Alþýðublaðið - 29.11.1994, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1994 l
Hverjir voru þar?
Á stofnfundi Þjóðvaka voru mörg
kunnugleg andlit: Gunnar Eyjólfs-
son leikari, Ásgeir Hannes Eiríks-
son fyrrum pylsusali og alþingis-
maður, Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir varaþingmaður Framsókn-
ar, Jónatan Þórmundsson prófess-
or, Hjörtur Pálsson skáld, Kristín
Á. Ólafsson fyrrum borgarfulltrúi,
Jóhannes Gunnarsson í Neytenda-
samtökunum, Páll Halldórsson for-
maöur BHMR, Helgi Pétursson
varaborgarfulltrúi R-listans, Jóhann-
es Guðmundsson bílstjóri, Arthur
Morthens varaborgarfulltrúi R-list-
ans, Þorlákur Helgason fyrrum for-
maður Alþýðuflokksfélags Reykjavík-
ur, Ólína Þorvarðardóttir fyrrum
borgarfulltrúi, Dóra Hafsteinsdótt-
ir starfsmaður R-listans, Gunnar
Þórðarson tónlistarmaður, Birgir
Sigurðsson rithöfundur, Jörundur
Guðmundsson skemmtikraftur,
Gerður Steinþórsdóttir fyrrum
borgarfulltrúi, Vilhelm Ingimund-
arson fyrrum framkvaemdastjóri Al-
þýðuflokksins, Pétur Sigurðsson
varaþingmaður Alþýðuflokksins,
Bjarni Guðnason prófessor, Hall-
grfmur Sveinsson fyrrum liðsmað-
ur Borgaraflokksins, Ingibjörg Stef-
ánsdóttir upplýsingafulltrúi og
Hannes Jónsson fyrrum sendi-
herra.
Stjómmál byggjast á til-
finningum einstaklinga
- sagði Ágúst Einarsson á stofnfundi Þjóðvaka, sem á sjötta hundrað manns sóttu.
Framboð í öllum kjördæmum, opinn landsfundur í janúar.
„Hreyfingin mun byggja á hug-
sjónum jafnaðarstefnunnar. Kjöl-
festa hennar verður mannúð, réttlæti
og samhjálp með alþýðu fólks og
þeim sem eiga undir högg að sækja,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir á stofn-
fundi Þjóðvaka á Hótel íslandi á
sunnudaginn. A sjötta hundrað
manns sóttu stofnfundinn, sam-
kvæmt upplýsingunt dyravarða sem
töldu inn í húsið.
Atta ræðumenn ávörpuðu fund-
inn: Jóhanna, Agúst Einarsson pró-
fessor, Guðrún Amadóttir, Þorsteinn
Hjartarson skólastjóri á Skeiðum,
Asta B. Þorsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri Þroskahjálpar, Sigur-
lín Sveinbjarnardóttir forstöðumaður
Norræna skólasetursins, Runólfur
Agústsson lektor á Bifröst og Sig-
urður Pétursson sagnfræðingur.
Agúst og Sigurður voru til
skamms tíma félagar í Alþýðu-
RAÐAUGLYSINAR
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum aö ráða leikskólakennara eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk í störf í neðangreinda leikskóla:
Arnarborg v/Maríubakka, s. 73090
Funaborg v/Funafold, s. 879160
Holtaborg v/Sólheima, s. 31440
Leiðtogi nýs flokks - Þjóðvaka: Jó-
hanna hefur sagt flokkakerfinu
stríð á hendur og boðar framboð í
öllum kjördæmum. A-mynd: E.ÓI.
flokknum en Runólfur var í Alþýðu-
bandalaginu og virkur í starfi Birt-
ingar.
Ágúst Einarsson sagði í ávarpi
sínu að stjómmál byggðust á tilfinn-
ingum einstaklinga, og almenningi
væri nóg boðið að horfa upp á fram-
ferði stjómmálamanna. Brýnt væri
að setja siðareglur í pólitík og draga
úr afskiptum stjómmálamanna af
banka- og sjóðakerfinu.
I efnahagsmálum sagði Ágúst að
leggja bæri áherslu á lága verðbólgu,
hagvöxt og aukinn útflutning. Hann
gerði einnig sjávarútveginn að um-
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
fLeikskólar
Reykjavíkurborgar
Leikskólakennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra
uppeldismenntun óskast í stuðningsstarf í leikskólann
Árborg v/Hlaðbæ.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 874150.
Sævar Ciesielski berst nú fyrir því að mál sitt verði tekið upp að nýju fyr-
ir dómstólum. Hann bað um að fá að ávarpa fundinn, en fékk í staðinn vil-
yrði fyrir því að Jóhanna myndi kynna sér málið. Hér ræðir Sævar við Þor-
lák Helgason. A-mynd: E.ÓI.
Liðsauki úr Alþýðubandalaginu: Páll Halldórsson formaður BHMR hefu
sagt skilið við Alþýðubandalagið og mætti á stofnfund Þjóðvaka.
ræðuefni og sagði að Þjóðvaki
myndi beita sér fyrir hóflegu veiði-
leyfagjaldi. Hvorki Ágúst né Jó-
hanna útilokuðu í ræðum sínum
mögulega aðild Islands að ESB. Ág-
úst sagði Þjóðvaki vildi hvorki „óða-
got Alþýðuflokksins né einangmnar-
stefnu Sjálfstæðisflokksins" í ESB-
málum. Rétt væri að taka upp við-
ræður við hagsmunasamtök sem þau
skilyrði sem Island ætti að setja fyrir
aðild að sambandinu.
Ágúst nefndi einnig í ræðu sinni
að Þjóðvaki myndi beita sér fyrir
fækkun þingmanna, úr 63 í 50, og
jöfnun atkvæðisréttar. Flokkurinn
myndi einnig beita sér fyrir harðari
refsingum vegna heimilisofbeldis.
Að lokum sagði Ágúst: „Þess
stjórnmálahreyfing byggir ekki ;
neinu öðru en tilftnningum fólksins
Hún á skilið að vinna - hún verður
að vinna.“
Aðrir ræðumenn Þjóðvaka lögðu,
flestir hverjir, megináherslu á að ella
yrði velferðarkerfið, uppræta at-í
vinnuleysið og stokka upp skattaj
kerfið.
I máli Jóhönnu Sigurðardóttui
kom fram að Þjóðvaki mun bjóð;
fram í öllum kjördæmum í kosning-
um í apríl á næsta ári. Landsfundui
flokksins verður haldinn seinni hluta
janúar og verður öllum opinn serr]
skrá sig til þátttöku.
i
i
i
t
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sfmi 27277.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
Kjördæmisráö Alþýðuflokksins á
Reykjanesi:
Aðalfundur
í Keflavík
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Reykjanesi
verður haldinn á veitingahúsinu Glóðinni í Keflavík,
mánudaginn 5. desember. Fundurinn hefst klukkan
18:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ákvörðun um tilhögun við val á framboðslista vegna
næstu Alþingiskosninga.
3. Stjórnmálaviðhorfið: Almennar umræður.
4. Önnur mál.
ATHUGIÐ! Kvöldverður verður á boðstólum um klukkan
19:00.
- Stjórnin.
Hvað finnst mönnum um framkomin stefnumál Þjóðvaka:
Ábyrg og traust stefna eða eyðslusemi á almannafé?
Boðar Jóhanna Sigurðardóttir
ábyrga og trausta stefnu í þjóðmál-
um eða er hún aðeins að boða
eyðslusemi á almannafé? Um þetta
eru menn ekki sammála. I ræðu sem
Jóhanna flutti á fundi Þjóðvaka á
sunnudaginn gerði hún grein fyrir
því hvaða stefnu hin nýja hreyfing
ætlaði að marka í hinum ýmsu mála-
llokkum. Alþýðublaðið spurði Mörð
Ámason, Hannes Hólmstein Gissur-
arson og Óskar Guðmundsson álits á
þessum stefnumálum og fara svör
þeirra hér á eftir.
„Mér líst ákaflega vel á stefnumál
Þjóðvakans. Eg átti svo sem ekki
von á að stefnan í velferðarmálum
væri mjög frábrugðin því sem fram
hefur komið hjá vinstri hreyfingum.
En ég hlustaði sérstaklega eftir
stefnutónum í efnahagsmálum, ríkis-
fjármálum og þá kannski einkum í
sjávarútvegsmálum. Mér leist vel á
það allt saman,“ sagði Mörður Áma-
son Birtingarmaður. Mörður sagði
stefnuna vera ábyrga og trausta í
þeim málaflokkum sem hann nefndi
og slíkt hefði ekki einkennt vinstri
menn í stjómarandstöðu. Evrópu-
hljómurinn f málflutningi Þjóðvaka
væri mjög f líkingu
við það sem hann
hugsaði sjálfur og
allt öðm vísi en of-
stopinn í öðmm
flokkum. I fram-
haldi af þessu var
Mörður spurður
hvort hann og fleiri
Mörður: Líst áhrifamenn Birt-
vel á Þjóðvaka. ingar ætluðu að
ganga til liðs við
Þjóðvakann. „Ég
þori ekkert að segja um það. Við er-
um ýmsir að velta þessu fyrir okkur.
Það hefur gerst áður að menn úr
þessum hópi hafa farið eitthvað ann-
að. Væntanlega taka menn eftir því
að þarna voru ýmsir gamlir sjálf-
stæðismenn, til dæmis Runólfur Ág-
ústsson sem flutti þama ræðu; einn
af snjöllustu ungum mönnum sem ég
hef unnið með,“ sagði Mörður.
„Ég er hræddur um að sú félags-
hyggja sem Jóhanna Sigurðardóttir
boðar sé eyðslusemi á almannafé.
Fátækt fólk verður ekki ríkt á því að
gera ríkt fólk fátækara," sagði Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson dósent.
„Sósíalistar hafa reynt þetta á tuttug-
ust öld og þeim
hefur alls staðar
mistekist. Ef ís-
lendingar eiga að
WIL**' - vera samkeppms-
•f’ hæfir við aðrar
þjóðir og landið að
halda áfram að
vera í byggð verða
Hannes: fyrirtækin að bera
Eyðslusemi á meiri arð en þau
almannafé. gera núna. Jóhanna
fer í þveröfuga átt
við það. Þess vegna lýst mér ekki á
hennar stefnu,“ sagði Hannes Hólm-
steinn og bætti við: „Síðan er það
líka sérkennilegt ef hún ætlar að lýsa
sig ábyrgðarlausa á sjö ára samfelldri
stjómarsetu sinni. Henni tekst ekki
að hlaupa frá því.“
„Þetta var að öðmm þræði
stemmningsfundur og stemmningin
lagðist vel í mig. Það er sú stemmn-
ing að það þurfi að stokka upp ís-
lenska fiokkakerfið og að mynda öfl-
ugt mótvægi við Sjálfstæðisflokk-
inn. Það er einsog sú draumsýn verði
raunverulegri í svona stemmningu,“
sagði Óskar Guðmundsson blaða-
maður. Óskar sagði að útfærsla á
stefnumálum í
smáatriðum væri ,
ekki mál dagsins.
Þessi hreyfing
væri í burðarliðn-
um og fundurinn á ,
sunnudaginn hefði \
ekki verið formleg ‘
flokksstofnunj
heldur kynning 3 :
sýn í stemmn- hreyfingu sem væri ’
■n9U- að taka á sig ýmis
konar form, ;
„Svona hreyfing stendur kanski fyrst í
og fremst fyrir almennum markmið-
um um félagshyggju og frjálslyndi
og hinar fomu og nýju dyggðir. í
Mergurinn málsins eru skilaboðin til
stjórnmálaflokkanna. Þetta eru:
flokksvélar sem em farnar að hiksta,
orðnar ryðgaðar og dálítið bilaðar.;
Breið hreyfing sem er mótvægi við
Sjálfstæðisflokkinn getur ekki rekið
einhverja homogenstefnu í öllum
málaflokkum. Stefnan er bara al-
mennur valkostur við Sjálfstæðisj
flokkinn, verður mýkri, mannúð-
legri, félagshyggjusinnaðri en um
leið frjálslynd,“ sagði Óskar Guð-
mundsson.