Alþýðublaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 1
Erjur framsóknarmanna á Vestfjörðum halda áfram
Jafngildir úrsögn úr
Framsóknarflokknum
- segir Guðmundur Bjarnason, varaformaður um sérframboð Péturs Bjarnasonar, en
Pétur segist enn vera í flokknum.
„Samkvæmt flokkslögum er þetta
skýrt og greinilegt. Þar segir: Fari
flokksmaður í firamboð til Alþingis
fyrir annan stjómmálaflokk eða
stjómmálasamtök, jafngildir það úr-
sögn úr Framsóknarflokknum,“
sagði Guðmundur Bjarnason,
varaformaður Framsóknarflokksins,
urn sérffamboð Péturs Bjarnason-
ar, varaþingmanns flokksins, á Vest-
fjörðum, í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
í samtali við blaðið kvaðst Pétur
hinsvegar enn vera í Framsóknar-
flokknum. „Ég tel mig ekki vinna
gegn hagsmunum Framsóknar-
flokksins með þessu framboði, held-
ur er ég að vinna samkvæmt hans
stefnu. Ég hef því ekki sagt mig úr
flokknum og reikna ekki með að
gera það neitt á næstunni," sagði Pét-
ur.
Guðmundur sagði að það tíðkaðist
ekki í Framsóknarflokknum að reka
menn úr flokknum, en í þessum efn-
um væru flokkslög skýr. Pétur hefði
sjálfur sagt skilið við Framsóknar-
flokkinn, hvað sem síðar yrði. Guð-
mundur útilokaði ekki að leiðir
kynnu að liggja saman á ný síðar
meir, og vitnaði í því sambandi til
sérframboðs Stefáns Valgeirssonar
á Norðurlandi eystra 1987. Þeir
framsóknarmenn sem þá studdu
Stefán hefðu flestir snúið aftur til
flokksins.
Persónulega kvaðst Guðmundur
telja óeðlilegt að Pétur væri áffam í
Framsóknarflokknum, þarsem hann
byði sig ffam fyrir önnur stjómmála-
samtök sem kepptu við flokkinn um
fylgi kjósenda.
Pétur sagði á hinn bóginn að
„mildilega hefði verið tekið á þessu
hliðarspori, og ég held að menn telji
það liggja nokkuð samsíða Fram-
sóknarflokknum. Meðan svo er sé ég
ekki ástæðu til að segja mig úr Fram-
sóknarflokknum." Ekki náðist í Pét-
ur til þess að bera undir hann um-
mæli Guðmundar, og hin tilvitnuðu
flokkslög.
Verkfallsnefnd kennara á þönum í leit að verkfallsbrotum
Börn mega ekki vera í íþróttasölum
- á þeim tíma sem skólarnir hafa haft þá á leigu, segir Sigrún Ágústsdóttir, formaður
verkfallsnefndar. Reynt að hafa hemil á starfsemi félagsmiðstöðva útá landsbyggðinni.
„Við erum ekki í vafa um að ef
farið er í þá sali íþróttahúsa sem
skólamir eru með á leigu og á þeim
tímum sem þeir hafa haft afnot af
þeim þá er það algjörlega óheimilt
þótt engin kennsla fari fram,“ sagði
Sigrún Agústsdóttir, formaður
verkfallsnefndar kennara, í samtali
við Alþýðublaðið í gær.
Verkfallsverðir vom í gær að
kanna hvar fæm fram möguleg verk-
fallsbrot.
í nokkmm iþróttahúsum hefur
verið komið á eins konar tómstunda-
og leikjastarfi til að hafa ofan fyrir
bömum á skólaaldri meðan foreldr-
amir em í vinnu.
„Verkfallsverðir munu heimsækja
íþróttahúsin og fá nákvæmt yfírlit yf-
ir það hvaða starf þar fer fram, í
hvaða sölum og á hvaða tímum. Þeg-
ar þetta yfirlit liggur fyrir munum
við fara í að stöðva þá starfsemi þar
sem um verkfallsbrot er að ræða. Það
hafa líka borist fréttir utan af landi
um að verið sé að auka við starfsemi
félagsmiðstöðva vegna verkfallsins.
Slíkt dregur tvfmælalaust úr áhrifum
Þjóðvaki á Norður-
l^ndi vestra
Ofærð tefur
listann
„Það átti að leggja framboðslist-
ann fram til undirskriftar á sunnu-
daginn en það náðist ekki sökum
óveðurs og ófærðar. En listinn er
tilbúinn og verður lagður fram um
leið og menn komast til fundar
sem vonandi verður á morgun,
þriðjudag," sagði Sveinn Allan
Morthens á Sauðárkróki í samtali
við Alþýðublaðið í gær.
Þjóðvaki hafði auglýst fundi í
Norðurlandskjördæmi vestra um
síðustu helgi og þá átti jafnframt
að leggja fram ffamboðslista í
kjördæminu. Aflýsa varð túndar-
höldum vegna óveðurs. Þjóðvaki
hefur lagt fram framboðslista í
tveimur kjördæmum, Norðurlandi
eystra og á Reykjanesi. Katrín
Theodórsdóttir, fiamkvæmda-
stjóri Þjóðvaka, sagði í samtali við
blaðið að vinnu við framboðslista í
öðrum kjördæmum rniðaði vel og
þess skammt að bíða að þeir yrðu
lagðir fram.
Sigrún Ágústsdóttir, formaður verkfallsnefndar kennara, ásamt kollegum sínum í gær: „Verkfallsverðir munu
heimsækja íþróttahúsin og fá nákvæmt yfirlit yfir það hvaða starf þar fer fram, í hvaða sölum og á hvaða tím-
um. Þegar þetta yfirlit liggur fyrir munum við fara í að stöðva þá starfsemi þar sem um verkfallsbrot er að ræða,"
Sagði Sigrún. A-mynd: E.Ól.
verkfallsins og okkur er í mun að ar nánar,“ sagði Sigrún. gangi vítt og breytt og síðan yrði tek-
reyna að stoppa allt slíkt starf. Þetta Hún sagði að dagurinn færi í það in ákvörðun um hvaða starfsemi yrði
eru óljósar fréttir sem verða kannað- að kanna hvaða starfsemi væri 1 reynt að stöðva.
Alþýðuflokkurinn á Norðurlandi vestra
„Get ekki annað en
veríð bjartsýnn"
- segir Jón F. Hjartarson skólameistari sem
skipar 1. sæti á framboðslista Alþýðuflokksins í
kjördæminu.
„Staða Alþýðuflokksins fer óðum
batnandi og þær efasemdir sem mað-
ur hafði um hana uppúr áramótum
hafa nú breyst í bjartsýni. Ég held, að
ef við hér kjördæminu byggjum
sókn okkar á því fylgi sem flokkur-
inn hlaut í sveitarstjómarkosningun-
um, þá eigum við mikla möguleika á
að ná inn manni. Alþýðuflokkurinn á
Norðurlandi vestra missti þingmann
sinn naumlega síðast og það þrátt
fyrir að hafa nokkuð bætt við sig
fylgi; eða um 1,5%,“ segir Jón F.
Hjartarson, skólastjóri Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á Sauðár-
króki, í samtali við Alþýðubiaðið í
dag. Hann skipar 1. sæti framboðs-
lista Alþýðuflokksins á Norðurlandi
vestra.
„Mig minnir að það hafi ekki
munað nema nokkrum tugum at-
kvæða á að við kæmum Jóni
Sæmundi Sigurjónssyni inn. Ég
veit til þess, að margt fólk sem ekki
kaus Alþýðuflokkinn sfðast mun
gera það nú og mér sýnist einnig að
við ættum að halda okkar fylgi. Mið-
að við þetta, get ég ekki annað en
verið bjartsýnn,“ segir Jón.
- Sjá viðtal við Jón F. Hjartar-
son á blaðsíðu 7.
Jón F. Hjartarson: Staða Alþýðu-
flokksins fer óðum batnandi og
þær efasemdir sem maður hafði
um hana uppúr áramótum hafa nú
breyst í bjartsýni.
Mótmælaseta framhaldsskólanema
undir forystu MH-inga
„Meira að segja
einn Verslingury/
- var í mótmælasetu í fjármála-
ráðuneytinu, sagði einn setumanna í gær
„Við teljum að vegna sinnuleysis
á málefnum kennara beri ríkisstjóm
Islands fulla ábyrgð á verkfallinu og
því ófremdarástandi sem myndast
hefur meðal gmnn- og framhalds-
skólanema. Við krefjumst þess að
ríkisstjómin verði við kröfum HÍK
og KÍ,“ segir í yfirlýsingu ífá
FSKÚRF, sem stendur fyrir Fulltrúa
stuðningsmanna kennara úr röðum
framhaldsskólanema, en í gær efndi
hópur framhaldsskólanema til mót-
mælasetu í fjármálaráðuneytinu til
að leggja áherslu á stuðning sinn við
málstað kennara í verkfalli KÍ og
HÍK.
Alþýðublaðið átti um síðdegið í
gær, spjall við þau Hjördísi Þóru
Þorgeirsdóttur, Tuma Trausta-
son, Má Örlygsson og Stefán Inga
Stefánsson, en þau eru öll nemar f
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Þegar okkur bar að garði vom eitt-
hvað á milli 40 til 50 nemar í anddyri
ráðuneytisins.
Þau sögðust hafa verið í ráðuneyt-
inu ffá því klukkan ellefu um morg-
uninn og vissu ekki á þeirri stundu
hvað þau yrðu þar lengi. „Það er fullt
af fólki til í að gista", sagði Már.
Hjördís dró úr og sagði að þess gerð-
ist vart þörf, þar sem þau væru nú
búin að koma málstað sínum all
rækilega til skila. „Það hafa allir fjöl-
miðlamir komið og þá er takmarkinu
náð,“ sagði hún.
Stefán sagði starfsfólk ráðuneytis-
ins hafa verið hálfsmeyk við þau í
fyrstu, en nú væri það búið að venj-
ast þeim og sjá að það væri ekkert að
óttast. „Þetta em jákvæð mótmæli,"
sagði Stefán. Fjöldamargir höfðu
tekið námsbækumar með sér og sátu
við lestur. Aðrir gripu í spil. Aðspurð
um hvort þetta væm allt MH-ingar,
játtu þau því að upptök mótmælanna
væri að finna í þeim skóla. En vissu-
lega væm fulltrúar á staðnum frá
flestum stærri framhaldsskólum
landsins. „Hér er meira að segja einn
Verslingur,“ sagði Tumi að lokum.
í gær efndi hópur framhaldsskóla-
nema til mótmælasetu í fjármála-
ráðuneytinu til að leggja áherslu á
stuðning sinn við málstað kennara
í verkfalii KÍ og HÍK: „Þetta eru já-
kvæð mótmæli og ráðuneytisfólk-
ið hefur ekkert að óttast," sagði
talsmaöur úr röðum nemenda.
A-myndir: E.ÓI.