Alþýðublaðið - 01.02.1995, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5B
Hallgrímur Jónasson,
fo/stjóri Iðntæknistofnunar:
Avallt vakandi fyr-
irtækninýjungum
Iðntæknistofnun er þróunar- og
ráðgjafastofnun fyrir atvinnulífið.
Markmið stofnunarinnar er að efla
nýsköpun og samkeppnishæfni ís-
lensks atvinnulífs nteð hagnýtum
rannsóknum, vömþróun, fræðslu,
ráðgjöf og prófunum.
Iðntæknistofnun er því ávallt vak-
andi fyrir tækninýjungum og hún
leitast við að afla þeirra ekki síst með
alþjóðlegu samstarfi þar sem tækni-
yfirfærsla er höfð að leiðarljósi. Að
sögn Hallgríms Jónssonar, forstjóra
Iðntæknistofnunar, reynir stofnunin
að afla sem mestrar þekkingar er-
lendis frá fiemur en að reyna að
finna upp alla hluti og þróa sjálf.
Hallgrímur segir að í mörgum tilfell-
um sé hægt að flytja tækniþekkingu
úr einni grein yfir í aðra. „Til dæmis
er hægt að nýta lausnir sem menn
hafa komið upp með í bílaiðnaði í
fiskiðnaði eða í matvælabransanum.
Þess vegna má leita samstarfs í hin-
um ýmsu iðngreinum þegar við er-
um að sækjast eftir nýrri þekkingu í
fiskiðnaðinum. Við vinnum til að
mynda með Granda og Marel við að
þróa róbóta fyrir fiskvinnsluna. I því
ferli vinnum við með tölvufyrirtæki
frá Grikklandi, ráðgjafafyrirtæki í
Danmörku og róbótafyrirtæki í Bret-
landi sem sérhæfir sig í matvælaiðn-
aði
Alþjóðlegt samstarf er því mjög
mikilvægur þáttur í allri starfsemi
okkar.
Við höfum starfað mikið á nor-
rænum grunni í ýmsum þróunarmál-
um, sér í lagi á matvælasviðinu, og
það hefur skilað rnjög góðum ár-
angri. Ég sé fram á að við munum í
auknum mæli starfa með ESB og þá
sem fullir þátttakendur enda munum
við sem EES ríki njóta styrkja frá
þeim.
Ahersla Iðntæknistofnunar í fram-
tíðina mun meira færast yfir í það að
koma þekkingu okkar á framfæri er-
lendis með það í huga að selja þjón-
ustu," segir Hallgrímur. „Þannig get-
um við aflað viðskiptasambanda og
tengsla fyrir íslenskt atvinnulíf. Þessi
þjóð getur ekki einungis lifað á fram-
leiðslu þegar til lengri tíma er litið og
þess vegna ber okkur að styrkja
þjónustuútflutning. 1 dag er Iðn-
tæknistofnun að leita eftir samstarfi
við systurstofnanir hennar á Norður-
löndum með það fyrir augum að
komast inn í ákveðið þjónustunet
sem þau hafa komið sér upp.“
Nefndu mér dæmi um þá þjón-
ustu sem Iðntæknistofnun flytur
út?
„Við höfum sérhæft okkur í hita-
kærum ensímum og teljum okkur
vera í sérflokki á því sviði. Hugsunin
þar að baki felst í því að nýta hita-
kærai' örverur til iðnaðamota. Örver-
ur geta lifað við mikinn hita í mjög
súm og basfsku umhverfi eins og
hverimir okkar em og því má hafa
mikið gagn af þeim. Við emm t.d. að
nota þessar íslensku örvemr til að
hreinsa mengað vatn eða þéttivökva.
Þéttivökvi sem er heitur inniheldur
ákveðin óhreinindi og í dag þarf að
kæla hann áður en hann er hreinsað-
ur. Það sem við viljum gera er að
nota hitakærar örvemr til að ná
óhreinindum burt og geta sett heitt
vatn aftur í ferlið. Þannig er hægt að
spara orku.
Glæpamál upplýst með af-
urðum úr örverum
Ensímið sem við framleiðum úr
hveraörvemm má einnig nota lil að
upplýsa glæpamál. Við emm að
vinna með litlu finnsku fyrirtæki í
þessu sambandi. Við rannsóknir
glæpamála finna menn oft sæðis-
frumur eða húðflibba sem þarf að
greina. Þá er erfðaefnið tekið og
margfaldað til að kanna hvort það sé
óyggjandi. Ensímið sem við fram-
leiðum úr hveravötnunum er notað
lil þess að margfalda upp erfðagenið
í sáðfrumunni eða húðflibbanum.
Þetta er þegar orðin markaðsvara og
hefur verið það undanfarin tvö ár.
Við eigum ásamt fleimm og rekum
hér innanhúss fyrirtæki sem einbeitir
sér alfarið að þvf að markaðssetja af-
urðaþjónustu á þessu sviði.“
Átaksverkefni
Hallgrímur segir að árangur þró-
unarverkefna sem Iðntæknistofnun
hefur staðið fyrir hafi verið mjög
góður en honum finnst of lítið um að
gerð sé úttekt á þeim árangri sem
náðst hefur almennt í rannsóknar-
starfi. „Við gerðum úttekt á fyrsta
vömþróunarverkefninu sem við fór-
um af stað með þremur ámm eftir að
því lauk og í ljós kom að vömmar
sem vom þróaðar veltu um 600
milljónum; Það finnst okkur harla
gott og réttlætir að þróunarverkefn-
um sé haldið áfram,“ segir Hallgrím-
ur.
„Iðntæknistofnun hefur fleiri
átaksverkefni í farveginum. Iðn-
tæknistofnun og Iðnlánasjóður eiga
samstarf unt verkefnið Fmmkvæða-
framkvæmd. Það verkefni byggir á
því að fyrirtæki sem vilja láta skoða
ákveðna þætti í starfsemi sinni eins
Oddur Már Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Atvinnuþróunar-
sjóðs Suðurlands:
Atvinnuráðgjöf og
átaksverkefni
Á landsbyggðinni starfa atvinnu-
ráðgjafar í hverjum Ijórðungi og
einn þeirra er Atvinnuþróunarsjóður
Suðurlands. Hann var stofnaður
1981 í þeim tilgangi að efla atvinnu-
líf í kjördæminu. Miðstöð sjóðsins er
á Selfossi hjá Samtökum sunn-
lenskra sveitarfélaga og fram-
kvæmdastjóri hans er Oddur Már
Gunnarsson, rekstrartæknifræðing-
ur. Sjóðurinn hefúr á ári hverju látið
frá sér 25 til 40 milljónir í formi lána
eða styrkja til fyrirtækja sveitarfé-
laga.
Hlutimir ganga í megindráttum
þannig íyrir sig að fyrirtæki eða ein-
staklingar í kjördæminu banka upp á
hjá Atvinnuþróunarsjóðinum með
einhveija hugmynd í fómm sínum.
Lítist sjóðnum á hugmyndina tekur
hann upp samstarf eftir að hafa full-
vissað sig um að viðkomandi aðili
hafi möguleika á að ráða við verk-
efnið.
Atvinnuþróunarsjóður hefur
skipulagt tímabundin átaksverkefni
með sveitarfélögum á Suðurlandi. „-
Þessi verkefni er ljármögnuð þann-
ig,“ segir Oddur Már, „að við leggj-
um til Ijórðung fjármagnsins, sveit-
arfélögin sem að því standa leggja lil
fjórðung en Byggðastofnun helm-
ing. Ráðinn er ákveðinn verkefnis-
stjóri sem hefur með höndum verk-
efhi á afmörkuðu svæði. Verkefnis-
stjórinn er ráðinn til tveggja ára og
honum er ætlað að takast á við þann
vanda sem brýnast er að leysa á við-
komandi svæði. T.d. höfum við ver-
ið með svona verkefni í Mýrdals-
hreppi, eitt verkefni er nú í gangi í
vesturhluta Rangárvallasýslu og
einnig hafa sex hreppir í uppsveitun-
um staðið saman að svona verkefni.
Þjónusta wð
íslenskan iðnað i
og fjármál, vöruþróunarmál o.fl.
geta sótt um að fá styrk til að greiða
fyrir ráðgjafaraðstoð en styrkurinn
hljóðar upp á 50 prósent af kostnað-
inum. Ríkisstofnanir geta ekki sinnt
öllum þörfum sem upp koma hjá fyr-
irtækjum og því hafa mörg fyrirtæki
nýtt sér þessa þjónustu okkar. Þeim
finnst gott að eiga aðgang að ráð-
gjöfum sem þau telja besta á við-
komandi sviði. Iðntæknistofnun sér
um verkefnisstjómun sem felst helst
í því að finna hæfustu ráðgjafana og
sjá um að verkefnin gangi eftir áætl-
un. Stofnunin hefur gefið út bók þar
sem taldir eru upp þeir ráðgjafar sem
hæfir em til að veita ráðgjöf á þeim
sviðum sem verkefnin falla undir.
Þeir þættir sem fyrirtæki geta val-
ið um að láta skoða hjá sér em eftir-
farandi: stefnumótun, ljárhagsleg
endurskipulagning, fjármálastjóm-
un, vömþróun og markaðsgerðir,
framleiðsluskipulagning og gæða-
stjómun. Allt em þetta lykilsvið í
rekstri fyriitækja sem þau þurfa og
eiga að taka á.
Hallgrímur nefnir líka til Snjall-
ræðisverkefnið svokallað. Það er
hugsað til að þjónusta hugvitsmenn
úr hópi einstaklinga sem hafa góðar
hugmyndir á takteininum. Einstak-
lingamir sem til álita koma þurfa
ekki að vera úr hópi stjómenda fyrir-
tækja heldur geta þeir komið hvaðan
sem er.
„Mikil þátttaka hefur verið í
þessu verkefni. Við höfum auglýst
verkefnið mjög vel og að jafnaði
hafa um þrjú hundmð manns sótt
um. í fyrstu em átta hugmyndir vald-
ar og þær styrktar um 600 þúsund
krónur. Eigendum hugmyndanna er
þá ætlað að útfæra þær betur fyrir
styrktarféð og hafa til þess sex mán-
uði. Að þeim tíma liðnum em hug-
myndimar skoðaðar að nýju og af
þeim em íjórar valdar og hver þeirra
styrkt upp á eina og hálfa milljón
krónur. Hugmyndasmiðunum er síð-
an ætlað að fylgja hugmyndum sín-
um enn betur eftir,“ segir Hallgrím-
ur.
Selfossbær er nýbyrjaður með eitt
verkefni og í tengslum við það var
ráðinn maður til að vinna með fyrir-
tækjunum þaríbæ.
Mér heyrist á sveitarstjómar-
mönnum að þeir séu mjög ánægðir
með þessi verkefni og þeir leggja til
að átak verði gert á tíu ára fresti á
hverjum stað. Vandamálin safnast
upp og þegar fúlltrúi okkar kemur á
staðinn er knýjandi þörf fyrir ein-
hvem sem getur leyst úr málunum en
þegar hann hefur lokið sínu starfi þá
færast hlutimir í rólegra horf.“
Oddur Már tekur dæmi af átaks-
verkefnunum í Vík í Mýrdal og
Rangárvallasýslu. „Við byrjuðum á
því að halda svokallaða leitarráð-
stefnu sem var tveggja daga „brain-
storm“ fundur með íbúum á viðkom-
andi svæðum. Þar var farið í gegnum
stefnumótunarferli og hvar átaks
væri helst þörf. Þama komu upp
ákveðin verkefni og fólki skipt niður
í hópa til að vinna að útfærslu þeirra.
Smíðuð var verkefnaáætlun sem
miðaði að því að verkefninu lyki á
tveimur ámm liðnum. Ráðgjafinn
hafði svo það hlutverk að leiðbeina
hópunum og veita þeim ráðgjöf. Svo
þróaðist starf hans út í það að hann
fór að vinna fyrir einstaklinga og fyr-
irtæki sem komu til hans nteð ákveð-
in vandamál sem þörfnuðust úr-
lausna. Þau vöm síðan lögð fyrir
stjóm sem ákvað á hvaða verkefnum
skildi taka. Ráðgjafinn fylgdi síðan
verkefnunum eftir með viðkomandi
einstaklingum eða fyrirtækjum og
keyrði þau í gegn.
Töðugjöldin, útihátíðin á Hellu sl.
sumar er eitt dæmi um það sem út úr
þessum verkefnum kom. Eins má
nefna merkingu gönguleiða á þess-
um stöðum og sumarsel fyrir böm.“
Trefjaflókaframleiðsla
Að sögn Odds Más felst stór hluti
af starfi hans í ráðgjöf; atvinnuráð-
Bragi Hannesson,
forstjóri Iðnlánasjóðs:
Sjóðurinn stendur
sterkur
Iðnlánasjóður á sextíu ára afmæli á
þessu ári en hann var stofnaður með
lögum frá Alþingi árið 1935 og það
var Emil Jónsson, fyrmrn formaður
Alþýðuflokksins og ráðherra sem
stóð að baki stofnun hans. Tilgangur
sjóðsins er að veita lán til íjárfesting-
ar, vömþróunar og til markaðsað-
gerða erlendis.
Að sögn Braga Hannessonar, for-
stjóri Iðnlánasjóðs, felst aðstoð Iðri-
lánasjóðs aðallega í lánaábyrgðum en
einnig gerist sjóðurinn oft aðili að
fyrirtækjum. Hann segir að megin-
starf Iðnlánasjóðs í dag sé að veita
langtímalán til byggingar iðnaðar-
húsnæðis og vélarkaup.
„Lánsumsóknir fyrirtækja fara fyr-
ir lánanefnd, sem starfar samkvæmt
sérstökum lánareglum sem settar em
af stjóm sjóðsins," segir Bragi. „Þar
em ákvæði um lágmarks eigið fé fyr-
irtækis, eiginíjárhlutfall, veltu og
annað er varðar lánstraust. Lána-
nefnd vinnur út frá þessum reglum og
fúllnægi fyrirtæki þeim er lánveiting
samþykkt.
Einnig er innan sjóðsins vokölluð
vömþróunar- og markaðsdeild en að-
altekjustofn hennar er iðnlánasjóðs-
gjald. Þessi deild veitir lán á mjög
hagstæðum kjömm og ennfremur
styrki. Lán og styrkir em afgreiddir
tvisvar sinnum á ári en stjómin tekur
ein og sér ákvarðanir um styrkveit-
ingu. Meginljármagnið úr vömþró-
unar og markaðsdeild fer í þróunar-
verkefni sem Iðnlánasjóður stendur
fyrir ásamt Iðntæknistofnun og Ut-
flutningsráði. Hlutverk Iðnlánasjóðs
er að leggja til fjármagnið, Iðntækni-
stofnun og Útflutningsráð leggja til
aðstoð í formi ráðgjafar sem byggð er
á þeirri þekkingu sem þessar stofnan-
ir hafa aflað sér. Samvinnan við Iðn-
tæknistofriun og Útflutningsráð hefur
gengið vonum framar og það sem
gerir gæfumuninn er að þessar þijár
stofnanir vega hverjar aðrar upp. Við
í Iðnlánasjóði útvegum íjármagnið
en Iðntæknistofnun og Útflutnings-
ráð þekkingu á sín hvom sviðinu.“
Afkoma fyrirtækja batnar
Sem dæmi um þau verkefrii sem
Iðnlánasjóður hefur beitt kröftum
sínum í undanfarið nefnir Bragi
Fmmkvæði og framkvæmd og Vöm-
þróun. „Fyrirtæki hafa verið mjög
áhugasöm um þessi verkefni enda
hafa um 80-90 þeirra þegar tekið þátt.
Verkefnin ganga út að það að hjálpa
fyrirtækjunum við vömþróun, mark-
aðssetningu til útflutnings, gæða-
stjómun o.fl. Dæmi um fyrirtæki sem
tekið hafa þátt og náð góðum árangri
em Össur hf., Sæplast, Álfasteinn,
Brúnás og mörg fleiri.
Sem dæmi um þann árangur sem
þessi verkefni hafa skilað má nefna
fýrirtækið Össur sem framleiðir stoð-
tæki. Fyrirtækið tók þátt í verkefni
sem hét Útflutningur og hagvöxtur í
gegnum Útflutningsráð. Viðfangs-
efni Össurs var markaðsetning á
framleiðsluvöm fyrirtækisins og með
það að markmiði var hannað sérstakt
markaðsetningarkerfi þar sem kort-
lagt hvar hvemig bæri að ná tiltekn-
um mörkuðum erlendis. Kerfinu var
fylgt út í ystu æsar og í dag veltir Öss-
ur yfir 300 milljónum en þegar þeir
vom að byija sina starfsemi veltu þeir
60 milljónum.
Aðspurður hvaða fyrirtæki hafi
meiri möguleika á að hljóta náð fyrir
augum Iðnlánasjóðs fremur öðmm
segir Bragi að megináherslan sé lögð
á að aðstoða fyrirtæki sem hafi verið
starfrækt um nokkurt skeið fremur en
fyrirtæki sem séu algerlega ný af nál-
inni. „Það er raunhæfara að fyrirtæki
sem hafa þekkingu og reynslu eigi
betri möguleika á að ná árangri en
þau sem em að byija frá gmnni.“
Bragi segist hafa fundið fyrir mikl-
um umskiptum til hins betra hjá fyrir-
tækjum á síðasta ári, bæði hvað varð-
ar rekstur og afkomu þeirra. Þessu
vill hann þakka jreim stöðugleika
sem hann segir hafa ríkt í efnahagslíf-
inu undanfarið. „Vaxtastigið hefur
verið tiltölulega lágt og hagþróun
verið á uppleið víða í heiminum.
Með stöðugleikanum hafa fyrirtækin
farið að leggja meira upp úr áætlana-
gerð hvað varðar markaðsmál, gæða-
stjómun og aðra þætti. Þetta er mjög
jákvæð þróun enda þýðir áætlana-
gerð bættan rekstur fyrirtækjanna.
Hérlendis hafa orðið miklar breyt-
ingar í frjálsræðisátt í viðskiptalífinu
og gert hefur verið átak í markaðs-
málum. Við hjá Iðnlánasjóði emm
mjög spenntir að sjá hvemig menn
munu nýta sér þá möguleika sem
opnuðust með EES samningnum til
að auka verðmæti sjávarfangsins og
einnig hvað varðar ferðamannaiðn-
aðinn. Það er ljóst að EES opnar ekki
bara möguleika lyrir iðnaðinn heldur
fjölda nýrra möguleika," segir Bragi
að lokum.
gjöf fyrir lyrirtæki, sveitarfélög og
einstaklinga. „Hingað koma menn
oft með góðar hugmyndir en engan
gmndvöll til að framkvæma þær og
þess vegna verð ég oft að telja þá of-
an af því að hefjast handa. Þetta em
oft á tíðum menn sem hafa hvorki
þekkinguna til að framkvæma hlut-
ina eða fjárntagnið til að fá þekking-
una til sín.
Einnig er oft sá misskilningur í
gangi að atvinnuráðgjafinn eigi að
koma með hugmyndir en þannig
gerast hlutimir ekki. Ráðgjafar geta
aldrei gert annað en að aðstoða menn
við að útfæra sínar eigin hugmyndir.
Fmmkvæðið verður að koma frá
þeim sem framkvæmir og hlutverk
ráðgjafans er að benda á leiðir til
þess að ná fram markmiðunum.“
Geturðu nefnt mér dæmi af
verkefni sem sjóðurinn hefur
ákveðið að styrkja?
„Eitt að þeim verkefnum sem At-
vinnuþróunarsjóður Suðurlands, í
samvinnu við þróunarverkefni upp-
sveita Ámessýslu, hefur eytt tölu-
verðum krafti í að koma af stað varð-
ar framleiðslu á trefjaflóka. Það er
efni sem t.d. bleyjur, dömubindi,
jakkafóður, einnota málningagallar,
jarðvegdúkar og annað í þeim dúr er
framleitt úr. Ég hef mikla trú á þessu
verkefni. Þetta er orkufrekt ferli,
ekki mjög mannaflsfrekt en svolítið
fjárfrekt. Ef við skilgreindum iðnað
sem félli vel að íslenskum þörfum þá
félli treljaflókaframleiðslan undir þá
skilgreiningu.Við höfum síðustu tvö
til þijú árin verið að reyna að koma
þessu af stað en einhvem veginn hef-
ur gengið mjög illa að fá fjármagn til
þess að geta lokað dæminu. Til fram-
leiðslunnar þarf tækni sem við höf-
um yfir að ráða og rannsóknargildið
er ekki svo mikið. Þetta er fyrst og
fremst spuming um að finna markað,
staðsetja okkur á þeim markaði og
byggja upp í kringum það. Við höf-
um gert heildarúttekt á iðnaðinum
sem sýnir að þetta er mjög öflugur
og ört vaxandi iðnaður en hann
skiptist í hundmðir undirflokka.
Málið er að finna okkur rétta syllu en
það útheimtir mjög dýra markaðs-
vinnu. Ef vel er staðið að undirbún-
ingsvinnunni verður fjármögnun á
síðari stigum miklu betri, þá er byggt
á sterkum granni. Fjármagnið til
þess höfum við ekki fengið þrátt fyr-
ir að flestum lítist vel á verkefnið og
telji það lofa góðu.“