Alþýðublaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995
Petri Sakari:
Aöalgesta-
stjórnandi
Sinfóníunnar
stjórnar annað
kvöld.
Sjávarmyndir...
Sinfóníuhljómsveit Islands
heldur tónleika í Háskólabíói ann-
að kvöld klukkan 20:00 og á efn-
isskránni eru fjórar sjávarmyndir
úr óperunni Peter Grimes eftir
Ben jamin Britten, Sjávannyndir
eftir Edward Elgar og Sinfónía
númer 6, „Pathetic“ eftir Pjotr
Tsjækofskíj. Hljómsveitarstjóri
er Petri Sakari
(aðalgestastjórn-
andi Sinfóníunn-
ar) og einsöngvari
er Rannveig
Fríða Bragadótt-
ir. Hún fær nú
tækifæri til að
syngja eitt af sín-
um eftirlætisverk-
um, Sjávarmyndir
eftir Elgar. Þetta er
ljóðaflokkur sem
hann samdi fyrir kontraaltó og
hljómsveit við Ijóð fimm skálda á
árunum 1897 til 1899. Eitt ljóð-
anna er eftir eigin-
konu skáldsins, C.
Alice Elgar. Síð-
an Rannveig Fríða
lauk námi við
Tónlistarháskól-
ann í Vtn árið
1989 hefur hún
starfað við nokkur
af þekktari óperu-
húsum Evrópu,
meðal annars Vín-
aróperuna. Þar
hefur hún sungið undir stjóm jöfra
á borð við Herbert von Karajan,
Claudio Abbado og Sir George
Solti. Rannveig Fríða kemur nú
fram f fjórða skipti sem einsöngv-
ari með Sinfóníhljómsveitinni.
Verkið eftir Benjamin Britten sem
flutt verður á tónleikunum á þá
forsögu, að hann ákvað árið 1939
að flýja til Bandaríkjanna ffá Bret-
landi vegna yfirvofandi stríðs-
hættu og þess tómlætis sem Bretar
sýndu verkum hans. Vestan hafs
dvaldi hann í tvö ár og samdi þá
mörg af sínum bestu verkum. Pat-
hetic samdi Tsjækofskij árið 1893
og hinn þunglyndislegi tónn
verksins varð kveikjan að orðrómi
um að hann hefði hugsað það sem
sinn svanasöng og ætlaði að því
loknu að fremja sjálfsvíg...
Jass í hádeginu
A Háskólatónleikum í Norræna
húsinu í dag leikur Tríó Björns
Thoroddsen ásamt Agli Olafs-
syni. Tónleikamir taka hálfa
klukkustund og hefjast klukkan
12:30. Á dagskránni er„latin“jass
með sterkum íslenskum áhrif-
um...
Rannveig
Friða Braga-
dóttir, syngur
eftirlætisverk
sitt með
Sinfóníunni.
La Traviata í pínulitlu óperuhúsi
Verdi árið 1986. Málverk eftir Giovanni Boldini.
„...uppfærslur íslensku óperunnar verða
aldrei á heimsmælikvarða. Samt hafa
forráðamenn hennar í raun alla burði til
að geta sett upp óperusýningar sem gæfu
frægum óperuhúsum erlendis ekkert
eftir...Það er bara sjálft húsið sem er
ömurIegt...En flestir virtust samt hafa
skemmt sér konunglega, fagnaðarlætin
voru gífurleg.“
La Traviata - hin afvegaleidda
- ópera í þremur þáttum eftir Francesco
Maria Piave, byggð á leikriti
Alexander Dumas yngri.
Tónlist: Giuseppe Verdi.
Hljómsveitarstjóri: Robin Stepleton.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Aðalhiutverk: Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Ólafur Árni Bjarnason og
Bergþór Pálsson.
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson.
Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir.
Lýsing: Jóhann B. Pálmason.
Dansar: Nanna Ólafsdóttir.
Sýningarstjóri: Kristín S. Kristjánsdóttir.
Kórstjóri: Garðar Cortes.
Æfingastjórar: Iwona Jagla
og Sharon Richards.
Kór og Hljómsveit íslensku óperunnar.
Það er synd hve húsakynni ís-
lensku ópemnnar em slæm. Hljóm-
burðurinn er afleitur, því enduróm-
urinner nánast eng-
inn. í þokkabót er
sviðið allt of lítið,
sem gerir það að
verkum að íburðar-
miklar ópemr eins
og La Traviata eftir
Verdi fá ekki að
njóta sín sem
skyldi. Sömuleiðis
er hljómsveitar-
gryfjan á stærð við fataskáp og þar
rúmast allt of fáir hljóðfæraleikarar.
Tónlistarflutningurinn úr skápnum
er auðvitað ósköp rýr, og er afleið-
ingin sú að uppfærslur íslensku
ópemnnar verða aldrei á heimsmæli-
kvarða. Samt hafa forráðamenn
hennar í raun alla burði til að geta
sett upp óperusýningar sem gæfu
frægum ópemhúsum erlendis ekkert
eftir. Islendingar eiga nefnilega
marga frábæra söngvara, og hér er
líka Ijöldinn allur af prýðilegum
hljóðfæraleikumm. Það er bara sjálft
húsið sem er ömurlegt.
Síðastliðið föstudagskvöld var La
Traviata eftir Verdi fmmsýnd. Mið-
að við öll þrengslin var eiginlega
furðulegt hve vel tókst til. Söngvar-
amir stóðu sig með miklum ágætum
og má segja að þau Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Ólafur Árni Bjarnason
og Bergþór Pálsson hafi unnið leik-
sigur með þessari sýningu. Eða svo
maður bregði fyrir sig gömlu óþol-
andi kvikmyndagagnrýnenda-
klisjunni: Þau fóm á kostum! Að
vísu virtust þau dálítið taugaóstyrk
fyrst, en komust fljótt á flug, og hélt
þá ekkert aftur af þeim.
Sigrún Hjálmtýsdóttir var stór-
kostleg sem hin óhamingjusama Ví-
óletta, unga yfirstéttargleðikonan
sem deyr úr tæringu í lok ópemnnar.
Ólafur Ámi Bjamason var einnig
frábær í hlutverki Alfredos, sem
elskhugi Víólettu. Hann hefur mikla
og hljómfagra rödd og á vafalaust
eftir að ná langt á erlendri gmndu.
Sömuleiðis geislaði af Bergþóri
Pálssyni sem föður Alfredos, hann er
bæði hinn besti söngvari og ágætur
leikari, enda fyrir löngu búinn að
sanna sig fyrir landanum. Aðrir
söngvarar stóðu sig lfka prýðilega,
sem og kór íslensku ópemnnar, enda
undir stjórn hins eina sanna Garðars
Cortes.
Leikstjómin var í höndum Bríetar
Héðinsdóttur og hefur hún unnið
verk sitt vel. Sýningin var í jafnvægi;
söngvaramir léku sannfærandi án
þess að vera tilgerðarlegir, og vom
mörg atriðin áhrifarík og dramatísk
eins og við átti. Þó verð ég að gagn-
rýna eitt, en það var senan þar sem
Víóletta er ein á
sviðinu. Hún
syngur einsöng,
en af og til á rödd
Alfredos - Ólafs
Árna Bjamasonar
- að hljóma í
fjarska. í flestum
uppfærslum
stendur Alfredo
þá venjulega bak-
sviðs og syngur hann þaðan. En á
fmmsýningunni síðastliðið föstu-
dagskvöld var hann í anddyri ópem-
hússins, fyrir aftan áheyrendasalinn
og söng á bak við lokaðar dyr. Ein-
hvem veginn virkaði þetta hjákát-
lega; það var eins og flækingur af
götunni hefði allt í einu álpast inn um
fremri dyr hússins, og eftir að hafa
legið á hleri drykklanga stund tæki
sjálfur lagið, bara til að vera „með“.
Það gerði hann af öllum lífs- og sál-
arkröftum, enda nötraði allt og skalf
þó hann syngi bara að hurðabaki.
Robin Stepleton stjómaði hljóm-
sveitinni og gerði það ágætlega, enda
tónlistarflutningurinn yfirleitt mjög
góður. Að vfsu var fýrsti þáttur óper-
unnar dálítið daufur og bragðlaus, en
menn sóttu svo í sig veðrið eftir því
sem á leið.
Leikmyndin var í höndum Sigur-
jóns Jóhannssonar og var hún mjög
falleg. Siguijóni tókst að skapa rétta
andrúmsloftið, og er það ekkert smá-
ræðis afrek þegar sviðið er svona lít-
ið. Einnig vom búningamir smekk-
legir, en það var Hulda Kristín
Magnúsdóttir sem sá um þá. Dans-
amir voru líka glæsilegir undir stjóm
Nönnu Ólafsdóttur.
Ég get því ekki annað en mælt
með þessari sýningu. Þegar á heild-
ina er litið er hún góð, þrátt fyrir
óþægileg sæti sem fara ömgglega
ekki vel með bakveikt fólk. Og einn-
ig þrátt fyrir að það var alltof heitt í
salnum á frumsýningunni, sem gerði
það að verkum að margir áheyrenda
höfðu ekki við að þurrka af sér svit-
ann. En flestir virtust samt hafa
skemmt sér konunglega, fagnaðar-
lætin vom gífurleg, og stóð fólk sér-
staklega upp fyrir Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur. Þó á engan annan sé hallað
má segja að hún hafi verið stjama
kvöldsins. Það kemur svo sem ekki á
óvart, því hún er ein af okkar bestu
söngkonum.
Tónlist
Jónas
Sen
'íÁ- ** skrifar
ALÞYÐUFLOKKURINN
KJÖRDÆMISRÁÐ
ALÞÝÐUFLOKKSINS
í REYKJANESKJÖRDÆMI
Fundur í Gaflinum
Kjördæmisráö Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi
heldur fund í Gaflinum, Hafnarfirði, fimmtudaginn 16.
febrúar, klukkan 17:00.
Dacjskrá:
1. Akvörðun um uppstillingu á framboðslista
til alþingiskosninga.
2. Önnur mál.
Formaður.
§ALÞÝÐUFLOKKURINN
Á VESTFJÖRÐUM
Kosningamiðstöðin
Kosningamiðstöð Alþýðuflokksins á Vestfjörðum hefur
verið opnuð á 4. hæð Kratahallarinnar við Silfurtorg á
ísafirði. Fyrst um sinn verður hún opin allan daginn, alla
daga. Kosningastjóri er Gísli Hjartarson sem jafnframt
er ritstjóri Skutuls, málgagns jafnaðarmanna í kjördæm-
inu.
Sími skrifstofunnar er 94-5348 og myndsendir er
94-5346. Farsímanúmer kosningastjóra er 985-39748 og
heimasími hans er 94-3948.
Jafnaðarmenn á Vestfjörðum.
Sólstafir - norræna menningarhátíðin
*
Brúðuleikhúsið SYTKYTfrá Finnlandi býður uppá sýningu í 600 lítra vatnsleik-
húsi: Juha Laukkanen leikari og Arto Ollikainen tæknimaður voru við öllu bún-
ir í gærdag, skömmu fyrir sýningu i Möguleikhúsinu við Hlemm. A-mynd: E.ól.
Brúðuleikhúsið SYTKYT frá
Finnlandi verður með tvær sýningar,
Vatnsleik og Sögu úr Múmíndalnum,
fyrir böm á aldrinum 2 til 6 ára á Sól-
stöfúm - norrænu menningarhátíð-
inni sem hófst síðastliðinn laugardag.
Stofnandi SYTKYT er Juha Laukk-
anen sem hefur rekið það frá árinu
1985 og ferðast með sýningar sínar
um allan heim og nú Islands. Hann
var á síðasta ári tilnefndur sérstakur
sendifúlltrúi Bamahjálpar SÞ. Fyrstu
þrjár sýningar SYTKYT á Vatnsleik
vom í Reykjavík í gær og Múnn'nálf-
amir verða sýndir í borginni f dag. Á
fimmtudag og föstudag verður leik-
húsið með sýningar á Akureyri og á
laugardag og sunnudag á ísafirði.
Vatnsleikur er afar óvenjuleg sýn-
ing sem segir frá hinu leyndardóms-
fulla lífi á hafsbotni. Áhorfendur ere
boðnir velkomnir í haftjaldið. Fyrst
hlusta þeir á tónlist hafsins og spjalla
saman um sjávardýrin. Hávaði frá
fiskibát treflar samræðumar og í ljós-
unum frá bátnum sést allt í einu kista
sem liggur á hafsbotni. Juha rifjar upp
sögu sem amma hans sagði honum
um stóra kistu á hafsbotni. Svo vill
sjávarmóðirin segja söguna af íbúa
kistunnar og þá hefst sagan í 600 lítra
vatnsbúri SYTKYT brúðuleikhússins
þar sem vaknar líf af ljósum, tónlist
og vatnsleikbrúðum. Saga úr Múmín-
dalnum gerist þegar dalurinn er að
vakna af vetrardvala. Fyrsti vorfugl-
inn vekur Múmínmömmu. Það sem
íyrsta sem liggur fyrir er vorhrein-
geming og Múmínmamma þvær
þvottinn í ánni milli þess sem hún
reynir að vekja Múmfnpabba svo
hann geti hengt þvottinn á snúrena.
Innan skamms hefst mikill eltinga-
leikur sem bæði leikendur og áhorf-
endur taka þált í.
Allar upplýsingar um sýningamar
veita Möguleikhúsið í síma 562 2669,
Ingólfur Ármannsson í síma 96-
27245 og Geirþrúður Charlesdóttir
í síma 94-3733.
Fávitinn hjá MR
Kvikmyndin Fávitinn sem gerð
var í Moskvu eftir samnefndri
sögu Fjodor Dostojevskí var
sýnd í bíósal MÍR Vatnsstíg 10
íýrir troðfullu húsi síðast liðinn
sunnudag. Myndin verður endur-
sýnd annað kvöld, fimmtudags-
kvöld klukkan 20:00. Myndin er
með íslenskum texta. Aðgangur er
ókeypis...
Sýning
Sigurbjöms
Undanfama tvo mánuði hefur
Sigurbjörn Jónsson sýnt stór
málverk í Galleríi Regnbogans
við Hverfisgötu. Vegna mikils
áhuga gesta hefur verið ákveðið
að framlengja sýninguna til 22.
mars...
„Addicted“
Sólgin („Addicted") er yfir-
skriftin á samsýningu fjögurra
norrænna myndlistannanna sem
opnuð verður f Nýlistarsafninu
næstkomandi laugardag klukkan
16:00. Anders Boqvist, Maria
Lindberg og Peter Iiagdahl eru
fulltrúar Svíþjóðar, en Ann Krist-
in Lislegaard kemur frá Dan-
mörku. Sýningin er liður í Sólstöf-
um - norrænu menningarhátíðinni
- og er samvinna þriggja sýning-
arhúsa, það er Nýlistasafnsins í
Reykjavík, Slunkaríkis á Isafirði
og Listasafnsins á Akureyri.
Myndlistarmennimir tjórir sýna í
Nýlistasafninu, Peter Hagdahl
opnar aðra sýningu í Slunkaríki
miðvikudaginn 22. febrúar og
Ann Kristin Lislegaard opnar
þriðju sýninguna í Listasafninu á
Akureyri laugardaginn 25. febrú-
ar. Allir þátttakendur í Sólgin
vinna að verkum sem sýna óvænta
og skilyrðislausa afstöðu til mis-
munandi greina, tæki og efnis.
Einfaldar blýantsteikningar ere
jafn sjálfsagður hlutur og límmið-
ar, myndbandsverk allt eins
möguleg og kúluspil...
Stofngjöfsýnd
Málverkið Um vetur frá 1887 eftir
Georg Emil Libert.
Sýningu Listasafns Islands á
stofngjöf þess lýkur á sunnudag-
inn. A sýningunni er úrval margra
góðra verka eftir norræna listmál-
ara, aðallega danska, frá síðari
hluta 19. aldar og má þar nefna
málverk listmálaranna Anna
Ancher og Peter Severin Kroy-
er. Þessi gjöf hefur ekki verið
sýnd síðan 1974...
Vigdís forseti
á Akureyri
Það verður hátíð í leikhúsinu á
Akureyri um helgina því Vigdís
Finnboga-
dóttir forseti
verður gestur
á báðum leik-
ritunum sem
LA sýnir um
þessar mund-
ir. Á laugar-
dag fer for-
setinn að sjá
O v œ n t a
heimsókn
eftir J.B. vigdís: Bregður sér
Priestley í í leikhús hjá LA á
1 e i k S t j Ó r n Akureyri um næstu
H a 11 m a r s he,9'-
Sigurðssonar og á sunnudaginn
sér hún A svörtum fjöðrum eftir
Erling Sigurðsson í leikstjóm
Þráins Karlssonar. Sýningar á
báðum þessum verkum hafa
hlotið ágæta dóma og fer nú hver
að verða síðastur að bregða sér í
leikhúsið því sýningum fækkar
ört...