Alþýðublaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 1
Mmiimmiin
Miðvikudagur 5. april 1995
Stofnað 1919
54. tölublað - 76. árgangur
I Skoðanakönnun Gallup
Alþýðuflokkurinn í sókn
Alþýðuflokkurinn með meira fylgi en Alþýðubandalag og Þjóðvaki. Sjálfstæðisflokkurtapar. Framsóknarflokkur bætir hinsvegar lítillega við sig og sömuleiðis Kvennalistinn.
Alþýðuflokkurinn siglir nú
hraðbyri í skoðanakönnunum og
er nú kominn með svipað fylgi og
um þetta leyti fyrir alþingiskosn-
ingarnar 1991 - eða 12,3%. Þetta
kemur fram í nýrri skoðanakönn-
un Gallup sem Ríkissjónvarpið
greindi frá í gærkvöldi. Stærstu
tíðindin í þessari könnun eru þau,
að Alþýðuflokkurinn nýtur meira
fylgis en Alþýðubandalagið og
Þjóðvaki - og að fylgið heklur
áfram að hrynja af Sjálfstæðis-
flokknum. A meðan bæta Fram-
sóknarflokkur og Kvennalisti lítil-
lega við sig.
Hér á eftir fara niðurstöður
könnunarinnar og í sviga eru töl-
ur úr síðustu könnun Gallup sem
framkvæmd var fyrir aðeins
tveimur dögum:
Alþýðuflokkur 12,3% (10,8%),
Framsóknarflokkur 23,9%
(23%), Sjálfstæðisflokkur 31,8%
(33%), Alþýðubandalag 11,3%
(13,2%), Þjóðvaki 11,6%
(12,1%), Kvennalisti 5,7% (5,5%)
og aðrir flokkar njóta 3,4% fylgis
(2,3%).
Úrtak könnunarinnar var 1.500
manns á aldrinum 18 til 75 ára og
var það valið með slembiaðferð úr
þjóðskrá þar sem tekið var tillit til
kyns, aldurs og kjördæma. Svar-
hlutfallið var 73% sem er um 3%
meira en síðast.
■ Svíar hagnast á aðild að
Evrópusambandinu og
Norðmenn leita leiða til að
komast þar inn bakatil
IMorskt
stórfyrir-
tæki
keypti
ABBA
Fyrirtækið ABBA er eitt af
stærstu matvælafyrirtækjum í Sví-
þjóð og er í miklum viðskiptum við
íslenskan sjávarútveg. Fyrirtækið er
einn stærsti viðskiptavinur Síldarút-
vegsnefndar og kaupir auk þess um-
talsvert magn af grásleppuhrognum
hér á landi.
Innganga Svía í Evrópusamband-
ið hefur gerbreytt starfsháttum innan
ABBA. Fram til þessa hefur mikill
hluti úrvinnslunnar farið fram í Dan-
mörku og Þýskalandi. Eftir inn-
göngu Svía í ESB var þeim fyrir-
tækjum lokað og starfsemin flutt
heim til Sviþjóðar þar sem engar
tollahindranir gagnvart Evrópu-
markaði gilda lengur. Eftir að Norð-
menn höfnuðu aðild að ESB en Sví-
ar gengu inn keypti eitt stærsta fyrir-
tæki Noregs - ORKLA - sænska
fyrirtækið með húð og hári og mun
þannig nýta sér tollfrjáls-
Stefnt til framtíðar: Jón Þór, Hólmfríður og Gísli!
Jafnaðarmenn á Vesturlandi leggja undir sig Alþýðublaðið í dag með Skaganum. Meðal efnis
eru viðtöl við lykilmenn á A-lista Alþýðuflokksins í kjördæminu: Gísla S. Einarsson í 1. sæti,
Svein Þór Elinbergsson í 2. sæti, Hólmfríði Sveinsdóttur í 3. sæti, Guðrúnu Konný
Pálmadóttur í 4. sæti, Jón Þór Sturluson í 5. sæti og Sigrúnu Hilmarsdóttur í 7. sæti. Enn-
fremur er rætt stuttlega við eftirtalda Vestlendinga og þeir spurðir afhverju þeir ætli að kjósa
Alþýðuflokkinn: Kristin Þ. Jensson, Svein Rafn Ingason, Frey Geirdal, Fróða Jónsson, Harald
Gylfason, Kristvin Bjarnason, Björgvin Guðjónsson, Sigurður Þórðarson, Einar O. Einarsson,
Heimi Kristjánsson, Lárus Ingibergsson, Pétur Hansson, Valdimar Björnsson, Friðrik Alfreðs-
son, Kristján Pálsson, Sigrúnu Ríkharðsdóttur, Júlíus Má Þórarinsson, Davíð Guðlaugsson, Ás-
geirÁsgeirsson, Björgvin Hagalínsson og Hlina Eyjólfsson. Alþýðublaðið í dag er Skaginn...
■ Utgerðarfélagið Búri á Fáskrúðsfirði að taka
í notkun frystitogara sem keyptur var frá
Nýfundnalandi. Skipiðfertil rækjuveiða
á Flæmska hattinum og við Svalbarða
Leita að verk-
smiðjuskipi til
veiða a
úthafskarfa
Útgerðarfélagið Búri hf. á Fá-
skrúðsfirði er að taka í notkun 750
tonna ' frystitogara sem félagið
keypti frá Nýfundnalandi. Verið
er að Ijúka við klössun skipsins í
Reykjavík og búa það nýjum
tækjum. Aðaleigandi Búra er út-
gerðarfélagið Akkur sem áður
gerði út togarann Klöru Sveins-
dóttur sem seldur var til ísafjarð-
ar ásamt veiðiheimildum. Búri
leitar nú að rússnesku verk-
smiðjuskipi til kaups eða á leigu
sem ætlunin er að fari til veiða á
úthafskarfa.
Eiður Sveinsson skipstjóri og
einn af eigendum frystitogarans
sagði í samtali við Alþýðublaðið að
þessi nýi togari yrði skráður hér á
landi undir nafninu Klara Sveins-
dóttir og færi á úthafsveiðar.
Klara mun fara á rækjuveiðar á
Flæmska hattinum eftir páska en
Eiður sagði að ætlunin væri að
reyna nýjung í útgerð íslenskra
skipa sem væri rækjuveiðar við
Svalbarða. Kaupverð togarans er
rúmar 80 milljónir króna en inni-
falið í verði er klössun samkvæmt
kröfum Norsk Veritas. Einnig eru
sett ný tæki í brú og skipt um
frystitæki á millidekki ásamt öðr-
um endurbótum sem kosta 30 til
40 milljónir króna. Eiður Sveins-
son sagði Gunnlaug Stefánsson al-
þingismann hafa veitt ómetanlega
aðstoð við þessi skipakaup.
Frystitogarinn kemur til heima-
hafnar á Fáskrúðsfirði á næstu
dögum og verður öllum bæjarbú-
um boðið að koma um borð til að
skoða skipið og þiggja veitingar.
Siá viðtal við Eið Sveinsson
á baksíðu
an aðgang ABBA að Evr-
ópumarkaði.
Álitið er að ORKLA
muni í stórum stíl flytja
norskar sjávarafurðir, svo
sem síld og hrogn, óunnar
yfir landamærin til Sví-
þjóðar þar sem unnið
verður úr þeim. Þessi
kaup ORKLA á ABBA
þykja staðfesta viðvaranir
margra forráðamanna í
norskum fyrirtækjum
þess efnis að ef Norð-
menn höfnuðu aðild að
ESB myndu störf flytjast
frá Noregi. Á sama hátt
fullyrtu sænskir iðnrek-
endur að störfum myndi
Ijölga í Svíþjóð með aðild
að ESB og þykja þessi
kaup staðfesta þær full-
yrðingar.
ABBA var í eigu Vol-
vo-samsteypunnar sem
lengi hefur reynt að losa
sig við fyrirtækið en án
árangurs. Það má því
segja að kjósendur í Nor-
egi og Svíþjóð hafi með
atkvæðagreiðslu sinni um
ESB-aðild leyst áralangan
vanda fyrri eigenda
ABBA sem töldu rekstur
fyrirtækisins óviðunandi.
EVROPUVIKA ALÞYÐUFLOKKSINS
Alþýðuflokkurinn vill vekia athygli á að eftirfarandi
ro '
OKKUR
ER ALVARA!
fyrirtæki bjóða evrópuverð á sínum vörum út þessa viku.
Verðlækkunin er áþreifanleg.
BORGARLJOS
wctk : -p"-j
HEIMILISTÆKI
á evrópuverði
Allt að 25%
verðlækkun
REYKJAVÍK
AKRANESI
KEFLAVÍK
HAFNARFIRÐI
AKUREYRI
ÍSAFIRÐI
EGILS-
STÖÐUM
HÖFN
SELFOSSI
3.-7. apríl
- vestur í bæ
KJÚKLINGUR
á evrópuverði
6. apríl
Sími 564 3535
16" PIZZUR
á 900 krónur
3.-7. apríl
/AFFl ,
REYMAVIK
HÁDEGIS-
VERÐUR
490
krónur
3.-7. apríl
Hagfræðistofnun Háskóla fslands
telur í skýrslu sinni til ríkisstjórnar-
innar að við aðild íslands að Evrópu-
sambandinu myndi verð landbúnaðarafurða
hérlendis lækka um 35-45%. Það munar um minna
fyrir íslenskar fjölskyldur.
Alþýðuflokkurinn vill hefja aðildarviðræður við ESB til þess að
fá úr því skorið hvað íslendingum stendur til boða.
/UANÞ í/4-f/tW'.
/