Alþýðublaðið - 22.11.1994, Síða 8
MPBUBLMD
Þriðjudagur 22. nóvember 1994 177.tölublað - 75. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Tekist á innan Alþýðubandalagsins - og áhrifamenn í tveimur kjördæmum ganga til liðs við
Jóhönnu Sigurðardóttur:
„Ég gekk úr Alþýðubandalaginu
nú í hádeginu og hafði eftir það sam-
band við Jóhönnu Sigurðardóttur og
lét hana vita að ég væri tilbúinn að
starfa með félagshyggjuframboði
hennar," sagði Sveinn Allan Mort-
hens í samtali við Alþýðublaðið í
gær. Sveinn Allan var miðstjómar-
maður í Alþýðubandalaginu og for-
maður Alþýðubandalagsfélags
Skagafjarðar síðastliðinn sex ár. Ur-
sögn hans er alvarlegt áfall fyrir Al-
þýðubandalagið enda var almennt
litið svo á, að Sveinn Allan yrði eft-
irmaður Ragnars Amalds í Norður-
landskjördæmi vestra.
Ragnar Arnalds
í önnur 32 ár!
Þegar Sveinn Allan var spurður
hvort hann hefði verið óánægður
með að Ragnar Amalds gæfi kost á
sér eitt kjörtímabil enn, svaraði
hann: „Ég get alveg unnt Ragnari
Arnalds þess að sitja á þingi í önnur
32 ár. Málið er hinsvegar það, að
þegar víðtækur áhugi er meðal fólks
fyrir breiðfylkingu félagshyggjuafl-
anna, þá þarf líka breytingar á foryst-
unni. Ragnar Amalds hefur unnið
vel, einsog reyndar aðrir þingmenn
Alþýðubandalagsins. Nú em hins-
vegar vatnaskil í pólitíkinni, og þá er
enginn ómissandi, ekki einu sinni
Svavar Gestsson eða Ragnar Am-
alds. Kirkjugarðamir eru fullir af
ómissandi þingmönnum."
Sveinn Allan sagði að á nýlegum
miðstjómarfundi Alþýðubandalags-
ins í Keflavík hefði komið fram
greinilegur og víðtækur vilji fyrir
samfylkingu með öðmm félags-
hyggjuöflum.
„Strax næsta mánudag sagði hins-
vegar varaformaður Alþýðubanda-
lagsins á blaðamannafundi, þarsem
hann talaði fyrir hönd þingflokksins,
að samfylking væri útúr myndinni
og hefðbundnir G-listar yrðu boðnir
fram.
Þegar forystumenn í flokkunum
tala um kröfu fólks um uppstokkun
sem einhveija loftbólu, þá lýsir það
ótrúlegri óvirðingu."
Ragnar Arnalds útilokar ekki að
hann bjóði sig fram til formanns
Alþýðubandalagsins á næsta ári.
Sveinn Allan kvaðst vilja undir-
strika að hann segði ekki skilið við
Alþýðubandalagið vegna óánægju
með stefnu flokksins, heldur þau
vinnubrögð sem þar tfðkuðust.
Trúi þessu ekki ennþá
„Ég átta mig ekki á þessu. Þetta er
alveg þvert á það sem Sveinn Allan
hefur gert og sagt undanfama mán-
uði. Ég er ekki farinn að trúa þessu
ennþá,“ sagði Ragnar Arnalds al-
þingismaður þegar honum vom færð
tíðindi af úrsögn Sveins Allans í gær.
Ragnar sagði að á aðalfundi Al-
þýðubandalagsfélags Skagafjarðar,
sem haldinn var fyrir níu dögum,
hefði Sveinn Allan gefið þá yfirlýs-
ingu að hann ætlaði ekki að starfa
innan flokksins en myndi hinsvegar
styðja Alþýðubandalagið í kosning-
unum.
Jóhann Svavarsson, stjómarmað-
ur í Alþýðubandalagsfélagi Skaga-
fjarðar, kom einnig af fjöllum þegar
Alþýðublaðið barúrsögn Sveins All-
ans úr flokknum undir hann: „Þetta
em ágætistíðindi. Hann var óánægð-
ur, og menn eiga að fylgja sinni
sannfæringu. Það hefur hann gert.“
Jóhann staðfesti að Sveinn Allan
hefði fyrir nokkmm dögum gefið út
afdráttarlausa yfirlýsingu um að
hann hygðist styðja Alþýðubanda-
lagið í vor.
Ólafur Ragnar lagði fast að Ragnari
Arnalds að halda áfram þing-
mennsku.
Eftirmadur Ragnars
Ahrifamikill heimildamaður inn-
an Alþýðubandalagsins sagði að
Sveinn Allan Morthens hefði verið
mjög óánægður með þá ákvörðun
Ragnars Amalds að gefa kost á sér
eitt kjörtímabil enn. Ragnar var fyrst
kjörinn áþing 1963.
Sveinn Allan var almennt álitinn
sterkasti kandidatinn sem eftirmaður
Ragnars. Eftir að Ragnar ákvað að
taka einn slag enn, lá hinsvegar fyrir
að Sveinn Allan fengi ekki eitt af
efstu sætum. Anna Kristín Gunnars-
dóttir, bæjarfulltrúi á Sauðárkróki,
sækist stíft eftir 2. sæti, en þar er nú
Sigurður Hlöðversson á Siglufirði.
Þrýstingur frá
Ólafi Ragnari
En var Ragnar Arnalds búinn að
taka ákvörðun um að láta af þing-
mennsku í vor? „Nei, ég var nú ekki
búinn að ákveða það,“ sagði Ragnar.
„Hinsvegar hvarflaði sterklega að
mér að slá botninn í þetta, og það var
á margra vitorði. Ég fékk sterka
hvatningu úr öllu kjördæminu að
halda áfram - ekki síst frá Sveini
Allan. Það geta margir staðfest."
Aðspurður staðfesti Ragnar að Ol-
afur Ragnar Grímsson formaður Al-
þýðubandalagsins hefði lagt að sér
að halda áfram þingmennsku.
Ragnar hefur uppá síðkastið verið
Jóhanna vill
enga sameiningu
- segir Margrét Frímannsdóttir alþingismaður.
Hún segir vinnubrögð Jóhönnu „sérkennileg". Jó-
hanna vísar ásökunum Ólafs Ragnars um „lág-
kúruleg vinnubrögð“ til föðurhúsanna.
„Þetta em hugarórar í Ólafi Ragn- ég upplýst að ég hef aldrei talað við
ari og til marks um vanstillingu
hans,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir í
samtali við Alþýðublaðið í gær. 01-
afur Ragnar gagnrýndi Jóhönnu
mjög harkalega í Morgunpóstinum í
gærmorgun fyrir afskipti hennar af
úrsögn formanns kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins á Suðurlandi,
Ragnheiðar Jónasdóttur, úr flokkn-
um um helgina. „Lágkúmleg vinnu-
brögð og baktjaldamakk" vom þau
orð sem ÓJafúr Ragnar notaði til
þess að lýsa vinnubrögðum Jóhönnu.
„Ef atburðimir í Alþýðubandalag-
inu á Suðurlandi em tilefnið, þá get
Margrét Frímannsdóttir: Jóhanna
fór úr Alþýðuflokknum af því 60%
flokksmanna vildu hana ekki sem
formann - hún fór ekki af því væri
ósátt við stefnu ríkisstjórnarinnar.
þessa konu,“ sagði Jóhanna.
Þá sagði Jóhanna: „Þeir sem gefa
sig fram við hina nýju hreyfmgu gera
það af fúsum og fijálsum vilja. Það
er ansi langsótt að við séum að lokka
fólk til liðs við okkur, við höfum
engin embætti að úthluta og það er
ekkert farið að skipa á framboðslista.
Ólafur Ragnar ætti frekar að skoða
afhverju fólk er að fara úr Alþýðu-
bandalaginu. Viðbrögð hans koma
mér mjög á óvart, enda eiga ásakanir
hans ekki við rök að styðjast."
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Alþýðubandalagsins á Suður-
landi, sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær að vinnubrögð Jóhönnu
væru „sérkennileg".
„Mér finnst það líka einkennilegt,
að við Jóhanna höfum oft setið og
rætt hvort hægt sé að mynda breið-
fylkingu vinstri manna, en sama
tíma er hún á fullu að undirbúa sína
lista og ræða við alþýðubandalags-
fólk.
Ég veit ekki hversu mikil alvara er
á bakvið tal Jóhönnu um sameiningu
vinstri manna, hún hefur að minnsta
kosti aldrei leitað eftir slíku sam-
starfi. Hún fór útúr Alþýðuflokknum
af því 60% flokksmanna vildu hana
ekki sem formann - hún fór ekki af
því hún væri ósátt við stefnu ríkis-
stjómarinnar. Hún segist vilja vinna
að samfylkingu. Ég held að það sé
ekki rétt.“
Steingrímur J. Sigfússon. Boðaði
ómengaða G-lista - og það fyllti
mælinn hjá Sveini Allan.
orðaður við formannsstól í Alþýðu-
bandalaginu, en á næsta ári verður
Ólafur Ragnar að láta af því embætti,
samkvæmt flokkslögum, enda hefur
hann þá verið formaður í átta ár.
Sumir af stuðningsmönnum Ólafs
Ragnars í Alþýðubandalaginu hafa
viljað fá Ragnar til að „hlaupa í
skarðið í tvö ár eða svo, til þess að
við sitjum ekki uppi með Steingrím
J. Sigfússoríj einsog einn heimilda-
maður orðaði það í samtali við blað-
ið í gær. Tilgangurinn með þessari
pólitísku fléttu er vitaskuld sá, að
koma Ólafi Ragnari aftur í for-
mannsstólinn innan tíðar.
Ragnar var komungur þegar hann
var kjörinn formaður Alþýðubanda-
lagsins 1968 og gegndi því embætti
til ársins 1977.
„Vissulega hefur verið rætt við
mig af sumum að ég ætti að gefa kost
á mér í formannsembætti," sagði
Ragnar Arnalds, en þvertók fyrir að
Ólafur Ragnar væri í þeim hópi.
Hann hefði „ekki minnst á það einu
orði“.
Ragnar vildi ekki útiloka neitt, en
sagðist telja eðlilegra að yngri maður
tæki við. En styður hann þá Stein-
grím J. Sigfússon til formennsku?
„Ég vil ekki svara þvf. Ég vil ekki
gefa neinar yfirlýsingar um þessi
mál.“
Jóhanna Sigurðardóttir neitar ásökunum Ólafs Ragnars um lágkúruleg
vinnubrögð og baktjaldamakk: Hann ætti frekar að skoða afhverju fólk er
að fara úr Alþýðubandalaginu.
Kirkjugardamir eru fullir
af ómissandi þingmönnum
- segir Sveinn Allan Morthens sem hefur sagt sig úr Alþýðubandalaginu og gengið til
liðs við Jóhönnu. Óánægja á Norðurlandi með Ragnar Arnalds - sem útilokar ekki for-
mannsframboð í Alþýðubandalaginu á næsta ári.
R-listinn íVesturbæ
Hverfisfélag Reykjavíkurlistans í
Vesturbæ verður stofnað í kvöld á
fundi sem haldinn verður íTæknigarði,
Dunhaga 5, og hefst klukkan 20:30.
Allir stuðningsmenn Reykjavíkurlist-
ans í Vesturbæ (gamli Vesturbær, Mel-
ar, Hagar, Grandi, Skjól og Skerja-
fjörður) geta orðið félagar. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri kemur á
fundinn og mun ræða borgarmálefnin
og svara fyrirspurnum.
Vinningstölur
laugardaginn:
19. nóv. 1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n 0 4.445.453
g+4af5 5 89.819
04af5 105 7.378
Ej3af5 3.851 469
BÓNUSTALA:
23
Heildarupphæð þessa viku
kr. 7.475.357
UPPtÝSINGAR, SlMSVARI »1- 88 1S 11
LUKKULlNA 98 10 00 - TEXTAVARP 8S1
Alþýðuflokkurinn með 15,4% á Vesturlandi
„Þetta var meiriháttar prófkjör og glæsileg útkoma fyrir Alþýðuflokkinn,11 segir Gísli. „Prófkjörið
sýndi að það borgar sig fyrir flokkinn að vera ófeiminn og starfa á lýðræðislegan hátt fyrir opnum
tjöldum. Málefnastaðan er góð; verkin tala,“ segir Sveinn Þór.
Gísli S. Einarsson, alþingismaðurfrá
Akranesi, varð efstur í fádæma fjöl-
mennu prófkjöri Alþýðuflokksins á
Vesturlandi síðastliðinn Iaugardag.
Hann hlaut 961 atkvæði í fyrsta sæti.
Sveinn Þór Elinbergsson, aðstoðar-
skólastjóri í Snæfellsbæ, var keppinaut-
ur Gísla í prófkjörinu en aðeins var kos-
ið um efstu tvö sæti framboðslistans.
Sveinn Þór hlaut 546 atkvæði. 1509
kusu í prófkjörinu sem er aukning um
rúmlega 700 atkvæði frá því síðast.
Auðir seðlar voru tveir. Á laugardaginn
kusu 276 fleiri í prófkjörinu en Alþýðu-
flokkinn í kjördæminu f síðustu Al-
þingiskosningum. Sé litið á stöðu
flokksins í kjördæminu þá nýtur hann
15,4% fylgis samkvæmt prósentuhlut-
falli þátttakenda í prófkjörinu af at-
kvæðisbærum í kjördæminu. Kosning-
in er bindandi og mun kjördæmisráð
Alþýðuflokksins á Vesturlandi stilla
upp í 3. til 10. sæti listans á fundi sínum
eftir um það bil hálfan mánuð.
Gísli S. Einarsson: „Þetta var meiri-
háttar prófkjör og glæsileg útkoma fyr-
ir Alþýðuflokkinn. Þama tókust á tveir
ágætir vinir frá tveimur stærstu sveitar-
félögunum í kjördæminu. Þetta er í
fyrsta sinn sem keppni er á milli tveggja
manna með búsetu í kjördæminu um að
skipa efsta sætið og það hafði sitt að
segja. Þátttakan var mikið betri en bjart-
sýnustu menn höfðu þorað að vona. Ég
var að gera að því skóna á fostudags-
kvöldinu að á milli 1050 til 1160
myndu taka þátt en mikið fleiri mættu á
kjörstað. Menn voru að tala um það að
kynningin á prófkjörinu hefði ekki ver-
ið nógu góð en ég tel að hún hafi svo
sannarlega skilað sér; sérílagi síðustu
dagana. Aðbændurækju tugi kílómetra
til að taka þátt í prófkjöri Alþýðu-
flokksins hefði nú einhvem tímann þótt
saga til næsta bæjar. Ég vil þakka
stuðningsmönnum mínum alveg sér-
staklega fyrir frábæran stuðning og
Sveini Þór fyrir keppnina. Það var hann
sem lagði þyngsta áherslu á að prófkjör
yrði haldið og þess ber að minnast.
Sveinn Þór á að njóta sannmælis. Próf-
kjör hafa verið vinsælt form hér á Vest-
urlandi og gengið upp. Útkoman um
helgina var mjög gott veganesti fyrir
Alþýðuflokkinn vegna komandi Al-
þingiskosninga og ég er þakklátur fyrir
það traust sem kjósendur sýndu mér
með því að veita mér stuðning og þar
með flokknum brautargengi í kjördæm-
inu."
Sveinn Þór Elinbergsson: „Ég óska
Gísla hjartanlega til hamingju og þátt-
takan er mikill sigur fyrir Alþýðuflokk-
inn. En prófkjör em auðvitað eitt og
kosningar annað. Ég tel að listinn hefði
verið sterkari hefði verið tekið tillit til
þess, að sameiningin á Snæfellsnesi er
þess eðlis að íbúamir hafa mikla þörf á
þingmanni til viðbótar. Stuðningurinn
við mig var meiri en ég gerði ráð fyrir
og ég held að nær öll atkvæðin í Snæ-
fellsbæ, Borgamesi og Stykkishólmi
hafi farið til mt'n. Sigur Gísla er því
bundinn við Akranes. Ástæðan fyrir
mikilli þátttöku er bara elja okkar Gísla
því áhugaleysi þeirra sem að prófkjör-
inu stóðu var dæmaiaust. Ég gagnrýndi
framkvæmdina og kom með tillögur til
úrbóta en til einskis. Eftir að framboðs-
frestur rann út var til dæmis ítrekað
reynt, að fá mig ofan af framboði. Ég á
eftir að íhuga niðurstöðu prófkjörsins
og mína stöðu innan flokksins áður en
ég svara nokkm um það hvort ég tek
annað sætið. Ég færi mínu fólki bestu
þakkir fyrir stuðninginn og vel unnin
störf. Öll þessi Guðmundarmál og ang-
ist sem plagar flokkinn hefur gert það
að verkum, að við eigum f erfiðleikum
og mörgum finnst að við eigum að vera
hnípinn flokkur t' vanda og halda okkur
úl hlés í pólitík næstu mánuði; stinga
höfðinu í sandinn. En þannigeiga menn
ekki að berjast. Sókn er besta vömin og
við eigum að bera höfuðið hátt. Próf-
kjörið sýndi að það borgar sig fyrir
flokkinn að vera ófeiminn og starfa á
lýðræðislegan hátt fyrir opnum tjöld-
um. Málefnastaðan ergóð; verkin tala.“