Alþýðublaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐtÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 m e n n i n c ■ Ginger Rogers öll # - aI&j J Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um Ginger Rogers - sem dansaði sig inn í öll heimsins hjörtu ásamt Fred Astaire. Fyrir örfáum dögum birfu heimsblöð- in fréttir af láti hinnar áttatíu og þriggja ára gömlu leikkonu, Ginger Rogers, og um leið minnmst þau hennar, fyrst og ffemst, sem annars helmingsins af frag- asta danspari kvikmyndasögunnar. Gin- ger Rogers lék í tíu kvikmyndum með Fred Astaire og það voru þær myndir, en ekki Óskarinn er bún hlaut, sem tryggðu henni ódauðlega frægð. Kvikmyndaleikstjórar á borð við Fellini og Woody Allen hafa hyllt dansparið í myndum sínum. Fellini í kvikmynd sinni Ginger og Fred og Woody Allen í Purpurarósinni frá Kai- ró þar sem hin mædda Mia Farrow sest inn í kvikmyndahús þar sem verið er að sýna mynd með Ginger og Fred og eftir örskamma stund færist geislandi bros yfir andlit hennar. Skilaboð Allens til áhorfenda voru skýr, og á þá leið að í dansi þessa pars væri að fmna þá fúll- komnu skemmtun sem færir vonsvikn- um nýja von. Kvenhelmingur hins fræga pars fæddist árið 1911 og var skírð Virginia Katherine McMath. Móðir hennar, sem var handritahöfundur og gagnrýn- andi, bjó yfir óslökkvandi metnaði fyrir hönd dóttur sinnar og notaði áhrif sín til að útvega henni hlutverk í revíum. Leið- in lá loks á Broadway þar sem hinni ungu Ginger Rogers, eins og hún hét nú, buðust smáhlutverk. Þar kynntist hún Fred Astaire sem líkt og hún hafði áhuga á þvf að starfa í kvikmyndum. Ginger komst á samning í Hollywood en vakti ekki verulega athygli fyrr en hún lék í söngvamyndinni, 42nd Street, þar sem hún sagði hnyttnustu setningu myndarinnar um lausláta stúlku: ,J eina skiptið sem hún sagði nei var það vegna þess að hún heyrði ekki spuminguna." Ginger og Fred Hlutverkin í söngvamyndunum urðu æ fleiri. Um það leyti sem henni var boðið aukahlutverk í myndinni, Flying Down to Rio ásamt Fred Astaire hafði hún ákveðið að hætta að leika í söngva- myndum. Hún sagði við Astaire: ,JÉg vil ekki leika í fleiri söngvamyndum, en líklega verður þetta allt í lagi, við ættum allavega að geta skemmt okkur vel.“ Astaire trúði henni fýrir því að hann sæi enga ffamtíð fyrir dansara í kvikmynd- um. Þótt Astaire og Rogers væru ekki í aðalhlutverkum stálu þau myndinni um leið og þau stigu á dansgólfið. Á næstu sex árum léku þau saman, og dönsuðu, í níu kvikmyndum og samstarf þeirra kom af stað dansæði í Bandaríkjunum. Söguþráðurinn í myndunum var yfir- leitt ekki upp á marga fiska, en það skipti ekki máli meðan þeim gafst tæki- færi til að dansa. f stuttu máli má lýsa söguþraðinum svo: Astaire sér Rogers og verður samstundis ástfanginn. Hún lætur eins og hún hafi ekki áhuga með- an hann eltir hana um allar trissur. Und- orðaði Katharine Hepbum það best þeg- ar hún sagði: „Hún gæðir hann kyn- þokka og hann gæðir hana glæsileika." Milli Astaire og Rogers féll aldrei styggðaryrði en Rogers viðurkenndi að sér hefði stundum fundist erfitt að vinna með honum þar sem einbeiting hennar hefði ekki jafnast á við hans. Ginger Rogers þótti reyndar hinn mesti vinnu- þjarkur á Hollywoodmælikvarða en enginn tók þó Astaire ffam í vinnuhörku og einu sinni lét hann Ginger endurtaka atriði svo oft að þegar hann loks var orðinn ánægður þá lak blóðið úr fótum hennar. Lif an Freds Ginger þótti hörkudugleg, áreiðanleg, glaðlynd og geðsleg kona, en hún var metnaðargjöm og þótti þeim metnaði ekki nægilega svalað í dans- og söngva- ^^myndum. Hún vissi sem var hún hefði ágæta leikhæfi- A efri árum hljóp þessi viðkunnanlega og for- ríka kvikmyndastjarna í spik og varð í útliti ekki ósvipuð Barböru Cart- land, með stríðsmáln- ingu, klædd víðum kjól- um sem minntu á segl. ir lok myndar viðurkennir H 1 hún ást sína í löngum dansi [ þeina. Lagahöfundar á borð við I George Gershwin, Cole Porter, Jerome Kern og Irving Berlin sömdu lög j fyrir þessar kvikmyndir. Meðal frægra laga má I nefna: Night and Day, The Way You Look Tonight og Let’s Call the Whole Thing j Qff, A hvíta tjaldinu var Fred veraldarvan- ur, þokkafullur og fimur. Ginger var töfrandi, fersk og lífleg. Saman voru þau fullkomin. Um þau átti við hið sama og um pörin, Bogart og Bacall og Tracy og Hepburn að í samstarfi með hinum aðilanum voru þau hvert um sig mikilfenglegri en þegar þau léku ein. Og þetta eru stór orð þar sem Rogers ein síns liðs var á góðum degi ffábær leikkona og Astaire var, eins og allir ættu að vita, besti dansari kvikmynda- sögunnar. En ólíkt Bogart og Bacall og Tracy og Hepbum, höfðu þau í einkalífinu litla þörf hvort fyrir annað og áttu fátt sam- eiginlegt. Hann var hlédrægur full- komnunarsinni og forðaðist sviðsljósið. Hún naut þess að vera kvikmynda- stjama og sóttist eftir athygli. Astaire var hamingjusamlega giftur og var ekki haldinn þeini áráttu margra karla að horfa áhugasamastur á aðrar konur en sínar eigin. Rogers var nokkuð gefln fyrir endumýjun í hjónabands- bransanum, giftist og skildi alls fimm sinnum að hætti sannra Hollywood- stjama og var aldrei svo lengi í hjóna- bandi að tími gæfist til að eiga böm. Ginger Rogers, sem var ekki forynja eins og Joan Crawford, vissi að ungar leikkonur biðu við dyrnar reiðubúnar að stela frá henni sen unni. Það var sagt að hin heittelskaða eig- inkona Astaire bannaði honum að kyssa Rogers á hvíta tjaldinu, en Astaire sagð- ist sjálfúr vera Útið gefinn fyrir opinbert kossaflens, sér liði eins og bjána þegar hann væri að kyssa konur fyrir framan kvikmyndavélar. Ginger var ekki uppáhaldsdansfélagi Astaire. Hann hafði mest dálæti á Cyd Charisse, leggjalangri ballerínu sem bjó yfir mikilli tækni og fágun, en skorti þá líflegu persónutöffa sem Ginger bjó yfir og honum þótti greinilega vænst um Judy Gariand. Það vom reyndar fjöl- margar dansmeyjar sem tóku Ginger fram í tækni, en eins og vinur Astaire, danshöfundurinn Hermes Pan sagði, „þá skipti það engu, því eitthvað við Ginger gerði það að verkum að Fred Astaire varð rómantískasta kvikmynda- hetjan síðan Gable kom ffam og hann hóf hana upp í æðra veldi.“ Kannski Ginger þótti hörkudugleg, áreiðanf" leg, glaðlynd og geðsleg kona, en hún var metnaðargjörn og þótti þeim metnaði ekki nægilega sval- að í dans- og söngvamyndum. leika og sóttist því eftir dramatískum hlutverkum. Samstarfi þeirra Fred lauk árið 1939, en þau endurnýjuðu það reyndar tíu árum síðar í einni kvikmynd sem gerði mikla lukku. Ginger hellti sér út í dramatíkina með ágæmm árangri og hún hreppti Óskarsverðlaun, reyndar fremur óvænt, fyrir leik sinn í grát- myndinni, Kitty Foyle. En stundum hef- ur Óskarinn sömu áhrif og Nóbelinn; mestu tilþrifm skolast burt með veg- semdinni. Leið Ginger lá nú niður á við, hlutverkin urðu flest tilþrifalítil og eins og einhver eiturtungan orðaði það, þá var meiri breidd í hárgreiðslu leikkon- unnar en í leik hennar. Aldurinn færðist yfir, tilboðum fækkaði og eiginmenn Ginger og Fred: Kannski orðaði Katharine Hepburn það best þegar hún sagði: „Hún gæðir hann kyn- þokka og hann gæðir hana glæsi- leika." komu og fóru. Hið síðastnefnda fékk kannski ekki svo mikið á leikkonuna því hún hafði uppgötvað það sem furðu margir einstaklingar komast að raun um, semsagt að besti og tryggasti lífs- förunauturinn er mamma. Reyndar hafði faðir Ginger stungið af mörgum árum áður, sem vart er hægt að lá hon- um því þær sögur sem fara af mömm- unni benda ekki til að hún hafi verið sæmilega þolanleg í sambúð þótt Gin- ger hafi elskað hana umfram aðrar mannverur og haft hana í heiðurssæti á heimili sínu áratugum saman, eigin- mönnunum fimm til verulegs ama. Móðirin stjómsama, Leila Rogers, var eitt samvinnufúsasta vitni óamer- ísku nefndarinnar á McCarthy-tíman- um. Hún átti ekki í vandræðum með að

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.