Alþýðublaðið - 19.10.1994, Blaðsíða 1
Alvarlegt tilvik um hagsmunaárekstur, - eða hrein tilviljun?
Náfrændur ráðherra
fengu milljónaverkefni
Fyrirtækið Talnakönnun hf.
hefur unnið verkefni fyrir ráðu-
neyti Halldórs Blöndals fyrir um
5,6 milljónir króna á þrem árum.
Fyrirtækið hóf að starfa fyrir
ráðuneytin strax og Halldór tók
við embætti ráðherra vorið 1991
og hefur verið að síðan. Talna-
könnun er fyrirtæki í eigu nákom-
inna ættingja Halldórs Blöndals,
landbúnaðar- og samgönguráð-
herra. Forveri Halldórs í starfi,
Steingrímur J. Sigfússon, segir að
upplýsingar sem fyrirtækið útveg-
aði um afkomu fiskeldis hafi legið
fyrir í ráðuneytinu - glænýjar.
Aðeins Vikublaðið hefur fjallað
um málið og segir að viðskiptin við
Talnakönnun ásamt úttekt á stöðu
Ríkisskips sem ráðherrann lét
gera, séu „eitthvert alvarlegasta
tilvik síðari ára um siðlausan
hagsmunaárekstur..44
I Ijós hefur komið að sumt af því
sem Talnakönnun hefur fengist
við að reikna út, eru alþekkt sann-
indi sem þó hafa kostar skattgreið-
endur milljónir.
Sjá nánar umfjöllun Alþýðu-
blaðsins á bls. 6.
Alþýðuflokkurinn á Vesturlandi:
Lofl lævi blandið
Einsog greint var frá í Alþýðu-
blaðinu í gær þá hefur kjördæmisráð
Alþýðutlokksins á Vesturlandi
ákveðið halda opið prófkjör um tvö
efstu sætin 19. nóvember en fram-
boðsfrestur rennur á mánudaginn.
Blaðið sagði frá því í gær að, fjórir
séu í umræðunni vegna framboðs í
efsta sætið. Einn þeiira, Akurnesing-
urinn Gísli S. Einarssonhefur stað-
fest að hann gefi kost á sér. Hinir
fhuga nú málið. Alþýðublaðið heyrði
hljóðið þremenningunum í gærdag:
Snæfellingurinn Sveinn Þór Elin-
bergsson: „Eg og nn'nir menn hér í
norðurhluta kjördæmisins erum að
hugsa málið. Það stóð til að ég færi
fram í l'yrsta sætið, en síðan hefur
komið ýmislegt í ljós í kjördæminu.
Það hafa verið hér nokkrir tlokka-
drættir í kjördæminu síðan á flokks-
þingi í tengslum við fonnannskjörið,
því er ekki að leyna, en ég vil lítið
vera að últala mig um þau mál. Ég er
allavega óráðinn með mitt framboð.
Varðandi það hvort einstaklingar hér
haft verið að hugsa sér til hreyfings
með Jóhönnu Sigurðardóttur þá
teljumst við ennþá til Alþýðuflokks-
ins, erum alþýðuflokksmenn og það
hefur ekkert verið rætt við hana eða
hennar fólk,“ sagði Sveinn Þór að
lokum.
Borgnesingurinn Sveinn Gunnar
Hálfdánarson. „Ég er, skal ég segja
þér, ekki búinn að taka afstöðu. Ég er
að hugleiða þetta með mínum stuðn-
ingsmönnum sem stutt hafa mig í
síðustu tveimur kosningum. Við spá-
um í spilin yfir helgina. Frá því að ég
féll úr öðru sætinu í það þriðja á list-
anum fyrir síðustu kosningar hef ég
alltaf stefnt aftur upp, ætlað að gefa
kost á mér í fyrsta sætið. Það er ekk-
ert launungarmál að ég vildi hafa
prófkjörið opið, sérstaklega núna
þegar breytingar hafa orðið frá því
síðast. Fólk er hinsvegar svona mis-
jafnlega hresst með þessa ákvörðun
kjördæmisráðsins og skiptar skoðan-
ir á málinu. Svona er nú það í pottinn
búið. Ég hef síðan ekki einu sinni
leitt hugann að þessu framboði Jó-
hönnu. Maður heyrir nú lítið til
hennar og ekkert flokksfólk hef ég
hitt sem ætlar með henni,“ sagði
Sveinn Gunnar Hálfdánarson.
„Þetta er ekkert ákveðið ennþá hjá
mér. Ég hef nú tíma fram á næst-
komandi mánudag til að gera upp
hug minn. Þetta er náttúrulega mín
heimabyggð og ég mun skoða málið
yfir helgina í samráði við fjölskyld-
una og vini mína jafnaðarmenn,“
sagði Akumesingurinn Helgi Daní-
elsson þegar blaðið hafði samband
og spurði hvort hann ætlaði sér í
framboð á Vesturlandi.
Svavar og senuþjófurinn. Guðni Ágústsson (t.v.) stal senunni við umræðurnar í gær: Þjóðin vill leyfa llluga að
tala, sagði hann. Málshefjandinn, Svavar Gestsson, segir að yfirmenn útvarpsins séu í hers höndum - Sjálfstæð-
isflokksins. A-mynd: E.ÓI.
Snörp umræða á Alþingi um „pólitíska aflúsun“ á útvarpinu: ^
Út í hött að útrýma pólitískri umræðu í RÚV
- sagði Sighvatur Björgvinsson. Sjálfstæðismenn einir í vörn fyrir yfirmenn útvarpsins. Ólafur Ragnar:
Fingraför Sjálfstæðisflokksins í þessu máli eru alstaðar.
„Það er út í hött að útrýma pólit-
ískri umræðu í ríkisútvarpinu," sagði
Sighvatur Björgvinsson við umræð-
ur utan dagskrár á Alþingi í gær um
málefni ríkisútvarpsins. Svavar
Gestsson krafðist umræðunnar
vegna uppsagnar Illuga Jökulssonar
á Rás 2 í síðustu viku, og brottrekstr-
ar Hannesar H. Gissurarsonar í kjöl-
farið.
Sighvatur Björgvinsson vitnaði til
blaðagreinar sem Heimir Steinsson
útvarpsstjóri birti í Morgunblaðinu í
gær. Þar sagði Heimir að Illugi hefði
verið rekinn þarsem „líklegt þótti að
honum kynni enn að verða hið sama
á.“ Sighvatur henti gaman að þess-
um ummælum Heimis og sagði eins
gott að dómskerfið starfaði ekki á
þessum nótum: að menn væru
dæmdir út frá líkum á því að þeir
brytu af sér í framtíðinni.
Svavar Gestsson sagði að reiði-
alda hefði skollið á RUV þegar III-
uga var sagt upp. „Yfirmenn RÚV
telja sig í hers höndum," sagði Svav-
ar og bætti því við að Sjálfstæðis-
flokkurinn legði útvarpið í einelti
einsog margoft hefði komið fram.
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra veitti andsvör við ræðu
Svavars og sagðist „ekki hafa komið
nálægt þessu. Það er hlutverk yfir-
manna útvarpsins að taka ákvarðanir
um mannaráðningar." Ólafur sagði
að umræðan ætti ekki heima á Al-
þingi, þetta væri innanhússmál út-
varpsins. Sú skoðun var greinilega
ekki almenn, þarsern fjöldi þing-
manna tók til máls. Sjálfstæðismenn
vom einir um að verja yfirmenn út-
varpsins.
Guðni Agústsson, þingmaður
Framsóknar, sparaði ekki stóm orð-
in, og sagði að einhver hefði greini-
lega hótað Heimi Steinssyni öllu illu
ef Illugi yrði ekki rekinn. „En þjóðin
vill leyfa Illuga að tala,“ sagði
Guðni.
Athygli vekur að þungavigtar-
menn í þingliði Sjálfstæðisflokks
tóku ekki til máls, að menntamála-
ráðherra undanskildum. Hinsvegar
töluðu þeir Tómas Ingi Olrich, Arni
Mathiesen og séra Hjálmar Jónsson,
varaþingmaður frá Sauðárkróki og
útvarpsráðsmaður. Ræða sóknar-
prestsins vakti kurr í þingsal og á
þéttskipuðum áheyrendapöllum.
Hann sagði að stofna ætti sérstaka
„afrás“ þarsem pistlahöfundar gætu
verið einsog „hanar á haug“ og stað-
ið í „vilpum sínum og ausið hver
uppúr sínum koppi.“
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
uppsagnirnar á Rás 2 snemst um lýð-
ræði og mannréttindi. Ekki væri um
að ræða innanhússmál útvarpsins,
þarsem fingraför Sjálfstæðisflokks-
ins væru alstaðar. Formaður Alþýðu-
bandalagsins kvaðst harma að Hann-
esi hefði verið sagt upp störfum, og
vitnaði í fleyg orð Voltaires um að
þótt hann væri ekki sammála skoð-
unum andstæðings síns, þá væri
hann reiðubúinn að leggja allt í söl-
umar til þess að hann hefði frelsi til
að koma þeim á framfæri: „Það er
gmndvallaratriði frjálsrar fjölmiðl-
unar að Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson fái að ráðast á mig.“
Á þingpöllum. Meðal margra áheyrenda í gær voru mæðginin Jóhanna
Kristjónsdóttir blaðamaður og lllugi Jökulsson. Hér bera þau saman bæk-
ur sinar í kjölfar þeirrar yfirlýsingar Guðna Ágústssonar að lllugi sé líklega
besti pistlahöfundur Evrópu. A-mynd: E.ÓI.
Verðstríð í hljóm-
tækjabransanum
Við erum
ekki að
gefa þetta
Strax og Bónus hóf að selja svo-
kallaða geislaspilara frá Philips á
14.700 krónur um síðustu helgi, -
lækkaði umboðsaðili tækjanna hér á
landi, Heimilistæki hf„ verðið á
samsvarandi tækjum úr 23.000
krónurn í 14.900 krónur.
„Þetta sem Bónus er að selja em
gömul módel sem hætt er að fram-
leiða og við fáum ekki afgreidd
lengur. Þeir hafa komist í einhverja
gamla lagera", sagði talsmaður
Heimilistækja í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Hann sagði að þetta
þýddi þó ekki að tækin sem Bónus
hefur boðið væm léleg, Philips væri
alltal' Philips. Þegar Bónus hóf söl-
una í sfðustu viku vom einhver sýn-
ishom til hjá Heimilistækjum. Verð-
ið var þá snarlega lækkað með til-
komu samkeppninnar, - niður í
14.900 krónur og ætlunin að losna
við afganginn.
Vilhjálmur Egilsson
alþingismaður um úr-
slit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar í Finn-
landi um helgina
Menn hljóta
að skoða
sinn gang
betur núna
„Þegar ísland verður ef til vill
eitt eftir af EFTA- löndunum á
Evrópska efnahagssvæðinu, þá
hljóta menn að skoða sinn gang
betur núna cn hingað til“, sagði
Vilhjálmur Egilsson, alþingismað-
ur í samtali við Alþýðublaðið í gær
þegar blaðið bað hann um álit á
þjóðaratkvæðagreiðslunni í Finn-
landi.
„Finnska þjóðin hefur kveðið
upp sinn dóm í þessu máli og nið-
urstaðan lá í loftinu nánast frá því
að Finnar lögðu fram umsókn sína
um aðild að Evrópusambandinu.
Þjóðin telur hag sínum greinilega
bctur borgið innan sambandsins
en utan“.
Vilhjálmur neitaði því að hann
væri einangraður í þingflokki
sjálfstæðismanna í Evrópusam-
bandsmálinu. „Ég hef ekki
áhyggjur af að verða einn lengi, -
og mcr er ekki farið að leiðast“,
sagði hann.
Vilhjálmur sagði að samningur-
inn um Evrópska efnahagssvæðið
væri ekki ónýtur samningur fyrir
okkur. En það yrði að aðlaga þann
samning að breyttum forsendum.
Umsamin réttindi yrðu ekki frá
okkur tekin.
„Við þurfum að láta samning-
inn virka okkur í hag og það er
hann raunar þegar farinn að gera.
Það er þrennt sem við þurfum sér-
staklega að huga að. Það er mark-
aðsaðgangurinn, samráð vegna
nýrra reglna og að viðhalda mark-
tæku eftirliti og sjálfstæðum úr-
skurðum í deilumálum. Þetta
breytir ekki því að við þurfum að
skoða aðild að Evrópusamband-
inu. En ég bendi á að við hoppum
ekkert inn í það samband. Málið
þarf mikinn undirbúning, mikla
vinnu“, sagði Vilhjálmur Egilsson
að lokum.