Alþýðublaðið - 13.12.1994, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 13.12.1994, Blaðsíða 1
Víðtækar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að stuðla að aukinni atvinnu, stöðugleika og kjarajöfnun: Einhver besti dagurinn lengi í stjómarsamstarfinu - segir Jón Baldvin Hannibalsson. „Ríkisstjórninni lá ekki við grandi vegna deilna stjórnarflokkanna um fjármagnstekjuskattinn.“ „Rauði þráðurinn í þessum heildar- aðgerðum snýst um örvun atvinnulífs og nýsköpunar, kjarajöfnun og áframhaldandi stöðugleika," sagði Jón Baldvin Hannibalsson í gær í samtali við Alþýðublaðið um aðgerð- ir rikisstjómarinnar sem kynntar voru um helgina. Jón Baldvin kvað að- gerðimar vera „skilaboð í aðdraganda kjarasamninga um að ríkisstjómin sé til samstarfs við aðila vinnumarkaðar- ins og aðra stjómmálaflökka um kjarasamninga sem hafi þetta þrennt að meginmarkmiði.“ Jón sagði að innan þingflokks Alþýðuflokksins væri mikil ánægja með samkomulag stjórnarflokkanna, og allir þingmenn llokksins hefðu lýst eindregnum stuðningi við aðgerðimar. „Sjálfur hef ég sagt að þetta sér einhver besti dagurinn í þessu stjómarsamstarfi lengi. Tímasetning aðgerðanna kem- ur lika heim við annarsvegar af- greiðslu fjárlaga, og hinsvegar þá staðreynd að kjarasamningar em lausir unt áramót og veður öll válynd á þeim vígstöðvum. Kjami málsins er sá, að ríkisstjómin lýsir sig reiðubúna til að örva atvinnulíf og jafna lífskjör- in.“ Aðgerðir ríkisstjómarinnar eru fjölþættar, og fela meðal annars í sér átak í vegamálum fyrir 3,5 milljarða, samstarf við sveitarfélög um atvinnu- skapandi aðgerðir, nýsköpun í at- vinnulífi, niðurfellingu „ekkna- skatts“, afnám tvísköttunar lífeyris. áframhald hátekjuskatts, aðgerðir gegn skattsvikum, hækkun skattleys- ismarka, lækkun húshitunarkostnaðar og skattlagningu Ijármagnstekna frá ársbyrjun 1996. A tlokksstjómarfundi Alþýðu- flokksins, sem haldinn var í Reykja- vík á sunnudaginn, kom fram almenn ánægja með aðgerðir stjómarinnar. Stjómarflokkamir tókust á um suni atriðanna, einkum fjármagnstekju- skattinn. Sérstök nefnd verður sett á Lagt á ráðin á flokksstjórnarfundi á sunnudaginn: Rannveig Guðmunds- dóttir, Jón Baldvin og Magnús Geirsson formaður Rafiðnaðarsambands- ins. laggimar, skipuð fulltrúum stjóm- málaflokka og aðila vinnumarkaðar- ins, til að móta tillögur í þessum efn- um. Aðspurður staðfesti Jón Baldvin að ágreiningur hefði verið milli AI- þýðufiokks og Sjálfstæðisflokks um leiðir í þessu máli. „Það er eðlilegt í svo flóknu máli. En ef ég er spurður hvort stjóminni lá við grandi vegna þessa ntáls - þá er svarið nei.“ - Sjá leiðara á blaðsíðu 2 og frétt á blaðsíðu 5. - Óli Þ.: Eggert hefur ekkert talað við mig. Hélt ég væri lið- ið lík „Satt best að segja hélt ég að ég væri liðið lík í pólitík. En Eggert hef- ur ekkert talað við mig. Eg segi bara eins og er, enda vanur því,“ sagði Oli Þ. Guðbjartsson skólastjóri á Sel- fossi í samtali við blaðið. Lausafregnir herma að Eggert Haukdal hafi boðið Óla 2. sætið á lista sínum við komandi kosningar. Hann hafi jafnframt tekið fram að sjálfur hyggðist hann vfkja úr I. sæt- inu á miðju kjörtímabili. Óli tók þessu létt þegar málið var borið undir hann. HIó dátt og sagði að Eggert hefði ekki talað við sig um eitt né neitt. Steingrímur Hermannsson seðlabankastjóri: Þú ferð ekki að svara manni eins og Halldóri „Hverjir em að koma því á fram- færi að ég skipti mér af próflcjömm? Em það menn eins og Halldór Hall- dórsson sem er svo óvandaður að menn ættu að hafa lært á hann fyrir löngu. Það kom til tals að ég svaraði í Ríkisútvarpinu því sem hann hafði haldið þar fram. I sundlaugunum á föstudaginn sögðu menn: Þú ferð ekki að svara manni eins og Halldóri Halidórssyni," sagði Steingrímur Hermannsson seðlabankastjóri í sam- tali við blaðið. Við prófkjör framsóknarmanna á Vestfjörðum og Reykjanesi hefur því verið haldið fram að Steingrímur Her- mannsson fyrrverandi flokksformað- ur hafi beitt sér fyrir kjöri Gunnlaugs Sigmundssonar f 1. sæti á Vestfjörð- um og viljað fá Hjálmar Ámason efst- an í Reykjaneskjördæmi. Þegar blað- ið spurði Steingrím um þessi mál sagðist hann ekki hafa skipt sér af jjessum prófkjörum. Því væri bara haldið fram af litlum köllum sem því miður kæmust stundum inn í fjöl- miðla. „Eg get sagt þér það alveg eins og er að ég setti mér það að fara úr pólit- fkinni og ég gerði það. Ef það koma menn til mín og leita ráða þá ráðlegg ég þeim, hverj- ir sem það em. En ég tek ekki þátt í þeirra próf- kjörsslag að neinu leyti," sagði Steingrímur. I samtölum við fjöl- miðla eftir prólkjörið á Vestfjörðum sagði sigur- vegarinn, Gunnlaugur Sig- mundsson, að Steingrímur hefði hringt í nokkra menn á Vestfjörðum og spurt hvort hann, það er Gunn- laugur, mætti líta inn hjá þeim. Hvað segir Stein- grímur um þetta? „Gunnlaugur hringdi í mig frá Ameríku einhvem tímann í október og spurði mig hvort ég ráðleggði honum að fara í prófkjör því verið væri að skora á sig. Eg jrekki auðvitað Gunnlaug vel enda starf- aði hann töluvert fyrir mig. Eg sagðist eiginlega ekki geta svarað þvf en ég skyldi spytja tvo eða þrjá x góða kunningja mfna hvað 5 þeir teldu um það. Eg hringdi í þijá menn á Vest- fjörðum og spurði hvað þeir legðu til við Gunn- Sigurjón Birgir er að verða fullorðinn „Ætli ég sé ekki loksins að verða fullorðinn, ha... Og það er ágætt um þrítugsaldur- inn, að hafa þá náð einhverjum þroska. Ég er að komast í tölu fullorðinna. Þessi bók er þá eiginlega mín ferming og fermingarveisla." - Sjá viðtal við Sigurjón Birgi Sigurðsson - alias Sjón - á blaðsíðum 8 og 9. A-mynd: E.ÓI. Sími 53466 Steingrímur: Bað ekki neinn um að kjósa Gunnlaug eða Hjálmar. laug. Tveir vildu endilega fá hann en einn ekki og ég hringdi í Gunnlaug og sagðist heyra það að það væri einhver áhugi. Ég sagði honum að ef hann ætlaði í þetta þá skyldi hann gera sér grein fyrir að þetta væri bara vinna og þrældómur. Ef það kallast góð ráð, þá það. Hann fór víst vestur og var þar í fimm vikur og vann rnikið og það skilaði sér. En ég hef ekki beðið neinn einasta mann að kjósa Gunnlaug eða Hjálmar ellegar nokkum annan fram- bjóðanda," sagði Steingrímur Her- mannsson. KONFEKT í&len&ms 13. desember 250 ár frá fæðingu Jónsá Bægisá 1 dag eru liðin 250 ár frá fæðingu Jóns Þorlákssonar skálds á Bægisá. Hann var eitt dáðasta skáld 18. ald- ar og vann þrekvirki við þýðingar á erlendum skáldskap, meðal annars eftir Milton og Pope. Alþýðublaðið birtir í tilefni af- mælisins skeinmtilega og stórfróð- lega grein Sveins Yngva Egilssonar skálds og bóknienntafræðings um skáldið og prestinn á Bægisá. Jón hefur stundum verið kallaður Jóhannes skírari hinna miklu cnd- urreisnarskálda 19. aldar; árroði nýs dags í íslenskum bókincnntum. Sveinn Yngvi sýnir fram á, að ekki þarf að skoða skáldskap Jóns á Bæg- isá sem aðdraganda að því sem síðar varð - „hann syngur með sínu nefi og riidd hans er cftirminnilcg öllum þeim sem leggja við hlustir,“ svo notuð séu orð Sveins Yngva. - Sjá blaðsíður 8 og 9.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.