Alþýðublaðið - 16.09.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UMRÆÐA
Föstudagur 16. september 1994
MÞYDUBLMB
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Sími: 625566 - Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 140
Alþýduflokkurinn
og landsstjómin
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - hefur
setið óslitið í ríkisstjómum frá árinu 1987. Á þeim tíma hefur
flokkurinn lagt megináherslu á að skapa stöðugleika í efnahags-
málum til að treysta gmnn atvinnunnar í landinu. Þetta hefur
tekist. Landsstjómin hefur tekið með festu á íjármálum hins op-
inbera, og í kjölfarið hefur skapast áður óþekktur stöðugleiki í
efnahagslífí Islendinga. Það sem mestu skiptir er þó, að þrátt
fyrir erfiðleika og samdrátt í efnahagslífi þjóðarinnar hefur rík-
isstjómin ekki látið hrekjast af leið. Það hefur vissulega kostað
fómir. Fáum dylst, að þær hafa að langmestu leyti lent á þeim
ráðuneytum, sem Alþýðuflokkurinn hefur stjómað.
V afalítið hefði það verið átakaminna fyrir jafnaðarmenn, og
líklegra til stundarfylgis, að taka aftur upp sóunarstefnu fortíð-
arinnar, með tilheyrandi verðbólgu og vaxtasprengingum. Það
hefur hins vegar verið aðalsmerki Alþýðuflokksins að fylgja
þeirri stefnu, sem jafnaðarmenn telja farsælasta fyrir þjóðina
þegar horft er til framtíðar. Þeir vilja ekki kaupa sér stundarvin-
sældir með því að sýna ábyrgðarleysi við stjóm landsins. Jafn-
aðarmenn óttast ekki ábyrgð, og em reiðubúnir til að láta mæla
sig á kvarða þess árangurs, sem þátttaka þeirra í landsstjóminni
hefur skilað.
INú er að koma í ljós, aðjijóðin er að uppskera einsog til var
sáð. Hægt og bítandi em Islendingar að rétta úr kútnum. Verð-
bólgudraugurinn hefur verið særður niður í þeim mæli, að í
landinu em kynslóðir að komast til vits og ára, sem þekkja tæp-
ast verðbólguna nema af afspum. Um þessar mundir er hún
lægri hér á landi, en í flestum nágrannalöndunum. Vextir hafa
sömuleiðis lækkað, og em nú lægri en lengi hefur þekkst hér á
landi. Meira að segja em nú líkur taldar á ffekari lækkun banka-
vaxta, gagnstætt því sem er að gerast í grannlöndunum, og slík
vaxtalækkun skilar sér umsvifalaust í vasa neytenda og fyrir-
tækja. Raungengið hefur jafríframt sjaldan eða aldrei verið jafn
hagstætt útflutningsgreinunum og um þessar mundir.
Það má því fúllyrða, að með virkri þátttöku Alþýðuflokksins
hefur landsstjómin nú lagt gmnn að uppsveiflu í þjóðfélaginu á
næstu missemm. Stjómarandstaðan gerði grín að forsætisráð-
herra fyrr í sumar, þegar hann lýsti yfir á blaðamannafundi, að
þau teikn sem væm á lofti efnahagsmála bentu til þess, að botni
efnahagslægðarinnar væri náð, - og betri tíð í vændum. Stað-
reyndimar tala hins vegar öðm máli en stjómarandstaðan. At-
vinnuleysi hefur minnkað hraðar en menn töldu áður, og er nú
talsvert lægra, en hagfræðingar höfðu spáð. Tekjur ríkissjóðs -
skýr vísbending um þróun efnahags í landinu - munu á þessu
ári aukast talsvert umfram það sem reiknað var með; skýr vís-
bending um hag atvinnulífsins. Sama birtist raunar með glögg-
um hætti í milliuppgjörum fyrirtækja sem birt hafa verið undan-
famar vikur, og sýna gagnger umskipti til hins betra.
Jafnframt þessu hefúr jafnaðarmönnum tekist að þoka í höfn
fjölmörgum málum, sem horfa landi og þjóð til heilla. Húsa-
leigubætur vom teknar upp vegna baráttu jafnaðarmanna, ekki
síst Jóhönnu Sigurðardóttur. Þróunarsjóður sjávarútvegsins er
orðinn að veruleika, og í krafti hans er nú hafín löngu tímabær
uppstokkun í sjávarútvegi. Sameining sveitarfélaga er víða orð-
in að veruleika, og fmmkvæði Alþýðuflokksins í því máli
þekkja allir. Spamaður í heilbrigðiskerfinu, sem ekki bitnaði á
fjárvana sjúklingum, var hafínn fyrir tilstilli jafnaðarmanna. Og
menn skulu heldur ekki gleyma því, að um þessar mundir
streyma mikilvæg verðmæti um farvegi þjóðarbúsins, sem eiga
uppmna sinn í veiðum Islendinga á alþjóðlegum hafsvæðum.
Þessar veiðar em að sönnu umdeildar; en það var ekki síst fyrir
atbeina formanns Alþýðuflokksins, að fyrir þær var ekki girt
með reglusetningu hins opinbera.
A þessu kvarða - mælistiku verka sinna - verður Alþýðu-
flokkurinn veginn og metinn þegar kemur til kosninga.
EIÐUR SMÁRIGUÐJOHNSEN, knattspymumaðurinn frækni sem
nánast hefur haldið VALSLIÐINU á floti í sumar knýr nú dyra hjá
íslenska A-landsliðinu. Hann varð sextán ára í gær og er að ganga
upp úr 3. flokki. Alþýðublaðið var statt í Hollandi fýrir stuttu og brá sér
á leik varaliða PSV EINDHOVEN og FEYENOORD. Eiður Smári
sýndi frábæra takta í leiknum og Hollendingar dáðust að kappanum:
Björt fmmtíð, en
ekkert liggur á
EIÐUR SMÁRIað loknum leiknum með varaliði PSV Eindho-
ven gegn Feyenoord. Leiknum lauk með 2:2 jafntefli, en í víta-
spyrnukeppni tókst Feyenoord að sigra. Eiður átti afgerandiþátt í
að liðinu tókst að jafna leikinn úr 2:0 í 2:2.
Eiður Smárí Guðjohn-
sen átti 16 ára afmæli í
gær. Aðeins 15 ára gam-
all strákur hefur haldið Vals-
veldinu á floti í allt sumar;
skorað góðan slatta af mörkum
og átt drjúgan þátt í skapa önn-
ur mörk. Eiður Smári er sá leik-
maður sem knýr hvað fastast að
dymm hjá íslenska A-landslið-
inu, - landsliði sem aldrei fyrr
hefur verið svo gott sem nú.
Það furðulega er að Eiður
Smári er enn í 3. aldursflokki
og gengur upp í 2. flokk um
áramótin. Hann er um þessar
mundir að hefja nám í Mennta-
skólanum við Sund.
Fréttamaður Alþýðublaðsins
tók sér ferð á hendur frá Hei-
derbos í Hollandi í síðasta mán-
uði tíl að fylgjast með leik
varaliða PSV Eindhoven og
Feyenoord á afmælismótí
knattspymufélags í smábæ í
grenndinni. Eiður Smári lék þar
þijá leiki með liðinu og stóð sig
með stakri prýði. Það var ekki
að sjá að ljóshærði strákurinn í
framlínunni væri 15 ára gutti.
Eiður sýndi og sannaði að hann
er afburða leikinn og hraður,
auk þess sem hann fór í tæk-
lingar af miklum krafti og gaf
ekkert eftir í þeim efnum.
Hvað eftir annað tókst hon-
um að tæta í sig vöm Feyeno-
ord og skapa félögum sínum
upplögð tækifæri. Sjálfur var
hann ef tíl vill ekki nógu gráð-
ugur og eigingjam, þegar hann
áttí sjálfur marktækifæri.
Fréttamanni skildist að Eiður
Smári hafi mætt til leikjanna
eftir miklar annir með Val.
Hann hafði leikið bæði með
meistaraflokki og 2. flokki, -
en trúlega slapp hann við að
leika líka með 3. flokki Vals,
en það hefði hann þó mátt gera
aldurs vegna.
Hollenskir áhugamenn á vell-
inum, sem blaðamaður Alþýðu-
blaðsins ræddi við, vom mjög
hrifnir af Eiði Smára, og trúðu
því naumast að hann væri að-
eins 15 ára. Þeim þóttí líka
merkilegt að svo kynni að fara
ISLENDINGURINN ungi tœtir af sér varnarmenn Feyenoord og
sœkir íáttað markinu. Hann ógnaði hvað eftir annað í leiknum.
að feðgar ættu eftír að leika
saman í landsliði íslands.
Áhugamenn um knattspymu
segja það augljóst mál að Eiður
Smári eigi eftir að gera samn-
inga við erlend félög. Þeir
benda á að ekkert liggi á. Hann
getí beðið rólegur og látíð
„unglingatilboð“ sem vind um
eymn þjóta. Erlend félög, sér-
staklega hollensk, em gjöm á
að gera samninga við þá efni-
legustu, slaka samninga. Vitað
er að PSV Eindhoven, félag
Philips-verksmiðjanna, er tílbú-
ið að gera samning strax við
Eið Smára, ekki síst eftír leik-
ina þijá sem hann lék með
varaliði félagsins í síðasta mán-
uði. Það er bara ekki víst að
slíkir samningar yrðu hagstæðir
- ekki enn sem komið er.
SENDING á leið fyrir markið af tám Valsarans sem hugsanlega LEIKMENN PSV Eindhoven ogþar á meðal Eiður Smári ganga
gœti leikið við hlið fóður síns í landsliðinu innan skamms. til búningsherbergja í hálfleiL