Alþýðublaðið - 07.03.1995, Síða 4

Alþýðublaðið - 07.03.1995, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 1995 Safnast þegar saman kemur Tökum dæmi um hjón sem: # Fara í bíó einu sinni í viku og kaupa popp og gos. Kostnaður 83.000 kr. á ári. • Panta sér pizzu einu sinni í viku. Kostnaður 104.000 kr. á ári. # Kaupa tvær gosflöskur á dag. Kostnaður 58.000 kr. á ári. # Leigja eina myndbandsspólu á viku. Kostnaður 21.000 kr. á ári. • Kaupa skyndibita og sælgæti fyrir 400 á dag. Kostnaður 146.000 kr. á ári. • Kaupa tvo lítra afgosi og snakkpoka einu sinni í viku. Kostnaður 20.000 kr. á ári. Þetta kostar þau 432.000 kr. á ári. Jdlíllalalldl TlÆ oAQrKcir J3 UildUdí Odí 1T’ll O iJauiiij Vikan 6.-10. mars verður átaksvika í fjármálum heimilanna. Af því tilefni verður opið hús í aðalbankanum, Austurstræti 5, og öllum útibúum Búnaðarbankans, þar sem þjónusturáðgjafar veita upplýsingar um útgjaldadreifingu, áætlanagerð o.fl. Handbókin „Fjármál heimilisins" verður til sölu á sérstöku tilboðsverði, kr. 900 þessa viku. Þá verður að auki boðið upp á sérstök fjármálanámskeið, þátttakendum að kostnaðarlausu, þar sem leiðbeint verður um hvernig lækka má rekstrarkostnað heimilanna. Fjallað verður um heimilisbókhald, áætlanagerð, lánamál og leiðir til sparnaðar svo eitthvað sé nefnt. Námskeiðin standa í 3 klst. og eru þau auglýst sérstaklega. HEIMILISLINAN (5) BIJNAÐARBANKINN - Traustur banki Skemmtileg harmsaga Verkefni Saga úr vesturbænum (West Side Story) Sýningarstaður Þjóöleikhúsið, stóra sviðið Söngleikur Byggður á hugmynd Jerome Robbins Tónlist Leonard Bernstein Þýðing Karl Ágúst Úlfsson Dansahöfundur og dansstjórnandi Kenn Oldfield Tónlistarstjórn Jóhann G. Jóhannsson Hljóðstjórn Sveinn Kjartansson Lýsing Björn B. Guðmundsson Leikmynd Finnur Arnar Arnarsson Búningar María Ólafsdóttir Leikstjórn Karl Ágúst Úlfsson og Kenn Oldfield Aðstoðarleikstjóri Randver Þorláksson Aðstoðarmaður danshöfundar Ástrós Gunnarsdóttir Amerísk músíköl hafa verið uppfærð hér af og til og hlotið misjafnt gengi. Sum hafa slegið í gegn og önnur kolfallið. Stundum heyrast þær raddir að músíköl geti aldrei orðið annað en nokkurs konar hliðargrein leikhúsanna því þar sé aðeins um að ræða léttvæg skemmti- verk. Þessu er ég ekki sammála því góður söngleikur á ekki síð- ur erindi á svið en önnur leik- verk. Hins vegar er misheppn- aður söngleikur ein sú hroðaleg- asta pína sem hægt er að sitja undir. Það fer hins vegar ekki milli mála að sýning Þjóðleikhússins á Sögu úr vesturbœnum er með bestu verkum leikhússins af þessu tagi. Þar er sögð sígild saga í leik, söng og dansi undir dúndrandi tónlist. Þrátt fyrir nokkra hnökra er þetta kraft- mikil og skemmtileg sýning sem án efa mun fá fólk til að flykkjast í leikhúsið. Efni Sögu úr vesturbænum er sótt í Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare. Hér eru það hinn ameríski Tóný og María frá Pu- ertó Rico sem verða fyrir því að ástin spyr ekki um ætt né upp- runa. Þau tilheyra sitt hvorum hópi götugengja í slömmi New York sem eiga í stöðugum eijum. Þau átök sem þar fara fram eiga sér hliðstæðu í linnulausum átökum fólks af ólíkum kynþáttum vítt og breytt í veröldinni nú sem fyrr. Þótt harmsaga hinna ungu elsk- enda sé efnisþráður Sögu úr vestur- bænum er dansinn og tónlistin þungamiðja sýningarinnar. Ef þar er ekki haldið rétt á spilun- um verður fátt til bjargar. Það kemur þægilega á óvart hversu vel hefur tekist til í þessum efnum í sýningu Þjóðleikhússins. Ekta amerískt mús- íkal einkennist af tónlist sem hrífur sem og þrautþjálfaðri leik- og sýn- ingartækni. Kenn Oldfield hefur greinilega þá hæfíleika og hörku sem þarf til að ná fram nauðsynlegum hraða, mýkt, krafti og fími sem dans- atriðin kreíjast og hljómsveitin brást hvergi. Leikhús Sæmundur r1 Guðvinsson skrifar Marta G. Halldórsdóttir fór með hlutverk Maríu og söngur hennar bar af. Hún náði líka að draga hlutverkið trúverðugum dráttum og sýningin er mikill sigur fyrir Mörtu. Felix Bergsson átti hins vegar erfíðara uppdráttar í hlutverki Tóný og kom það einkum niður á söngnum. En í mörgum atriðum náði hann mjög góðum tökum á hlutverkinu. Atriðin með Maríu og Tóný voru þó stund- um ansi deyfðarleg og maður beið þess að þeim lyki svo showið gæti haldið áfram. Sigrún Waage slær í gegn á þessari sýningu með þokka- fullum leik, dansi og söng. Hilmir Snær Guðnason og Baltasar Kor- mákur eru foringjar hinna stríðandi götugengja. Þessir ungu leikarar gerðu hlutverkum sínum minnisverð skil og sýndu aðdáunarverða fimi og leikni. Aðrir leikara sameinuðu einn- ig dans og leik betur en við eigum að venjast því það er síður en svo sjálf- gefið að slíkt takist. Leikmyndin er einföld en einkar haglega gerð og það lá við að maður „...sýning Þjóðleikhússins á Sögu úr vest- urbænum er með bestu verkum leikhúss- ins af þessu tagi. Þar er sögð sígild saga í leik, söng og dansi undir dúndrandi tón- list. Þrátt fyrir nokkra hnökra er þetta kraftmikil og skemmtileg sýning sem án efa mun fá fólk til að flykkjast í leikhúsið.“ fínndi fnykinn úr slömminu. Hins vegar þrengir leikmyndin óneitan- lega um of að dansatriðunum og það kemur niður á heildarmynd sýning- arinnar. Lýsingin féll vel að sýning- unni og leikmyndinni. Búningar pössuðu vel og sérstaklega voru bún- ingar stúlknanna góðir. Þýðing Karls Agústs Ulfssonar er létt og leikandi og hann hefur gætt þess að þýða og endursegja söngtextana þannig að þeir smella inn í tónlistina. Ekki kcemi mér á óvart þótt Saga úr vesturbœnum hljóti viðlíka aðsókn og Fiðlarinn á sínum tíma. Sýiting Þjóðleikhássins hefur alla burði til að lokka að múg og margmenni. Norræna menningarhátíðin Sólstafir Áköf erótík og kenýsk bassalýra frá Danmörku Á norrænu menningarhátíð- inni Sólstöfum verða sýnd í Þjóðleikhúsinu dansverk frá Is- landi, Svíþjóð og Danmörku. Einungis verður boðið uppá tvær sýningar og verða þær í dag og á morgun, 7. og 8. mars. Frá Danmörku kemur Palle Granhoj með dansleikhús sitt sem flytur verkin HHH og Sallinen. HHH er byggt á Ljóðaljóðum Salómons og er þemað nekt, forvitni og íhlutun - verkið er ákaflega erótískt. Tónlistin er lifandi og er spiluð á kenýska bassalýru. Seinna verkið - Sallinen - er hreyfilistaverk fyrir ijóra strengjaleikara og einn dansara. Framlag Svía á þessu sviði er verkið Til Láru sem höfundurinn Per Jonsson kem- ur með til lands- ins. Hann tileinkar Sallinen: Danskir það dansaranum Láru Stefánsdótt- ur og því viðeigandi að hún dansar það. íslenska verkið er eftir Nönnu Ól- Vinningstölur laugardaginn: 4. mars. 1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING fflsafS 0 4.869.523 g+4af5 1 491.420 3 4af 5 125 6.780 gj 3 af 5 3.977 490 dansa með erótíkina í fyrirrúmi. afsdóttur við tónlist Þorkels Sigur- björnssonar. Goðsögnin um Orfe- us og Evridís var innblástur að tón- smíð Þorkels um Evridís. Á sama hátt var tónlist Þorkels innblást- ur Nönnu við smíði verksins sem Ijallar um dvöl Evridísar í undirheimum. Aðaltölur: BÓNUSTALA: 38 Heildarupphæð þessa viku: kr. 8.157.173 UPPLVSIMOAR, StMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULÍNA 9910 00 • TEXTAVARP 461 Per Jonsson: Einn framsækn- asti dansahöfundur Svía. Ráðstefna Stofnunar Sigurðar Nordals og Borgarbyggðar Egill, Björn Hítdælakappi og Gunnlaugur Ormstunga Stofnun Sig- urðar Nordals og heimamenn í Borgarbyggð 1 \ \ f t> « 4 T V gangast fyrir ■r t •V* lI^ ráðstefnu um Egils sögu Skallagríms- sonar, Bjarn- ar sögu Hít- dælakappa oe Gunnlaugs sögu Ormstungu í Hót- el Borgamesi dagana 26. og 27. ág- úst 1995. Meðal þeirra sem flytja fyrirlestra á þinginu eru Bjarni Ein- arsson, Bjarni Guðnason, Baldur Hafstað, Bergljót Kristjánsdóttir, Else Mundal, Helgi Þorláksson, Preben Meulengracht Sprensen, Rory McTurk, Snorri Þorsteins- son, Sveinn Haraldsson, Sverrir Tómasson og Vésteinn Olason. í tengslum við ráðstefnuna verður farið á söguslóðir á Mýrum undir leiðsögn heimamanna. Þá verður bókasýning í Safnahúsi Borgarijarð- ar í tilefni af sagnaþinginu. Hótel Borgames og Sæmundur Sigmundsson sérieyfíshafi veita ráðstefnugestum vildarkjör. Stofnun Sigurðar Nordals veitir allar frekari upplýsingar um sagna- þingið. Skráning fer fram fyrir I. júní hjá stofnuninni í síma 562-6050.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.