Alþýðublaðið - 16.09.1994, Blaðsíða 1
Fleiri stelpur á unglingsaldri hafa einhvemtíma smakkað áfengi en strákamir, segirÁSA GUÐMUNDSDÓTTIR, sálfræðingur við Geðdeild
Landspítalans. Áfengur bjór hefur aukið alkóhólneyslu ungmenna 13 til 19 ára um 57% og strákamir drekka meira magn en stelpumar:
Hraustir strákar mesta áhyggjuefnið
Ef litið er á það magn sem
unglingamir segjast hafa
drukkið er veruleg aukn-
ing á neyslu þeirra eftir að farið
var að selja bjór. Ef magnið er
umreiknað í lítra af hreinu
áfengi er aukningin 57%“, seg-
ir Ása Guðmundsdóttir, sál-
fræðingur við Geðdeild Land-
spítalans, í grein sem hún skrif-
ar í tímaritið Ahrif sem var að
koma út.
Ása segir að mest hafi aukn-
ingin orðið fyrsta árið en hefur
enn aukist síðan. Þijár kannanir
hafa verið gerðar meðal ungs
fólks á aldrinum 13 til 19 ára á
vegum Rannsóknarstofu Geð-
deildar Landspítalans. Sú fyrsta
áður en áfengur bjór kom á
markað hér, árið 1988, og síðan
aftur 1989 og 1992. Úrtakið var
stórt og þátttaka góð, niður-
stöður áreiðanlegar.
Af könnuninni má ráða ýmis-
legt:
Strákum á aldrinum 13 til 15
ára sem höfðu einhvem tíma
neytt áfengis fækkaði eftir að
bjórinn kom, úr 43,2% í 41,5%
ári eftir bjórinn, og niður í 36%
árið 1992. Litlu telpumar vom
iðnari við drykkjuna á þessu
aldursskeiði, 47,9% þeirra
höfðu smakkað vín fyrir bjór-
daginn, - en þeim fækkaði í
39,7% í báðum könnunum sem
eftir fylgdu. í eldri hópnum, 16
til 19 ára er engin kynjaskipt-
ing, stúlkumar em meira en
jafnokar strákanna. I öllum
könnunum hafa rétt rúmlega
90% krakkanna smakkað
áfengi, - og í tveim þeim síð-
ari, eftir að bjórinn kom, em
stúlkumar ívið iðnaðri við kol-
ann.
En bjórinn hefur semsagt
þýtt meira alkóhólmagn sem
unglingar í dag innbyrða. Fyrir
bjórdaginn var meðalneysla
pilta í yngri hópnum, sem
smakkað höfðu áfenga drykki
sem svaraði fimmtungi úr
flösku af sterku áfengi á einum
mánuði, - en hefur tvöfaldast
síðan í 0,4 flöskur á mánuði.
Hjá yngri stúlkunum em töl-
umar 0,3 flöskur fyrir bjórinn,
en 0,6 eftir afnám bjórbanns. I
eldri hópnum var áfengisneysla
strákanna 1 flaska af sterku
áfengi á mánuði, en eftir að
bjórinn kom er neyslan 1,8
flöskur. Stúlkumar í eldri hópn-
um kunna greinilega betur með
vín að fara, neysla þeirra fyrir
bjór var 0,7 flöskur á mánuði -
og var síðast þegar til fréttist sú
sama.
„Hin mikla drykkja pilta á
framhaldsskólaaldri er
áhyggjuefni og er mikilvægt að
finna hvaða leiðir er hægt að
fara til að koma í veg fyrir al-
varleg vandamál í kjölfar
áfengisneyslu þeirra í framtíð-
inni“, segir Ása Guðmunds-
dóttir, sálfræðingur.
Hún segir það hugsanlegt að
aukin athygli sem fjölmiðlar
hafa beint að áfengi og fjölgun
vínveitingastaða hafi ef til vill
ýtt undir jákvæð viðhorf til
áfengisneyslu, - mitt í allri
heilsubylgunni sem gengið hef-
uryfir.
„Enn sem komið er virðist
áróður heilsubylgjunnar ekki
höfða til hraustra ungra pilta,
en það er sá markhópur sem
þarf að beina þarf athyglinni
að“, segir Ása.
Viðræðurum
sjávæútvegs-
hagsmuni
Að mati íslenskra stjóm-
valda er umhverfisvemd
og samvinna um skynsam-
lega nýtingu náttúruauðlinda
sjávar meðal mikilvægustu
viðfangsefna Barenísráðs-
ins. Jafnframt býður sam-
starfið upp á möguleika á
frekari samvinnu sjávarút-
vegs. Þetta kom meðal ann-
ars fram í ræðu Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utan-
ríkisráðherra á fundi utanrík-
isráðherra Barentsráðsins
sem haldinn var í Tromsö í
gær. Einn athyglisverðasti
fréttapunkturinn frá þessum
fundi utanríkisráðherranna í
Tromsp var hinsvegar að í
tengslum við hann urðu þau
þáttaskil, að utanríkisráð-
herrar Islands, Noregs og
Rússlands sammála um að
hefja embættismannaviðræð-
ur um sameiginleg hags-
munamál ríkjanna á sviði
sjávarútvegs og fiskveiða.
Þessar viðræður munu hefj-
ast með fundi íslenskra og
norskra embættismanna 11.
október næstkomandi.
«. //eda//>c//v‘(f a'C/j/ a/c////>>/(/ ///a((r/Hjc/if///// / oc/t/r:
Sigurður
Sigurjónsson
Ellen
Kristjánsdóttir
, Egill
Olafsson
Diddú
, Örn
Arnason
Bergþór Sigríður
Pálsson Beinteinsdóttir
Felix
Bergsson
St^inunn
Olína
Emiliana
Torrini
FORRÉTTIR:
Stökkt andarsalat með Mangó og karrýdressingu. Kr. 790,-
Humarkökur „souffle" með hvítlauks- sinnepssósu og frissesalati. Kr. 990,-
Grænmetis vorrúlla með agúrku thai salati og súrsætri sósu. Kr. 890,-
Engiferleginn lax með japönskum piparrótarrjóma og avocadorúllu. Kr. 600,-
Kraftmikil humarsúpa með sykurbrúnuðum eplum, Calvados og ristuðum hvítlauk. Kr. 650,-
Kjúklingastrimlar steiktir í sterkri hnetusósu með Quesadillas,
tómatsalsa og guacamole (hentar sem léttur aðalréttur). Kr. 1.100,-
AÐALRÉTTIR:
Lambahryggur með tómathjúp og timian- hvítvínssósu. Kr. 1.690,-
Pipar- og koníaksleginn nautalund með portvínssósu og laukhringjum. Kr. 2.190,-
Kjúklingabringur kryddlegnar í sætri chillisósu með eggnúðlum. Kr. 1.590,-
Stökkar andabringur með plómu- kirsuberjasósu og perlulauks „conflt". Kr. 2.200,-
Ofnsteiktur laxaturnbauti með austurlensku ratatouille. Kr. 1.290,-
Risarækjur með grænu fettucine og rauðri karrý- kókossósu. Kr. 1.790,-
EFTIRRETTIR:
Créme Brulée „Napoleon" með karamellusósu og ristuðum herslihnetum. Kr. 690,-
Pecan- krókantís með ferskum ávöxtum og Bailey's creme anglaise. Kr. 590,-
Súkkulaðiterta með Moccakremi ferskum berjum. Kr. 790,-
Peru- og hnetuterta með vanilluís. Kr. 690,-
Drambuie- bananaís með kardimommusósu. Kr. 590,-
» }íi • —
Helgarmatsedill og Hópmatseðill
(/Worréttu/* - < i'Ja/réttu/• - /y//rréttur)
á aðeins kr. 2.490,-
Katu./• - dkemmturr - Qöanö/ei/um
ALLAR HELGAR í VETUR
A LA CARTE