Alþýðublaðið - 22.12.1994, Side 5
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
Jet Black
Joe og
Olympia
í kvöld, 22. desem-
ber, halda hljómsveit-
irnar Jet Black Joe og
Olympia tónleika í
Þjóðleikhúskjallaran-
um, en einsog kunnugt
er hafa báðar þessar
sveitir nýverið sent frá
sér hljómplötur. Jet
Black Joe gaf út plöt-
una Fuzz og Olympia
(hugarfóstur Sigurjóns
Kjartanssonar fyrrum
Ham- ara) setti á mark-
að skífu sem ber nafn
sveitarinnar. Báðar
plöturnar hafa hlotið
því sem næst einróma
lof gagnrýnenda sem
og plötukaupenda. Efni
af þeim verður uppi-
staðan í dagskrá
kvöldsins. Húsið opnar
klukkan 22:00 og tón-
leikarnir hefjast
klukkustund síðar.
Miðaverð er krónur 500
og öllum þeim sem náð
hafa 18 ára aldri er
heimill aðgangur...
íslandog
Atlantsál
Fulltrúar íslenskra
stjórnvalda hittu full-
trúa Atlantsáls- fyrir-
tækjanna Alumax,
Granges og Hoogo-
vens á fundi í Amster-
dam síðastliðinn mánu-
dag. Farið var yfir þró-
un á álmörkuðum síð-
ustu misseri og litið á
horfur á næstunni. A
fundinum kom skýrt
frarn að framleiðsiu-
geta á áli sé enn veru-
lega meiri en sem svar-
ar eftirspurn þrátt fyrir
að þróun á mörkuðum
haft verið jákvæð uppá
síðkastið og álverð haft
hækkað. Talið er að
nokkur tími muni líða
þar til jafnvægi hefur
náðst á álmarkaði og
forsendur verði fyrir
hendi til að taka
ákvörðun um byggingu
nýrra álvera. Fyrirtækin
þrjú Iýstu öll yfíráhuga
á fundinum að halda
áfram þátttöku í Atl-
antsáls-verkefninu.
Ákveðið var að fyn-
nefndir aðilar hittist
ekki síðar en næsta
haust til þess að endur-
meta stöðu mála...
Jeppar á
fjöllum
Ut er komin hjá út-
gáfufyrirtækinu Orms-
tungu bókin Jeppar ú
fjöllum - handbók hú-
lendisfamns. Bókin
rniðlar upplýsingum
sem nauðsynlegar eru
öllum þeim sem vilja
ferðast um óbyggðir
landsins á fjórhjóla-
drifnum bílum í sátt við
umhverfið. Ritstjóri
bókarinnar er Gísli
Már Gíslason og aðal-
höfundar eru Arngrím-
ur Hermannsson,
Guðni Ingimarsson,
Gunnar Borgarson,
Ingimundur Þór Þor-
steinsson, Snorri Ingi-
marsson og Þorvarð-
ur Hjalti Magnússon.
Ljósmyndir eru meðal
annars eftir Árna Sæ-
berg, Gunnlaug
Rögnvaldsson og Þór
Ægisson. Bókin kostar
6.900 krónur...
Brennidepill
Árni Bergmann spjallar við Alþýðublaðið um bakgrunn átakanna í Tsétsníu:
Tsétsnía, land þverstæðna
’-OU'
Það hefur ekki farið fram hjá neinum
upp á síðkastið að nýjum aðalleikara
hefur skotið upp á stjömuhimininn
stríðshrjáðra ríkja. Það er sjálfstjómar-
lýðveldið Tsétsnía, djúpt inni í Káka-
kusfjallgarðinum, því dularfulla svæði
þar sem fólk ku verða eldra en annars-
staðar í heiminum - ef það verður ekki
ófriði eða ofsóknum að bráð. Tsétsenar
hatast við Rússa og vilja fyrir alla muni
losna úr ríkjasambandi við þá. Alþýðu-
blaðið fékk Áma Bergmann, rithöfund,
sem þekkir vel til hins rússneska
Árni Bergmann: á þessu svæði er
mikill þjóðakokteill.
áhrifasvæðis, til að segja lesendum ör-
lítið um baksvið þess sem þar er að
eiga sér stað og spá í það sem kann að
gerast í nánustu framtíð. Gefum honum
orðið:
„Ef ástandið í Tsétsníu er skoðað þá
er þrennt sem skiptir máli. Tsétsenar
em ein af mörgum fjalla-
þjóðum í Kákasus sem
lengi streittust á móti rúss-
neskum yfirráðum. Rússar
eignuðust Georgíu um
1800, en Georgía er sunn-
an við Tsétsníu. Þeir lögðu
því mikið á sig við að ná á
sitt vald löndunum í fjöll-
unum sem aðskildu Rúss-
land og Georgíu. Þar
bjuggu herskáar þjóðir og
má segja að Rússar hafi
þama átt í sínu indíana-
stríði fram eftir allri ní-
tjándu öldinni.
í öðm lagi þá gerðist það
í seinni heimsstyrjöldinni
að Þjóðverjar náðu þessu
svæði á sitt vald, en það var
þeim mikilvægt, því þama
er olía og í veldi þeirra var
enga olíu að frnna nema f Tsétsneskur
Rúmeníu. Mjög margir
Tsétsenar gengu f lið með Þjóðverjun-
um gegn Rússum og börðust með
þeim. Rússar sigmðu og Stalfn lét
flytja alla Tsétsena nauðungarflutning-
um til Kazakstan. Þeir voru teknir
nauðugir af jörðum si'num. Þetta kost-
aði rnörg mannslíf og veldur enn í dag
gríðarlegri heift í garð Rússa. Eftir
1956, þegar Krústsév er að reyna að
bæta fyrir verstu misgjörðir Stalíns, er
Tsétsenum leyft að snúa aftur til Tsét-
senalands. Þá eru þar Rússar fyrir, sem
höfðu flust þangað úr rústuðum borg-
um Rússlands. I dag er stór hluti íbú-
anna þama Rússar og gríðarleg spenna
er á milli þeirra og Tsétsena, sem em
islamstrúar og tala sérstakt tungumál
alls óskylt rússnesku.
í þriðja lagi, þegar sovéska heims-
veldið liðast í sundur, þá skapast um
þjóðernissinni stendur við eyðilagðan rússneskan skriðdreka.
það alþjóðlegt samkomulag að þau ríki
sem höfðu stöðu Sovétlýðvelda gætu
orðið sjálfstæð ríki. Þá em skilin eftir
þau sem höfðu stöðu sjálfsstjórnarlýð-
velda innan rússneska ríkjasambands-
ins. Tsétsenar verða fyrstir þeirra þjóða
sem slík ríki byggja, sem kreijast al-
gers sjálfstæðis. Síðan hefur allt hangið
í lausu lofti í þrjú ár.
Rúslan Khasbúlatov, fyrrverandi
forseti rússneska þingsins og einn
helsti andstæðingur Bórisar Jeltsfns
Rússlandsforseta, er Tsétseni. Hann er
líka mikill andstæðingur Dúdajevs for-
seta Tsétsníu og vill ekki aðskilnað frá
Rússlandi, þannig að ástandið þama
einkennist af þverstæðu á þverstæðu
ofan. Bóris Jeltsín horfir með hryllingi
til þess fordæmis sem skapast ef Tsét-
senar fá sjálfstæði. Fleiri ríki myndu
vafalaust fylgja í kjölfarið. Sjálfsstjóm-
arlýðveldin em mörg eins og eyjar,
landlukt af Rússlandi og rússneskum
íbúum, en Tsétsnía á landamæri að hin-
um frjálsu þjóðum sunnan við Rúss-
land. Svo má ekki gleyma því að Tsét-
senar fá móralskan stuðning frá Iran og
fleiri islömskum ríkjum.
Það sem mun líklega gerast á næst-
unni er það að Rússar ná Grosní, höf-
uðborginni, á sitt vald. Ef forsetinn
kemst undan, þá getur hann haldið uppi
skæruhemaði úr fjöllunum lengi, en á
móti kemur að Rússar eiga auðvelt
með að loka landinu alveg. Það er ólík-
legt að aðrar Kákasusþjóðir komi þeim
til hjálpar því þama er svo mikill
þjóðakokteill. Ossetareru til dæmis ná-
grannar Tsétsena. Þeir tala indóevr-
ópskt mál og eiga allt aðra sögu. Þama
em ótal þjóðir með mismunandi tungu-
mál, trúarbrögð og stjómarfar. En svo-
leiðis er nú þessi hugrakki nýi heimur.
Hann er allur að skiptast upp í lítil ríki
þar sem einhverjir smábarónar sem
eiga nokkra riffla stjóma því sem þeir
vilja stjórna," sagði Ámi Bergmann að
lokum.