Alþýðublaðið - 21.02.1995, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Viti menn
•€3-
Árni er nú þannig að hann
hugsar ekki mikið áður en
hann talar og ekki heldur á
meðan hann talar og ég held
að samlíkingin um hann og
hraðsuðuketilinn sem
bullar bara og bullar
eigi best við hér.
Guðni Baldursson um afstöðu
Árna Johnsen til samkynhneigðra.
Morgunpósturinn í gær.
Eg get sagt þér eftir þrjátíu
ára reynslu að ef þessi maður
var ekki ölvaður þá er
ég Guð almáttugur.
Sævar Gunnarsson lögregluvarðstjóri.
Baldur Siguröarson Sniglaforingi var
hart leikinn af lögreglunni um helgina.
Hann kveöst hafa veriö bæði edrú
og saklaus. MP í gær.
Guð hefur gleymt mér.
Jeanne Calment. Hún er 120 ára
í dag. Morgunpósturinn.
Því verður vart á móti mælt
að endurteknar upplýsingar
um launamismun er mikið
áfall fyrir kvenréttindabarátt-
una. Einkum fyrir þann hóp
kvenréttindakvenna sem hafa
haslað sér völl á vettvangi
stjórnmálanna tU að
rétta hlut kvenna.
Leiðari Ellerts B. Schram i DV í gær.
yfirboðum. íslendingar
verða enn um sinn að klappa harðan
steininn til að árangur náist.
Stöðugleiki til frambúðar hlýtur
því að vera kosningamál. Spumingin
er eingöngu sú hverjum kjósendur
treysta best til þess að fylgja því efdr
í framkvæmd.
Höfundur er stjórnmálafræðingur og
aðstoðarmaður umhverfisráðherra.
Stöðugleiki andskotans
AUir tala um stöðugleika þessa
dagana. Kjarasamningar verða að
tryggja stöðugleikann til ffambúðar.
Stöðugleikinn er helsta rósin í
hnappagati ríkisstjómarinnar og
verður kosningamál að nokkmm
vikum liðnum.
Enginn getur ver-
ið á móti stöðug-
leika í sjálfú sér
án þess að missa
pólitískan trú-
verðugleika. Það
er óskastaða fyrir
ríkisstjórnar-
floldtana.
Pallborðið
ingar sem nú er verið að gera, verða
sjálfsagt ekki tilefni neinna flugelda-
sýninga, en þeir ættu að færa mönn-
um heim sanninn um það hvaða
raunveridegu kjarabætur er hægt að
knýja fram. Yfirboð bæta hér ekki
mmnmmmmmmmm—m Um betUr, þau
eyðileggja þann
|f Birgir
1 Hermannsson
, m skrifar
Æl * ^
arangur
náðst hefur.
sem
Hvers konar stöðugleiki?
Til að bregðast við þessu hefur
stjómarandstaðan tekið upp á því að
ekki sé sama hvers konar stöðugleiki
ríki í landinu. Síðast í gær skrifaði
Sigríður Jóhannesdóttir, sem skipar
annað sætið á lista Alþýðubanda-
lagsins í Reykjanesi, grein í DV þar
sem hún hélt því fram að núverandi
stöðugleiki væri stöðugleiki and-
skotans. Hvorlci meira né minna.
Þetta er augljóslega tónninn sem
slá á í komandi kosningabaráttu.
Yfirboð og loforð um batnandi hag á
að réttlæta á grundvelli nýs stöðug-
leika, ekki þessa gamla og leiðin-
lega. Helsta baráttumálið á að vera
tilfærslur ífá hinum ríku til hinna fá-
tæku, ffá fyrirtækjum dl launþega.
Virkja á óánægju fólks með kjör sín,
án þess þó að magna upp hræðslu við
óðaverðbólgu.
Yfirboð eða raunverulegar
kjarabætur?
Þetta er ekki trúverðugur mál-
flutningur. Stöðugleikinn er vand-
meðfarinn. Raunsæjar leiðir tíl kjara-
jöfnunar fefa í sér krónutöluhækkun
og ábót fyrir þá lægst launuðu. Ríkið
kemur fyrst og fremst að þessu með
greiðslum til fólks, til dæmis vaxta-
bótum, bamabótum og fleim og með
skattastefnu sinni. Þeir kjarasamn-
Góður
árangur á
erfiðum
tímum
Hver er svo
þessi árangur?
Lftum á nokkur dæmi:
-Böndum hefur verið komin á
verðbólguna í landinu. Lág verð-
bólga er forsenda heilbrigðs atvinnu-
lífs og nauðsyn skuldugum heimil-
um.
-Vextir hafa lækkað stórlega.
Þetta leiðir til aukinnar fjárfestingar í
atvinnulífmu, dregur úr atvinnuleysi
og bætir skuldastöðu heimilanna.
-Skattar hafa verið lækkaðar á
fyrirtækjum tíl samræmis við það
sem gerist í nágrannalöndunum.
Þetta leiðir til aukins útflutnings og
minna atvinnuleysis.
-Gengi krónunnar er stöðugt og
lægra en um áratugaskeið. Utflutn-
ingur vöm og þjónustu gefur stór-
aukist og flytja Islendingar nú meira
út en þeir flytja inn. Þjóðin er hœtt
að lifa um efni fram.
- Viðskiptajöfnuður er hagstæður
þriðja árið í röð og hafa því erlendar
skuldir þjóðarinnar lækkað sem því
nemur. Sambœrilegum árangri hef-
ur engin ríkisstjóm náð siðan á
stríðsámnum.
-Kaupmátturinn jókst á síðasta ári
og á þessu ári er svigrúm til kjara-
bóta í fyrsta sinn í langan tíma.
Kaupmáttur hefur hrapað nær stans-
laust frá því 1987. Þessari þróun
hefur nú verið snúið við.
-Matarverð lækkaði stórlega á
„Enginn getur verið á móti stöðugleika í
sjálfu sér án þess að missa pólitískan trú-
verðugleika. Það er óskastaða fyrir rík-
isstjórnarflokkana...Til að bregðast
við þessu hefur stjórnarandstaðan
tekið upp á því að ekki sé sama
hvers konar stöðugleiki ríki í
landinu...Þetta er augljóslega
tónninn sem slá á í komandi kosn-
ingabaráttu. Yfirboð og loforð um batn-
andi hag á að réttlæta á grundvelli nýs stöð-
H ugleika, ekki þessa gamla og leiðinlega."
síðasta ári og mun halda áffam að
lækka á næstu ámm fyrir tílstuðlan
EES og GATT.
-Aukið frjálsræði í viðskiptum og
opnun erlendra markaða em lykill-
inn að efnahagslegri framtíð þjóðar-
innar. Alþýðuflokkurinn hefur haft
forystu um þessi umbótamál.
Stöðugleiki til frambúðar!
Þessi árangur fær væntanlega ekki
hjarta hinnar hugprúðu hugsjóna-
konu Sigríðar Jóhannesdóttur tíl að
slá hraðar. I ljósi aðstæðna er hann
þó afar mikilsverður.
Max Weber, sá merki hugsuður,
lýsti eitt sinn starfi stjómmála-
mannsins við það að klappa harðan
stein. Sá árangur sem náðst hefur
með þolinmæði jress sem lappar
harðan stein, er merkilegri en svo að
honum megi kasta fyrir borð með
Sex-tilboð
dagsins
„Kassamærin lagði saman
vöruverðið og sagði hátt og
skýrt: „206...“ Séra Sigurður
seildist í veskið og dró upp þrjá
hundraðkrónuseðla og rétti
dömunni. Hann gramsaði smá-
peningum sem hann fann í
frakkavasanum og spurði ann-
ars hugar meðan hann taldi í lóf-
anum: „Vil du kansje ha sex?“
Það sló grafarþögn á biðröðina
við þetta karhnannlega tilboð
prestsins. Kassadaman kafroðn-
aði og vissi augljóslega ekki
hvernig hún átti að bregðast við
beiðni sálusorgarans. Skyndi-
lega áttaði Sigurður sig á því að
þessa spurningu mátti misskilja,
svo hann áréttaði tilboðið og
spurði í barnslegu sakleysi: „Ell-
er sex og femti?’”’
- segir í ágætri grein Guðna
Einarssonar í Morgunbladinu
síðastliðinn sunnudag um heim-
sókn hans til séra Sigurðar
Ægissonar, sóknarprests á
norsku eynni Træna.
I Jviablaðið
XIjFréttir segir frá
kynningarfundi
Þjóðvaka sem þar
haldinn um daginn.
Jóhanna Sigurðardóttir
var aðalræðumaður, en auk
hennar talaði meðal annars
Þorsteinn Hjartarson sem
væntanlega mun leiða list-
ann á Suðurlandi. í fréttinni
er sagt að um 50 manns hafi
mætt á kynningarfundinn,
og verður það að teljast vel
viðunandi. Eitthvað virðist
hinsvegar boðskapur Þjóð-
vaka hafa vakið litla lukku,
því að sögn Frétta skráðu
einungis tveir sig á stuðn-
ingslista flokksins. Við vit-
um að Jóhanna leitaði upp-
haflega að Eyjamanni til
þess að leiða listann í kjör-
dæminu, en hafði ekki ár-
angur semerfiði...
Uppsögn Sverris Ólafs-
sonar sem umsjónar-
manns með listamiðstöðinni
Straumi í Hafnarfirði hefur
vakið mikla athygli, enda
blandast fáum hugur um að
meirihluti sjálfstæðis-
manna og alþýðubanda-
lagsmanna lætur hann
gjalda stuðnings við Al-
þýðuflokkinn. Ymsir er-
lendir listamenn hafa bland-
að sér í málið, og þannig
sendi sænski myndlistar-
maðurinn Timo Solin
áskomn til Vigdísar
Finnbogadóttur for-
seta, þarsem hún er
beðin um að blanda
sér í málið. I bréfi
Solins til Vigdísar
segist hann „reiður og furðu
lostinn" yfir því að bæjar-
stjóm Hafnarfjarðar skuli
hafa „drepið" Gallerí Portið,
Listaskóla Hafnarfjarðar,
Listahátíðina og Kammer-
sveit Hafnarfjarðar, og ætli
nú að bíta höfuðið af
skömminni með því að reka
Sverri Ólafsson. Solin segir
að ekki einasta hafi Sverrir
með starfi sínu komið Hafn-
arfirði á alþjóðleg landakort
- heldur eigi bærinn hlut-
deild í hjarta fjölmargra er-
lendra listamanna sem
þangað hafi komið og starf-
að fyrir atbeina Sverris. Og
nú er bara að vita hvemig
forsetínn bregst við erindi
Solins hins sænska...
TTormaður Alþýðubanda-
1/ lagsins, Ólafur Ragnar
Grímsson, fór mikinn um
helgina enda var hann
að kynna kosninga-
stefnuskrá flokksins.
Það vakti hinsvegar
athygli, að Ólafur
Ragnar kaus að nota
mikið af tíma sínum í
fjölmiðlum á laugardaginn
tíl að ráðast mjög harkalega
á Framsóknarflokkinn og
Halldór Ásgrímsson.
Sunnudagurinn fór svo í
harðar árásir á Alþýðuflokk-
inn, einkum Jón Baldvin
Hannibalsson. Nú er svo-
sem ýmsum brögðum beitt í
kosningabaráttu en Ólafur
Ragnar þótti með þessu op-
inbera einunt of afdráttar-
laust hvar hjaita hans slær -
hann hefur, sem kunnugt er,
mestan áhuga á tveggja
flokk stjóm með Sjálfstæð-
isflokknum...
Hinumegin
Magnús fann ekki fyrir hræðslu að neinu ráði..., fyrr en hann
tók í spottann sem opna átti neyðarfallhlífina.
Fimm á förnum vegi
Er hlaupin róttækni í ykkur unga fólkið? Spurt við mótmælastöðu nemenda við fjármálaráðuneytið
Ólafur Sigurðsson, nemi í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð: Ef þessi mótmæli kallast rót-
tækni, þá er svarið já.
Þorbjörg Einarsdóttir, nemi í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð: Já, en róttæknin hefur raunar
alltaf verið til staðar.
Örvar Smárason, nemi í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð: Ungt fólk á að vera róttækt.
Við verðum að gera eitthvað í mál-
unum.
Lilja Tryggvadóttir, nemi í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð: Nei, við þetta er ekki róttækni.
Við erum bara að reyna að svara fyr-
ir okkur og styðja kennarana.
Guðbjörg Vignisdóttir, nemi í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð: Já og nei.
Frambjóðendur! Farið í lit-
greiningu og klæmist ekki.
Heiðar Jónsson snyrtir.
Samkvæmt kosningaspá DV
hafa núverandi stjórnarflokk-
ar ekki nægan meirihluta til
að mynda ríkisstjórn saman á
ný einir. Svo virðist hins vegar
sem báðir flokkarnir séu jafnt
og þétt að auka fylgi sitt og
ekki er hægt að útiloka að
þegar upp er staðið fái þeir
tilskilinn meirihluta.
Fréttastjórinn Guðmundur
Magnússon að spá í vikurnar sjö
fram að kosningum. DV í gær.
m
Veröld Isaks
Hversu ótrúlegt sem það hljómar þá
fjölga vissar tegundir ála í Evrópu
sér í Saragossa-hafinu - við ytri
mörk Mexíkó- flóa - þúsundir kíló-
metra frá heimkynnum þeirra í ám á
meginlandi Evrópu. Til að ná til fló-
ans yfirgefa álamir ámar, ferðast til
hafs með hverri vatnssprænu sem
verður á vegi þeirra og fara jafnvel
stutta vegalengd á landi ef stíflur
eða aðrar hindranir verða á vegi
þeirra. Þegar þeir ná til hafs stilla
þeir innbyggðan áttavita sinn á
ákvörðunarstað sem er í allt frá 5
þúsund og uppí 10 þúsund kíló-
metra fjarlægð. Fullorðnu álamir
snúa ekki aftur úr þessu ferðalagi,
en hin öriitlu afkvæmi þeirra berast
með Golf- straumnum til Evrópu.
Ferðalag nýrrar kynslóðar til evr-
ópsku ánna tekur um það bil 3 ár.
„Isaac Asimov's Book of Facts"