Alþýðublaðið - 22.11.1994, Síða 1
Alþýðubandalagið leikur á reiðiskjálfi:
Ragnar Arnalds útilokar
ekki fomnannsframbod
Sveinn Allan Morthens miðstjórnarmaður segir skilið við Alþýðubandalagið og gengur til liðs við Jóhönnu.
Jóhanna vísar til föðurhúsanna ásökunum Ólafs Ragnars um „lágkúruleg vinnubrögð og baktjaldamakk.“
„Eg er ekki farinn að trúa þessu
ennþá,“ sagði Ragnar Arnalds þing-
maður Alþýðubandalagsins á Norð-
urlandi vestra eftir að Alþýðublaðið
færði honum þau tíðindi í gær að
Sveinn Allan Morthens hefði sagt
skilið við flokkinn, og væri genginn
til liðs við Jóhönnu Sigurðardóttur.
Sveinn Allan var í miðstjóm Al-
þýðubandalagsins, einn helsti for-
ystumaður flokksins nyrðra og talinn
líklegur sem eftirmaður Ragnars
Amalds á Alþingi.
Sveinn Allan sagði í samtali við
Alþýðublaðið að hann vissi að innan
Alþýðubandalagsins væri mikill vilji
fyrir samfylkingu á vinstri væng.
Það hefði komið glöggt í ljós á mið-
stjómarfundi nýverið. Varaformaður
flokksins hefði hinsvegar blásið á
allar slíkar hugmyndir og talað um
þær af mikilli óvirðingu.
Alþýðublaðið hefur hinsvegar
traustar heimildir fyrir því að megin-
skýringin á brotthvarfi Sveins Allans
sé óánægja með Ragnar Amalds,
sem hefði hætt við að hætta sem
þingmaður - og stæði þarmeð í vegi
fyrir Sveini Allan.
Sveinn Allan er annar þungavigt-
amiaður Alþýðubandalagsins á
landsbyggðinni sem gengur til liðs
við Jóhönnu Sigurðardóttur. Um
helgina sagði formaður kjördæmis-
ráðsins á Suðurlandi, Ragnheiður
Jónasdóttir, skilið við flokkinn. Ól-
afur Ragnar Gnmsson hefur af þessu
tilefni sakað Jóhönnu um „lágkúru-
leg vinnubrögð og baktjaldamakk". I
samtali við Alþýðublaðið í gær vís-
aði Jóhanna ummælum Ólafs Ragn-
ars heim til föðurhúsunna.
Ragnar Amalds staðfesti að hann
hefði ákveðið að gefa áfram kost á
sér eftir að hafa orðið fyrir miklum
þrýstingi, meðal annars frá Ólafi
Ragnari. Aðspurður staðfesti hann
einnig að ýmsir hefðu orðað við
hann fonnannsframboð, en Ólafi
Ragnari er gert að hætta á næsta ári
eftir átta ár á formannsstóli. Ragnar
neitaði að upplýsa hvort hann gæti
hugsað sér að styðja Steingrím J.
Sigfússon til formennsku.
Sjá fréttaskýringu á baksíðu.
Fádæma þátttaka í
prófkjöri Alþýðu-
flokksins á Vestur-
landi:
Jafnvel
bændur
óku tugi
kflómetra
til að kjósa
„Þetta var meiriháttar prófkjör
og glæsileg útkoma fyrir Alþýðu-
flokkinn. Þátttakan var mikið betri
en bjartsýnustu menn höfðu þorað
að vona. Að bændur ækju tugi kfló-
metra til að taka þátt í prófkjöri Al-
þýðuflokksins hefði nú einhvern
tímann þótt saga til næsta bæjar,“
segir Gísli. S. Einarsson, en hann
varð efstur í fádæma fjölmennu
próíkjöri Alþýðuflokksins á Vestur-
landi síðastliðinn laugardag. Hann
hlaut 961 atkvæði í fyrsta sæti.
Sveinn Þór Elinbergsson, aðstoðar-
skólastjóri í Snæfellsbæ, var keppi-
nautur Gísla í prófkjörinu en aðeins
var kosið um efstu tvö sæti fram-
boðslistans. Sveinn Þór hlaut 546 at-
kvæði.
1509 kusu í prófkjörinu sem er
aukning um rúmiega 700 atkvæði
frá því síðast. Auðir seðlar voru
tveir. A laugardaginn kusu 276 fleiri
í prófkjörinu en Alþýðuflokkinn í
kjördæminu í síðustu Alþingiskosn-
ingum. Sé litið á stöðu flokksins í
kjördæminu þá nýtur hann 15,4%
fylgis samkvæmt prósentuhlutfalli
þátttakcnda í prófkjörinu af at-
kvæðisbærum í kjördæminu. Kosn-
ingin er bindandi og mun kjördæm-
isráð Alþýðuflokksins á Vesturlandi
stilla upp í 3. til 10. sæti listans á
fundi sínum eftir um það bil hálfan
mánuð.
- Sjá umfjöllun á baksíðu.
Eggert Haukdal:
Margir
meða
lista
Eggert Haukdal alþingismað-
ur íhugar nú alvarlega að efna
til sérframboðs við komandi
kosningar. Hann segir í samtali
við blaðið Fréttir í Vestmanna-
eyjum að margir vilji koma á
lista með sér.
Eggert er hvergi banginn í
viðtali við Fréttir og hefur þetta
að segja: „Það hafa margir vítt
og breitt um kjördæmið hvatt
mig til að fara fram. F'ólk um
allt kjördæmið er tilbúið til að
koma með mér á lista og það á
líka við um Vestmannaeyjar.“
Lista-
verk
undir
dúk
„Við skelltum líka striga yfir Ingólf
Arnarson og ætluðum raunar einn-
ig að breiða yfir Jón Sigurðsson á
Austurvelli en náðum ekki upp á
hann, „ sagði Brynhildur Þorgeirs-
dóttir myndlistarmaður í samtali
við blaðið. Myndlistarmenn komu
saman við listaverk Jóns Gunnars
Árnasonar, Sólfar, í hádeginu í gær
og breiddu yfir það. Þetta var gert
til að vekja athygli á að ekki er gert
ráð fyrir fjárframlagi til Listskreyt-
ingasjóðs ríkisins á fjárlögum
næsta árs. Á þessu ári ver sjóður-
inn 7,3 milljónum til listaverkaka-
upa og verkefna og í fyrra keypti
sjóðurinn fyrir liðlega 22 milljónir
króna. Menntamálaráðherra vill
endurskoða starfsemi sjóðsins. A-
myndir: E.ÓI.
Ráðstefna Alþýðuflokksins um Evrópumál:
ESB-umsókn kemur til greina
-segir Sighvatur Bjarnason, formaður Sambands íslenskra fiskframleiðenda, ogtelur að íslendingar geti
náð betri samningum en Norðmenn.
„Við eigum að ræða Evrópumálin
í fullri alvöru og skoða umsókn að
Evrópusambandinu, en ekki að
henda þessu frá okkur án þess að
vita hvað er í pakkanum", sagði Sig-
hvatur Bjarnason, formaður SÍF, á
ráðstefnu Alþýðuflokksins um Evr-
ópumál á sunnudaginn. Hann tók
þar þátt í pallborðsumræðum ásamt
Jóni Baldvin Hannibalssyni utnarík-
isráðherra, Hauki Halldórssyni for-
manni Stéttasambands bænda og
Ara Skúlasyni framkvæmdastjóra
ASÍ.
Það kom einnig fram í máli Sig-
hvatar Bjamasonar að hann telur
sjávarútvegssamning Norðmanna
við ESB óviðunandi fyrir Islend-
inga. Hann telur hins vegar að við
ættum að geta náð betri samningum
en Norðmenn náðu við Evrópusam-
bandið. Þetta byggir hann meðal
annars á því að íslendingar séu yfir-
leitt betri samningamenn en Norð-
menn og vísaði í því sambandi til
sölusamninga sem íslenskir og
norskir fiskútflytjendur hafa verið
að gera að undanfömu.
Aður en pallborðsumræðumar
hófust, kynntu fulltrúar þriggja
stofnana Háskóla íslands niðurstöð-
ur skýrslna um kosti og galla ESB-
aðildar fyrir ísland. I máli þeirra
kom fram að greinilegt væri, að
kostimir væm mun fleiri en gallam-
ir og því bæri að athuga það betur
hvort viðræður um umsókn að ESB
væri ekki vænlegur kostur fyrir ís-
land.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði í
ræðu sinni að það væri mikilvægt
fyrir Islendinga að heíjast strax
handa við að skilgreina samnings-
markmið sín og, láta sfðan á það
reyna með umsókn hverju við næð-
um fram í samningaviðræðum við
ESB. Þetta væri eina leiðin til þess
að fá ffam raunverulega kosti og
galla aðildar að ESB. Þjóðin myndi
að sjálfsögðu eiga síðasta orðið í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það kom fram í máli allra þátttak-
enda á ráðstefnunni að mikil þörf
væri opinni og ítarlegri umræðu um
aðild að ESB. Ljóst er að áhugi al-
mennings á málinu er mikill því um
250 manns sóttu ráðstefnuna á Hótel
Sögu og urðu sumir frá að hverfa
vegna þrengsla.
- Sjá umfjöllun á blaðsíðu 7.