Alþýðublaðið - 11.05.1995, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 11.05.1995, Blaðsíða 1
■ Formannsslagurinn í Alþýðubandalaginu að komast á fullt skrið „ IMý kynslóð fólgin í mér" - frekar en í Margréti Frímannsdóttur, segir Steingrímur J. Sigfússon. Sérkennilegar athugasemdir Ólafs Ragnars Gríms- sonar, formanns flokksins, hafa vakið athygli varaformannsins. „Ég tefli mér fram bara sem ein- staklingi og minni reynslu. Síðustu átta til tíu árin hef ég verið formaður þingflokksins, ráðherra og varafor- maður flokksins og tel mig þvf hafa góða reynslu og bærilegan bakgrunn til að takast á við formennskuna. Ég á mína stuðningsmenn um allt land þótt ég finni eflaust eitthvað annað nafn á þá en Landsnet,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon, alþingismaður og varaformaður Alþýðubandalags- ins, í samtali við Alþýðublaðið. Steingrímur hefur sem kunnugt er lýst því yfir að hann gefi kost á sér til formanns í Alþýðubandalaginu. í dag mun Margrét Frímannsdóttir alþingismaður tilkynna framboð sitt til Ólafs Ragnars Grímssonar, for- manns flokksins, og ljóst að allt stefnir í harðan slag þeirra í millum. „Ég hef undanfamar vikur, mán- uði og misseri fengið mjög víðtæka hvatningu og áskoranir um að taka að mér formennskuna. Ég er fulltrúi sömu kynslóðar og Margrét og er raunar yngri en hún. Því er enn frek- ar nýr tími og ný kynslóð fólgin í mér heldur en henni. Ég bind að sjálfsögðu vonir við það að mitt kjör gæti orðið upphaf nýs tíma og það hæfist nýtt uppbyggingarskeið í flokknum. Ég hef mikinn áhuga á að efla flokkinn sem forystuflokk vinstri manna í íslenskum stjómmál- um. Það er stóra verkefnið sem ég sé í þessu og því fyrr sem við getum snúið okkur að því máli því betra. Þess vegna hef ég áhuga á að við reynum að hafa landsfundinn í fyrra fallinu og mun leggja það til,“ sagði Steingrímur. Því hefur þráfaldlega verið haldið fram að Ólafur Ragnar Grímsson hyggist endurheimta formannsstól- inn við fyrsta tœkifœri. Ert þú tilbú- inn til að standa upp fyrir honum ef til kemur? „Nei, alls ekki. Ég býð mig fram til að sinna þessu tilskilinn tíma eða að minnsta kosti til þeirra sex ára sem er hið almenna kjörtímabil. Ég vil taka fram í leiðinni að ég ætla Margréti það heldur ekki að bjóða sig fram sem einhver afleysingamað- ur. Mér dettur það ekki í hug og ber Steingrímur: Ég ætla mér sigur. fulla virðingu fyrir henni sem mót- frambjóðanda. En út af fyrir sig hafa þessar sérkennilegu athugasemdir formanns flokksins vissulega vakið athygli mína.“ Landsnet stuðningsmanna Margr- e'tar segir framboð hennar uppgjör við flokkadrœtti og deilur liðins tíma. Ert þú hluti af þessum flokka- dráttum? Margrét: Ég er raunar yngri en hún. „Ég ætla ekki að lesa þama neitt milli línanna. Það talar hver fyrir sig og það er best að hver lesi það sem honum hentar út úr þessu. Ég legg áherslu á kosningarnar fari vel og prúðmannlega fram og baráttan verði uppbyggileg og málefnaleg. Ég mun hins vegar heyja þessa baráttu af fullri alvöru og ætla mér sigur.“ Áttu von á að fylgið skiptist milli Ólafur Ragnar: Sérkennilegar yfir- lýsingar. ykkar Margre'tar eftir kjördœmum ? „Það má ætla í grófum dráttum að okkar kjördæmi standi á bak við sinn mann. Én sem betur fer er það þann- ig að þegar kemur að því að loka þessu umslagi þá eru menn einir og gera þetta upp við sig sjálfir. Von- andi getur það gerst á málefnalegum og heiðarlegum forsendum," sagði Steingrímur J. Sigfússon. ■ Evrópumót í handflökun Bjór- bann á Evrópumeistara- og íslands- meistaramót í handflökun verður haldið 27. mai í stóru tjaldi á mið- bakkanum við Reykjavíkurhöfn. Aðstandendur mótsins viija taka sérstaklega fram að sala og neysla á áfengu öli sé bönnuð á keppnis- stað. Keppnin er nú haldin í sam- vinnu við Reykjavíkurborg og nokkur fyrirtæki. íslandsmót í handflökun var fyrst haldið í fyrra en nú eru líkur á að nokkrir erlendir keppendur taki þátt og munu þeir sem og íslensku kepp- endurnir geta unnið til Evrópu- meistaratitils. Dæmt verður eftir gæðum, nýtingu og hraða. Verð- laun fyrir þrjá efstu íslendingana verður ferð til Humber-svæðisins í Englandi. Óhlutbundið myndmál og teiknimyndir Kristjáns og Bjarna Á laugardag verða opnaðar þrjár myndlistarsýningar á Kjarvalsstöðum: Kristján Steingrímur er einn þeirra listamanna sem hefur tileinkað sér óhlutbundið myndmál og er þarna með sín nýjustu verk. Bjarni Hinriksson er einkum þekktur fyrir teikni- myndir sínar og er þetta í fyrsta skipti sem Kjarvalsstaðir efna til sýningar á þeirri tegund myndlistar. Rúsínan í pylsuendanum er síðan Guðmundur Einarsson frá Miðdal eða öllu heldur verk hans (í baksýn), en sýningin er í tilefni af aldarminningu listamannsins. A-mynd: E.ÓI. Eggert G. Eggert G. Þorsteinsson, fyrrver- andi ráðherra Alþýðuflokksins, lést á sjúkrahúsi í Reykjavík síðastliðinn þriðjudag. Hann var fæddur 6. júlí 1925 og var því á sjötugasta aldurs- ári. Eggert var fæddur í Keflavík en lauk sveinsprófi í múrsmíði frá Iðn- skólanum í Reykjavík 1947. Hann var þingmaður Alþýðuflokksins 1953 til 1978. Sjávarútvegs- og fé- lagsmálaráðherra 1965 til 1971 og heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra 1970 til 1971. Eggert var for- seti efri deildar Alþingis 1959 og síðan varaforseti deildarinnar. Hann var framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1972 til 1979 að Þorsteinsson látinn hann var ráðinn forstjóri Trygginga- stofnunar ríkisins. Því starfi gegndi hann þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1993. Eggert gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum og má þar nefna að hann átti sæti í mið- stjóm Alþýðuflokksins frá 1948 til 1988, var varaforseti ASÍ 1958 til 1960 og í stjóm Jámblendifélagsins 1975 til 1982. Eftirlifandi eiginkona Eggerts er Helga Soffia Einarsdóttir fyrrver- andi yfirkennari. Fyrri kona hans var Jóna Jónsdóttir sem lést árið 1981. Börn þeirra eru Þorsteinn héraðs- dómslögmaður, Jón Ágúst deildar- stjóri, Eggert rafeindavirki og Guð- björg sjúkraþjálfari. Eggert G. Þorsteinsson, fyrrverandi ráðherra Alþýðuflokksins er látinn. ■ Öm Magnússon, framkvæmdastjóri HSI, hótaði að reka stuðningsmanna- klúbb landsliðsins úr húsi „Brot á mann- réttindum " - segir Gunnar Jón Yngvason, formaður A-klúbbsins, en hópnum var meinað að klæðast landsliðsbúningum með Pepsi- auglýsingu. A-kiúbburinn: „Framkvæmdastjóri HSÍ beitti okkur andlegu ofbeldi með hótunum sínum," segir Gunnar Jón Yngvason, formaður, sem verið hefur helsti stuðn- ingsmannaklúbbur landsliösins undanfarin fimm ár. A-mynd: E.ÓI. Framkvæmda- stjóri HSÍ, Örn Magnússon, hót- aði stuðnings- mannaklúbbi ís- lenska landsliðsins brottrekstri úr Laugardalshöll skömmu íyrir leik íslands og Túnis í fyrrakvöld. Ástæðan fyrir þessari hótun var sú að meðlimir klúbbsins klæðast búningum íslenska landsliðsins og á þeim er auglýsing frá Pepsi. Þessar auglýsingar frá Pepsi munu hafa farið fyrir brjóstið á framkvæmdastjóra HSÍ vegna þess að einn af stuðningsaðilum HM ’95 er aðalkeppinautur Pepsi: Coca Cola á íslandi. „Ég get staðfest það að fram- kvæmdastjóri HSÍ kom til okkar fyrir leikinn og hótaði því að ef við færum úr æfingajökkunum og létum sjást í Pepsi-auglýsinguna þá yrði okkur vís- að úr höllinni," sagði Gunnar Jón Yngvason, formaður A- klúbbsins, sem verið hefur helsti stuðnings- mannaklúbbur landsliðsins undanfarin fimm ár. Gunnar sagði þetta koma mjög á óvart, því allir starfsmenn á skrifstofu HSI og Ólafur Schram, formaður HSÍ, hafi vitað af þessari auglýsingu frá Pepsi á búningum A- klúbbsins. „Við emm að kaupa þessa búninga af Adidas fyrir 8000 krónur og leituð- um því eftir auglýsingum á þá frá nokkmm styrktaraðilum, þar á meðal Coca Cola“, sagði Gunnar. Gunnar sagði að ffamkvæmdastjóri HSf hafi vitnað í reglur Alþjóða hand- knattleikssambandsins, IHF, máh sínu til stuðnings en ekki svarað neinu þeg- ar hann var beðinn um að sýna regl- umar á blaði. „Þetta er ekkert annað en brot á mannréttindum, það getur enginn bannað okkur að klæðast þess- um búningum eða skipað okkur að vera í yfirhöfnum til þess að fela aug- lýsingar frá okkar styrktaraðila. Framkvæmdastjóri HSÍ beitti okkur andlegu ofbeldi með hótunum sínum. Þetta eyðilagði alla stemmningu í hópnum og við vorum frekar niðurlút á leiknum eftir þessa uppákomu eins og sjónvarpsáhorfendur hafa sjálfsagt tekið eftir“, sagði Gunnar. Ekki náðist í framkvæmdastjóra HSÍ í gær vegna málsins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.