDEILDA
Fimmtudagur 18. ágúst 1994
PALLBORÐ: Jón Ármann Héðinsson
umsókn sé sett fram sé mál sem
sé alls ekki á dagskrá á næstu
árum, kannski eftir 1996 til
1998.
Eg hefi áður en Davíð Odds-
son fór utan, lýst þeirri skoðun
minni, að málið sé alls ekki á
dagskrá á þessari öld vegna
mjög viðkvæmra atriða, svo
sem breytinga á stjómarskrá og
stjómunar á fiskveiðum. Ný og
endurskoðuð stefna Evrópu-
sambandsins tekur gildi í árs-
byrjun 2003. Þá fá Norðmenn
ekki undanþágur, sem þeir hafa
í dag. Semsagt, enginn veit nú
eða á næstu ámm hvemig fisk-
veiðistefnan verður. Eg trúi því
ekki að Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra, vilji
gefa eftir á þessum sviðum.
Svo er viðtalið í Alþýðublað-
inu 5. ágúst, sem varð til þess
að ég sendi þessar línur. Þar
segir ráðherrann: „Knýjum
dyra nú meðan samningsað-
staða okkar er góð“. Jón Bald-
vin vitnar nokkmm sinnum í
viðtölum um nauðsyn heima-
vinnu. Þá er best að heljast
handa. Kynna þarf málið mjög
vel fyrir þjóðinni og leggja
fram tillögur að samningi. Ég
tek ekki í mál að einhveijir
embættismenn ráðherra fari án
vitundar alþjóðar með samn-
ingsdrög í svo mikilvægu hags-
munamáli íslensku þjóðarinnar.
Það væri sæmandi fyrir utan-
ríkisráðherrann að láta þýða
samninginn við Noreg, þar sem
hann hefur sagt hann mjög
góðan. Hins vegar er staðan
þannig í dag, að mikill meiri-
hluti Norðmanna lýsa sig and-
vígan samningnum. Þess vegna
er skynsamlegt að doka við
með allar yfirlýsingar fram yfir
niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslu Norðmanna.
Höfundur er fyrrverandi þingmaður.
„Éghefiáðuren
Davíð Oddsson fór
utan, lýst þeirri
skoðun minni,
að [Evrópu-
sambands-Jmálið
séallsekkiá
dagskrá á þessari
öld vegna mjög
viðkvæmra atriða,
svosembreytinga
á stjómarskrá og
stjómunará
fiskveiðum.“
Hve lengi standa töluð orð?
Það velkist fyrir mér og
mörgum öðrum hvað
mikið mark er takandi á
viðtölum við utanríkisráðherra,
Jón Baldvin Hannibalsson.
Þetta kann að hljóma nokkuð
undarlega, ef mið er tekið af
góðum kynnum fyrr á árum. Ég
fæ ekki séð annað en ráðherra
gæti ekki tungu sinar eða minn-
ið sé dalandi. Seint vil ég fall-
ast á það, að hann sé ekki leng-
ur trúverðugur. Væri komið
svo fyrir honum, er skynsam-
legast að hætta ráðherradómi.
Hversvegna læt ég þetta fara
frá mér? Einfaldlega vegna
orða hans sjálfs. Hann sem sagt
skapar þetta viðhorf gagnvart
sér sjálfur. Því er nú verr.
Viku fyrir flokksþing sagði
Jón Baldvin við Ríkisútvarpið
þetta: „Fréttin í Aftenposten er
röng (um að íslendingar vilji
sækja strax um aðild að Evr-
ópusambandið) og það er rangt
að ég ætli að láta flokksþing
Alþýðuflokksins gera eitt eða
neitt. Við höfum haft málefna-
hóp að starfi frá því í apríl og
það er mikill misskilningur ef
menn halda að flokksþing Al-
þýðuflokksins muni einfaldlega
komast að þeirri niðurstöðu, að
við viljum sækja um aðild
strax. Málið hefur aldrei legið
þannig“.
Síðar í viðtalinu rekur Jón
Baldvin glögglega hversu lang-
an tíma málið rnuni taka, eða
um 1 1/2 - 2 ár, og Evrópusam-
bandið muni rækilega skoða
stöðu landsins. Jón Baldvin
segir stöðuna góða og það ætti
ALAUGARDAG
Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt
að skoða virkjanir Landsvirkjunar.
Laugardaginn 20. ágúst kl. 13-17
verða eftirtaldar stöðvar til sýnis:
• Ljósafossstöð og
Steingrímsstöð við Sog.
• Blöndustöð.
c
LANDSVIRKJUN
ekki að vera vandamál þess
vegna. Hann bendir á að leggja
þurfi málið fyrir þjóðina og það
muni kalla á stjómarskrárbreyt-
ingu. „Þetta vita allir menn og
þetta vita allir í Alþýðuflokkn-
um“. Þetta var sem sagt viku
fyrir þingið.
Síðan er ályktun um Evrópu-
sambandið lögð fram og í með-
ferð þingfúlltrúa er henni vem-
lega breytt. Sá kafli,
sem ráðherrann hefur
hvað oftast notað í
viðtölum, eins og
hann vill túlka málið
um aðildarumsókn
strax hljóðar svo:
„Þess vegna ályktar
flokksþingið að
hagsmunum Islend-
inga verði til fram-
búðar best borgið
með því að ísland
láti á það reyna hvort
unnt er að tryggja
brýnustu þjóðarhags-
muni Islendinga við
samningaborðið.
Endanleg afstaða til
hugsanlegrar aðildar
að Evrópusamband-
inu verður hins vegar
ekki tekin fyrr en
samningsniðurstöður
liggja fyrir og hafa
verið rækilega
kynntar. Islenska
þjóðin mun að sjálf-
sögðu eiga síðasta
orðið um það mál í
almennri þjóðarat-
kvæðagreiðslu".
Þessi kafli er auð-
kenndur með sérletri
í skjölunum. Svo
segir: „Akvörðun um
að leggja ffam aðild-
ammsókn er enn
ekki tímabær“.
Nú gerast þeir at-
burðir, sem öll þjóð-
in hefur margheyrt
um og þarf ég ekki
að fjalla neitt um hér.
Semsé að Jón Bald-
vin fer erlendis, og
kemur galvaskur
heim og ávarpar
þjóðina og leggur
áherslu á að umsókn
sé send strax. Hann
er sérstaklega spurð-
ur um umsóknina í
lokin og endurtekur
vilja sinn að senda
umsókn inn nú þeg-
ar.
Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, fer
einnig utan, en kem-
ur með það mat á að-
stöðu okkar, að um-
sókn sé alls ekki á
dagskrá og því standi
málin í samræmi við
ályktun Alþingis og
stefnu ríkisstjómar-
innar. Mest sé um
vert að gulltryggja
samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæð-
ið og hagsmuni Is-
lendinga samkvæmt
þeim. Hvort aðildar-