Alþýðublaðið - 29.11.1994, Page 1
Þriðjudagur 29. nóvember 1994
Stofnað 1919
181.tölublað - 75. árgangur
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir:
Rólegra innan um
liónin í Afríku
- en í pólitísku umhverfi á íslandi núna. Ásta á fjölmennum stofnfundi Þjóðvaka en
hlaut góða kosningu í miðstjórn Framsóknar. Halldór fékk rússneska kosningu í for-
mannsembætti Framsóknarflokksins, Guðmundur varaformaður.
„Ég ætla aðeins að hugsa mig um
og sjá hvað setur,“ sagði Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir varaþingmaður
Framsóknarflokksins í Reykjavík
þegar hún var spurð hvaða áætlanir
hún hefði í pólitík. Ásta Ragnheiður
var kjörin í miðstjóm Framsóknar-
flokksins á sunnudaginn en sat þá
fund Þjóðvaka Jóhönnu Sigurðardótt-
ur. Á flokksþingi Framsóknar var
kjörin ný forysta. Halldór Ásgríms-
son fékk hvorki meira né rninna en
97% atkvæða í formannskosningum.
Guðmundur Bjamason fékk góða
kosningu sem varaformaður. Konur
vom kosnar í önnur embætti: Unnur
Stefánsdóttir gjaldkeri, Þuríður Jóns-
dóttir varagjaldkeri, Ingibjörg Pálma-
dóttir ntari og Drífa Sigfúsdóttir vara-
ritari. Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir var ekki á flokksþingi Framsóknar.
Hún beið lægri hlut fyrir Ólafi Emi
Haraldssyni í keppni unt 2. sæti á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík við
komandi þingkosningar. Hún hefur
dvalið í Afríku sem fararstjóri undan-
famar vikur og er nýkomin heim.
Hún sagði í gær að í Afríku hefði hún
verið innan um Ijón, tígrisdýr og hý-
enur, en það hefði verið mun rólegra
heldur en hið pólitíska umhverfi sem
hefði mætt henni hér við heimkom-
una. Sú staðreynd að Ásta Ragnheið-
ur kaus frekar að sitja fund Þjóðvaka
en flokksþing Framsóknarflokksins á
sunnudaginn kom forystumönnum
flokksins í opna skjöldu. Ekki síst þar
sem Ásta var 4. í röðinni við kjör í
miðstjóm flokksins sem fór fram
meðan á Þjóðvakafundinum stóð.
Nokkur þúsund bækur, takk... Þjóðarbók
hlöðunni berast sífellt rausnarlegar gjafir, og með sama áframhaldi hlýtur
að takast að fylla hinar auðu hillur áðuren langt um líður. I gær afhenti Par-
ker W. Borg, sendiherra Bandaríkjanna á Islandi, forráðamönnum Þjóðar-
bókhlöðunnar nokkur þúsund bækur að gjöf, í tilefni lýðveldisafmælis og
opnunar hins nýja safns. Um er að ræða bókakost Ameríska bóksafnsins,
en það var til skamms tíma rekið af Menningarstofnun Bandaríkjanna hér
á landi, og auk þess nokkur hundruð bækur um daglegt líf, sögu og stofn-
anir vestra sem pantaðar voru sérstaklega vegna afmælisins. Á myndinni
eru ánægðir bókamenn: Jóhannes Nordal, Einar Sigurðsson bókavörður,
Sveinbjörn Björnsson rektor og Parker W. Borg sendiherra. A-mynd: E.ÓI.
Ungir jafnaðarmenn:
Fordæma
„kampa-
vínsferð"
til Kína
Sambandsstjóm ungra jafnaðar-
manna sendi í gær frá sér afar harð-
orða ályktun vegna ferðar Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra til Kína.
í ályktuninni segir að það sé skylda
lýðræðislegra yfirvalda alstaðar í
heiminum að þrýsta á um mannrétt-
indi fyrir alla jarðarbúa; því skjóti
„það skökku við þegar æðsti hand-
hafi valds á Islandi þiggur boð eins
alræmdasta alræðis- og harðstjómar-
ríkis heims.“ Minnt er á miskunnar-
lausa slátmn á mótmælendum á
Torgi hins himneska friðar 1989 og
sagt að valdamenn í lýðræðisríkjum
eigi „ekki að fara í kampavínsferðir
til ríkja harðstjóma sem drottna í
valdi ofbeldis og kúgunar."
Óbreytt
verð
á fatnaði
Verð á fatnaði hefur nánast
staðið í stað hér á landi undan-
farna 12 mánuði þrátt fyrir 4 til
5% meðalhækkun innflutnings-
verðs á tímabilinu.
Skýringin er talin að hluta
vaxandi samkeppni innanlands
og það aðhald sem innkaupa-
ferðir til útianda veita. Svipaðra
áhrifa gætir í verðbreytingum
hcimilishúnaðar, auk þess sem
þar gætir áhrifa lægri nðflutn-
ingsgjalda í tengslum við gildis-
töku EES-samningsins.
Þessar upplýsingar koma
fram í fréttabréfi tjármálaráðu-
neytisins. Þar segir ennfremur
að verð á matvöru hafl lækkað
um 5,5% á síðastu 12 mánuðum.
Það skýrist einkum af lækkun
virðisaukaskatts á matvæli og
vaxandi samkeppni í matvöru-
verslun. Þetta svarar til þess að
fjölskvlda sem eyddi um 40 þús-
und krónum í mat í fyrra borgar
nú um 2.200 krónum minna fyr-
ir sögu vörutegundir.
L.ayi ct raom a siornTunai KjoovaKa A sjötta hundrað manns sóttu stofnfund
Þjóðvaka, hinnar nýju hreyfingar Jóhönnu Sigurðardóttur og stuðningsmanna hennar, á sunnudaginn. Á mynd-
inni bera saman bækur sínar Jóhanna Sigurðardóttir, Sóiveig Ólafsdóttir, Ágúst Einarsson, Ólína Þorvarðar-
dóttir og Runólfur Ágústsson. - Sjá umfjöllun blaðsíðu 6. A-mynd: E.ÓI
Hreinar línur Guðmundar Árna:
Margt sem
kemur á óvart
- segir Kristján Þorvaldsson skrásetjari
bókar um pólitískan feril Guðmundar
Árna Stefánssonar og aðdragandann að
afsögn hans.
„Ég er alveg viss um, að ýmis-
legt á eftir að korna mönnum á
óvart, ekki síst innan Alþýðu-
flokksins," segir Kristján Þorvalds-
son um efni bókarinnar Hreinar lín-
ur sent hann hefur unnið að uppá
síðkastið í samvinnu við Guðmund
Árna Stefánsson alþingismann.
Bókin kemur út hjá Fróða, og fjall-
ar öðrum þræði um lífshlaup Guð-
mundar Áma og pólitískan feril
hans, en mest og gerst er sagt frá
aðdraganda afsagnar hans sem fé-
lagsmálaráðherra.
Bókin er þannig unnin á skömm-
urn tíma en hún er væntanleg í
verslanir í byrjun næstu viku. En
hvað kom Kristjáni mest á óvart?
„Eftir að hafa farið yfir málin lið
fyrir lið, er ég eiginlega mest hissa
á því að Guðmundur Ámi skuli enn
vera uppistandandi - og síðan haft
þrek til að vinna bók um málið. En
þetta var geysilega áhugavert. Ég
hafði fylgst með málurn Guðmund-
ar Árna, einsog aðrir með dellu fyr-
ir þjóðmálum. Það var upplifun að
heyra hvemig þetta kom honum
fyrir sjónir og hvað gerðist bakvið
tjöldin, - hann segir frá símtölun-
um og leynifundununt þegar málið
var að ná hámarki."
Alþýduflokkurinn
er með 4% fylgi
Aiþýðuflokkurinn er með 4 pró-
senta fylgi, fengi þar af leiðandi
þrjá þingmenn ef kosið væri núna
til Alþingis og tapaði 7 þingmönn-
um frá því síðast. Þetta kemur
fram í skoðanakönnun sem DV
gerði um síðustu helgi og birti í
gær. Flokkur Jóhönnu, sem nú
hefur fengið nafnið Þjóðvakinn er
með 23,4% í sörnu könnun DV. 15
þingmenn fengi Þjóðvaki kjörna
og yrði því næststærsti stjórn-
málaflokkur landsins. Flokkur Jó-
hönnu hefur bætt við sig 15,6%
frá því í könnun DV í október.
í könnun blaðsins um helgina
reyndist Framsóknarflokkurinn
vera með 19% og 14 þingmenn
(bætir við sig cinum), Sjálfstæðis-
flokkurinn 34,6% og 18 þingmenn
(tapar 8), Alþýðubandalag 11,9%
og 9 þingmenn (stendur í stað),
Kvcnnalisti 7,1% og 4 þingmenn
(tapar 1). Ríkisútvarpið greindi
síðan frá því á laugardaginn var
að samkvæmt skoðanakönnun
sem Gallup gerði 16. til 23. nóvem-
ber er Alþýðuflokkurinn með
5,4%, Framsóknarflokkurinn
17,6%, Sjálfstæðisflokkur 40%,
Alþýðubandaiag 11,8%, Kvenna-
listi 5,8% og flokkur Jóhönnu með
17,6%. Þess má geta að sam-
kvæmt þessari könnun Gallup var
Alþýðuflokkurinn með 2,6% fylgi
í Reykjavík en 13% á Reykjanesi.
Fundir um ESB
Iivrópusanibandið og Iðnþróunarfc-
lag Eyjafjarðar standa fyrir ráðstefnu
unt málefni Evrópu á Akurcyri á
fimnitudaginn. Þá verður ráðstefna í
Reykjavík á fiistudaginn um Evrópu-
málin. Á Akureyri verður fjallað unt
stöðu norðlcnsks atvinnulífs með tilliti
til EES-samningsins og Evrópusam-
bandsins, ekki síst í Ijósi jK'irra breyt-
inga scm eiga sér stað í Evrópu vegna
inngöngu EFTA-ríkjanna í ESB. Mcöal
neðumanna verða Aneurin Rhys Hug-
hes sendiherra ESB á íslandi og Magn-
ús Gauti Gautason kaupfélagsstjóri
KEA. Ráðstefnan í Rcykjavík er haldin
á vegum ESB og ASÍ og bcr yfirskriftina
„Eigum við eríndi við Evrópusamband-
ið?“. Rannveig Guðmundsdóttir félags-
málaráðherra ávarpar ráðsteliiugesti í
upphafi fundar. Meðal þeirra sem flytja
framsiigu eru Bencdikt Davíðsson for-
seti ASI og Ivor Lloyd Roberts sem sér
um samskipti á sviði verkalvðs- og fé-
lagsmála fyrir framkvæmdast jóm ESB.