Alþýðublaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 1
■ Jón Kristjánsson verður formaður fjárlaganefndar
Sturla settur út í kuldann
Sjálfstæðismenn fá fimm menn í fjárlaganefnd. Ámi R. Árnason og Lára Margrét Ragnarsdóttir takast á um formennsku í utanríkismálanefnd.
„Á þingflokksfundinum var málið
kynnt þannig að það væri enn óleyst.
Það er hinsvegar gengið út frá því að
ffamsóknarmenn fái embættið," sagði
einn af þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í gær um deilur milli stjóm-
arflokkanna um formennsku í fjár-
laganefnd. Sturla Böðvarsson var
kandídat sjálfstæðismanna til for-
mennsku, og í samt;'!um við Alþýðu-
blaðið síðustu daga hafa þingmenn
flokksins lagt mikla áherslu á að sjálf-
stæðismenn hreppi hnossið. Þannig
lýsti Geir H. Haarde þingflokksfor-
maður yfir því, að sjálfstæðismenn
ættu að fá formennskuna. Nú hafa þeir
hinsvegar orðið að bakka í málinu, og
því verður Jón Kristjánsson, þing-
maður Framsóknar á Austfjörðum,
fonnaður nefhdarinnar.
I samtali við blaðið í gærkvöldi
sagði Jón að hann hefði ekki fengið
tilkynningu um að búið væri að leysa
málið. „En Framsóknarflokkurinn á
að fá þetta. Það er skynsamlegt að
tengja hann þannig ríkisfjármálum, og
er betra fyrir stjómarsamstarfið."
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
sem áður var vitnað til, sagði að sjálf-
stæðismenn gengju út frá því að fá
fimm manns í nefndina gegn því að
gefa formennskuna eftir. Ellefu þing-
menn sitja í tjárlaganefnd, og því ljóst
að aðeins tveir framsóknarmenn
Jón Kristjánsson tilvonandi for-
maður fjárlaganefndar: Betra fyrir
stjórnarsamstarfið að Framsókn fá
formennskuna.
„Kandídatinn". Geir Haarde sagði
Sturlu kandidat Sjálfstæðisflokks-
ins - en nú er Ijóst að hann verður
af formennsku í fjárlaganefnd.
fá sæti þar.
Nú liggur íyrir að sjálfstæðismenn
fá formennsku í utanríkismálanefnd,
og þar takast á Ámi R. Árnason og
Lára Margrét Ragnarsdóttir. Staða
Lám Margrétar þykir sterkari vegna
mikillar gagnrýni að undanfömu á rýr-
an hlut kvenna í Sjálfstæðisflokknum.
Heimildamaður blaðsins taldi einnig
að Tómas Ingi Olrich hefði hug á
formennsku í utanríkismálanefnd, en
hann ætti htla möguleika.
Ekki hefur verið gengið frá for-
mennsku eða skipan í aðrar nefndir.
„Allt annað hefur verið sett á ís meðan
þessar deilur um fjárlaganefndina
stóðu yfir,“ sagði þingmaðurinn.
Lagt á ráð Þingflokkur sjálfstæðismanna valdi Geir H. Haarde áfram sem for-
mann sinn, að tillögu Davíðs Oddssonar, á fundi í gær. Geir stakk síðan upp á Sigríði
Önnu Þórðardóttur sem varaformanni þingflokks og Sólveigu Pétursdóttur sem ritara.
Með þessu eru sjálfstæðismenn að reyna að koma nokkuð til móts við harða gagnrýni
innan flokksins á rýran hlut kvenna. A- m¥nd: e.ói.
■ Kveður við nýjan tón úr Bændahöllinni
Þurfum að losna
úr kvótakerfinu
- segir Sigurgeir Þorgeirs-
son framkvæmdastjóri
Bændasamtaka íslands.
„Ég hef aldrei farið dult með þá
skoðun mína að menn eigi að setja
markið á að losna út úr þessu kvóta-
kerfi. Ég held hins vegar að það sé
ekki raunhæft að setja það upp þannig
að leggja kvótakerfið niður frá og með
næsta hausti eða eitthvað svoleiðis.
Að mínu áliti eiga Bændasamtökin að
reyna að móta sér stefnu í þá veru að
losna frá kvótastýringu í sem allra
mestum mæli,“ segir Sigurgeir Þor-
geirsson, nýráðinn ffamkvæmdastjóri
Bændasamtaka íslands, í viðtali við
Alþýðublaðið í dag.
Sigurgeir segir ennfremur að hann
sé því fýlgjandi að einhver samkeppni
komist á við sölu á landbúnaðarvörum
með innflutningi búvara. Viðhorfm í
þjóðfélaginu hafi verið að breytast og
landbúnaðurinn hljóti að verða að
mæta því að um einhverja samkeppni
verði að ræða.
,JLandbúnaðurinn hefur um áratuga-
skeið verið mjög miðstýrður. Heildar-
kvótinn snýr að innanlandsmarkaði og
framleiðsla þar umfram er á ábyrgð
bændanna sjálfra og sölusamtaka
þeirra og svo hefur verið frá árinu
1992. Landbúnaðurinn hefur því um
þriggja ára skeið þurft að leysa sín
markaðsmál sjálfur en áður. Fram til
1992 má segja að bæði 1 mjólkur- og
Sigurgeir Þorgeirsson: Menn eiga
að setja markið á að losna út úr
þessu kvótakerfi. A-mynd: E.ÓI.
kindakjötsframleiðslu hafi landbúnað-
urinn ekkert þurft að hugsa um mark-
aðsmál. Það var ákveðið fast verð fyr-
ir tiltekið magn, punktur og basta.
Þetta er liðin tíð,“ segir Sigurgeir.
Hann telur einsýnt að það verði að
aðstoða bændur fjárhagslega sem vilja
bregða búi með því að kaupa jarðir
þeirra. Þá gætu þeir bændur notað
peningana til að koma sér upp annani
atvinnu á staðnum eða flutt í burtu og
notað peningana til að koma fótunum
undir sig annars staðar.
- Sjá viðtal á blaðsíðu 7.
■ Páll Skúlason
Siðmenninain
vanþroskuð
„Verkmenning
fslendinga er nán-
ast engin því bók-
menningin - bók-
menntunin og bók-
námið - hefur allt-
af haft forgang yfir
hana,“ segir Páll
Skúlason heim-
spekiprófessor í
samtali við Al-
þýðublaðið í dag. Og Páll er ekki par-
hrifinn eftir kynni sín af íslenskri sið-
menningu: „fslensk siðmenning er að
ýmsu leyti afar vanþroskuð. Við höf-
um lifað mjög lengi í frekar lokuðu
samfélagi og halt tiltölulega lítil sam-
skipti við aðrar þjóðir. Ákveðnir um-
deilanlegir siðir hafa því vaxið og
dafnað hjá okkur á meðan þeir hafa
ekki gert það annarsstaðar - hvorki í
Evrópu né Bandaríkjunum."
-Siá blaðsíðu 6.
■ Formannsslagur framundan í Alþýðubandalaginu
Margrét gefur kost á sér
Guðrún Helgadóttir: Framboð Margrétar væri hið besta mál. Það ertími tilkominn að kona fari að stjórna þessum flokki.
„Margrét Frímannsdóttir hefur
staðfest í samtölum við stuðnings-
menn sína innan flokksins að hún
muni gefa kost á sér til formennsku,"
sagði áhrifamaður í Alþýðubandalag-
inu í samtali við Alþýðublaðið í gær.
Þarmeð er ljóst að allt stefnir í slag
Margrétar og Steingríms J. Sigfús-
sonar um formannsstólinn sem Olaf-
ur Ragnar Grímsson stendur uppúr í
haust. Ekki náðist í Margréti, en fleiri
alþýðubandalagsmenn sem rætt var
við, staðfestu að yfirgnæfandi líkur
væru á framboði Margrétar.
Allir félagar Alþýðubandalagsins
hafa kosningarétt í formannskjöri og
fer atkvæðagreiðslan skriflega fram.
Kosið er samtímis um formann og
varaformann, og tilhögun kosning-
anna hefur í för með sér, að sá sem
verður undir í formannskjöri getur
ekki gefið kost á sér til varafor-
mennsku. Margrét Frímannsdóttir
hefur verið þingmaður Alþýðubanda-
lagsins á Suðurlandi síðan 1987, og
gegndi formennsku í þingflokknum
um skeið. Svavar Gestsson nýkjör-
inn formaður þingflokksins vildi ekk-
ert tjá sig um málið í samtali við Al-
þýðublaðið í gærkvöldi. Hann sagðist
bíða með allar yfirlýsingar uns
Margrét hefði sjálf sagt sér að hún
gæfi kost á sér.
„Mér lfst svo sannarlega ekki illa á
þetta," sagði Guðrún Helgadóttir
varaþingmaður Alþýðubandalagsins.
„Framboð Margrétar væri hið besta
mál, en eflaust koma fleiri framboð
fram. Ég tel ekki ólíklegt að ég muni
styðja Margréti ef hún gefur kost á
sér. Það er tími tilkominn að kona fari
að stjóma þessum flokki.“
Yfirgnæfandi líkur á formannsslag millum Margrétar Frímannsdóttur og
Steingríms J. Sigfússonar.