Alþýðublaðið - 29.11.1994, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Tími hennar mun koma!
Viti menn
Alþýðubandalagið hefur oft í sögu
sinni gert tilkall til að taka yfir lilut-
verk Alþýðuflokks og gerast tals-
maður frjálslyndrar jafnaðarstefnu
hér á landi. Á árunum 1970 til 1975
urðu ófarir Alþýðuflokksins til þess
að forystumenn Alþýðubandalagsins
vonuðust eindregið til að kratamir
hyrfu af
Pallborðið
þýðubanda-
lagið sæti
eitt að sögu-
legri arf-
leifð jafnað-
armanna á
I s I a n d i .
Ekkert varð
Birgir
Hermannsson
skrifar
af því og í kjölfarið upphófust mikl-
ar deilur í Alþýðubandalaginu um
hugmyndafræði og pólitískan stíl.
Um það leyti sem Jón Baldvin
Hannibalsson reif Alþýðuflokkinn
upp úr enn einum öldudalnum til for-
ystu í íslenskum stjómmálum, þá -
eftir fimm ára stjómarsetu - hertók
tilvistarkreppan Alþýðubandalagið
og sér ekki fyrir endann á þeim deil-
um enn í dag.
Á síðasta ári tók hjarta Ólafs
Ragnars mikinn kipp þegar fréttist af
auknum deilum innan Alþýðu-
flokksins. Við brotthvarf Jóhönnu
Sigurðardóttur og slæmt gengi í
skoðanakönnunum vöknuðu aftur
gömlu draumamir um yfirtöku Al-
þýðubandalagsins á hlutverki krat-
anna. I þetta skiptið mátti svo sem
leyfa öðmm að vera með - til dæmis
Kvennalistanum. Ólafur Ragnar er
óþreytandi við að telja landsmönn-
um trú um að sinn flokkur sé eini
jafnaðarmannaflokkurinn á íslandi,
Alþýðuflokkurinn sé íhaldshækja og
jafnaðarstefna hans blekkingar einar.
Það veldur því auðvitað mikilli
skelfingu innan Alþýðubandalagsins
að Jóhanna Sigurðardóttir er að lík-
indum meiri ógnun við Alþýðu-
bandalagið en Alþýðuflokkinn.
Tilvistarkreppa Alþýðubanda-
lagsins virðist því engan endi ætla að
taka. Tímabundnar ófarir Alþýðu-
flokksins breyta engu um þá stað-
reynd. „Hver er tilgangurinn með
starfsemi Alþýðubandalagsins?"
Spyr Morgunblaðið í Reykjavíkur-
bréfi. „Hann er ekki lengur sá að
byggja upp sósfalisma á
Islandi. Hann er ekki
lengur sá að reka herinn
úr landi og segja landið
úr Atlantshafsbandalag-
inu. Hann er ekki lengur
sá að vera pólitískur arm-
ur verkalýðshreyfingar-
innar. Hver er tilgangur-
inn?“ Þessarar sömu
spumingar hafa margir
spurt sig síðustu dagana og yfirgeftð
ílokkinn í kjölfarið.
Frjálslynd jafnaðarstefna að Vest-
ur-evrópskri fyrirmynd á erindi við
okkar þjóðfélag. Hvað sem segja má
um Alþýðuflokkinn og stefnu hans í
gegnum tíðina, þá er hann boðberi
þessara sjónarmiða. Alþýðubanda-
lagið hefur aldrei verið það. Flokkur-
inn hefur aldrei gert upp við arfleifð
sína, þó núverandi formaður vilji
gleyma sósíalismanum og telji það
efnahagsstefnu flokksins helst til
ágætis að höfuðvígi kapítalismans,
Alþjóðabankinn í Washington, mæli
sérstaklega með henni. Eitt helsta
einkenni Alþýðubandalagsins er
þjóðleg íhaldssemi; andstaða við
EFTA, GATT og EES em skýr
dæmi um þetta. Alþýðubandalagið
er því alls ekki í stakk búið til að taka
við af Alþýðuflokknum, heldur mun
hann að óbreyttu ástandi verða
áhrifalaus andstöðuflokkur, líkt og
sambærilegir flokkar á Norðurlönd-
unum. Erindi flokksins við kjósend-
ur er í hæsta máta óljóst.
En hvert er þá erindi Jóhönnu Sig-
urðardóttur við kjósendur? Enn sem
komið er, er það óljóst þó ekki virð-
ist mikill munur á stefnu hennar og
Alþýðuflokksins. Ef eitthvað er, þá
„Minn tími mun koma, sagði Jóhanna í sumar. Það má rétt vera
- í stjórnarandstöðu gegn íhaldsstjórn Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins á næsta kjörtímabili. Bráðlega mun einnig
koma tími á Jóhönnu að hætta í pólitík...Stofnun Þjóðvakans á
sér ekki neinar forsendur í þeim vandamálum sem við blasa á
næstu árum og mismunandi lausnum á þeim. Frjálslynd jafnað-
arstefna lifir, hennar tími mun koma!“
er kröfugerðin meiri um útgjöld og
skattheimtu, auk áherslu á betra sið-
ferði. Bergmál úr kröfugerðarpólitík
Alþýðubandalagsins hljómaði kröft-
uglega á Hótel Islandi. „Þjóðvakinn"
er ennþá óskrifað blað, þó ljóst sé að
hann stendur og fellur með Jóhönnu
sjálfri. Stjómarandstaðan hefur hing-
að til haldið upp á hana, en virðist nú
vera búin að taka af sér hanskana og
mun á næstu mánuðum væntanlega
ráðast af meiri hörku gegn Þjóðvak-
anum en í ríkisstjóminni.
„Minn tími mun koma,“ sagði Jó-
hanna í sumar. Það má rétt vera - í
stjómarandstöðu gegn íhaldsstjórn
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins á næsta kjörtímabili. Bráð-
lega mun einnig koma tími á Jó-
hönnu að hætta í pólitík, enda hefur
hún verið á þingi síðan 1978 eða í
sextán ár og þar af sjö ár sem ráð-
herra. Hennar tími ntun því brátt
enda. Deilur Jóns og Jóhönnu, særð-
ur pólitískur metnaður eða aðrar
gamlar erjur forystumanna skipta
litlu ef litið er lengra en til næstu
kosninga. Jóhanna ein og sér á auð-
vitað ekki „sök“ á því hvernig komið
er, en hanni væri hollt að minnast
þess að kynslóðaskipti eru framund-
an í íslenskri vinstrihreyfingu.
Stofnun Þjóðvakans á sér ekki
neinar forsendur í þeim vandamálum
sem við blasa á næstu árum og mis-
munandi lausnum á þeirn. Fijálslynd
jafnaðarstefna lifir, hennar tími mun
koma!
Höfundur er aðstoðarmaður umhverf-
isráðherra og stjórnarmaður í Félagi
frjálslyndra jafnaðarmanna.
Talsvert umrót er nú í
pólitíkinni á Vestfjörð-
um. Alþýðubandalagið á
mjög undir högg að sækja,
og staða Framsóknar er
harla óljós, enda ekki búið
að velja arftaka Olafs Þ.
Þórðar-
sonar.
Sjálf-
stæðis-
flokkur
er firna-
sterkur í
kjör-
dæminu
og Alþýðuflokkurinn mun
ennþá halda sjó dável, enda
hafa Vestfirðir jafnan verið
næststerkasta vígi flokks-
ins. Nýverið var haldin
fyrri umferð forvals Al-
þýðubandalagsins, og
höfðu 182 rétt til þátttöku.
Aðeins helmingur, 97, nýtti
sér þann rétt og voru 65
einstaklingar tilnefndir.
Þingmaðurinn Kristinn H.
Gunnarsson fékk þokka-
lega útkomu, 83 atkvæði,
en á hæla hans komu ís-
firðingurinn Bryndís G.
Hinumegin
Láttu ekki einsog kjáni... Þú veist að við munum standa
hérna til eilífðarnóns...
Friðgeirsdóttir með 70 at-
kvæði og Lilja Rafney
Magnúsdóttir frá Suður-
eyri með 68. Seinni umferð
fer fram á næstunni, og er
kosið milli sex efstu í for-
valinu og þriggja sem kjör-
nefnd bætir við. Ekki er
nein glimrandi ánægja með
Kristin, enda óttast sumir
alþýðubandalagsmenn
vestra að missa hið ótrygga
þingsæti ef hann verður
oddviti þeirra áfram...
Fréttamenn á Hótel Is-
landi ruku upp til handa
og fóta þegar þrír þekktir
alþýðubandalagsmenn birt-
usi á
lundi
Þjóðvaka.
Þar voru
á ferð
Helgi
Hjörvar
einn af
áhrifa-
mestu yngri mönnum
flokksins, Flosi Eiríksson
varabæjarfulltrúi í Kópa-
vogi og Kristján Valdi-
marsson fyrrum fram-
kvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins. Þeir stöldr-
uðu ekki lengi við, létu sér
nægja að hlusta á ræðu
gamals félaga úr Birtingar-
armi Alþýðubandalagsins,
Runólfs Ágústssonar...
Einn af ræðumönnum
Þjóðvaka á sunnudag-
inn var Þorsteinn Hjartar-
son skólastjóri í Brautar-
holti á Skeiðum. Við heyr-
um að alþýðubandalags-
menn á Suðurlandi sé hon-
um vægast sagt gramir.
Hann er sakaður um að
hafa hringt kerfisbundið í
alþýou-
banda-
lagsfólk í
kjör-
dæminu
og reynt
að fá það
í herbúð-
ír Jo-
hönnu Sigurðardóttur...
Hormón
dagsins
Einsog bent er á í forystu-
grein hlaðsins í dag er orðið
Þjóðvaki nýyrði í íslensku. Mál-
rannsóknadeild Alþýðublaðs-
ins hefur hinsvegar kannað
málið, og getur upplýst að nýja
orðið stendur í raun traustum
fótum í íslenskri tungu. Vænt-
anlega þarf ekki að útskýra
merkingu orðsins Þjóð- í þessu
samhengi, samanber þjóðníð-
ingur, þjóðsöngur eða þjóðleg-
ur. Seinni liðurinn, -vaki er líka
til í íslensku frá fornu fari og er
útskýrður svona í Orðabók
Menningarsjóðs: safi úr inn-
kirtli, hvati, hormón, efni sem
stjórnar efnaskiptum líkamans.
Þjóðvaki þýðir þessvegna
einfaldlega Þjóðhormón eða
jafnvel Þjóðhvati.
Ætli Hvati viti af þessu?
Fimm á förnum vegi Hvernig heldurðu að þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB í Noregi fari?
Haraldur Þór Skarphéðinsson,
skrúðgarðyrkjumaður: Vonandi
segja Norðmenn nei. Eru ekki allir
sammála um það?
Svava Haraldsdóttir, nemi: Ég
hef ekki myndað mér neina skoðun á
þessu máli.
Atli Steinar Bjarnason, at-
vinnulaus: Því miður verður Evr-
ópusambandsaðild ekki samþykkt.
Jakob Guðbjartsson, atvinnu-
laus: Ég held að Norðmenn segi
nei... Sem beturfer
Arnaldur Halldórsson, Ijós-
myndari: Meirihlutinn segir já.
Ungir framsóknarmenn
eru mjög óánægðir með
kosningu til
framkvæmdastjórnar.
Þetta eru ekkert annað
en
miðaldra kerlingar.
Guöjón Ólafur Jónsson formaður
Sambands ungra framsóknarmanna.
DV í gær.
Heimdallur og Borgara-
flokkurinn voru í raun
bara hliðarspor.
Ásgeir Hannes Eiríksson aðspurður um
erindi sitt á stofnfundi Þjóðvaka.
Morgunpósturinn í gær.
Þessvegna er það mjög
mikill skaði fyrir bind-
indissinnað fólk að
Guðmundur Arni
Stefánsson, heilbrigðis-
ráðherra og síðar
félagsmálaráðherra, var
þvingaður til að segja af
sér. Þar fór maður sem
hafði töluverðan skilning
á starfi hugsjónafólks og
framlagi frjálsra félaga
til fegurra mannlífs í
landinu.
Hilmar Jónsson stórtemplar.
Víkurfréttir 24. nóvember.
Ég er hér til að fylgjast
með. Það eru nú ennþá
fimm mánuðir til
kosninga.
Mörður Árnason, einn helsti foringi
Birtingar, aðspuröur um erindi sitt á
stofnfundi Þjóðvaka. Morgunpósturinn
í gær.
Ólafur G., greidd skuld
er glatað fé.
Fyrirsögn á kjallaragrein eftir Þorfinn
Guðnason kvikmyndagerðarmann.
DV í gær.
Það er ágætt dæmi um
umfjöllun (fjölmiðla)
þegar menn segja að
Agúst Einarsson hafi
verið þungavigtarmaður
í Alþýðuflokknum. Ágúst
hefur þrisvar sinnum
sagt skilið við
Alþýðuflokkinn.
Jón Baldvin Hannibalsson.
Morgunpósturinn í gær.
Þeir Svavar og Stein-
grímur munu því líklega
losa sig við Ólaf á þann
hátt sem alltaf hefur
verið augljósastur. Skilja
hann einan eftir í hönd-
um á kjósendum. Það
eru engar líkur til að
hann lifi það af.
Palladómur eftir ÁS í
Morgunpóstinum í gær.
Jæja, Jón Baldvin kemst
þóenn inn sem
uppbótarþingmaður!
Loki að túlka niðurstöður skoðana-
könnunar DV í gær. Samkvæmt henni
fengi Alþýðuflokkur nú þrjá þingmenn.