Alþýðublaðið - 09.02.1995, Blaðsíða 1
Baráttan um 2. sæti á lista Alþýðubandalagsins á Reykjanesi
Minnihluti í Kópavogi gegn mér
- segir Sigríður Jóhannesdóttir varaþingmaður. Valþór Hlöðversson segir Sigríði ekki njóta trausts
*
Kópavogsbúa og vill Kristínu A. Guðmundsdóttir, formann Sjúkraliðafélagsins í 2. sæti.
„Ég geri fastlega ráð fyrir að skipa
áfram 2. sæti framboðslistans og hef
enga ástæðu til að ætla annað. Það er
hins vegar hluti félagsmanna í Kópa-
vogi sem er mér andsnúinn. Þetta á
ekki við um félagsmenn almennt.
Mér er sagt að þetta sé einkum fólk
sem er ráðandi í stjóm félagsins og
geti því látið á sér bera. En ég tel niig
hafa breiðan stuðning í kjördæminu
og óttast ekki niðurstöðu fundar
kjördæmisráðs," sagði Sigríður Jó-
hannesdóttir, varaþingmaður Al-
þýðubandalagsins í Reykjaneskjör-
dæmi, í samtali við Alþýðublaðiö.
Búist er við hörðum átökum á
fundi kjördæmisráðs Alþýðubanda-
lagsins á Reykjanesi í kvöld þar sem
tekist verður á um 2. sæti á fram-
boðslista flokksins. Sigríður Jóhann-
esdóttir í Kcllavi'k og varaþingmaður
hlaut flestar tilnefningar í þetta sæti i
forvali sem fram fór. En innan Al-
þýðubandalagsfélagsins í Kópavogi
er andstaða gegn Sigríði og þar vilja
menn tefla fram Kristínu A. Guð-
mundsdóttur í 2. sætið. Valþór
Hlöðversson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Kópavogi, neitar því
að það sé minnihluti félagsmanna
Meirihluti allsherjarnefndar um málefni
umhverfisráðherra
Engin ástæða
til rannsóknar
Meirihluti allsherjarnefndar Al-
þingis telur enga ástæðu til skip-
unar rannsóknarnefndar vegna
embættisfærslu Össurar Skarp-
héðinssonar umhverfisráðherra
við flutning á embætti veiðistjóra
til Akureyrar.
A fundi allsherjarnefndar í gær
var fjallað um tillögu Hjörleifs
Guttormssonar um skipun rann-
sóknarnefndar til að kanna emb-
ættisfærslu umhverfisráðherra
gagnvart starfsmönnum veiði-
stjóra í tengslum við ákvörðun
hans um flutning embættisins.
Meirihluti allsherjarnefndar telur
hvorki ástæðu til skipunar þeirrar
rannsóknarnefndar sem tillagan
gerir ráð fyrir né þeirrar rannsókn-
ar á embættisfærslu unthverfis-
ráðherra sem þar er mælt fyrir um
og leggur til að tillagan verði
felld.
Undir álit meirihlutans skrifa
Guðmundur Árni Stefánsson,
Björn Bjarnason, Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, Tómas Ingi Olrich
og Ingi Björn Albertsson.
Framsóknarmenn á Vestfjörðum
Meiri líkur
á sériista
- segir Pétur Bjarnason varaþingmaður.
Gunnlaugur M. Sigmundsson segir menn
mega bjóða fram út allar koppagrundir.
„Það em meiri líkur en minni á að
boðinn verði fram sérlisti. Miklar
umræður eru í gangi um ntálið og
ljóst að áhugi margra beinist að sér-
framboði. Málið er á góðri siglingu
og endanleg ákvörðun liggur fyrir á
næstunni," sagði Pétur Bjarnuson
varaþingmaður Framsóknarflokks-
ins á Vestfjörðum í samtali við
Alþýðublaðið.
Pétur sagði að ýmsir kæmu til
greina á framboðslistann en hann
vildi ekki gefa upp nein nöfn að
sinni. Hins vegar legðu margir fast
að sér að fara í framboð og málin
ættu að skýrast á næstu dögum.
Meðal stuðningsmanna Pétur
Bjamasonar á Vesttjörðum em
Guðni Ásmundsson sem átti sæti í
stjórn Framsóknarfélagsins á Isafirði
en hefur sagt sig úr flokknum. For-
tnaður félagsins, Inga Ósk Jónas-
dóttir, hefur lýst yfir stuðningi við
Pétur. Þá hefur Hannes Friðriks-
son kaupmaður á Bíldudal lýst yftr
stuðningi við framboð Péturs.
„Ég held að það haft verið átta
framsóknarmenn sent skrifuðu á
lista til'stuðnings Pétri. Þessi kaup-
maður á Bíldudal sem hefur verið
nefndur er yfirlýstur sjálfstæðismað-
ur.
Þettá er frjálst land og hvort menn
úr ýmsum flokkum slá sér saman unt
einhvem lista kemur mér ekki nokk-
urn skapaðan hlut við,“ sagði Gunn-
laugur M. Sigmundsson sem skipar
efsta sæti á lista Framsóknarflokks-
ins á Vestfjörðum. Gunnlaugur bar
sigurorð af Pétri í prófkjöri um 1.
sætið.
Gunnlaugur sagðist alls ekki hafa
orðið var við neinn flótta frá Fram-
sóknarflokknum á Vestfjörðum.
Hvað varðaði stuðningsmenn Péturs
kæmu alltaf upp sömu nöfnin og það
þyrfti að fara á sjást eitthvað af nýju
blóði ef þetta sérframboð ætti að eiga
einhverja möguleika.
„Hvort sem menn vilja bjóða fram
kristinn lista eða ókristinn lista eða
hvað þeir vilja gera út um allar
koppagrundir er ekki mitt mál. Þetta
fólk ætlar ekki að bjóða fram í nafni
Framsóknar og þar nteð er þetta ekki
frekar mitt mál en Einars Kristins
Guðfinnssonar eða annarra,“ sagði
Gunnlaugur M. Signtundsson.
sem vilji Sigríði burt úr 2. sæti. „Af-
staða Kópavogsbúa í þessu máli hef-
ur byggst á samtölum við fjölda
fólks og þá vil ég biðja menn að hafa
í huga að við erum að tala um svæði
þar sem fylgi Alþýðubandalagsins í
kjördæminu er hvað traustast. Okkur
finnst skipta máli að framboðslistinn
njóti trausts og stuðnings Kópavogs-
búa. Ég efast um að svo sé með þess-
ari uppstillingu. Það hefur verið leit-
að til ýmissa Kópavogsbúa um að
taka sæti á listanum á eftir Sigríði en
menn hafa ekki séð sér það fært.
Ekki treyst sér tii að vinna með þess-
um hætti. Ymsir hafa nefnt nafn
Kristínar Á. Guðmundsdóttur í 2.
sætið og ég held að mönnum lítist al-
mennt vel á það. Hins vegar óska ég
framboðslistanum alls hins besta og
vona að menn nái að vinna upp gegn
þessari óánægju á næstu tveimur
mánuðum," sagði Valþór í samtali
við blaðið.
Meðal þess sem Sigríður Jóhann-
esdóttir hefur verið gagnrýnd fyrir er
að hún hafi lítt sinnt flokksstarfi og
sé sjaldséður gestur á fundum Al-
þýðubandalagsfélaga. Sigríður taldi
þetta alrangt. „Ég er formaður fram-
kvæmdastjórnar flokksins og veit
ekki betur en ég hafi verið á öllum
fundum í framkvæmdastjóm, mið-
stjórn og öllum fundum í kjördæmis-
ráði. Ég var á 63 fundum í Alþýðu-
bandalaginu í Keflavík, Njarðvík og
Höfnum á síðasta ári. Hins vegar er
ég bara varaþingmaður og mæti því
ekki á félagsfundi f Kópavogi nema
mér sé boðið. En mér hefur ekki ver-
ið boðið þangað. Hins vegar hef ég
þegið boð félagsins í Hafnarfirði,"
sagði Sigríður.
Hefur komið fram krafa um að
þú víkir sæti fyrir Kristínu Á.
Guðmundsdóttur?
„Ekki nema frá henni sjálfri. Það
er búið að samþykkja í uppstillinga-
nefnd að ég verði í öðru sæti og list-
inn verður borinn þannig fram. Ef
Kristín vill hins vegar fara í kosn-
ingu á fundi kjördæmisráðs þá gerir
hún það bara. Hún hefur þá eflaust
einhverja til að stinga upp á sér. En
mér finnst þetta svolítið sérkennileg
staða og nokkur dirfska af Kristínu,"
sagði Sigríður. Hún vildi ekki ræða
viðbrögð sín við því að tapa fyrir
Kristínu á fundinum í kvöld, ef til
þess kæmi.
Þjóðvaki á Norðurlandi eystra
Listinn ekki tilbúinn
„Það er ekki búið að sam-
þykkja neinn lista hér en ég geri
ráð fyrir að hann verði tilbúinn
fljótlega. Það fór fram tilnefning-
arumferð hér hjá Þjóðvaka en
ekki hefur verið raðað í nein
sæti,“ sagði Svanfríður Jónas-
dóttir á Dalvík, varaformaður
Þjóðvaka í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Svanfríður var
spurð álits á þeim ummælum út-
göngumanna af landsfundi Þjóð-
vaka að þar hefðu verið stunduð
ólýðræðisleg vinnubrögð. Hún
tók ekki undir þá skoðun.
„Þarna voru ekki stunduð
ólýðræðisleg vinnubrögð og þá er
ég bara að bera saman stjórn-
málastörf sem ég þekki af fyrri
reynslu.
Ég veit ekki hvaða viömiðun
þeir hafa sem tala svona," sagði
Svanfríður.
Hún var sem kunnugt er í Al-
þýðubandalaginu áður og starf-
aði þar meðal annars sem vara-
formaður uni skeið.
Lennon á Islandi! 18. janúar opnar á Kjarvalsstöðum sýning á verkum eftir friðarsinnann,
blómabarnið, skáldið, Bítilinn og myndlistarmanninn John Lennon. Tónskáldið frá Liverpool hafði semsagt
margt til brunns að bera, og þótti meira en liðtækur í myndlistinni. í gær voru Anna Margrét Bjarnadóttir og
Gústav Óskarsson í óða önn að undirbúa sýninguna sem áreiðanlega á eftir að vekja mikla athygli.
Alþvðublaðið í dag
Svavar Gestsson
er pólitískur
flóttamaður
Leiðari 2
Þjóðaríþróttin,
handboltinn,
er í kreppu
Silfur Egils 2
Flokkur sem þorir
meðan aðrir
tvístíga
Pallborð 3
Sævar Ciesielski
ætlar að sanna
sakleysi sitt
Viðtal 4 og 5
Litli lávarðurinn,
George Orson
Welles
Umfjöllun 6 og 7
Utanríkisráðherra
Svíþjóðar um
Evrópusambandið
Viðtal 7