Alþýðublaðið - 19.10.1994, Side 3

Alþýðublaðið - 19.10.1994, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Viti menn Illugi Jökulsson... var látinn hætta af því að hann hafði að minnsta kosti einu sinni farið langt út fyrir þau mörk hóf- semdar og tillitssemi, er að framan greinir. Líklegt þótti, að honum kynni enn að verða hið sama á. Heimir Steinsson útvarpsstjóri í Mogg- anum í gær. Við skulum ekki sóa tímanum í aukaatriði. Við vitum báðir að það var ekki að þínu frum- kvæði sem ég var rekinn frá Rás tvö; við vitum jafn vel að það var heldur ekki með þín- um vilja. Gerðu bara eitt fyrir mig - ekki ljúga. Kveðjupistill llluga til Sigurðar G. Tóm- assonar í Mogganum í gær. Ef þér er skipað að reka mig - svo ég verði ekki nöldrandi út í ríkisstjórnina í heilan kosn- ingavetur - þá gerir þú það, af því staða þín er veik. Ekki nóg með pólitíkina, heldur vitum við báðir að ekki ríkir ein- róma ánægja með störf þín sem yfirmaður Rásar tvö. Kveðjupistill llluga. Það er alveg Ijóst að Guð- mundur Arni Stefánsson hef- ur gert ýmis mistök í starfi sínu sem bæjarstjóri og ráð- herra, en hefur almenningur efni á því að gera þær kröfur á stjórnmálamenn að þeir séu okkur hinum það æðri að þeir megi ekki gera mistök? Svo- leiðis fólk kallast guðir í okkar samfélagi og það er ég alveg viss um að Guðmundur Arni er ekki. Friðrik K. Jónsson, aðsend grein í Mogganum í gær. Morgunblaðið ber enga ábyrgð á prófkjörum Sjálf- stæðisflokksins og tekur ekk- ert tillit til þeirra í fréttaflutn- ingi eða birtingu viðtala. Víkverji Moggans í gær. Hverjir voru hvar? Alþýðublaðið í gær Adolf Anderssen, Albert Guðmundsson, Anna Kristíne Magnúsdóttir, Ari Gísli Bragason, Ari Edwald, Árni Johnsen, Ásgeir Ásgeirsson, Ás- geir Hannes Eiríksson, Ásgerður Flosadóttir, Ás- mundur Stefánsson, Benedikt Davíðsson, Birgir Hermannsson, Björn Bjarnason, Björn Heiðar Jónsson, Davíð Oddsson, Eggert Haukdal, Eiður Guðnason, Einar Oddur Kristjánsson, Einar K. Guðfinnsson, Einar Heimisson, Einar Ólason, Ein- ar Kárason, Elva Björk Gunnarsdóttir, Erich Honecker, Esko Aho, Geir H. Haarde, George C. Scott, Gísli S. Einarsson, Grímur Thomsen, Gro- Harlem Brundtland, Guðjón A. Kristjánsson, Guðmundur Hallvarðsson, Guðmundur Sv. Her- mannsson, Guðmundur K. Oddsson, Guðriður Austmann, Guðrún Helgadóttir, Hallgrimur Helgason, Hannes Hólmsteinn, Hannibal Valdi- marsson, Helgi Daníelsson, Helmut Kohl, Hrafn Jökulsson, lllugi Jökulsson, Ingi Björn Alberts- son, Ingólfur V. Gíslason, Ingvar Carlsson, Jacques Santer, Jakob Jónsson, Jón Óskar Haf- steinsson, Jón Kristjánsson, Jón Ólafsson, Jón Sigurðsson, K.N., Katrin Fjeldsted, Kiesritzky, Lafontaine, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Magn- ús Stephensen, Markús Örn Antonsson, Martina Navratilova, Melina Mercouri, Ólafur Jóhann Ól- afsson, Ólafur G. Einarsson, Ólafur Hannibals- son, Páll Magnússon, Palmerston lávarður, Pét- ur Blöndal, Ragnar í Smára, Ragnar Vignir, Reyn- irTómas Geirsson, Róbert Mellk, Rudolf Scharp- ing, Runólfur Pétursson, Salome Þorkelsdóttir, Schroeder, Sigfús Sigurhjartarson, Sigurður G. Tómasson, Sigurður Tómas Björgvinsson, Sól- rún Helgadóttir, Sólveig Pétursdóttir, Svavar Gestsson, Sveinn Þór Elinbergsson, Sveinn Hálf- danarson, Sæmundur Guðvinsson, Thomas Alva Edison, Thor Vilhjálmsson, Tryggvi Gunnarsson, Vigdís Grimsdóttir, Þorgrímur Óli Sigurðsson, Þorsteinn Pálsson, Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, Örlygur Guðmundsson. Fax dagsins Faðir vor!! Þú sem býrð í Útvarpshúsmu. Gef oss til bciku morguitkryddið í tilveruna. Fyrirgef þeim Hannesi og ílluga svosein vér og munum gera við vora dáða Ráða menn. Eigi tak frá þeim hljóðnemann heldurfrelsa oss frá flatneskju og froðusmökkuntm. Því Okkar er útvarpið þjóð og þjóðarsálar að eilífu. Meðan að uppi er öll heimsins tíð. Rithöfundasamband Is- lands þarf aldeilis ekki að kvarta undan Olafi G. Einarssyni. Samkvæmt tölum um prívatúthlutanir hans árið 1992, sem Ólafur birti um síðir með miklum semingi, fékk RSÍ átta út- hlutanir á því eina ári, samtals upp á 2,3 milljónir króna. Nú er bara að sjá hvort önnur verkalýðsfélög krefjast ekki hlutdeildar í ráðherrakökunni... Sunnlenska fréttablaðið segir frá undirbúningi að framboði stuðnings- manna Jóhönnu Sigurð- ardóttur í Suðurlandskjör- dæmi. Sigurður Péturs- son segir að stefnt sé að framboði í kjördæminu og að mörg nöfn séu í pottin- um. Sunnlenska fréttablað- ið segir að nafn Þorláks Helgasonar sé oftast nefnt og í samtali við blaðið seg- ir hann að ekkert hafi verið ákveðið... Miklar líkur eru nú taldar á því að Guð- mundur Bjarnason þing- maður Framsóknar flytji sig úr Norðurlandskjör- dæmi eystra og á Reykja- nes. Steingrímur Her- mannsson skipaði sætið áður en er nú einsog alþjóð veit horfinn á vit hinna friðsælu beitilanda í Seðla- bankanum. Framsókn er með þrjá þingmenn fyrir norðan en kemst tæpast hjá því að tapa manni, þarsem eitt þingsæti flyst úr kjör- dæminu - einmitt suður á Reykjanes. Það má því segja, að gert sé ráð fyrir að Guðmundur verði flutt- ur í suður í sætinu sínu... Meira um Framsókn. Flokksþing er framundan og þar má búast við hörð- um slag um varafor- mennsku í flokknum. Guðmundur Bjarnason, sem verið hefur ritari flokksins um árabil þótti lengstaf öruggur um hnossið. En hann verður áreiðanlega ekki einn í kjöri. Finnur Ingólfsson var líklegur kandídat en hann er orðinn þingflokks- formaður og hefur því Evrópusambandsríkið Noregur Þá er finnska þjóðin búin að segja meiningu sína uminngöngu ríkisins í Evrópusambandið. Þjóðin vill inn. Nú er boltinn hjá löggjafarsamkund- unni og eins og sumsstaðar annars- staðar vill brenna við að hún verði ekki sammála þjóðinni. Þó verður að telja ólíklegt að þingmenn gangi gegn vilja þjóðarinnar eftir svo veigamikla atkvæðagreiðslu. Stuðn- ingsmönnum aðildar að Evrópusam- bandinu í Svíþjóð og Noregi vex sí- fellt ásmegin eftir því sem nær dreg- ur atkvæðagreiðslum þar í löndum og líklegra verður með hverjum deg- inum sem líður að aðild verði sam- þykkt í þeim báðum. Abyrgdarleysi forsætisrád- herra Það er hins vegar sársaukafyllra að fylgjast með tilburðum forsætis- ráðherrans síðustu vikumar. Ekki vegna þess að hann megi ekki vera ósammála utannkisráðhenanum í hverju sem vera vill, enda eru þeir ekki flokksbræður, heldur vegna Pallborðið Magnús Árni Magnússon skrifar „Evrópa kemur okkur ekki vid!" En er þá ekki komið að íslending- um? Ó, nei. Okkur kemur málið bók- staflega ekki við. Sú er í það minnsta skoðun aukins meirihluta Alþingis Islendinga, að þær fregnir að helstu bræðraþjóðir okkar á lýðveldistím- anum séu að taka sig saman í mun nánara samstarfi við næstum allar aðrai' Vestur-Evrópu en okkur, séu ekki til að taka par alvarlega. Nær sé að við horfum í gaupnir okkar með- an þessi ósköp ganga yfir og lítum ekki upp aftur íyrr en eftir aldamót. Sjáum hvemig verður umhorfs þá! Maður verður að virða stjómar- andstöðunni það til vorkunnar að hún er einmitt í stjómarandstöðu í landi þar sem það tíðkast að vera á móti öllu sem ríkisstjómir bera á borð, sama hvort það er lítið eða stórt, gott eða slæmt. Hér er reglan sú að taka slaginn eins og fótboltaleik, eða öllu heldur í hnefaleikum. Berja á veikasta blett andstæðingsins. Og þar sem enginn er dómarinn þá er ekki úr vegi að sparka líka. Allir flokkar em sömu sök seldir í þessum málum. Því kemur ekki á óvart að stjómarandstaðan æmti undan Evr- ópusjónarmiðum utanríkisráðherra. þess að grafalvarlegu og veigamiklu máli fyrir framtíð þjóðarinnai' er stungið undir stól til þess eins að halda einhvern ímyndaðan frið innan Sjálstæðisflokksins. Það að halda því fram að við eigum ekki að skoða aðild að Evrópusambandinu fyrr en í fyrsta lagi upp úr aldamótum getur beinlínis reynst bráðskaðlegt fyrir ís- lenska þjóð. Og hver em rök ráðherr- ans? Jú, þau em að það sé hvort sem er of seint fyrir okkur, við munum ekki komast inn fyrr en í fyrsta lagi um aldamót þó við sæktum um á morgun, svo og að fiskveiðistefna bandalagsins verði óbreytt til 2002 og hún sé óaðgengileg fyrir okkur Is- Jendinga eins og hún er í dag. Rök rádherrans Skoðum þessi rök aðeins nánar. Það er líklega rétt að við yrðum ekki tekin inn sem fullgildir aðilar að sambandinu, fýrr en eftir hina svo- kölluðu ríkjaráðstefnu, sem hefjast á 1996. Þar ætlar Evrópusambandið að hugsa sjálft sig upp á nýtt og gæti ráðstefna þessi tekið tvö til þrjú ár, eftir því sem fróðir menn segja. En þá skulum við athuga annað á móti. Allt frá því að hin EFTA ríkin luku „Því kemur ekki á óvart að stjórnarandstaðan æmti undan Evr- ópusjónarmiðum utanríkisráðherra. Það er hins vegar sárs- aukafyllra að fylgjast með tilburðum forsætisráðherrans síð- ustu vikurnar.“ samningum sínum um inngöngu í Evrópusambandið, hafa þau haft áheymarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt í stofnunum og nefndum sambandsins. Þar hafa þau getað komið sínum sjónarmiðum á fram- færi hindrunarlaust og hefur verið tekið fullt tillit til þeirra sem verð- andi aðildarríkja. Þetta sama myndi gilda um okkur Islendinga. Strax og við lykjum samningaviðræðum, sem ekki þyrftu að taka langan tíma, vær- um við í raun farin að hafa bullandi áhrif á þá málaflokka sem við legð- um mesta áherslu á innan sambands- ins. Væntanlega yrði tekið fullt tillit til okkar á ríkjaráðstefnunni sem verðandi aðildamkis. Ef við sækjum ekki um og ljúkum engum samning- um erum við úti í kuldanum og höf- um engin áhrif. Keppinautar okkar á Evrópumarkaði myndu ekki láta slfkt tækifæri ónotað. Vidsemjendur vorir anno 2002 Þá er það sjávarútvegsstefnan. Hún verður endurskoðuð árið 2002. Norðmenn sömdu um undanþágu frá gildandi sjávarútvegsstefnu, en munu hins vegar undirgangast hina endurskoðuðu stefnu sambandsins. Hvaða ríki mun hafa mest áhrif á hina endurskoðuðu stefnu? Evrópu- sambandsríkið Noregur, kæru vinir. Ekki verða það fslendingar, þvf for- sætisráðherra landsins og formaður stærsta stjómmálaflokksins hefur það á tilfinningunni að umsókn að Evrópusambandinu sé ekki á dag- skrá. Evrópusambandsríkið Noregur verður okkar viðsemjandi í sjávarút- vegsmálum er við lítum upp frá gaupnum vomm uppúr aldamótum. Höfundur er formaður Sambands ungra jafnaðarmanna. hlotið næga upphefð að sinni. Ingibjörg Pálma- dóttir þingmaður á Vest- urlandi hefur hinsvegar fullan hug á varafor- mennsku - og þarmeð ráð- herradómi þegar og ef Framsókn kemst í ríkis- stjóm. Jóhannes Geir Sig- urgeirsson samþingmaður Guðmundar að norðan hef- ur einnig heyrst nefndur... s Ovenjuleg ævisaga kemur út fyrir jólin, sem leikhúshjónin Brynja Benediktsdóttir og Er- lingur Gíslason skrifa í sameiningu. Astir sam- lyndra hjóna munu reyndar ekki verða meginvið- fangsefni bókarinn- ar, heldur efni úr leikhús- inu. Þess má geta að þau eru foreldrar Benedikts Erlingssonar sem ræki- lega hefur slegið í gegn í hlutverki Galdra-Lofts í haust... Fimm á förnum vegi Hver er afstaða þín til vantrausts á ríkisstjórninai María Guðmundsdóttir, nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja Ég er fylgjandi vantrausti á nkisstjóm- ina. Hinumegin Ég hef enga töfraformúlu fyrir velgengni minni, Bernharður. Ég fór aldrei í skóla, nennti ekki að leggja hart að mér við vinnu, og ég er ekkert gáfnaljós... Ég er einfaldlega stálheppinn skúnkur, Bernharður. Konráð Ólafsson, nemi í Menntaskólanum í Reykjavík Mér er alveg sléttsama. Ég er gjör- samlega hlutlaus. Elva Elvarsdóttir, snyrtifræð- ingur Ég styð vantraust á þessa rík- isstjóm. Brynja Björk, nemi í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja Ég styð van- traustið. Halldór Þorsteinsson, Mála- skóla Halldórs Ég styð það heils- hugar.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.