Alþýðublaðið - 05.04.1995, Page 4
4
s
n n
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995
V i t i m e n n
drengur. Hverja einustu myllu
vann ég þegar ég hafði komið
mér upp svikamyllu.
Guöni Ágústsson um Evrópubanda-
lagiö. Alþingistíðindi, 13. hefti, 1992.
Ég get ekki svarað þessu beint
án þess að þekkja málið.
Árni Johnsen um sjávarútvegsstefnu
og vestfirska sjálfstæðismenn.
Tíminn í gær.
Vestfirsku fjöllin eiga
núorðið of mikið í mér.
Risavaxin fyrirsögn á viðtali
við Kristinn H. Gunnarsson. Hann er
þó ekki að draga sig í hlé. Vestfirðing-
ur, málgagn Alþýðubandalagsins í
Vestfjarðarkjördæmi.
„Heiðar - þessi hlýtur að
vinna,“ segi ég. „Hún er svo
falleg og sjarmerandi. Hún
hlýtur að vinna. Heiðar þegir,
- segir svo: „Ameríkanarnir
vilja aðrar týpur en þessa.“
„Jasvo segi ég, áttu við eins
konar Barbie-dúkkur?“
Snyrtirinn kinkar kolli.
Steingrímur St. Th. Sigurösson um
glæsilegt Galakvöld og feguröarsam-
keppni á Hótel Örk. Mogginn í gær.
En það er ekki öll von úti,
þetta er ekki búið og hver
veit nema úr rætist, en ég er
ekki bjartsýnn.
Sigurður Gunnarsson grásleppukarl
á Húsavík um allsherjar
rauðmagahallæri fyrir norðan.
Víkurblaðið 12. tölublað.
Mér fannst hrein nautn
að baða mig í sýnilegri
aðdáun slíkra kollega.
Hörður Hauksson vitnar í Pál Ásgeir
Ásgeirsson sem skrifar i Upphátt
og finnst sem hann sé allt of opinskár
um minnimáttarkennd sína.
Mogginn í gær.
Sigurður hefur slegið í gegn
(hjá flestum) með afslappaðri
framkomu þar sem hlutirnir
eru kallaðir sínum réttu
nöfnum og áfengir drykkir
eru notaðir feimnislaust
við matargerðina.
Haukur L. Hauksson fjölmiðlarýnir.
DV í gær.
írska leikskáldið Samuel Beckett,
sem meðal annars skrifaði
Beðið eftir Godot, var stunginn
af melludólgi alveg upp úr þurru.
Það var síðan píanistinn Suzanne
Deschevaux-Dumesnil sem fann
Beckett liggjandi í blóði sínu á göt-
um Parísarborgar. Hún heimsótti
hann á sjúkrahúsið, ákvað að búa
með honum og tuttugu og fjórum
ámm síðar giftust þau.
Byggt á Isaac Asimov's
Book ofFacts
Ný sjávarútvegsstefna
/ ' V
/ £/ * /
„Fullreynt er að meginmarkmið kvótakerf-
isins hafa ekki náðst, að vernda og byggja
upp nytjastofnana. Þess í stað hefur það
fært til fjármuni frá almenningi til örfárra
sægreifa sem maka krókinn. Sjávarbyggð-
unum mun blæða hægt út ef ekkert verður
að gert til að stöðva hráskinnaleikinn sem
birtist okkur sem hagsmunagæsla hinna
örfáu á kostnað sjómanna, fiskvinnslufólks
og sveitarfélaga sem eiga allt sitt undir
fiskveiðum og vinnslu."
Aðalkosningamál okkar alþýðu-
flokksmanna er að núverandi kvóta-
kerfi verða breytt svo það tryggi
hagsmuni þeirra sem búa á sjávar-
byggðarlögunum en þjóni ekki leng-
ur sérhagsmunum örfárra sægreifa.
Fullreynt er að meginmarkmið
kvótakerfisins hafa ekki náðst, að
vemda og byggja upp nytjastofnana.
Þess í stað hefur það fært til fjármuni
ffá almenningi til
örfárra sægreifa
sem maka krókinn.
Sjávarbyggðunum
mun blæða hægt út
ef ekkert verður að
gert til að stöðva
hráskinnaleikinn
sem birtist okkur
sem hagsmuna-
gæsla hinna örfáu
á kostnað sjó-
manna, fiskvinnslufólks og sveitar-
félaga sem eiga allt sitt undir fisk-
veiðum og vinnslu.
Sífellt fleiri hljóta það ömurlega
hlutskipti að verða leiguliðar með
okurkostnaði meðan kvótinn færist á
sífellt færri hendur svokallaðra sæ-
greifa í skjóli sterkra stjómmála-
flokka sem nánast virðast vera mál-
pípur sægreifanna. Þessir sömu
flokkar höfnuðu því fyrir nokkmm
vikum að festa ákvæði á stjómar-
skrána að þjóðin ætti fiskimiðin og
fiskistofnana kringum landið.
Þessi öfi gera nánast grín að þjóð-
inni með því að reyna að tryggja
þennan ósóma í sessi með veðsetn-
ingarlögum og jafnvel erfðarétti
hinna fáu. Osvífnin á sér engin tak-
mörk - ætlar sér nú útyfir gröf og
dauða.
Alþýðuflokkurinn hefur sýnt f
orði og verki að hann gætir hags-
munum almannahagsmuna í þessum
málum sem og öðmm. Hann hefur
ekki þurft að framkvæma neina „lík-
þornapólitík", við emm ekki bundnir
sérhagsmunum hinna fáu.
Okkur er ljós háskinn sem steðjar
að sjávarbyggðum og viljum snúa
vöm í sókn með eftirfarandi leiðum:
Með löggjöf skal komið í veg fyrir
að kvóti safnist á fárra hendur. Við
viljum tryggja sameign þjóðarinnar
allrar á auðlindum sjávar með því að
binda ákvæði um slíkt í stjómarskrá.
Tryggja þarf stöðu krókaveiða og
vertíðarbáta, takmarka veiðar togara
á gmnnslóð og stöðva fjölgun frysti-
togara uns fiski-
stofnar rétta úr
kútnum. Tryggja
verður að enginn
hvati sé til þess að
fiski sé hent á hafi
úti, þvert á móti sé
hann færður á
þjóðarbúið og til
að mynda að 70 til
80 prósent af verð-
mæti hans renni til
efiingar veiðieftirlits og rannsókna
Hafró en afgangurinn skiptist milli
útgerðar og sjómanna. Við höfúm
hafnað því að fangelsa menn fyrir
vikið eins og sjávarútvegsráðherra
lagði til. Við viljum koma á veiði-
leyfagjaldi, sem nýtist um leið sem
stjómtæki, sem gmndvallaðist ýmist
á sókn eða afla. Þeir sem veiða fisk
til vinnslu í landi greiða lægra en
aðrir, frystitogarar greiði hærra gjald
en ísfisktogaramir. Þannig ýtir kerfið
undir vinnslu aflans í landi. Með
stækkun fiskistofna verði viðbótar-
veiðiheimildum úthlutað gegn slíku
gjaldi. Við viljum að gerðir verði al-
þjóðlegir samningar um veiðar utan
fiskveiði lögsögunnar og veiðar á
flökkustofnum. Við viljum stuðla að
þátttöku Islendinga í erlendum sjáv-
arútvegi og nýta þar með þekkingu
og reynslu til að auka hlutdeild okk-
ar í fiskverslun heimsins. Við viljum
leyfa erlenda fjárfestingu í íslensk-
um sjávarútvegi, að uppfylltum
ströngum skilyrðum. Við viljum
stórefla rannsóknir í fiskifræði, eink-
um vistkerfi hafsins og samspili þess
við aðra þætti náttúmnnar. Sérstak-
lega rannsóknum á áhrifum ein-
stakra veiðarfæra á lífríki hafsins.
Verði það meðal annars fjármagnað
af hluta af veiðileyfagjaldi. Við vilj-
um stefna að því að allur afli á Is-
landsmiðum fari um íslenskan mark-
að, þar sem því verður við komið.
Alþýðuflokkurinn vill gjörbreyta
núverandi kvótakerfi sem stjómtæki
fiskveiða. Aríðandi er að slíkar
breytingar taki sem skemmstan tíma,
ekki lengur en á 4 til 5 ámm. Niður-
staðan af aflamarki í blönduðum
botnfiskveiðum hefur alls staðar
reynst hin sama: sóun á verðmætum,
fölsun á aflatölum, löndun fram hjá
vigt, versnandi afkoma útgerðar
bátaflotans og síminnkandi fiski-
stofnar.
Vaxandi efasemdir vísindamanna
og annarra em nú um að hægt sé að
stjóma raunverulegum afla, án þess
að takmarka sókn og úlhald. Leiddar
hafa verið að því líkur að um 100
þúsund tonnum sé hent í sjóinn ár-
lega á Islandsmiðum, þar af séu um
30 þúsund tonn af þorski. Þetta er
ekki einungis óverjandi sóun á verð-
mætum heldur kemur það einnig í
veg fyrir að hægt sé að sinna rann-
sóknum á nothæfum gögnum fiski-
fræðinga. Þarf frekari vitnanna við
um andarslitur kvótakerfisins?
Ef sjávarbyggðimar þessa lands
eiga að tryggja tilvem sína, afkomu
og öryggi, þeirra sem þar búa, verð-
um við að taka höndum saman og
hrinda oki kvótaófreskjunnar af
herðum okkar. Þetta er meginkosn-
ingamál okkar Alþýðuflokksmanna
hér eftir sem hingað til.
Veiðar og vinnsla em og verða sú
auðsuppspretta sem íslensk tilvera
byggist á. Við höfum fiskimiðin,
bátana, fiskverkanir, vélar og þjálfað
þekkingarfólk og hafnamiannvirki;
alla aðstöðu og fjárfestingu okkar til
áframhaldandi búsetu í sjávarbyggð-
um. Látum ekki kippa undan okkur
fótunum. Berjumst fyrir sjálfsögðum
rétti okkar gegn þessu óréttlæti. Það
gemm við best með öflugum stuðn-
ingi við Alþýðuflokkinn, flokk sem í
orði og í verki hefur sýnt og sannað
að hann berst fyrir hagsmunum al-
mennings, í þessu tilviki sjómanna,
fiskvinnslufólks og sveitarfélaga
ásamt bættum skilyrðum útgerðar og
vinnslu til vaxtarmöguleika á jafn-
réttisgmnni, - með breyttu og réttlát-
ara fiskveiðistjónunarkerfi þar sem
fólkið sem byggir sjávarbyggðimar
er í fyrirrúmi.
Höfundur er aðstoðarskólameistari í
Snæfellsbæ og skipar 2. sæti á lista
Alþýðuflokksins á Vesturlandi
Pallborðið
Sveinn Þór
Elinbergsson
"FarSide" eftir Gary Larson.
orða tekið: „Einar Kárason
avviser generaliseringen
og awiser kritikken som
paranoid og misunnelig,
Súsanna Svavarsdóttir har
«overskredet dumhets-
grensen», mener han."
Einhverjum þætti nú súrt í
broti ef íslenskir listamenn
tækju upp á því alfarið að
flytja deilur sínar á síður
erlendra fjölmiðla, og það
til Noregs af öllum
stöðum...
Gremja fer vaxandi með-
al debet-korthafa sem
héldu að fitt-kostnaður og
gulu miðarnir tilheyrðu for-
tíðinni með ávísanavið-
skiptum. Svo er aldeilis
ekki eins og margir hafa
fengið að kynnast. Flestum
þykir það skjóta skökku við
að greiða rúmar 600 krónur
í sekt fyrir að fara einhverja
tíkalla yfir á reikningi sínum
og það með því að taka út
hjá bönkunum sjálfum í
gegnum hraðþjónustu
þeirra...
Ulfúð í bók-
menntakr-
eðsunni íslensku
hefur nú borist út
fyrir landstein-
anna illu heilli.
Þann 30. mars er
grein í Aftenpost-
en í Osló eftir
Sven Johs Otte-
sen sem fjallar
um stríð milli kynja í ís-
lenskum bókmenntaheimi.
í undirfyrirsögn er spurt
hvort sjálfsmynd íslenska
bókmenntaheimsins sé
karlæg og undirokuð af
eins og einu búnti af vel-
megandi skáldasveinum.
Fyrirsögnin á greininni
hans Sven Johs er „Is-
landsk krybbebiteri" (þýð-
ing óskast). Þar segir með-
al annars að fyrir hópi
skáldsveinanna fari þeir
Einar Kárason og Einar
Már Guðmundsson. Bik-
arinn varð barmafullur eftir
sjónvarpsþátt sem gagn-
rýnandinn og menningar-
ritstjóri stærsta blaðs (s-
lands, Súsanna Svavars-
dóttir, gagnrýndi harð-
lega. Samkvæmt „Islandsk
krybbebiteri" sakar hún
bókadrengina um að vera
staurblindir á bókmenntir
kvenna og vitnað ertil
Birgittu Rubin i Dagens
Nyheter sem hefur eftir Sú-
sönnu að hún sé orðin
hundleið á þeim; þeir geri
lítið annað en að skrifa um
uppvaxtarár vina sinna.
Greinin er all ítarleg og í
seinni hlutanum er vitnað í
Einar Kárason sem vísar
öllu þessu á bug, nefnir of-
sóknarbrjálæði og gefur
ekki mikið fyrir skoðanir
Súsönnu svo vægt sé til
„Sem sagt. Fyrst segistu hafa séd hinn ákærða í Kola-
portinu og núna segist þú halda að þú hafir séð hannl...
Fröken, Jóhanna. Eigum við ekki að hætta þessum láta-
látum - er ekki hugsanlegt að framburður þinn lítið ann-
að en ævintýralegur skáldskapur."
Alsælu-
auka-
verkanir
Alsæla, fíkniefnið sem hipphoppóðir
dansfíklar brúka, hefur komist í fréttir að
undanfömu eftir að Fíknó böstaði „dóp-
hreiður" unglinga við Kaplaskjólsveg.
Samkvæml upplýsingum frá Landiæknis-
embættinu eru aukaverkanir Alsælu, eða
Ecstacy, þessar: • Ahrif á taugakerfi,
sem lýsir sér fyrst og fremst sem stíf-
leiki í vöðvum og tannagnístran, en
getur endað í krömpum, sem jafnvel
lyf duga illa á. • Áhrif á stjórnstöð lík-
amshitans, sem veldur því að hann
rýkur upp og þrátt fyrir alia tækni í
lækningum í dag er illmögulegt að ná
niður. • Áhrif á hjarta- og teðakerfi
vaida blóðþrýstingslækkun og hjart-
sláttarórcglu. • Kituráhrif á nýru sem
veldur fyrst auknum þvaglátum, en
getur cndað í ónýtum nýrum, sem ckki
geta skilið út þvag. • Eituráhrif á lifur
sem getur lýst sér í gulu. • Blóðstorku-
truflanir, scm geta meðal annars vald-
ið hcilahlæðingu. • Geðræn áhrif,
fyrst væg svo sem þreyta og svefnleysi,
síðan alvarlegri eins og þunglyndi og
ofsóknarkennd.
Fimm á förnum vegi
Ætlar þú að sjá nýjustu kvikmynd Jóhanns Sigmarssonar, stórmyndina Ein stórfjölskylda?
Sigurður Björnsson, kennari:
Já, ég held það bara.
Sigurður Sigurðsson, tækni-
fræðingur: Það er ekki alveg
ákveðið ennþá. Málið verður tekið
fyrir á fjölskyldufundi.
Ása Þórðardóttir, bankamað-
ur: Nei, ég má ekki vera að því.
Guðbjörn Ingason, bankamað-
ur: Nei, sennilega ekki.
Agnes Stefánsdóttir, atvinnu-
laus: Já, tvímælalaust. Einn af vin-
um mínum leikur nefnilega í henni.
4