Alþýðublaðið - 18.08.1994, Side 7

Alþýðublaðið - 18.08.1994, Side 7
Fimmtudagur 18. ágúst 1994 VESTFIRÐIR ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 SIGHVATUR BJÖRGVINSSON, ráðherra iðnaðar, viðskipta, heilbrigðis og tryggingamála, hefur á kjörtímabilinu verið afar röskur við að heimsækja kjördæmin og ýmsa landshluta. 8. til 10. ágúst síðastliðinn hélt hann ásamt filðu fömneyti til Vestíjai'ða og ferðaðist um VESTUR-BARÐASTRANDARSÝSLU. Hér á síðunni má sjá nokkur reisubókarbrot og svipmyndir frá velheppnuðu ferðalagi: Ráðherra á ferð og flugi o o Sighvatur Björgvinsson, ráð- herra iðnaðar, viðskipta, heil- brigðis og tryggingamála, hefur á kjörtímabilinu verið afar röskur við að heimsækja kjördæmin og ýmsa landshluta. Ráðherra ferðaðist um Vestur-Barðastrandarsýslu 8. til 10. ágúst síðastliðinn og hér á síðunni má sjá nokkur reisubókaibrot og svip- myndir frá velheppnuðu ferðalagi. f för með ráðherranum voru Margrét S. Björnsdóttir aðstoðar- maður ráðherra, Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Sigurður Eðvarð Arnórsson framkvæmdastjóri og Leifur Bjarnason sem gegndi einu vandasamasta hlutverki ferðarinnar; bifreiðarstjómun. Ekki má síðan gleyma Arna Þ. Árnasyni skrifstofustjóra sem bar hita og þunga undirbúnings ásamt þeim Margréti S. og Sigurði Eðvarði. Mánudagur Lagt var af stað undir hádegi mánu- daginn 8. ágúst og flogið með Flug- leiðum sem leið lá til Patreksjjarðar. Strax eftir hádegi var byrjað á að heimsækja fyrirtæki á staðnum. Þau fyrirtæki sem heimsótt var eru: Oddi hf. (útgerð, frystihús og saltfisk- vinnsla), tengiliður Sigurður Viggós- son; Straumnes hf. (fiskvinnsla) og Háanes hf. (útgerð), tengiliður Guð- finnur Pálsson; Fiskmarkaður Vest- fjarða, tengiliður Ólafur Steingríms- son; Vesturver (fiskvinnsla), tengilið- ur Reynir Finnbogason; Dröfn hf. (fiskverkun), Dröfn Árnadóttir; Nýja bakaríið, tengiliður Kristín Björns- dóttir og að lokum Bjarg hf. (físk- verkun), tengiliður Héðinn Jónsson. Eftir heimsóknirnar í ofangreind fyrirtæki var haldið til fundar með starfsfólki og stjóm sjúkrahússins í bænum og hafði Símon Fr. Símonar- son framkvæmdastjóri umsjón með þeirri heimsókn. Seinni partinn héldu ferðalangamir svo til fundar með bæjarstjóm Vestur- byggðar (Patreksfjörður og Bíldudal- ur). Hana skipa Ólafur Arnfjörð (A) bæjarstjóri, Jón Guðmundsson (A), Magnús Björnsson (B), Anna Jens- dóttir (B), Gísli Ólafsson (D), Nanna Sjöfn Pétursdóttir (D), Ólafur Örn Ólafsson (D), Bjarni S. Hákonarson (D), Finar Pálsson (F) forseti bæjar- stjómar. Einnig sat fundinn Sigurður Ingi Guðmundsson skrifstofustjóri. Eftir kvöldverð hélt ráðherrann op- inn fund um atvinnu- og efnahagsmál- in í Félagsheimili Patreksfjarðar. Þriðjudagur Daginn eftir, þnðjudaginn 9. ágúst, var ekið um Barðaströndina og vita- skuld var eðalkratinn Kristján Þórð- arson á Breiðalæk meðal þeirra sem heimsóttir vom. Síðdegis var haldið til TálknaJjarð- ar þar sem höfðinginn Steindór Ög- mundsson tók á móti hópnum og leiddi síðan um fyrirtæki í bænum. Fyrirtækin sem sótt voru heim em: Hraðfrystihús Tálknafjarðar (útgerð og fiskvinnsla), tengiliður Pétur Þor- steinsson; Þórsberg (saltfiskverkun), tengiliður Guðjón Indriðason og loks Sveinseyrarlax. Undir kvöldmat fundaði ráðherra með hreppsnefnd Tálknafjarðar en hana skipa Björgvin Sigurjónsson (D) oddviti, Jörgína E. Jónsdóttir (D), Finnur Pétursson (D), Steindór Ögmundsson (H) og Kristín Ólafs- dóttir (H). Eftir kvöldmat var haldinn opinn Á SJÚKRAHÚSINU á Patreks- Jirði var fundað með starfsfólki og stjórn og rœddur vaitdi heilsugœsl- unnar. Eðalkratinn KRISTJÁN ÞÓRDARSON, athafnamaður á Breiðalcek á Barðaströnd, heimsótt- ur. Ráðherra, HANNES BJARNASON og JÓN BEK huga að eldislaxinum hjá Sveins- eyrarlaxi. Saltfiskverkunin hjá Nausti hf. í Bíldudal skoðuð. Þarna rœður ríkj- um MAGNÚS BJÖRNSSON. fundur um atvinnu- og efnahagsmálin líkt og kvöldið áður, en nú í Félags- heimili Tálknafjarðar. Miðvikudagur Síðasti dagur heimsóknar Sighvats Börgvinssonar til Vestur-Barðastrand- arsýslu var undirlagður um morguninn af ferð í Rauðasandshrepp þar sem ýmsir staðir vom sóttir heim, til að mynda Skólinn að Örlygshöfn og Minjasafnið að Hnjóti þar sem Egill Ólafsson lóðsaði menn um. Eftir hádegi var haldið til Bíldudals þar sem fundað var með fram- Frá fundi ráðherra með bœjar- stjórn VESTURBYGGDAR (Patreksfjarðar og Bíldudals). Saltfiskverkunin Þórsberg hf. á Tálknafirði heimsótt. Þarna er GUÐJON INDRIÐASON við stjórnvölinn. Félagsheimilið DUNHAGIá Tálknafirði hýsti almennan fund ráðlierra um atvinnu- og efnahags málin. Almennurfundur ráðherra í BALDURSHAGAjfélagsheiinili Bílddœlinga. kvæmdastjóra og stjórnarformanni Sæfrosts hf., tengiliðir Guðmundur Sævar Guðjónsson og Jakob Krist- insson framkvæmdastjóri. Síðdegis var opinn fundur um at- vinnu- og efnahagsmálin í Félags- heimili Bíldudals. Um kvöldið var keyrt aftur til Pat- reksfjarðar og fundað með jafnaðar- mönnum af öllu svæðinu í Félags- heimili Patreksfjarðar. Þar má segja að punkturinn hafi verið settur yfir i-ið. Daginn eftir var síðan endir bundinn á velheppnaða heimsókn og ekið í být- ið til Reykjavíkur. Frá almennum fundi ráðherra um efnahags- og atvinnumál í Félags- heimili PATREKSFJARÐAR. Fundað með HREPPSNEFND Tálknafjarðar. EGILL ÓLAFSSON lóðsaði menn um Minjasafnið að Hnjóti. 3.500 manns heimsóttu safnið á síðasta ári. Fundað á Patreksfirði itieð JAFNAÐARMÖNNUM á svæðinu. I ,:hásœti“ er höfðinginn STEINDOR ÖGMUNDSSON. Stjórarnir LEIFUR BJARNASON bifreiðarstjóri og ÓLAFUR ARNFJÖRDbcejar- stjóri fyrir frainan Vatnseyrarpakk- húsið. fll'illlllílflllll Alþýðublaðsmyndir

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.