Alþýðublaðið - 05.04.1995, Qupperneq 8
V *
\WREVFfW
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Miðvikudagur 5. apríl 1995
54. tölublað - 76. árgangur
* *
'wkvFILU
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Frystitogari keypturtil Fáskrúðsfiarðarfrá Nýfundnalandi kemur til heimahafnar á næstu dögum.
Sæmundur Guðvinsson ræddi í gær við Eið Sveinsson skipstjóra
Gerð verður tilraun til
rækjuveiða við Svalbarða
** Útgerðarfélagið Búri leitar einnig fyrir sér um kaup eða leigu á rússnesku verksmiðjuskipi til veiða á úthafskarfa.
„Það hefur ekki verið þrautalaust
að halda þessari útgerð gangandi.
Staðreyndin er sú að án allrar þeirrar
aðstoðar sem Gunnlaugur Stefáns-
son alþingismaður hefur veitt okkur
stæðum við ekki um borð í þessum
glæsilega frystitogara í dag og hefð-
um raunar aldrei kontist á stað með
útgerðina," sagði Eiður Sveinsson
skipstjóri frá Fáskrúðsfirði í viðtali
viðAIþýðublaðið.
Utgerðarfélagið Búri á Fáskrúðs-
firði hefur keypt 750 tonna frystitog-
ara frá St. John’s á Nýfundnalandi.
Nú er verið að ljúka við klössun
skipsins í slipp Stálsmiðjunnar í
Reykjavík og það mun halda til Fá-
skrúðsfjarðar á næstu dögum. Við
komuna þangað verður öllum bæjar-
búum boðið að skoða skipið og
þiggja veitingar. Eftir páska fer
li'ystitogarinn síðan til rækjuveiða á
Flæmska hattinum og í bígerð er að
senda hann á rækjuveiðar við Sval-
barða. Búri ætlar þó ekki að láta þar
við sitja heldur er nú verið að leita að
rússnesku verksmiðjuskipi á leigu
eða til kaups sem ætlunin er að gera
út á úthafskarfa.
Þegar blaðamaður Alþýðublaðs-
ins heimsótti Eið skipstjóra um borð
í frystitogarann í gær var her iðnað-
armanna að störfum um allt skip og
stöðugt var verið að kalla í Eið og
biðja hann álits á hinu og þessu. Eið-
ur tók þessum hamagangi með ró og
hélt áfiram að segja ffá útgerðarfýrir-
tæki ijölskyldunnar.
Fjölskylda Eiðs rekur útgerðarfyr-
irtækið Akk sem gerði út togarann
Klöru Sveinsdóttur í hátt á þriðja ár.
„Við neyddumst til að selja Klöru til
Isafjarðar í desember síðast liðnum
ásamt öllum aflaheimildum því það
var hvergi neina fyrirgreiðslu að fá í
bönkum. Sú sala sýndi hins vegar
raunverulega hvert eigið fé fyrirtæk-
isins var og að við hefðum átt rétt á
eðlilegri fyrirgreiðslu í lánastofnun-
um. En þótt svona færi með Klöru þá
ákváðum við að gefast ekki upp og
beijast fyrir því að skapa áfram at-
vinnu og verðmæti á Fáskrúðsfirði.
Þar reyndist Gunnlaugur Stefánsson
þingmaður okkur vel eins og ég
sagði og hann er maður sem við get-
um treyst á,“ sagði Eiður.
Isfirðingar fengu Klöru Sveins-
dóttur og aflaheimildimar með á síð-
ustu jólum en eftir sátu eigendur
Akks án skips og kvóta. Þá strax var
farið að vinna að því að kaupa frysti-
togara frá Kanada.
„Við vomm ákveðin að leggja
ekki árar í bát og leituðum leiða til að
kaupa úthafsveiðiskip í stað Klöru.
Það var talað um að mikið væri af
skipum til sölu í Kanada og við fór-
um að kanna málið í St. John’s á Ný-
fundnalandi. Þá var úrval skipa til
sölu orðið lftið og hörmungaástand
nkjandi þar. Okkur leist hins vegar
vel á frystitogarann Northem Kingf-
isher sem var smíðaður í Noregi árið
® ( J§. m i í
mmm / •
i&EggjfMáá-J
% 3| í m iííwBi
Þjónusta í 60 ár 1935 - 1995
Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau. Sun.
Frá Reykjavík •07.00 •07.00 •07.00
09.00 09.00 09.00 09.00 09.00 13.00
19.00 19.00
Frá Hellissandi 07.45 07.45
16.40 16.40 16.40 16.40 16.40 16.40
Frá Ólafsvík 08.00 08.00
17.00 17.00 17.00 17.00 17.00 17.00
Frá Grundarfirði 07.30 07.30
16.30 16.30 16.30 16.30 16.30 16.30
Frá Stykkishólmi 08.20 •16.00 ‘16.00 •16.00 08.20
17.20 17.20 17.20 17.20 17.20 17.20
Frá Borgarnesi •08.30 •08.30 •08.30
vestur 10.10 10.40 10.40 10.40 10.40 14.40
20.40 20.40
suður 09.50 •17.30 •17.30 •17.30 09.50
18.50 18.50 18.50 18.50 18.50 18.50
Frá Gröf •09.15 •09.15 •09.15
vestur 11.25 11.25 11.25 11.25 11.25 15.25
21.25 21.25
suður 08.50 08.50 08.50 08.50
•16.30 •16.30 •16.30
17.50 17.50 17.50 17.50 17.50 17.50
‘Gildir frá 12. júní ti! 1. sept. Hraðferð í Baldur
Helgi Pétursson h.f. sérleyfis- og hópferðabflar
Gröf, Eyja- og Miklaholtshreppi
c/o Skógarhlíð 10, 101 Reykjavík
Sími: 561 8000, Fax: 561 8008
„Það var leitt að neyðast til að selja Klöruna fyrir jólin í fyrra en nú hefur sá skaði verið bættur," sagði Eiður Sveinsson skip-
stjóri sem stendur hér í brú frystitogarans. A-mynd: E.ÓI.
1974. Skipið
er um 750
tonn, 56
metra langt
og 10,6 metra
breitt og sér-
s t a k 1 e g a
styrkt til sigl-
ingar í ís.
Stofnað var
nýtt félag á
Fáskrúðsfírði
um kaup á
þessu skipi
og útgerð
þess, Búri hf,
en Akkur er
aðaleigandi
félagsins.
Gengið var
frá kaupun-
um fyrir mán-
uði og skip-
inu síðan siglt
heim til Is-
lands. Skipið
verður skráð
hér á landi
samk væmt
reglum sem
samþykkt
vom á síðustu
dögum þings-
ins og fær
nafnið Klara
Sveinsdóttir
S U - 5 0 , “
sagði Eiður.
H v a ð
kostaði þetta
skip?
„ K a u p -
verðið er
rúmar 80
m i 11 j ó n i r
„Markmiðið með þessari útgerð er
að skapa okkur og öðrum Fáskrúðsfirðing-
um atvinnu og verðmæti. Úthafsveiðar
íslendinga eiga eftir að vaxa og þar eru
tækifæri til að sækja björg í bú sem munar
um. Það er því áríðandi að standa fast á
rétti okkar til veiða á úthafinu eins og
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
hefur gert með árangri sem allir þekkja."
króna en innifalið í verðinu er klöss-
un samkvæmt kröfum Norsk Verit-
as. En það verður lagt í skipið hér
milli 30 og 40 milljónir. Við setjum
ný tæki í brú og skiptum um frysti-
tæki á millidekki. Einnig er sett nið-
ur rækjuvinnslulína sem fýlgdi með
og við tökum ný veiðarfæri fyrir
rækjuna.“
Verður þessi nýja Klara ein-
göngu á úthafsveiðum?
, Já, enda höfum við engan kvóta.
Við förum á rækjuveiðar á Flæmska
hattinum eftir páska en þar hefur ver-
ið þokkaleg veiði að undanfömu.
Ottó Wathne var til dæmis að landa
170 tonnum eftir fimm vikna túr á
hattinum. Við ætlum einnig að reyna
nýjung í íslenskri útgerð sem er að
fara á rækjuveiðar við Svalbarða.
Skipið er sérstaklega styrkt fyrir sigl-
ingu í ís og það er enginn kvóti á
rækjuveiðum við Svalbarða."
Hvaða veiðar aðrar mun Klara
stunda?
„Við erum að ráðgera að setja
heilfrystilínu fyrir karfa í skipið-
ásamt flökun fyrir næstu karfavertíð
ef áframhald verður á þeim veiðum.
Við erum ennfremur að leita okkur
að rússnesku verksmiðjuskipi á leigu
eða til kaups til að gera út á karfa-
miðin."
Hvað verða margir í áhöfn
Klöru?
„Það verða 16 um borð á rækju-
veiðunum og 24 á karfanum. Mark-
miðið með þessari útgerð er að
skapa okkur og öðrum Fáskrúðs-
fírðingum atvinnu og verðmæti. Út-
hafsveiðar Islendinga eiga eftir að
vaxa og þar eru tækifæri til að sækja
björg í bú sem munar um. Það er því
áríðandi að standa fast á rétti okkar
til veiða á úthafmu eins og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra hefur^gert með árangri sem
allir þekkja. Eg er mjög ánægður
með þetta skip og er þess fullviss að
þessi skipakaup eiga eftir að verða
til mikilla hagsbóta fyrir Fáskrúðs-
fjörð. Það var leitt að verða að
neyðast til þess að selja Klöruna
fyrir jólin í fyrra en nú hefur sá
skaði verið bættur með þessum nýja
frystitogara. Við siglum austur á
allra næstu dögum og ég ætla að
nota tækifærið og bjóða öllum Fá-
skrúðsfirðingum og öðrum sem
vilja að koma um borð þegar við
komum heim, skoða skipið og
þiggja veitingar," sagði Eiður
Sveinsson skipstjóri.
Hin nýja Klara Sveinsdóttir í slipp í Reykjavík þar sem klössun er að
Ijúka og frágangi nýrra tækja og búnaðar um borð. A-mynd: E.ÓI.