Alþýðublaðið - 03.02.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995
MMIIBIIBID
20865. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
S
Island og
Evrópusambandið
Stjómmálaflokkum ber að hafa framtíðarsýn og áræði til að
fylgja henni. Umdeildasta mál dagsins em tengsl íslands við
Evrópusambandið. Af þeim ræðst framvinda og þróun íslensks
atvinnulífs á næstu árum. f afstöðunni til þess mikilvæga máls
speglast því framtíðarsýn íslensku flokkanna.
Afstaða Alþýðuflokksins er skýr: Hann telur að það eigi að
láta reyna á umsókn um aðild að Evrópusambandinu til að
kanna hvaða kjör em í boði. Þessi afstaða jafnaðarmanna bygg-
ist á framtíðarsýn þeirra fýrir ísland. Alþýðuflokkurinn telur
einfaldlega, að það þjóni hagsmunum almennings að tengjast
Evrópu, svo fremi ákveðnum skilyrðum sé fullnægt. Hann ger-
ir sér fullkomna grein fyrir því, að sú afstaða kann að vera lítt til
vinsælda fallin. En flokkurinn lítur á það sem skyldu að fylgja
sannfæringu sinni um það hvað er íslandi fyrir bestu, - en
hleypur ekki á eftir því sem kann að vera efsta á baugi svokall-
aðs almenningsálits á hveijum tíma.
Aðra íslenska stjómmálaflokka skortir þessa framtíðarsýn.
Þeir óttast almenningsálitið, og þora ekki að móta sér afstöðu til
tengsla íslands og Evrópu. Þess í stað reyna þeir að skjóta sér á
bak við staðhæfmgar um að málið sé ekki á dagskrá. Slík við-
horf em fráleit, og endurspegla ábyrgðarleysi. ísland stendur á
krossgötum; lok kalda stríðsins og innganga frændþjóða í Evr-
ópusambandið hafa veikt meginstoðir íslenskrar utanríkis-
stefnu, sem hafa verið norrænt samstarf og Atlantshafsbanda-
lagið. Þjóðin er því í vissri einangrunarhættu, og ákvörðun um
að sækja ekki um aðild, eða viljaleysi til að ræða hugsanlega
aðild er afdrifarík ákvörðun, sem þarfnast sérstaks rökstuðn-
ings. Hann hefur hins vegar ekki komið fram hjá viðkomandi
flokkum.
Næstum 70 af hundraði af útflutningi þjóðarinnar fer til landa
Evrópusambandsins. Samkeppnisstaða okkar á þessum mikil-
væga markaði getur haft úrslitaáhrif á þróun íslensks efnahags-
og atvinnulífs. í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu fylgdi
fullur markaðsaðgangur fyrir sjávarafurðir, og þar með aukin
fullvinnsla sjávarfangs innanlands. Það þýðir meiri virðisauka
og atvinnu í landinu. Aðild myndi leiða til aukinna erlendra
íjárfestinga, aukins stöðugleika og meiri hagvaxtar. Kaupmátt-
ur launa myndi aukast stórlega þegar frá fyrsta degi aðildar,
enda myndi hún lækka verð á matvælum um 35 til 40 af hundr-
aði. Kjör sérhverrar íjögurra manna fjölskyldu myndi því þeg-
ar í stað batna að meðaltali um sem svarar 84 þúsund krónum á
ári. Til lengri tíma myndu þó kjörin batna enn frekar, enda hef-
ur aðild að Evrópusambandinu í öllum tilvikum haft jákvæð
áhrif á efnahag nýrra aðildarríkja.
Einungis umsókn leiðir í ljós, hvaða kjör bjóðast. Engin önn-
ur aðferð er til þess. í samningum um aðild yrði þjóðin að sam-
einast um að tryggja áfrarn forræði hennar yfír auðlindum sín-
um í hafinu. Til að taka af tvímæli í þessu efni leggur Alþýðu-
flokkurinn tdl, að sameign þjóðarinnar verði bundin í stjómar-
skrá. Það er ennfremur brýnt að menn geri sér grein fyrir, að
umsókn um aðild og endanleg ákvörðun em tvær, aðskildar
ákvarðanir. Þegar umsókn liggur fyrir, samningum er lokið, þá
fyrst er ljóst hvað er í boði, og þá er það þjóðarinnar sjálfrar að
taka milliliðalaust ákvörðun um aðildina í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Þetta er framtíðarsýn íslenskra jafnaðarmanna í því máli, sem
óhjákvæmilega verður efst á baugi þjóðmálanna á næstu ámm.
Lárviðarskáldið Einar Már
Þegar ég heyrði tíðindin á þriðju-
daginn datt mér í hug dálítil vísa. Ég
fór með hana fyrir alla sem ég hitti.
Flestir sögðu: Umhu, já, jújú - eða
eitthvað í þeim dúr. Ég held að þeim
hafi fundist hún ágæt. Svo hitti ég
hagyrðing í boði og hann upplýsti
mig um að þetta væri aldýr odd-
henda. Sjálfur hafði ég haldið að
þetta væru gagaraljóð.
Svona var hún:
Einar Kára keikur stár,
krýndur lárvið Einar Már.
Allt þeim gár svo gott í ár
- Gunnar Smárifellir tár.
Einar Kárason kemur þessu svo
sem ekkert við. Hann er þama fyrst
og fremst rímsins
vegna, þetta er ma-
hnar-rím. En það er
samt langt síðan ég
tók eítir þvt að
nöfnin þeirra nafn-
anna rímaog það er
sennilega þess
vegna sem fólk er
alltaf að spyrða þá
saman. Hið
Vikupiltar
dönskuskotna máifar er líka rímsins
vegna; þó er hægt að veija það með
því að þeir hafa báðir komið út á
norðurlöndum og þar hefur þeim
báðum vegnað vel. Bókmenntafólk á
norðurlöndum hefur almennt ekki
sömu áhyggjur af kyni rithöfunda og
háskólaborgarar hér - og því er yfir-
leitt sama þótt menn séu úr vogun-
um.
Vogamir- Gunnar Smári er þama
fyrst og ffemst rímsins vegna. Hins
vegar er tilvalið að hía svolítið á
hann vegna þess að honum er svo
óskaplega uppsigað við þessa menn
af því þeir em úr vogunum og héngu
í Teitsjoppu áður en hún varð stekk-
ur.
Þetta er gaman fyrir Einar Má -
þetta er gaman fyrir alla þá sem unna
skáldsögum því enginn rithöfundur
hefur af sömu alvöru og ástríðu og
hann haldið á lofti anda skáldsög-
unnar í öllu sem hann hefur tekið sér
fyrir hendur. Allt sem hann gerir er
gegnsýrt þessum anda. Þegar hann
tekur til máls um hvaðeina er hann
innblásinn þessum anda. Anda
skáldskaparins: þessum prakkara-
lega, bamalega anda. Þessum skáld-
drengja- anda.
Þetta er gaman vegna þess að Ein-
ar Már hefur gengið í t' gegnum allt
það sem hent getur einn rithöfund
hjá þessu þjóðarkríli. Hann hóf feril-
inn á því að gefa út tvær ljóðabækur
og varð fyrstur til að blanda Dylan
og Bowie saman við Rimbaud,
Daðason og Jóhannes úr Kötlum, og
í þessum leðurjakka tókst honum að
pranga þessum kvemm inn á hvem
einasta mann sem varð reikað út á
götu sumarið 1980. Og fleimm: ég
heyrði einhvem tímann þá sögu að
hann hefði verið kominn inn í svefn-
herbergið hjá bláókunnum manni og
farinn að selja honum ljóðabók.
Hann seldi bækumar eins og hann
hafði selt Neista áður. Fullkomlega
sannfærður um að þetta ætti erindi
við hvem einasta mann. Fullkom-
lega sannfærður um að hann væri
gegnsýrður anda skáldskaparins.
Svo fékk hann verðlaun hjá AB
fyrir Riddara hringstigans, þessa
fmmlegu blöndu af spekimálum og
prakkarastrikum sem sögð var í spá-
mannsstfl fimm ára manns eða
fimmhundmð ára: þetta var einmitt
Bókin sem hefur að geyma bemsku-
minningar höfundar úr vogunum -
bókin sem Súsanna heldur að við
Einar Kárason séum alltaf að skrifa
og Gunnar Smári heldur að Þórarinn
Eldjám og Pétur Gunnarsson séu
alltaf að skrifa. Fólk sem las hins
vegar bókina tók henni fagnandi,
sem og þeirri næstu, Vængjasláttur í
þakrennum enda var sú bók enn spá-
mannslegri,
sögumaður enn
meira fimm ára
og fimmhundmð
ára - hún var
gegnsýrð anda
skáldskaparins.
Þriðja bókin
um vogana var
einn langur eftir-
máli, nóaflóð lík-
jlBl, Guðmundur
ir ' Andri
Thorsson
|fcx 1 skrifar
inga, og þannig drekkti Einar vogun-
um sem sagnaheimi svo að þeir hafa
ekki átt afturkvæmt í íslenskar bók-
menntir. Og nú fór Einar Már að
verða fyrir barðinu á háskólafólki
sem var nýkomið til starfa og þurfti
verðug árásarefni. Hann var sakaður
um tvennt einkum: að vera karlkyns
og að skrifa sem slíkur. Næstu tvær
bækur hans vom enda svolítið reik-
ular að manni fannst, höfundurinn
virtist ekki jafn fullkomlega sann-
færður um erindin og fyrr, hann
þreifaði fyrir sér um stfl, virtist vera
að aga sig, jafnvel svo mjög að í
Rauðum dögum þekkir maður hann
varla. I þeirri bók fer hann næst ein-
hvers konar normalstfl, hinar slitnu
málsgreinar em horfnar, andköfin og
spenningurinn; Atómstöðin verður
honum ekki innblástur heldur þvæl-
ist fyrir honum, ástarsagan virðist
vera til að fullnægja formsatriðum,
anekdótumar streyma ekki fijálsar
og óhindraðar eftir eigin lögmálum,
ná ekki að tengjast, ná ekki að lifna.
Samt. held ég að bókin hafi ekki
verið jafn vond og Kolla segir. Og ég
held að honum hafi verið úthúðað af
full mikilli gleði og áfergju af þeim
sem áður höfðu sakað hann um vfta-
vert kynferði og birtingarmyndir
þess. Hún er annars svolítið merkileg
þessi íslenska bókmenntaumræða -
hún er svo heiftúðug. Islendingar
virðast enn hafa svo mikla trú á
mætti skáldskapar. Það er engu lík-
ara en fram fari barátta upp á líf og
dauða um heilabú þjóðarinnar. Mál-
um sé enn þannig háttað að skáldið
geti sagt þjóðinni hvemig hún skuli
hugsa, bursta tennur, byggja hús,
þvo þvott. Það hlýtur að vera þess
vegna sem femínístar og hægri menn
em svo hatrammir. Þetta er nefnilega
síðasta fólkið sem álítur að það sé
hlutverk skáldskaparins að innræta
öðm fólki skoðanir.
Þegar Jóhann Hjálmarsson var að
skrifa um Engla alheimsins í Morg-
gaman fyrir alla þá sem unna skáldsögum
því enginn rithöfundur hefur af sömu al-
vöru og ástríðu og hann haldið á lofti
anda skáldsögunnar í öllu sem hann hefur
tekið sér fyrir hendur. Allt sem hann gerir
er gegnsýrt þessum anda. Þegar hann tek-
ur til máls um hvaðeina er hann innblás-
inn þessum anda. Anda skáldskaparins:
þessum prakkaralega, barnalega anda.
Þessum skálddrengja-anda.“
unblaðið var hann vissulega að reyna
að finna eitthvað fallegt til að segja
um bókina. Hann komst að vísu ekki
á sama flugið í hrósinu og þegar
hann skrifar um Matthías sem hann
líkti í síðasta dómi sínum við höfund
Völuspár, en þó var hann fremur já-
kvæður. Eða járænn eins og Jóna
Rúna Kvaran kallar það. Eitt af því
sem hann fann bókinni til gildis var
að hún væri engin „drengjabók". Ég
held að honum hafi skotist þar. Ég
held að þetta sé einmitt drengjabók.
Og að í því sé ekki síst gildi hennar
fólgið, að vera um það hvemig það
er að vera ungur dréngur nú á dög-
um.
Krýndur lárvið Einar Már. Til
hamingju. Þetta er gaman. Ekki síst
vegna þess að nú er ísinn brotinn.
Þau em þtjú á palli: Thor, Fríða og
Einar Már, og á eftir koma öll hin.
Næst fær Vigdís þau fyrir Granda-
veg 7. Svo fær Þorsteinn frá Hamri
þau, svo Einar Kára, svo Steinunn,
svo og svo og svo. Og svo fáum við
Jón frá Pálmholti þau saman árið
2018.
Dagatal 3, febrúar
Atburðir dagsins
1468 Johann Gutenberg, faðir prent-
listarinnar, deyr örsnauður og um-
komulaus. 1931 216 manns farast í
jarðskjálfta á Nýja-Sjálandi. 1944
Hótel ísland, stærsta timburhús í
Reykjavík, brennur til kaldra kola.
1969 Boris Karloff deyr; kvik-
myndaleikari sem sérhæfði sig í
ffankensteinum og ómennum.
Afmælisbörn dagsins
Felix Mendelssohn þýskt tónskáld,
1809. Gertrude Stein bandarískur
rithöfundur og Parísarbóhem, 1874.
James Michener bandarískur met-
söluhöfundur, 1907.
Annálsbrot dagsins
Um sumarið á alþingi varð bráð-
kvaddur í lögréttunni Eiríkur Sig-
valdason, lögréttumaður fyrir austan.
Var sagt, hann hefði hart talað móti
einni galdrakonu.
Grímsstaðaannáll, 1661.
Málsháttur dagsins
Nú er Máríuveður í Kjós.
Máríuveður: blíðviðri.
Framtíð gærdagsins
Sá, sem stöðugt horfir inn í fortíðina,
á ekki skilið að eiga ffamu'ð til að
horfa inn í.
Oscar Wilde.
Lof dagsins
Tryggvi Þórhallsson átti fáa and-
stæðinga innan Alþýðuflokksins.
Hann jafnaði oft deilur og var hvers
manns hugljúfi. Að mínu viti fór
saman í fari hans brennandi áhugi
fyrir bændastéttinni og góður skiln-
ingur á þörfum verkamanna.
Stefán Jóhann Stefánsson, Minningar I.
Orð dagsins
Hugfast sveinar hafi það,
helzt á leynifundum,
ýmsa greinir á um, hvað
orðin meina stundum.
Skák dagsins
Austur í Rússlandi, og reyndar víðar,
er margur sterkur skákmaður sem
ber nafnið Ivanov. Einn þeirra sem
ekki er sérlega hátt skrifaður er V.I.
Ivanov, en sá glaðlyndi gaur kann
ýmislegt fyrir sér. í skák dagsins hef-
ur hann hvítt og á leikinn gegn hin-
um væmkæra Sivoho. Hvíta drottn-
ingin er uppivöðslusöm í svörtu her-
búðunum en riddarinn á g5 stendur í
uppnámi. Sá góði guðsmaður lifði
hinsvegar til loka skákarinnar: Iv-
anov sér nú til þess að Sivoho fær
um annað að hugsa. Spurt er: Hvað
gerir hvítur? í annan stað er örlítil
vísbending: b7-reiturinn gegnir lyk-
ilhlutverki.
1. Bxe6!l Bxe6 2. Hxe6! fxe6 3.
Hxb7!! Þama lá hundurinn grafinn!
3. ... Dxb7 4. Dh8+ Ke7 5. Dxg7+
Kd6 6. Re4+ Kd5 7. Dxb7 Ke4 8.
Dxc6 KI5 9. cxd4 Hér var Sivaho
búinn að fá nóg af skák og teygði sig
í vodkaflöskuna sem. hann hefur
jafnan innan seilingar.