Alþýðublaðið - 27.01.1995, Page 8

Alþýðublaðið - 27.01.1995, Page 8
Föstudagur 27. janúar 1995 16. tölublað - 76. árgangur Verð i lausasölu kr. 150 m/vsk Hörð barátta alþýðubandalagsmanna í Kópavogi og á Suðurnesjum um 2. sæti á lista flokksins í Reykjanesi Ólafur Ragnar milli tveggja dda Varaþingmaðurinn Sigríður Jóhannesdóttir tekst á við Valþór Hlöðversson um sætið. Alþýðubandalagsmenn í Kópavogi hóta að vinna ekki “ '' ............. með flokknum í kosningunum fái Valþór ekki 2. sæti. „Ég hef enga ástæðu til að ströggla í nefnd ef ekki er tekið neitt tillit til minna sjónarmiða," sagði Flosi Ei- ríksson, formaður kjömefndar Al- þýðubandalagsins á Reykjanesi, í samtali við Alþýðublaðið í gær. Kjör- nefndin er klofin í tvennt í afstöðu sinni til þess, hver á að skipa 2. sæti á framboðslista flokksins. Nefndin fundaði síðast í gærkvöldi, ásamt Ol- afi Ragnari Grímssyni, flokksfor- manni og efsta manni á lista Alþýðu- bandalagsins í kjördæminu. Allt útlit er íyrir að Flosi segi sig úr nefndinni ef Sigríður Jóhannesdóttir verður áffam í 2. sæti. Fréttaskýring í nýlegri skoðanakönnun meðal flokksmanna í kjördæminu varð OI- afur Ragnar Gnmsson í efsta sæti en röð næstu manna var ekki gefin upp. Samkvæmt óyggjandi heimildum Al- þýðublaðsins varð varaþingmaðurinn Sigríður Jóhannesdóttir af Suðumesj- um í öðm sæti og Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi í „Suðumesjabæ" í því þriðja. Valþór Hlöðversson, bæjar- fulltrúi í Kópavogi, lenti í sjötta sæti. Alþýðubandalagsmenn í Kópavogi leggja mikla áherslu á að Valþór verði í 2. sæti, enda finnst þeim að sinn hlutur hafi mjög verið fyrir borð bor- inn síðustu ár. Ekki náðist í Valþór í gær, en Kópavogsbúi sem Alþýðu- blaðið talaði við, sagði að lfka hefði verið rætt um Birnu Bjamadóttur, Flosi Eiríksson: Mun segja af sér formennsku í kjörnefnd verði Sig- ríður Jóhannesdóttir áfram í 2. sæti. bæjarfulltrúa í Kópavogi. Suður- nesjamenn munu hinsvegar hafa hafnað þeim kosti og halda framboði Sigríðar til streitu. Kópavogur hótarad snidganga listann Alþýðubandalagsmaður í kjör- dæminu sagði í samtali við Alþýðu- blaðið í gær, að verði Sigríður áfram í öðm sæti munu Kópavogsbúamir hvorki taka sæti á lista né beita sér í kosningabaráttunni. „Við treystum Sigríði einfaldlega Tröllvaxinn vinningur framundan! Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag. ekki til þess að takast á við þetta verk- efni,“ sagði alþýðubandalagsmaður í Kópavogi í samtali við blaðið í gær. „Hún hefur verið varaþingmaður í Qögur ár og nokkmm sinnum fengið að koma inn á þing en ekkert látið til sín taka. Hún skrifar aldrei greinar í blöð, og mætir aldrei á fundi, nema kannski á Suðumesjum. Hún hefur einfaldlega ekki gert sig sem pólitík- us. Suðumesjamennimir hanga hins- vegar á henni einsog hundar á roði.“ Samkvæmt traustum heimildum munu hvorki Bima Bjamadóttir bæj- arfulltrúi né Flosi Eiríksson varabæj- arfulltrúi eða aðrir áhrifamenn í flokknum í Kópavogi taka sæti á framboðslistanum, verði Sigríður fyr- ir valinu. Flosi Eiríksson vildi ekkert tjá sig um þetta atriði þegar Alþýðublaðið ræddi við hann í gær. Hann sagði að menn yrðu að sjá hvað kæmi út úr starfi kjömefndar. Nefndin fundaði í Kópavogi í gærkvöldi. 5. febrúar verður haldið svokallað tvöfalt kjördæmisþing Alþýðubanda- lagsins í Reykjanesi þarsem gengið verður frá listanum. Samþykkja þarf skipan í hvert sæti sérstaklega, og að sögn Flosa Eiríkssonar hefur sú hug- Valþór Hlöðversson: Kópavogsbú- ar vilja hann í 2. sæti. Ólafur Ragnar: Patt. mynd komið upp, að greidd verði at- kvæði milli manna. Hann taldi þó ólíklegt að sá háttur yrði viðhafður við skipan efstu sæta. Sterk stada Sudurnesjamanna Deilumar í Reykjanesi setja Ólaf Ragnar Grímsson í mjög erfiða stöðu. Hann á erfitt með að beita sér gegn varaþingmanni sínum, Sigríði Jó- hannesdóttur, vegna afgerandi stuðn- ings sem hún hefur á Suðumesjum. Sterk staða Suðumesjamanna endur- speglast líka í því að Jóhann Geirdal varð í þriðja sæti í skoðanakönnun- inni. Jóhann leiddi Alþýðubandalagið í „Suðumesjabæ" til glæsilegs sigurs í bæjarstjómarkosningunum síðasta vor. Flokkurinn fékk óvænt kjöma tvo fulltrúa eftir hrakspár í könnun- um. í þessu sambandi hafa menn líka í huga að síðasta vor beitti Ólafur Ragnar sér gegn því að Jóhann Geir- dal leiddi listann í kosningunum, þar- sem hann taldi að fullreynt væri að Jóhann næði árangri. Á hinn bóginn er Ólafur Ragnar ekki síður í við- kvæmri stöðu gagnvart flokksfélög- um í Kópavogi. Valþór hefur verið náinn samheiji hans, og meðal annars stutt hann dyggilega í innanflokks- átökum. Sömu sögu er að segja af flestum öðmm áhrifamönnum í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa rifjað upp að þeir áttu ákveðið fmmkvæði að því að fá Ólaf Ragnar í framboð í kjördæm- inu 1987, og telja því að hann eigi þeim skuld að gjalda. En Ólafur Ragnar á líka marga stuðningsmenn á Suðumesjum, enda stendur formaður Alþýðubandalags- ins hvergi jafn traustum fótum og í Reykjaneskjördæmi. Tveir vondir kostir fyrir Ólaf Ragnar Ólafur Ragnar má illa við þvi að sjá á bak fleiri samherjum eftir að áhrifa- mestu birtingarmennimir em gengnir til liðs við Jóhönnu Sigurðardóttur. V A n A Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1984-l.fl. 1988-1 .fl.A 6 ár 1990-1 .fl.D 5 ár 01.02.95 -01.08.95 01.02.95 -01.02.96 10.02.95 kr. 68.876,70 kr. 28.881,30 kr. 16.480,50 Einangmn Ólafs Ragnars í Alþýðu- bandalaginu eykst til muna ef félagar hans í Kópavogi snúa baki við hon- um. Það er því ljóst að Ólafur Ragnar stendur frammi fyrir tveimur kostum og hvorugur er góður. Hann kemst vart hjá því að baka sér óvild annað- hvort Suðumesjamanna eða Kópa- vogsbúa. Einn heimildamaður Alþýðublaðs- ins sagði að sú hugmynd hefði komið upp að annar maður á listanum kæmi hvorki frá Suðumesjum né Kópavogi, og það væri eina leiðin til að höggva á hnútinn. I því sambandi er meðal ann- ars rætt um Guðnýju Halldórsdótt- ur, kvikmyndagerðarmann og bæjar- fulltrúa Alþýðubandalagsins í Mos- fellsbæ. Hættan sem er fólgin í þessari leið er sú, að þarmeð kann Ólafur að missa stuðning bæði á Suðumesjum og í Kópavogi. í öllu falli er ljóst, að nú reynir mjög á hæfileika Ólafs Ragnars til að sætta sjónarmið sem virðast algerlega ósamrýmanleg. Ólafur Ragnar hefur reynt að halda sig til hlés í þessum deilum og lagt fast að kjömefndinni að leysa málið. Þar er mætast hins- vegar stálin stinn. Meirihluti nefndarinnar vill setja Sigríði í 2. sætið - en afleiðingamar yrðu þær að nefndin klofnaði og liðs- menn í Kópavogi tækju sér pólit- ískt orlof í þeirri kosningabaráttu sem nú er að hefjast. Það er áfall sem Ólafur Ragnar má ekki við. En hvemig verða málin leyst? „Ég veit það ekki. Upp er komin alger pattstaða," sagði alþýðu- bandalagsmaður í Kópavogi í samtali við blaðið f gær. I.(iiitlslc'ikiirinn okkurí *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 27. janúar 1995 SEÐLABANKIÍSLANDS Verkamannafélagið Dagsbrún Stækkun álvers A stjórnarfundi í Verka- mannafélaginu Dagsbrún í fyrra- dag var samþykkt hvatning til ríkisstjómarinnar um að leita eft- ir samningum um stækkun ál- versins í Straumsvík, „og ganga rösklega fram í málinu," einsog komist er að orði. Þá fagnar stjóm Dagsbrúnar þeim viðræð- um sem átt hafa sér stað milli rík- isvaldsins og erlendra aðila um zinkverksmiðju á Islandi. Niður- stöður viðræðnanna liggja ekki fyrir, en stjóm Dagsbrúnar skor- ar á ríkisvaldið að leggja sig fram um að niðurstöður fáist.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.