Alþýðublaðið - 03.02.1995, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995
RAÐAUGLYSINGAR
HEILBRIGÐISEFTIRLIT REYKJAVÍKUR
Rekendur gisti-
og veitingahúsa
í Reykjavik
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur ákveðið að framfylgja
ákvæðum 9. gr. reglug. nr. 149/1990 (heilbrigðisreglugerð)
og 3. gr. reglug. nr. 522/1994 um matvælaeftirlit og holl-
ustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla um veit-
ingu á starfsleyfi fyrir gisti- og veitingahús þótt sú starf-
semi sem þar fer fram sé einnig háð starfsleyfi lögreglu-
stjóra.
Umsækjendur um rekstur gisti- og veitingahúsa þurfa eftir-
leiðis að sækja um starfsleyfi til heilbrigðisnefndar á sér-
stökum eyðublöðum sem fást hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavík að Drápuhlíð 14, þar sem nánari upplýsingar eru
veittar.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Umsókn um styrki
til atvinnumála
kvenna 1995
Á árinu 1995 hefur félagsmálaráðuneytið til ráðstöfunar 20
milljónir króna sem eru ætlaðar til atvinnuátaks meðal
kvenna. Við ráðstöfun fjárins er einkum tekið mið af þróun-
arverkefnum og námskeiðum, sem þykja Ifkleg til að fjölga
atvinnutækifærum kvenna á viðkomandi atvinnusvæði.
Þau atvinnusvæði þar sem atvinnuleysi kvenna hefur farið
vaxandi eða er varanlegt koma sérstaklega til álita við ráð-
stöfun fjárveitinga. Við skiptingu fjárins munu eftirfarandi
atriði höfð til hliðsjónar.
1. Ekki verða veittir beinir stofn- og rekstrarstyrkir til ein-
stakra fyrirtækja nema sérstakar ástæður mæli með því.
2. Verkefnin skulu vera vel skilgreind og fyrir liggja fram-
kvæmda- og kostnaðaráætlun.
3. Tekið er mið af framlagi heimamanna til þess verkefnis
sem sótt er um.
4. Verkefnið skal koma sem flestum konum að notum.
5. Að öðru jöfnu skal fjármögnun af hálfu ríkisins ekki nema
meir en 50% af kostnaði við verkefnið.
Umsóknareyðublöð fást í félagsmálaráðuneytinu, Hafnar-
húsinu v/Tryggvagötu, s. 560 9100 og hjá atvinnu- og iðn-
ráðgjöfum á landsbyggðinni.
Umsóknarfrestur er til 20. mars nk. og áskilur ráðuneytið
sér rétt til að hafna öllum umsóknum sem berast eftir þann
tíma.
Félagsmálaráðuneytið.
Varnarliðið/Laust starf
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða fram-
kvæmdastjóra/sýningarstjóra til starfa við kvikmyndahús
varnarliðsins.
Umsækjendur hafi reynslu af stjórnunarstörfum og séu
sýningarmenn með réttindi.
Mjög góðrar enskukunnáttu er krafist.
Umsóknum skal skilað á ensku.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar Varnarmálaskrifstofu,
Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 92-11973, eigi síðar en 12.
febrúar 1995.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar fyrir umsækj-
endur og er þeim bent á að lesa hana áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
ALÞYÐUFLOKKURINN
ALÞÝÐUFLOKKURINN Á AUSTURLANDI
Opnir fundir
Jafnaðarmenn á Austurlandi boða til opinna funda í kjör-
dæminu með Gunnlaugi Stefánssyni alþingismanni frá
Heydölum og Hermanni Níelssyni varaþingmanni frá Eg-
ilsstöðum.
Opnir fundir:
Borgarfjörður-föstudagur 3. febrúar klukkan 20:30 í Fjarðarborg.
Höfn í Hornafirði - mánudagur 6. febrúar klukkan 20:30 í Hótel Höfn.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Jafnaðarmenn á Austurlandi.
Að stofna hreyfingu
Flokkakerfið er úrelt bæði hvað
varðar stefnu og vinnubrögð.
Flokksvélar sem berja niður alla
andstöðu, alla fijálsa hugsun og allt
frumkvæði frá fólkinu í flokknum
em úreltar. Kannski má taka undir
orð Stmonar Peres að stjómmála-
menn séu úreltir. Þetta lýsir sér í van-
trausti á stjómmálamönnum og
flokkum. Fólkið finnur að flokksvél-
amar vinna ekki ■hhmmbh
fyrir það, heldur
sjálfar sig og því
starfa fáir í flokk-
um utan þeir sem
vilja komast inn í
vélamar og njóta
góðs af því.
Þetta er helsta
ástæðan fyrir
sundmngu svo-
nefndra félagshyggjumanna og um
leið meginorsök stærstu vandamál-
anna. Stjórnun og stefnumótun í
samfélaginu er að mestu orðin rú-
tínuvinna æfðra manna. Þegar Jó-
hanna Sigurðardóttir gerði uppreisn
og gekk út úr ríkisstjóm og Alþýðu-
flokki, fylltist fólkið bjartsýni og
taldi að ný leið væri að opnast fyrir
það til að hafa áhrif. Kannanir sýndu
25% til 30% stuðning við Jóhönnu
og pólitíska hreyfingu undir hennar
Pallborðið
■áMMlik Jón frá
rwsnp Pálmholti
skrifar
wXæii
forystu. Þetta var skýr vísbending
um vilja fólksins, trú þess á Jóhönnu
og álit þess á stjómmálaflokkunum.
Þegar stofnun hreyfingar loks var
ákveðin og skrifstofa opnuð, kom
margt áhugasamt fólk til þátttöku.
Þetta fólk varð fljótt fyrir vonbrigð-
um. Upp var kominn þröngur hópur
fólks að mestu úr öðmm flokkum og
hafði sjálfur tekið sér öll völd í
wmmmmmmm—mmm hreyfingu scm
ekki var búið að
stofna, og flutt
með sér þau
vinnubrögð sem
hann kunni. Ört
fækkaði í málefna-
hópnum, því fólk-
ið gafst upp. Und-
irritaður ákvað þó
að bíða landsfund-
ar og reyna til þrautar að ná sam-
stöðu. Það tókst ekki. Starfið á lands-
fundinum minnti um of á fréttir af
fundum í Alþýðubandalaginu. Það er
eðlilegt að á fyrsta landsfund nýrrar
hreyfingar komi fólk með hugmynd-
ir sínar og viðhorf og þá er fundarins
að ræða málin og ná samstöðu um
meginstefhu. Þetta var ekki gert á
íýrsta landsfundi Þjóðvaka og því
breyttist vakan í svefn. Einstreng-
ingslegur valdahópur barði niður
„Það er eðlilegt að á fyrsta landsfund nýrrar hreyfingar komi fólk með
hugmyndir sínar og viðhorf og þá er fundarins að ræða málin og ná sam-
stöðu um meginstefnu. Þetta var ekki gert á fyrsta landsfundi Þjóðvaka
og því breyttist vakan í svefn. Einstrengingslegur valdahópur barði niður
umræður og afgreiðslu. Til dæmis vildu þeir vísa öllum tillögum til stjórn-
ar og ráða svo sjálfir hverjir sitja í þeirri stjórn. Þannig stofna menn ekki
nýja hreyfingu. Hreyfingu fólksins verður ekki stjórnað ofan frá."
umræður og afgreiðslu. Til dæmis Flreyfingu fólksins verður ekki
vildu þeir vísa öllum tillögum til stjómað ofan frá.
stjómar og ráða svo sjálfir hvetjir _____________________________________
sitja í þeirri stjóm. Þannig stofna Höfundur er skáld og formaður
menn ekki nýja hreyfingu. Leigjendasamtakanna
Minning t
Grétar Ingimundarson
Fregnin um andlát Grétars Ingi-
mundarsonar kom ekki á óvart.
Flann hafði átt við vanheilsu að
stríða um skeið.
Engu að síður koma slíkar fregnir
manni alltaf með nokkmm hætti að
óvömm, enda þótt Ijóst sé að til
þeirra loka dragi sem öllum er búin.
Grétar Ingimundarson var borinn
og barnfæddur Borgnesingur, einn
þeirra sex ötulu sona sem hjónin,
Ingimundur Einarsson og Margrét
Guðmundsdóttir, lögðu Borgamesi
til og átt hafa sinn dtjúga þátt í upp-
byggingu blómlegs bæjarlífs.
Þegar sá sem þetta ritar fór að eiga
erindi í Borgames vegna framboðs-
máia Alþýðuflokksins I Vestur-
landskjördæmi á ámnum 1977 til
1978, hófust kynni okkar Grétars.
Marga stund ræddum við saman á
vistlegu heimili hans og Ingigerðar
Jónsdóttur konu hans, sem vom
samhent í stuðningi sfnum við rétt-
lætishugsjónir jafnaðarstefnunnar.
Það átti Grétar reyndar ekki langt að
sækja, því faðir hans var einn af
stofnendum fýrsta verkalýðsfélags-
ins í Borgamesi og þar í framvarða-
sveit um langt skeið.
Það er ekki ofsagt að Grétar Ingi-
mundarson hafi verið jafnaðarmaður
af lífi og sál, því það var hann sann-
arlega. Hann var vakinn og sofinn
yfir velferð Alþýðuflokksins og tók
nærri sér þegar honum fannst ómak-
lega að flokknum og forystu hans
vegið. Þegar kosningar vom annars
vegar dró hann hvergi af sér og var
þá vissulega betri en enginn. I að-
draganda einna kosninga höfðum
við Gunnar Már Kristófersson, sem
þá skipaði annað sæti framboðslist-
ans í kjördæminu, bækistöð á jarð-
hæðinni hjá þeim Ingu að Böðvars-
götu 1. Þar var ekkert talið eftir. „-
Minnstu ekki á það, elskan mín,“
sagði hann ef við vomm eitthvað að
malda í móinn að of mikið væri íýrir
okkur haft, „elskan mín“, var gjam-
an orðtak hans við þá sem honum
stóð ekki alveg á sama um.
Síðastliðið sumar heimsótti ég
Grétar í Borgames. Þá tókum við
töm á landsmálunum, en áhuginn og
eldmóðurinn var allur á sínum stað
þótt lfkamlega getan til pólitískra
starfa væri ekki sem áður.
Grétar Ingimundarson lagði
gjörva hönd á margt um ævina og
lauk miklu dagsverki, þótt hann væri
héðan kvaddur á sextugasta og fýrsta
aldursári og ætti enn mörgu ólokið.
Þegar leiðir okkar lágu saman var
hann yfirmaður bifreiðaverkstæðis
Kaupfélags Borgfirðinga. Síðar
stýrði hann verkfræði Ræktunarsam-
bandsins og loks stóð hann fyrir því
nýmæli sem var saltfiskverkun í
Borgamesi.
Þótt síðastnefnda fyrirtækið gengi
að lokum ekki eins og til var ætlast
var þar ekki um að kenna atorku-
skorti stjómandans heldur komu þar
aðrir hlutir til. Grétar var víkingur til
verka sem lét sér enga erfiðleika
vaxa í augum. Sem yfirmaður var
hann stoð og stytta sinna manna og
óþreytandi að leita leiða til að greiða
götu þeirra sem lent höfðu í erfið-
leikum eða áttu í útistöðum við kerf-
ið. Þeir em margir sem eiga honum
þakkarskuld að gjalda.
I Borgamesi sakna ég nú vinar í
stað. Þar verður tómlegra um að fara
en áður var. Að leiðarlokum lifir
minningin um góðan dreng, sem
ekki aðeins studdi hugsjónir jafnað-
arstefnunnar, heldur líka lifði eftir
þeim, sem er öllum sjaldgæfara.
Við Eygló sendur Ingu og bömum
þeirra þremur og þeirra fjölskyldum
innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Grétars Ingi-
mundarsonar.
Eiður Guðnason.
Mannlífsmolar
Fólki gefinn kostur á að
bora í tennur
Opið hús tannlæknadeildar Há-
skóla Islands verður í Læknagarði
við Vatnsmýrarveg á sunnudaginn
frá klukkan 13:30 til 17:00. Allir eru
velkomnir og gestir fá að kynnast
starfsemi og tækjakosti deildarinnar
og kynnast námsbraut aðstoðarfólks
tannlækna. Einnig er boðið uppá
ókeypis tannskoðun og ókeypis ráð-
gjöf um tannheilsu. Gestir fá enn-
fremur að kynnast íslenskum rann-
sóknum í tannlækningum og síðast
en ekki sfst: Fólk fær að borá í tenn-
ur!
Harri Lidsle, einleikari á tónleikum
Sinfóníunnar.
Tónleikar Sinfóníunnar
fyrir ungt fólk
Sinfóníuhljómsveit fslands heldur
árlega tónleika sína fyrir ungt fólk á
morgun, laugardag, Idukkan 20:00, í
Háskólabíói. Til leiks með hljóm-
sveitinni hefur verið fenginn finnski
túbuleikarinn Harri Lidsle. Hann
mun leika einleik í verkunum
Göngulag fílsungans eftir Henry
Mancini og Czardas eftir Monti.
Lidsle hóf að læra á básúnu níu ára
gamall níu ára gamall, en sneri sér að
túbunni 13 ára gamall. Hann hefur
komið víða fram sem einleikari. Auk
áðumefndra verka em á efnisskrá
tónleikanna þáttur úr 5. sinfóníu Be-
ethovens, tónlist úr kvikmyndum
einsog Júrqgarðinum eftir John
Williams, Bleika Pardusnum og
James Bond eftir Henry Mancini.
Hljómsveitarstjóri er Osmo Vánskii,
en kynnir er hinn þekkti Sykurmoli,
Smekkleysumaður, umböðsmaður,
reddari og alt-muligt-mand, sjálfur
Einar Örn Benediktsson.
Nemendur Heiðars
Ástvaldssonar selja plötur
, Nemendur í Dansskóla Heiðars
Astvaldssonar munu á næstunni
selja í Kolaportinu mikið plötusafn
sem Heiðar hefur gefið til styrktar
Blackpool-fórum skólans. í safni
þessu - sem telur mörg hundruð
plötur - eru meðal annars margar
ónotaðar plötur á borð 20 stykki af
salsa-plötum sem Heiðar keypti í
New York og nokkrar Victor Syl-
vester-plötur. í safninu em að sjálf-
sögðu plötur með öllum helstu dans-
hljómsveitum síðari ára; Joe Loss,
Edmundo Ross, Hugo Strauss,
Bela Sanders og fleiri. Allar helstu
diskó- plötumar em í safninu og
einnig allar plötur Bítlanna.
Blackpool-farar Heiðars Ástvalds-
sonar með plóturnar.
Brautskráning kandídata
við Háskóla Islands
Brautskráning kandídata við Há-
skóla íslands fer fram í Háskólabíói
á morgun, laugardag, klukkan 14:00.
Að lokinni setningu syngja Marta
Guðrún Felixdóttir og Felix
Bergsson lög úr West Side Story eft-
ir Leonard Bernstein. Því næst
ávarpar Sveinbjörn Björnsson há-
skólarektor kandídata og ræðir mál-
efni Háskólans. Aðalefni ræðunnar
að þessu sinni verður skýrsla þróun-
amefndar og stefna í upplýsingamál-
um. Eftir að deildarforsetar hafa síð-
an afhent prófskírteini syngur Há-
skólakórinn undir stjóm Hákons
Leifssonar. Að því loknu verður há-
tíð slitið.
„Ný aðföng II" í Listasafni
opnar á morgun
Listasafn íslands opnar á morgun,
laugardag, sýninguna Ný aðföng II.
Þetta er í annað sinn sem formleg
opnun og kynning er á hluta þeirra
verka sem keypt eða gefin hafa verið
til Listasafnsins frá því það flutti á
Fríkirkjuveg 7 árið 1988. Eftirtaldir
listamenn eiga verk á sýningunni:
Björg Þorsteinsdóttir, Bragi As-
geirsson, Brynja Baldursdóttir,
Daði Guðbjörnsson, Eggert Pét-
ursson, Einar Garibaldi Eiríksson,
Erla Þórarinsdóttir, Georg Guðni
Hauksson, Guðjón Ketilsson,
Guðmundur Benediktsson, Guð-
rún Kristjánsdóttir, Halldór Ás-
geirsson, Helga Magnúsdóttir,
Húbert Nói, Jóhannes Jóhannes-
son, Jón Axel Björnsson, Kristján
Davíðsson, Magdalena Margrét
Kjartansdóttir, Magnús Kjartans-
son, Margrét Magnúsdóttir, Páll
Guðmundsson, Ráðhildur Inga-
dóttir, Sigrid Valtingojer, Sigurð-
ur Árni Sigurðsson, Sigurður Ör-
lygsson, Svava Björnsdóttir, Þor-
gerður Sigurðardóttir, Þorbjörg
Pálsdóttir, Þórður Hall og Jón
Óskar. Sýningin er ópin daglega
klukkan 12:00 til 18:00. Henni lýkur
19. mars.
Skjaldarglíma Ármanns
í Kennaraháskólanum
Áttugasta og þriðja Skjaldarglíma
Ármanns verður glímd í Iþróttahúsi
Kennaraháskólans við Háteigsveg á
morgun og byrjar leikurinn klukkan
19. Að þessu sinni eru skráðir átta
keppendur úr tveimur félögum,
Glímufélaginu Ármanni og KR.
Drengjaglíma Ármanns verður
einnig glímd á morgun í tengslum
við Skjaldarglímuna. Þátttakendur
em fimm Ármenningar á aldrinum
11 til 13 ára. Aðgangur er ókeypis á
bæði mótin.