Alþýðublaðið - 03.11.1994, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994
FLOKKSSTARF
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði:
Fundur um nýbúafræðslu
og Nordisk Forum
Kvenfélag Alþýöuflokksins í Hafnarfirði heldur fund næst-
komandi mánudag, 7. nóvember, í Alþýðuhúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Fundurinn hefst klukkan 20:30.
Gestir fundarins eru tveir; þær Ásta Kristjánsdóttir verkefn-
isstjóri í nýbúafræðslu og Guðlaug Sigurðardóttirsem seg-
ir frá kvennaþinginu Nordisk Forum.
A dagskrá verða einnig önnur mál. Konur eru hvattar til að
fjölmenna og taka með sér gesti. Kaffiveitingar verða á
boðstólum.
- Stjórnin.
41. þing Sambands
ungra jafnaðarmanna
Haldið í Ölfusborgum 4. til 6. nóvember 1994
Dagskrá:
Föstudagur 4. nóvember
19:00-20:30 Greiðsla þinggjalda og afhending þinggagna.
20:30-20:45 Þingsetning: Magnús Árni Magnússon,
formaður SUJ flytur ávarp.
20:45-21:00 Ávarp gests.
21:00-21:15 Kosning starfsmanna þingsins: Þingforseta,
varaforseta, aðalritara, vararitara, 3ja manna
kjörbréfanefndar, 7 manna nefndanefndar,
forstöðumanna starfshópa.
:00 Skýrsla framkvæmdastjórnar SUJ, skýrsla
framkvæmdastjóra SUJ, skýrsla gjaldkera
SUJ, skýrsla formanns Styrktarsjóðs SUJ,
skýrslurformanna fastanefnda SUJ.
:30 Umræður um skýrslur.
:00 Lagabreytingar, fyrri umræða.
?? Létt spjall og léttar veitingar.
21:15-22
22:00-22
22:30-23
23:00-??:
Laugardagur 5. nóvember
09:00-10:00 Sameiginlegur morgunverður.
10:00-10:30 Lagabreytingar: Seinni umræða, afgreiðsla.
10:30-11:10 Skýrslur forstöðumanna málefnahópa SUJ,
tillögur að ályktunum kynntar.
11:10-12:20 Skipað í málefnahópa, fundir málefnahópa.
12:20-13:00 Matarhlé.
13:00-15:20 Fundir málefnahópa.
15:20-16:20 Álit málefnahópa, umræður.
16:20-17:20 Almennar umræður.
17:20-18:00 Kosning framkvæmdastjórnar SUJ.
18:00-19:00 Hlé.
19:00-??:?? Hátíðardagskrá vegna 41. þings SUJ!
Sunnudagur 6. nóvember
09:00-10
10:00-11
11:00-12
12:20-13
13:00-13
13:30-14
14:30-15
15:00-17
17:00-17
:00 Sameiginlegur morgunverður
:00 Fundir starfshópa.
:20 Álit starfshópa, umræður.
:00 Matarhlé.
:30 Almennar umræður.
:30 Umræður og afgreiðsla ályktana.
:00 Kosningar: Málefnanefndir, stjórn styrktar-
sjóðs SUJ, tveggja endurskoðenda og
tveggja til vara.
00 Stjórnmálaályktun 41. þings SUJ, umræður
og afgreiðsla.
:15 Þingslit.
Nánari upplýsingar gefur Baldur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri ungra jafnaðarmanna, á skrifstofum SUJ að
Hverfisgötu 8-10, sími 91-29244, fax 91-629155.
Eiga heimskir enga von?
Mikið fjaðrafok hefur orðið út af bókinni The Bell Curve sem nýlega er
komin út í Bandaríkjunum. Þar halda höfundarnir, Herrnstein og Murray, því fram að
munurinn á greindarvísitölu svartra og hvítra sé að meðaltali 15 stig. Af þeim sökum
bíði blökkumanna það hlutskipti að vera undirstétt á meðan hvítir verði ofan á í skjóli
betra gáfnafars. Vegna þessara kenninga eru Herrnstein og Murray í hópi mest höt-
uðu manna í Ameríku, þeir eru úthrópaðir sem einhvers konar nýnasistar.
í nýlegu tölublaði The European
kemur öldungurinn Hans Eysenck,
einn virtasti sálfræðingur f heimi,
þeim Herrnstein og Murray til vamar
og segir að menn megi ekki láta pólit-
ískan rétttrúnað villa sér sýn á stað-
reyndir.
Prófessor Eysenck kvaitar undan
því að yfirleitt hafi það fallið í hlut
blaðamanna að fjalla um bók Herm-
steins og Murrays. Þeir séu nánast
ófærir um að skilja röksemdafærsluna
eða rannsóknimar sem hún byggi á,
heldur láti þeir sér nægja að reka upp
hávært hneykslunaróp í nafni pólit-
ísks rétttrúnaðar. Og, spyr Eysenck,
hvað hafa höfúndamir gert til að verð-
skulda það?
Þeir hafa, segir hann, bent réttilega
á að greindarpróf séu ágætur mæli-
kvarði á gáfnafar. Greind sé að mestu
leyti arfgeng eins og þeir segja, sem
nemur allt að 80 af hundraði. Greind-
arvísitala sé mjög misjöfn meðal
þjóðfélagsstétta og líka meðal kyn-
þátta. Fólk af austur-asískum uppmna
standi sig best í greindarprófum, fólk
af afrískum uppruna standi sig verst,
en þar á milli sé hvíti kynstofninn.
Þetta segir Eysenck að séu stað-
reyndir sem allir helstu sérfræðingar
viðurkenni: sálfræðingar, erfðafræð-
ingar og uppeldisfræðingar. And-
spænis þessu sé gagnrýnin á bókina
lítils virði; það þýði ekki að fullyrða
eins og ýmsir hafa gert að greindar-
próf mæii ekki annað en hæfileikann
til að taka greindarpróf.
Þvert á móti, segir Eysenck, það
hefur komið á daginn að greindarpróf
sem lögð em fyrir börn áður en þau
hefja skólagöngu segja fyrir um
námsárangur þeirra áratug síðar á
mjög marktækan hátt. Með sama
móti séu greindarpróf sem tekin em
við upphaf háskólagöngu mjög sann-
spá um afrek í námi. Það sé hægt að
telja upp ótal slík dæmi um sannleiks-
gildi greindarprófa, en þó séu ennþá
til andmælendur sem fullyrði að ein-
hver vafi leiki á því að greind sé arf-
geng. Sú gagnrýni sé frekar í anda
pólitísks rétttrúnaðar en rökhugsunar.
Greind herraþjód
og heimsk undirþjód
En em menn ekki einmitt hræddir
við hugmyndina um arfgengi vegna
þess að hún er háskaleg? Felur hún
ekki í sér einhvers konar þrælasamfé-
lag þar sem lágstéttirnar framvísa lé-
legri greindarvísitölu sinni til ókoni-
inna kynslóða á meðan hin gáfaða
yfirstétt íjölgar sér í makindum inn-
byrðis?
Eysenck segir að þetta sé byggt á
misskilningi. Þótt greindarvísitala sé
arfgeng að 80 hundraðshlutum sé hún
ekki óbreytanleg, eins og Hermstein
og Murray skýri út. Allt leiti inn að
meðaltalinu: Böm þeirra heimskustu
seu ynrieiu heimsk, en þó oft- ast talsvert klárari
en foreldrar
þeirra. Börn
þeirra greindustu 3
séu yfirleitt
greind, en þó oft-
ast talsvert HeLúBI
eldrar þeirra.
Böm hins yfir-
gnæfandi tjölda
sem er í meðal-
lagi greindur séu
Eysenck. Menn
mega ekki láta
pólitískan rétt-
trúnað villa sér
sýn.
ýmist heimsk, í meðallagi eða vel
greind. Og þannig, segir Eysenck,
skapa lögmál erfðanna, hreyfingu
upp og niður samfélagsstigann.
Verda hinir
heimsku óþarfir?
Fjargviðrið hefur ekki verið minna
vegna þeirra ályktana sem Hermstein
og Murray draga af rannsóknum sín-
um. Kenning þeirra er sú að drjúgur
hluti atvinnuleysis, fátæktar og glæpa
ráðist af lágri greindarvísitölu, þótt
auðvitað sé líka ýmislegt annað sem
veldur.
Einnig þama tekur Eysenck upp
hanskann fyrir tvíeykið. Hann segir
að samfélagið sé óðum að færast í það
horf að vélar vinni störf sem áður
vom unnin með striti. I þau störf sem
eftir eru þurfi talsvert vit og í þau velj-
ist því fólk sem hefur að minnsta kosti
þokkalega greindarvísitölu.
En hvað á þá að gera við þá sem
hafa lélega greindarvísitölu? Eysenck
segir að hugsanlega geti þeir fengið
vinnu við ýmis þjónustustörf, en hins
vegar sé þetta áleitið þjóðfélags-
Herrnstein og Murray. Eru þeir látn-
ir gjalda fyrir það eitt að fara með
óhrekjanlegan sannleika?
vandamál sem hverfi ekki þótt menn
neiti að hugsa um það.
Vandamálin em ennþá stærri,
skrifar Eysenck, í löndum eins og
Bretlandi, Bandaríkjunum og Frakk-
landi þar sem hlutfall blökkumanna er
hátt. Oll greindarpróf sem hafa verið
gerð síðan 1920 sýni sömu niður-
stöðu; að blökkumenn séu að meðal-
tali 15 stigum lægri í greindarprófum
en hvítir menn en 20 stigum lægri en
fólk af mongólskum kynþætti. Þetta
sé staðreynd og það dugi lítið að kalla
þá kynþáttahatara sem halda þessu
fram.
Skólarnir hafa brugðist
Eysenck segir að menn geti hins
vegar velt því fyrir sér hvort þessi
munur sé einungis arfgengur eða
hvort og þá hversu mikil séu áhrif
umhverfisþátta. Svörin muni ekki þó
ekki breyta neinu um muninn milli
hvítra og svartra. Það sé útilokað að
finna einhvetja töfraaðferð til að
breyta framtíðarhorfum tvítugra ein-
staklinga með litla greind og enn-
fremur sé harla fátt hægt að gera til að
hækka greindarvísitölu bama.
Þetta þýðir þó ekki að skólakerfið
hafi engum skyldum að gegna við
hina lítt greindu. Eysenck segir að
skólamir verði að vera í stakk búnir
að bæta líf þeirra með því að tryggja
þeim ákveðna hæfni í lestri, skrift og
reikningi, nokkuð sem skólakerfinu í
Bretlandi og Bandaríkjunum hafi al-
gerlega láðst að gera. Það geri hins
vegar bara illt verra að blanda greind-
um og lítt greindum saman í bekki
eins og hefur verið þróunin undan-
fama áratugi. Það tryggi einungis að
hinir ógreindu komast aldrei nálægt
sínum hámarksárangri á meðan hinir
greindu líða andlegan skort.
En ef greind ræðst fyrst og fremst
af ertðurn er þá ekki eðlilegt að álykta
að munurinn milli kynþátta sé líka
arfgengur. Eysenck segir að svo þurfi
ekki endilega að vera, heldur sé vel
hugsanlegt að umhverfið hafi þar tals-
verð áhrif. Þannig bendir hann á að
líkamshæð stjómist af erfðum. Japan-
ir og Kínverjar séu smærri vexti en
fólk af kákasískum kynstofni. Hins
vegar séu böm Japana og Kínverja
sem fiytja til Bandaríkjanna yfirleitt
talsvert hærri en foreldrar þeirra og
forfeður, líklega vegna mataræðis.
Eysenck spyr hvort jætta geti ekki
líka átt við um greindarvísitölu. Hann
gefur ekkert svar við þessu, enda er
eifitt um vik að gera rannsóknir sem
gætu gefið raunhæfa vísbendingu. í
bók sinni vega Hermstein og Murray
salt milli erfða og umhverfisþátta og
Eysenck segir að það sé í samræmi
við niðurstöður helstu sérfræðinga á
þessu sviði.
Hengdir sendibodar
F’rófessor Eysenck segir að í raun-
inni sé fátt nýtt við bók Hermsteins og
Murrays. Sjálfur hafi hann sett fram
svipaðar hugmyndir fyrir tveimur
áratugum og ekki fengið síður óblíðar
viðtökur. Nú eins og þá séu menn
reiðubúnir að hengja sendiboðann
fyrir að flytja ill tíðindi. Fólk sem telji
sig frjálslynt og aðhyllist málfrelsi í
orði kveðnu umhverfist andspænis
þessari umræðu og sé reiðubúið að
heimta ritskoðun eða kasta bókum á
bálköst.
Vandamálin sem tengjast misjöfnu
gáfnafari em jafn raunvemleg fyrir
þvf, segir hann. I Malasíu hafa inn-
fæddir til dæmis lægri gáfnavísitölu
en fjöldi Kínveija sem þangað hefur
flutt. I hefndarskyni voru fjölmargir
Kfnverjar myrtir í kynþáttaóeirðum
þar í landi og þeir þurfa að sæta því að
settir em kvótar á tjölda þeima í há-
skólum. Og, örlög gyðinga, sem taka
hærri greindarpróf en allir aðrir kyn-
þættir em betur kunn en frá þurfi að
segja. Segir prófessor Eysenck.