Alþýðublaðið - 07.12.1994, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 07.12.1994, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Að bjarga stjórnmálamönnum frá eigin heimsku Það hefur löngum loðað við ís- lenska stjómmálamenn að þá skortir framsýni og láta hagsmuni líðandi stundar sig mestu varða. Plástranir og reddingar em allsráðandi. í dag má sjá, að flokkamir hafa hafið und- irbúning fyrir komandi kosningar og enn og aftur fá íslendingar að heyra fögur loforð um leiðir til að koma þessari þjóð út úr þeim hremmingum sem stjómmálamennim- ir sjálfir em búnir að koma okkur í. Gaman, gaman. Loforð þessi em sem fyrr á þann veg bjarga eigi þjóðinni með víðtækum aðgerðum sem svo hafa það eitt í för með sér, að þjóðin nær að rétta úr kútnum í eitt eða tvö ár eða svo. Síð- an kemur að skuldadögum sem leggjast með margföldum þunga á fólkið. Ráðamenn kenna svo hvor öðmm um klúðrið. Þeir hafa gefið fólkinu falskar vonir um betri tíð og skellt rikissjóði í miklu meiri skuldir en hann ræður við. Svona hefur land- inu verið stjómað í aldaraðir, en nú er mál að linni. Tími hinna fögm lof- orða er liðinn því nú em þessir óá- byrgu stjómmálamenn, að sigla þjóðarskútunni í strand. Það er ekki einu sinni lengur hægt að stóla á þorskinn, sem hefur haldið þessari þjóð gangandi, því hann er á góðri leið með að verða uppurinn. Bregð- ast nú krosstré sem önnur tré og hvað er þá eftir þegar þorskurinn er far- inn? Ekkert. forystu í sjávarútvegsmálum innan ESB). Aðildammsókn Islendinga væri skref fram á við fyrir þessa litlu eyþjóð. Þannig myndum við geta gert samkeppnisaðstöðu íslenskra fyrirtækja betri á erlendum mörkuð- um og einnig gert erlendum fyrir- tækjum kleift að koma lágt tollaðri ____________________ vöra sinni Pallborðið Ingvar Sverrisson j skrifar hingað á verði sem yrði að sjálf- sögðu til hagsbóta fyr- ir íslenska neytendur og myndi í al- vöm og var- anlega létta á skuldabyrði heimilanna. Aðild Is- lands að sambandinu myndi einnig færa þjóðinni aukna velferð almennt því eins og menn vita vinna ráða- menn sambandsins til að mynda hörðum höndum að því að uppræta atvinnuleysi og aðstoða ungt fólk við að takast á við lífið. Þróunar- og markaðsrannsóknir em einnig styrktar myndarlega innan Evrópu- sambandsins og aðgang að þeim sjóðum þurfa íslendingar að fá. Einnig em framfarir á sviði mennta- og menningannála - svo og heil- brigðismála - verðlaunaðar svo um munar með tjárframlögum. Það geta íslendingar ekki lengur gert vegna skorts á Ijármunum sem sést best á niðurskurði þeim sem varð nú á fjár- framlögum til Háskóla Islands. Evrópusambandsadild Mikil umræða hefur verið um að- ild Norðurlandanna að Evrópusam- bandinu. Bæði Finnar og Svíar hafa í þjóðaratkvæðagreiðslu ákveðið, að ganga til liðs við sambandið og taka þátt í mótun nýrrar Evrópu. Norð- menn bám ekki gæfu til þess (- kannski sem betur fer fyrir okkur, þar sem við ættum nú að hafa betri samningsaðstöðu og gætum tekið EES-samningurinn Davíð Oddsson forsætisráðherra og villuráfandi fylgismenn hans í Sjálfstæðisflokknum hafa haldið því statt og stöðugt fram að aðildamm- sókn íslands sé ekki á dagskrá. Ekki á dagskrá! það er ótrúlegt ábyrgðar- leysi að gefa slíkar yfirlýsingar vit- andi, að það er eitt mesta þjóðþrifa- mál seinni tíma. Hvflík móðgun við hugsandi fólk í þessu landi. Ætlum við að láta Sjálfstæðisflokkinn segja okkur hvað við megum ræða um og hvað ekki? Aldrei skal það verða. Samningurinn um Evrópska efna- hagssvæðið er mikilvægasti samn- ingur sem gerður hefur verið fyrir ís- lands hönd. Þeirri samningagerð stýrði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra af mikilli snilld. Með EES-samningnum vom réttindi neytenda í fyrsta skipti tryggð og fjárfestingar erlendra aðila hér á landi gerðar mögulegar sem hefur haft í för með sér lækkandi vömverð og aukna velferð. En betur má ef duga skal. Nú er komið að þeim tímapunkti að innganga í ESB með fullum réttindum er Islendingum nauðsynleg vilji þessi litla þjóð ekki vera ein eftir með Norðmönnum ut- an við santbandið og neyðast svo til þess að koma inn með austantjalds- þjóðunum eða örríkjunum seinna meir þegar allt er komið hér á kaldan klaka í einangmn Atlantshafsins. Is- lendingar verða að nýta sér þá mögu- leika sem nú gefast og fara inn. Alþýduflokkurinn Alþýðuflokkurinn er eini flokkur- inn sem hefur kjark til að horfa til framtíðar og taka ákvarðanir sem skipta þjóðina máli til lengri tíma lit- ið meðan hinir hugsa eingöngu um líðandi dag og komandi kosningar. Aðildarumsókn er íslendingum nauðsynleg og megum við því ekki enn og aftur láta óábyrga stjórnmála- menn gabba okkur með gylliboðum sem koma okkur í miklu verri stöðu eftir nokkur ár. Alþýðuflokkurinn vill einn flokka hefja samningsvið- ræður við ESB um aðild íslands og leggja svo samninginn fyrir kjósend- ur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Tökum höndum saman og sýnum ráða- mönnum, að við emm tilbúin til að kanna hvaða hag við höfum af aðild. Látum í okkur heyra með þetta mál. Við verðum að bjarga stjórnmála- mönnunum frá eigin heimsku. Höfundur er varaborgarfulltrúi. „Davíð Oddsson forsœtisráðherra og villu- ráfandi fylgismenn hans íSjálfstœðisflokkn- um hafa haldið því statt og stöðugt fram að aðildarumsókn íslands sé ekki á dagskrá. Ekki á dagskrá! Það er ótrúlegt áhyrgðar- leysi að gefa slíkar yfirlýsingar vitandi, að það er eitt mesta þjóðþrifamál seinni tfma. Hvílík móðgun við hugsandi fólk íþessu landi. Ætlum við að láta Sjálfstœðisflokk- inn segja okkur hvað við megum rœða um og hvað ekki? Aldrei skal það verða. “ Ríkisstjórn dagsins Samkvæmt ótrúlega traustum heimild- um Alþýðublaðsins er svo komið í herbúðum heilagrar Jóhönnu, að þar búa menn sig undir hreinan þingmeiri- hluti. Og það sem meira er - ráðherra- listinn er tilbúinn. Hann er svona: Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráðherra (hún er einfaldlega húkk'd á þvf). Pjetur Hafstein Lárusson menntamálaráðherra. Ásgeir Hannes Eiríksson landbúnaðarráðherra. Kjartan Valgarösson heilbrigðisráðherra. Ágúst Einarsson sjávarútvegsráðherra. Mörður Árnason samgönguráðherra. Njáll Harðarson fjármálaráðherra. Jón frá Pálmholti uUinríkisráðherra. Jóhannes á fóöurhflnum umhverfisráðherra. Jón Sæmundur Sigurjónsson ráðherra Hagstofu Islands. Gunnar Eyjólfsson dómsmálaráðherra. Ólína Þorvaröardóttir forsætisráðherra. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga! / Aaðalfundi Framsóknar- félags Reykjavíkur á mánudagskvöldið var Jón Erlingur Jónasson Jóns- sonar búnaðamiálastjóra kjörinn formaður í stað Al- freðs Þorsteiassonar. Jón Erlingur er aðeins 34 ára gamall og hefur það farið fyrir bijóstið á mörgum gamalgrónum framsóknar- mönnum að svo ungur maður skuli taka við for- mennskunni. Það er nefni- lega hefð fyrir því að fram- sóknarmenn teljist ungir fram til 36 ára aldurs og starfi þá með ungliðunum en veljist ekki til metorða í flokksfélögum fullorðinna. Þá bætti það ekki úr skák að Jón Erlingur tók Vigdísi Hauksdóttur með sér í stjómina en hún er einnig undir aldri. Menn þykjast þekkja fingraför Finns Ing- ólfssonar á þessum kosn- ingum og hann sé að tryggja yfirráð sín í Fram- sóknarfélagi Reykjavíkur... Tilnefningar til Islensku bókmenntaverðlaun- anna valda jafnan miklum titringi enda talsvert í húfi. Það vakti athygli að skáld- sögur Einars Kárasonar. Vigdísar Grímsdóttur og Thors Vilhjálnissonar hlutu allar tilnefningu núna - en fyrir tveimur ámm varð mikið írafár þegar bækur þessara þriggja höf- unda vom sniðgengnar. Dómnefndin hefur semsagt bætt fyrir mistökin... Aðeins meira um tilnefn- ingar. Að þessu sinni er ekki ein einasta ljóðabók tilnefnd, og er það í fyrsta skipti í sex ára sögu bók- menntaverðlaunanna sem ljóðið er hunsað með öllu. Þetta þykir Ijóðavinutn að vonum súrt enda hafa nokkrar vemlega góðar Ijóðabækur komið út uppá síðkastið. Til dæmis má nefna bækur eftir Geirlaug Magnússon, Nínu Björk Árnadóttur, Isak Harðar- Hinumegin son, Jóhann Hjálmarsson, Jónas Þorbjarnarson og Kristján Karlsson. En nú em það semsagt bara skáld- sögumar... Nú er bók Guðmundar Árna Stefánssonar og Kristjáns Þorvaldssonar komin í búðir, og em vfst ýmsir nafnkunnir menn uppteknir við lestur þessa stundina. Bók þeirra félaga, Hreinar línur, mun áreiðan- lega rata í metabækur - þó ekki væri fyrir annað en vinnslutímann, sem er ótví- rætt Islandsmet. I útlöndum er aftur á móti löng hetð fyrir því að gefa út bækur með örstuttum fyrirvara. Þannig var til dæmis komin út bók um John Lennon þremur dögum eftir að hann dó mjög skyndilega 1980. Eins er með pólitíska stórat- burði í útlandinu, þeir em komnir á bók næstum um leið og þeir gerast. Nútím- inn er semsagt koininn til Islands f þessum efnum... Allt í lagi, noldurskjodan þín! Viltu síðustu gosdósina? Jæja, leyfðu mérþá HAFA HANA TIL FYRIR ÞIG! Fimm á förnum vegi Finnst þér að aðskilja eigi ríki og kirkju? Magnús Bergsson: Að sjálf- sögðu. Kirkjan er ekki sönn nema hún sé sjálfstæð. Hulda Rún Reynisdóttir, starfs- maður á leikskóla: Já, endilega. Ingvaldur Jóhannsson, nemi: Nei, ríkið á að sjá um rekstur kirkjunnar. Björgúlfur Ólafsson, rithöfund- ur: Já, kirkjan verður að geta verið sjálfstæð. Eiríkur Rafnsson, nemi: Já, ann- ars er ekki trúfrelsi netna að nafninu til. Viti menn Hann hallaðist náfolur upp að félaga sínuni og valt svo í gólfíð nieð korri og starandi augnaráði. Þráinn Guðmundsson um litháíska skákmanninn Sulskins, andstæðing Margeirs Péturssonar á Ólympíuskákmótinu. Mogginn í gær. Frá sjónarhorni Islendinga er mikilvægt að NATO-samstarf- ið verði áfram sem öflugast. Islendingar hafa ákveðið að standa utan Evrópusam- bandsins og geta þarmeð ekki tekið fullan þátt í starfi Vest- ur-Evrópusambandsins. Leiðari Morgunblaðsins í gær. Það væri búið að leysa deiluna ef vilji ráðamanna í landinu stæði til þess. Þá horfí ég fyrst og fremst til Friðriks Sophussonar en líka til ríkis- stjórnarinnar í heild og þá ekki síst heilbrigðisráðherra. Kristin Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélagsins. Tíminn í gær. Ég ræði til dæmis hvað Machiavelli myndi segja um íslenska stjórnmálasögu; Hannes Hafstein, Jónas Jónsson frá Hriflu, Ólaf Thors, Davíð Oddsson og fleiri, þótt auðvitað sé sú umfjöllun ekki að öllu leyti fræðileg og ekkert sannað eða afsannað. Hannes Hblmsteinn Gissurarson í við- tali um nýja bók, Hvar á maðurinn heima? þarsem hann fjallar um fimm kafla í sögu stjórnmálakenninga. Það er opinberlega viðurkennt að á Islandi þrífst umfangsmikið neðanjarðar- hagkerfí. Itrekað hafa verið gefnar út opinberar skýrslur, sem ganga út frá því að skattsvik séu 11 milljarðar króna. Leiðari Tímans í gær. Við þetta má bæta að ÓIi tjáði undirrituðum sama sumar og hann lést að hann hefði endanlega snúið baki við kröt- um. Var á honum að skilja að sjálfstæðismenn væru honum nær í skoðunum, en það er önnur saga. Ritdómur Jóns Birgis Péturssonar um ævisögu Óla í Olís. Tíminn í gær. Kratar tilnefndu að vísu vara- formann flokksins, Guðmund Arna Stefánsson, en með hon- um var skipaður ungliði, Ei- ríkur B. Einarsson...Það eru margir þingmenn fíokksins æfír útaf þessu og við skiljum þetta ekki nema ef kratar ætla að koma í veg fyrir breytingar á kosningalöggjöfínni, sagði þingmaður Sjálfstæðisfíokks- ins. Frétt um tilnefningar stjórnmálaflokk- anna í kosningalaganefnd. Sjálfstæðis- menn tilnefndu Friðrik Sophusson og Geir H. Haarde. DV í gær.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.