Alþýðublaðið - 09.02.1995, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
MMUBLMIID
20868. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Flótti Svavars
í sjónvarpsþættinum „í nafni sósíalisrnans“ voru í fyrsta sinn
dregin fram í dagsljósið skjöl um tengsl íslenskra sósíalista og
Stasi, hinnar illræmdu leyniþjónustu Austur- Þýskalands. Með-
al annars voru færðar sönnur á, að Guðmundur Agústsson var
njósnari Stasi á námsárum sínum í Berlín. Síðar var Guðmund-
ur um langt skeið áhrifamikill bakvið tjöldin í Alþýðubandalag-
inu. I þættinum var ennfremur birt efni úr skjölum sem vörðuðu
aðra íslendinga, meðal annars Hjörleif Guttormsson. Mesta at-
hygli vekur hinsvegar sú staðreynd að skjölum um Svavar
Gestsson var eytt 25. júní 1989. Útskýringar Svavars vekja
miklu fleiri og áleitnari spumingar en þær svara.
Það er grátbroslegt þegar Svavar Gestsson lýsir yfir því að
hann hafi að lokum „flúið“ frá Austur-Þýskalandi kommúnism-
ans. Þór Whitehead sagnfræðingur segir þannig í samtali við
Alþýðublaðið í gær: „Þegar maður uppgötvar að Svavar Gests-
son hefur verið pólitískur flóttamaður á íslandi í öll þessi ár þá
sýnist manni að ýmislegt sé ósagt.“ Þetta eru orð að sönnu. Al-
þýðubandalagið, sem Svavar stýrði í átta ár, hefur aldrei gert
upp við fortíð sína. Áhrifamiklir foringjar Alþýðubandalagsins
og forvera þess vom í nánum tengslum við einræðisríki komm-
únismans í Austur-Evrópu í marga áratugi. Svavar Gestsson var
krónprins gömlu kommanna í Sósíalistaflokknum og Alþýðu-
bandalaginu sem alla tíð vom reknir áfram af blindri hollustu í
garð þeirra glæpamanna sem héldu þjóðum Austur-Evrópu í
helgreipum. Svavar Gestsson er „hugmyndafræðilegur erfingi
Einars 01geirssonar“, svo notuð séu orð Þórs Whitehead.
Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur segir í Alþýðublaðinu í
gær að tengsl íslenskra sósíalista við kommúnistaflokka Aust-
ur-Evrópu verði seint rifjuð öll upp. Hann segir ennfremur:
„Þagnarbandalagið um þessa menn er sterkt því að það nær inn
í borgaraflokkana á íslandi. Þeir halda yfír þeim hlífískildi.“
Það er mál til komið að rjúfa þagnarbandalagið. íslenskir með-
reiðarsveinar kommúnismans eiga að gera hreint fyrir sínum
dymm. Formaður Alþýðubandalagsins heldur því fram að
flokkur sinn sé jafnaðarmannaflokkur. Það er mikil fírra, að
minnsta kosti meðan flokkur hans losar sig ekki við líkin í lest-
inni.
Svavar Gestsson er oddviti Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
Hann hefur aldrei afneitað sósíalismanum; heldur jafnan staðið
dyggan vörð um hina sögulegu arfleifð sem honum var fólgin.
Hann hefur aldrei fengist til að fordæma hin miklu og nánu
tengsl sem vom milli íslenskra sósíalistaforingja og einræðis-
ríkjanna í austri. Þvert á móti: Svavar Gestsson hefur jafnan
bmgðist ókvæða við ef einhver hefur krafíst umræðu innan
flokksins um þessi mál. Svavar Gestsson er ómarktækur stjóm-
málamaður; fulltrúi þeirra stjómmálakenninga sem búið er að
aka á öskuhauga sögunnar. Saga hans um „flóttann“ frá Austur-
Þýskalandi er ekkert annað en ósvífin lygaþvæla - og gróf
móðgun við þá ótöldu sem létu lífíð þegar þeir reyndu að flýja
ógnarstjóm kommúnismans.
í öðmm skilningi er hinsvegar rétt að kalla Svavar Gestsson
pólitískan flóttamann: Enginn íslenskur stjómmálamaður er á
eins hröðum flótta undan fortíð sinni.
Þjóðaríþrótt í kreppu
I grein sem birtist í DV stuttu fyrir
helgina stóð að nteðan heimsmeist-
arakeppninni í handbolta stendur í
vor hafi um átta þúsund gistinætur
verið pantaðar á íslenskum hótelum.
Það geri um tvö þúsund hótelgesti.
Svo er reyndar sleginn vamagli. Þess
er getið að í þessari tölu beri þó „að
hafa í huga að ekki em allir að koma
hingað samhliða keppninni".
Eg er lengi búinn að spá því, ég
held alveg síðan 1986, að ekki nokk-
ur maður hafi áhuga á að koma til ís-
lands og horfa á heimsmeistaramól í
handbolta. Gæli ekki hugsast að ekki
einn einasti af ferðamönnunum sem
hefur bókað hótelherbergi í Reykja-
vík ætli að horfa á handbolta. Að þeir
ætli allir að fara á Gullfoss og Geysi
og Mývatn og að þeir hafi kannski
aldrei heyrt minnst á íþróttina hand-
bolta.
Silfur Egils
Fyrir mörgum ámm kom ég til Es-
sen, mikillar iðnaðarborgar í
Ruhr-héraði í Þýskalandi. Þangað
var mér boðið ásamt hópi blaða-
manna frá ýmsum þjóðum; við
heimsóttum smáhöll Kmpp-fjöl-
skyldunnar, þar hafði Adolf Hitler
verið kær gestur; það var farið með
okkur niður í djúpa námu og á fallegt
minjasafn um iðnbyltinguna; um
kvöldið var okkur boðið í einhvers
konar æskulýðsmiðstöð.
Eg sat með hópi ungra borgarbúa,
kannski var ég á þriðja glasi og ég
sagði eitthvað á þessa leið: „Hann
Alfreð er nú ansi góður!“ Essenbúar
horfðu á mig í fomndran, þeir komu
af fjöllum, þeir höfðu aldrei heyrt
minnst á neinn Alfreð - að minnsta
kosti ekki Alfreð Gísiason sem ég
vissi að var nýorðinn meistari alls
Þýskalands í handbolta með kappliði
Essenborgar. Þetta var afar kurteist
fólk, þetta var nánast opinber heim-
sókn og það horfði á mig með skiln-
ingsríku augnaráði þess sem sér góð-
an gest verða sér til skammar; ég var
ekki til í að gefast upp en það var
sama hvað ég reyndi - enginn vissi
hver Alfreð var, enginn hafði hug-
mynd um að lið borgarinnar væri
Þýskalandsmeistari í handbolta og
raunar hafði varla neinn heyrt minnst
á þessa dularfullu íþrótt heldur. Og
var þó bæjarfélagið þeirra frekar
smátt og hafði kannski ekki af mik-
illi íþróttafrægð að státa.
Hins vegar hef ég sjaldan hitt
Þjóðverja sem ekki þekkir Sigur-
vinsson.
s
Islendingar hafa á seinni ámm
eignast fjóra óvini sem þeim þykja
vemlega vandaðir. Því eins og Oscar
Wilde sagði skiptir litlu máli hverjir
vinir manns em, en maður á að
vanda valið á óvinum sínum. Ekki
„Þess vegna fannst Lanc líklega illt að horfa upp á þegar íslend-
ingar urðu sér úti um stuðning þriðja heims þjóða í Afríku og
Asíu og notuðu hann til að fá að halda keppnina í vor...Erwin
Lanc og hans menn höfðu hins vegar talið skynsamlegast að
heimsmeistarakeppnin yrði til dæmis haldin á Spáni, í Þýska-
landi eða Frakklandi; semsagt meðal stórþjóðar þar sem væri
tryggt að hún týndist ekki alveg og þar með íþróttin sjálf.“
einu sinni Jan Henri T. Olsen, sjávar-
útvegsráðherra Noregs, hefur náð
þessari stöðu. Hann vekur ekki upp
nógu heitar tilfinningar. Öðm gegnir
um Paul Watson sem storkaði þjóð-
inni í hvalamálinu og Florencio
Campomanes sem notaði bolabrögð
til að koma Friðriki Ólafssyni úr for-
mannsstóli hjá Fide; en heitastar til-
finningar hafa þó vakið tveir menn
sem báðir em frömuðir í handbolta-
hreyfingu heimsins.
Við höfum skömm á Svíanum
Kurt Wadmark fyrir að hafa dæmt
Víking úr Evrópukeppni fyrir þær
ómerkilegu sakir að hafa stolið jóla-
tré og brotið rúðu.
Og Erwin Lanc, formaður Al-
þjóðahandboltasambandsins, er út-
hrópaður hér sem versta fól. Hann er
tortryggður fyrir að hafa alla tíð
setið um að taka heimsmeistaramót-
ið í handbolta af Islendingum.
Og náttúrlega af annarlegum hvöt-
um.
Nú viil svo til að ég kannast dálft-
ið við Lanc þennan. Eg hef meira að
segja verið látinn taka í höndina á
honum einhverju sinni þegar ég kom
til Austurríkis og var að skrifa grein
um Waldheim-málið. Lanc var ein-
hverju sinni dómsmálaráðherra og
góður samstarfsmaður kratahöfð-
ingjans Bruno Kreisky; allt sem ég
hef frétt um hann bendir til þess að
hann sé hinn mætasti jafnaðarmaður.
Af einhverjum ástæðum lenti ég
óvart á póstlista hjá austurrískum
samtökum sem leggja flóttafólki og
þeldökkum innflytjendum lið. I
fréttabréfi samtakanna sem mér
berst annað veifið má oft lesa nafn
Erwin Lanc og er hans þá getið að
góðu einu. Þetta er semsé þarfasti
karl.
En Lanc hefur semsé áhuga á
þessari einkennilegu íþrótt,
handbolta. Hann vill líklega veg
hennar sem mestan, þrátt fyrir að
hún eigi erfitt uppdráttar og afar fáir
hafi áhuga. Eg get ímyndað mér að
þetta sé vanþakklátt hlutverk og hálf
vonlaust. Enda hefur Lanc ekki haft
erindi sem erfiði. íþróttin er óvin-
sælli en fyrr, ef eitthvað er; enginn
verður frægur eða vinsæll fyrir að
iðka hana (nema kannski á Islandi) -
tækifærin til að baða sig í kastbjörm-
um frægðarinnar eru fá og stopul.
Þess vegna fannst Lanc líklega illt
að horfa upp á þegar Islendingar
urðu sér úti um stuðning þriðja
heims þjóða í Afríku og Asíu og not-
uðu hann til að fá að halda keppnina
í vor.
Erwin Lanc og hans menn höfðu
hins vegar talið skynsamlegast að
heimsmeistarakeppnin yrði til dæm-
is haldin á Spáni, í Þýskalandi eða
Frakklandi; semsagt meðal stórþjóð-
ar þar sem væri tryggt að hún týndist
ekki alveg og þar með íþróttin sjálf.
Flest bendir til þess að afar lítið verði
sjónvarpað frá keppninni til útlanda
og þótt sjálfsagt verði íjallað vel og
vandlega um mótið í Mogganum
fæst hann ekki víðar í útlöndum en á
járnbrautarstöðinni í Kaupmanna-
höfn.
að er kannski til marks um sann-
færingarkraftinn sem Islendingar
leggja í þessa keppni - og kannski í
íþróttina sjálfa - að við skulum ætla
að halda hana í tuttugu og fimm ára
gömlu íþróttahúsi sem raunar var
aldrei neitt sérlega reisulegt. Er furða
þótt Erwin Lanc hafi ýmsar efa-
semdir þegar svona margt bendir til
þess að við trúum ekki á þetta fyrir-
tæki heldur; eða það hafa allavega
ekki síðustu ríkisstjómir gert, ekki
Alþingi, ekki borgarstjóm Reykja-
víkur, ekki nágrannabyggðarlögin -
og varla heldur handboltafrömuðirn-
ir sem maður fær varla séð að geti
orðið öllu mæðulegri.
Annars er mér raunar alveg sama.
Fyrir mína parta hefði mátt halda
keppnina í Kópavogi, á Raufarhöfn
eða kannski í heimahúsi í Grindavík.
Einhvem tíma spiluðu íslendingar
og Bandaríkjamenn landsleik í hand-
bolta í New York og hann fór fram í
íbúð í blokk. Það er með eftirminni-
legri leikjum.
Sjálfsagt er þetta þjóðaríþrótt, sem
þýðir að restin af þjóðinni stundar
hana. Við í Vesturbænum iðkum
nefnilega ekki handbolta að marki.
Við emm léleg í handbolta og vinn-
unt aldrei neitt. Við látum aðra um
það og emm stolt af því. Okkar þjóð-
aríþrótt er fótbolti, hann er okkar ær
og kýr, þólt við vinnum raunar ekki
sérlega oft. Við þurfum þess heldur
ekki; það er alveg nóg fyrir okkur að
vera KRingar. Innst inni finn ég enga
löngun til að KR verði íslandsmeist-
ari í handbolta og helst ekki í körfu-
bolta heldur. Mér finnst það næstum
ekki koma okkur við. Svoleiðis eig-
um við helst að láta eftir öðmm
íþróttafélögum sem ég man ekki
hvað heita í svipinn.
Dagatal 9. febrúar
Atburdir dagsins
1881 Rússneska stórskáldið og
nautnaseggurinn Dostojevskí deyr,
sextugur að aldri. 1958 Leikrit
Samuels Becketts, Endatafl, bannað
í Lundúnum vegna guðlasts. 1959
Togarinn Júlí frá Hafnarfirði fórst
við Nýfundnaland og honum 30
manna áhöfn. 1964 Bítlaæðið grípur
um sig í Bandaríkjunum: 73 milljón-
ir horfa á sjónvarpsþátt með piltun-
um frá Liverpool. 1984 Bankaræn-
ingi með lambhúshettu lætur greipar
sópa f Iðnaðarbankanum í Breið-
holti. Málið er óupplýst.
Afmælisbörn dagsins
Tryggvi Þórhallsson formaður
Framsóknarflokksins og forsætisráð-
herra, 1889. Carole King bandarísk-
ur lagahöfundur, 1941. Mia Farrow
bandarísk leikkona, fyrmm spúsa
WoodyAllen, 1945.
Annálsbrot dagsins
Útileguþjófur, Guðmundur Snorra-
son að nafni, var hengdur í Borgar-
firði. Kvefsótt gekk mikil um haust-
ið, dó í henni strjálfólk.
Ölfusvatnsannáll, 1757.
Ord dagsins
Ævin verður eins og snuð
eða svikin vara
þeim, sem ekki góður guð
gefur meðhjálpara.
Þuriður Ámadóttir í Garði.
Málsháttur dagsins
Aumur er sá sem enginn hnjóðar í.
Vígamadur dagsins
Hann lét það aldrei aftra sér, aldrei
draga úr einu sínu orði, þótt von væri
hinnar skæðustu örvadrífu. Ekki svo
að skilja, að hann fyndi ekkert til
skeytanna. Til þess var lundin of við-
kvæm. En samt hafði hann vafalaust
eins konar yndi af baráttunni. Hann
var „ömm glaður" eins og Artemis.
Einar H. Kvaran um Bjöm Jónsson ritstjóra
ísafoldar og annan ráðherra íslands.
Lokaord dagsins
Of margir vindlar í kvöld, býst ég
við.
Hinstu orð bandaríska blaðaútgefandans
Winfields Scotts (1786-1866).
Skák dagsins
Nú efnum við til sannkallaðrar flug-
eldasýningar með fómum á báða
bóga. Ermenkov hefur hvítt og á
leik gegn Sagalicik. Báðir em þeir
farsælir meistarar, ekki í fremstu röð
kannski en eiga sínar góðu stundir í
félagsskap snilldarinnar. Semsagt;
Hvað gerir hvftur?
1. Hf4!! Bg2+ 2. Kxg2 Rel+ Hvítur
virðist vera að missa tökin en það er
nú öðm nær. 3. Kfl Rxc2 4. Re5+!
Kh8 5. Rg6+! og svartur gafst upp.
Ef Dxg6 kemur Hxf8+ og hvítur
vinnur.