Alþýðublaðið - 17.11.1994, Blaðsíða 1
A-mynd: E.OI.
Fimmtudagur 17. nóvember 1994
Stofnað 1919
175.tölublað - 75. árgangur
Prófkjör Alþýðuflokksins á Vesturlandi:
Alþýðublaðið í dag
Silfur Egils 2
Spáð í úrslitin í
Svíþjóð í leiðara 2
Vilhjálmur
Þorsteinsson
finnur úrræði fyrir
Alþýðuflokkinn 3
Santer í viðtali um
ESB og Norður-
lönd 5
Endurminningar
Friðriks Þórs 7
Ný saga eftir Vigdfsi GRANDAVEGUR 7 er heiti á nýrri skáldsögu eftir Vigdísi
Grímsdóttur. „Þetta er ástarsaga að flestu leyti. Sögusviðið er Reykjavik, Grandavegur, Vesturbærinn og fjaran.
Sagan gerist árið 1987. Reyndar er farið mun lengra aftur í tímann eða allt aftur til fjórða áratugarins. Þetta er
löng saga sem ég hef unnið að í að minnsta kosti tvö ár," sagði Vigdís þegar við litum inn hjá henni í gærdag.
Mjög tvísýn barátta
Sveins Þór og Gísla
Gísli S. Einarsson alþingismaður þykir sigurstranglegri, en Sveinn Þór Elinbergsson hefur saxað á forskotið.
„Það er Ijóst að barátlan milli mfn
og Sveins Þórs er í járnum; hún er
mun jafnari og meira spennandi en
ég bjóst við. Hann hefur saxað mik-
ið á forskot mitt,“ sagði Gísli S.
Einarsson alþingismaður í samtali
við Alþýðublaðið í gær um próf-
kjörsbaráttu hans og Sveins Þórs El-
inbergssonar, aðstoðarskólastjóra í
Snæfellsbæ. Þeir takast á um efsta
sæti framboðslista Alþýðuflokksins
á Vesturlandi í prófkjöri sem fram
fer á laugardaginn.
„Þetta hefur verið hörð og snörp
barátta. Gísli hefur ákveðið forskot
sem sitjandi þingmaður og ég geri
mér fulla grein fyrir að það er á
brattann að sækja. En ég hef fengið
mikil og góð viðbrögð. Sérstaklega
hérna á Snæfellsnesi þar sem menn
vilja auka hlut sinn á Alþingi,“
sagði Sveinn Þór í samtali við blað-
ið.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru frambjóðendurnir nokkuð jafnir
sem stendur, en Gísli þykir þó tals-
vert sigurstranglegri; einkum vegna
öflugs baklands á Akranesi.
Sveinn Þór þykir öruggur með
drjúgan stuðning á Snæfellsnesi,
sinni heimabyggð. Hann fór kröft-
uglega af stað og kom stuðnings-
mönnum Gísla á óvart, en nú þykja
Akurnesingarnir hafa tekið við sér.
Að sögn kunnugra eru það Borg-
nesingar sem ráða úrslitum; fái
Sveinn Þór stuðning þeirra getur
það gert gæfumuninn. Sveinn
Gunnar Hálfdánarson, oddviti
Borgnesinga, mun hafa lýst yfir af-
dráttarlausum stuðningi við fram-
boð Sveins Þórs.
- Sjá fréttaskýringu
og viðtöl á baksíðu.
*
Islensku bókmenntaverðlaunin:
Aðeins 41 bók lögð fram
Einungis 41 bók var lögð fram, af
hálfu bókaútgefanda, til þess að
keppa um tilnefningar til Islensku
bókmenntaverðlaunanna. Tíu bæk-
ur eru tilnefndar, fimm í flokki fag-
urbókmennta og fimm í flokki al-
mennra bókmennta sem svo er kall-
aður, og inniheldur fræðirit, ævi-
sögur. handbækur og fleira. 25
bækur voru lagðar fram í flokki fag-
urbókmennta en aðeins 16 í al-
menna flokknum; þar eru þvf þriðj-
ungslíkur á því að bók hljóti tilnefn-
ingu. Utgefendur þurfa að borga
25.000 krónur með hverri bók sem
lögð er fram, til þess að standa
straum af tilkostnaði. Verðlaunin
nerna 500 þúsund krónum í hvorum
flokki. í Bókatíðindum, sem vænt-
anleg em innan skamms, em kvnnt-
ar nflega 320 bækur. Þrátt fyrir að
inni í þeirri tölu séu þýddar bækur
er ljóst að aðeins hluti íslenskra
bóka kemur til greina þegar til-
nefndar eru bækur til Islensku bók-
menntaverðlaunanna. Þriggja
manna dómnefndir eru nú að störf-
um íbáðum flokkum, og tilnefning-
ar þeitra verða kynntar 5. desember.
Síðan tekur önnur dómnefnd til
starfa og velur sjálf verðlaunaverk-
in. Endanleg niðurstaða liggur
þannig ekki fyrir fytren í febrúar-
byrjun á næsta ári. Dómnefndin,
sem tilnefnir bækur í flokki fagur-
bókmennta, er skipuð þeim Guð-
mnu Nordal, Asdísi Egilsdóttur og
Þorsteini Þorsteinssyni. I hinni
dómnefndinni eru Olafur Oddsson,
Haraldur Ólafsson og Sverrir Tóm-
asson. Fimm rilhöfundar hafa feng-
ið verðlaunin síðan þau voru fyrst
veitt: Stefán Hörður Grímsson,
Fríða A. Sigurðardóttir, Guðbergur
Bergsson, Þorsteinn frá Hamri og
Hannes Pétursson.
Undirbúningur kröfugerðar verkalýðsfélaga langt komin:
Ekki viðstaddir prédikanir VSÍ
- segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, en félagið er
að móta eigin kröfugerð.
„Við viljum ekki vera í þessu
kompaníi sem verið hefur undanfar-
in ár. Þar hefur sextíu til níutíu
manns af öllu landinu verið smalað
saman og látnir sitja í tvo til þrjá
mánuði þar til þeir eru orðnir svo
leiðir og uppgefnir að þeir em jafn-
vel reiðubúnir að skrifa undir kaup-
lækkun fái þeir að komast út og heim
til sín. Vinnuveitendasambandið
mun ekki draga okkur í þennan hóp.“
sagði Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar.
Guðmundur sagði Dagsbrún hins
vegar eiga samleið með öðmm fé-
lögum hvað varðar kröfur um skatt-
leysismörk, skattamál og að breyta
samsetningu lánskjaravísitölunnar
eða fella hana niður. @Meginmál =
Formaðurinn sagði kröfugerð Dags-
brúnar vera í mótun. Daglega væru
hópar manna úr ýmsum starfsgrein-
um að fjalla unt þessi mál og ætti
kröfugerð að liggja fyrir unt mán-
aðamótin. Félagið væri að niörgu
leyti sér á báti þar sem 80 til 90% fé-
laga í mörgum öðmm verkalýðsfé-
lögum störfuðu við ftskvinnslu.
Fjöldi Dagsbrúnarmanna starfaði
hins vegar við flutninga, skipaaf-
greiðslu, á vinnuvélum og við bygg-
ingastörf. Þetta hefði allt dregist aft-
ur úr í kjarabótum og nú þyrfti að
verða þar breyting á.
„Vinnuveitendasambandið getur
haldið sínar afmælishátíðir og fíló-
sóferað í Garðastræti eða Karphús-
inu. Við verðum ekki viðstaddir þær
prédikanir. Ef Alþýðusambandið
ætlar að elta þá, þá mega þeir gera
það, en við verðum ekki í fylgd með
þeim. Hins vegar emm við til í sam-
vinnu varðandi þau mál sem ég gat
um áðan,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson.
Hækkun tii sumra
„Landssamböndin fara með sín
sénnál í komandi kjarasamningum
en mál sem snúa að ríkinu gætu ver-
ið á sameiginlegu borði. En það er
verið að funda í öllum deildum
Verkamannasambandsins og með
hinum ýmsu starfshópum hingað og
þangað um landið," sagði Björn
Grétar Sveinsson formaður sam-
bandsins.
Björn var spurður hvort verkfall
sjúkraliða benti til þess að aukin
harka væri að koma frant í kjarabar-
áttunni:
„Það er opinbert leyndarntál að
hér hefur orðið launaskrið, bæði þar
sem menn hafa verið að skríða upp
um launaflokka og svo gegnunt
kjarasamninga. Það sem sjúkraliðar
ent að glíma við er að bera sig saman
við þessa stéttir, sem meðal annars
vinna inni á sjúkrastofnunum. Það er
raunar verið að tjalla um það sem
þegar hefur átt sér stað. Það er kanski
ný launastefna hjá íjármálaráðherra
að það séu bara sumir sem eiga að fá
hækkun en ekki aðrir. Eftir því sem
menn eru minna menntaðir þeim
ntun ntinni hækkun fái þeir. Þetta er
kanski nýja stefnan og það verður þá
bara tekist á um hana. Við skulum
sjá hverjir standa upp af þeint velli,“
sagði Bjöm Grétar Sveinsson.
Fyrstu vidtöl
„Það hefur verið í gangi veruleg
vinna út í félögunum og samböndun-
um og fyrstu viðtöl fulltrúa lands-
sambandanna við samtök atvinnu-
rekenda eru að fara í gang. Jafnframt
eru forystumenn sambandanna í
sameiginlegri vinnu við að ganga frá
sinni tillögugerð sem yrði sameigin-
leg gagnvart stjórnvöldum og hugs-
anlega atvinnurekendum," sagði
Benedikt Davíðsson forseti Alþýðu-
sambands Islands.
Benedikt sagði ennfremur að svo
virtist sem ríkið hefði verið að móta
vissa launastefnu í vor og sumar og
það hlyti að hafa áhrif á allan vinnu-
markaðinn. Hann sagði að Alþýðu-
santbandið yrði með sambands-
stjórnarfund í næstu viku og um
mánaðamótin ætti kröfugerðin að
verða orðin nokkuð ljós.
A 30. þingi Alþýðusambands
Vestfjarða um síðustu helgi var sam-
þykkt að krefjast þess að lægstu
mánaðarlaun verði ekki lægri en
80.000 krónur fyrir lok næsta santn-
ingstímabils.