Alþýðublaðið - 11.05.1995, Side 3
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Að villast blindfullur á glapstigum
sjálfstæðis
„Spáiði í ógæfuna sem myndi fylgja ákvörð-
unarrétti okkar yfir eigin lífi: við myndum
örugglega alltaf vera blindfull á handbolta-
leikjum og farandi okkur sjálfum að voða að
minnsta kosti tvisvar í viku. Ennfremur mynd-
um við vitaskuld fara að myndast til að byggja
upp ábyrgðartilfinningu innra með okkur og
færum að skipta okkur af hlutum sem okkur
koma ekki við."
Mikið er nú gott að geta bara svifið
áfram á sæluskýi í lífinu án þess að
þurfa að hafa áhyggjur af því að fara
sér að voða. Mikið er nú gott að þurfa
ekki að bera ábyrgð á eigin h'fi. Við
íslendingar erum nefnilega svo lán-
samir að hér höfum við stjórnvöld
Pailborðið |
sem passa upp á það að fólkið í land-
inu glati ekki sálu sinni einhversstaðar
á kafi í valkostahafi nútímaþjóðfélags-
ins. Vegna þess hversu heppin við er-
um með stjómvitra leiðtoga getum við
hfað lífinu algjörlega án þess að óttast
það, að vegna heimsku okkar rötum
við ekki rétta leið. Stjómvöld tryggja
okkur áhyggjulaust hf, vega og meta
valkostina fyrir okkur og afleiðingin
er sú, að það er hreinlega ómögulegt á
íslandi í dag að villast á glapstigum
sjáhstæðs hfs og ábyrgðar. Hjúkk!
Dæmi um þessa umhyggjusemi
stjómvalda er umræðan um bjórsölu
og bjórauglýsingar á HM ’95. Stjóm-
völd reyndu eins og þau gátu að passa
það, að við myndum ekki fara á fyllerí
á boltaleikjunum og komu í veg fýrir
það að við þyrftum að rekast á barinn í
hölhnni. Með frækilegum hætti tókst
að bola bjómum út úr húsi og inn í
rækilega falið tjald sem stendur víst
þama nærri. Mikið getum við verið
fegin. Við eigum auðvitað ekkert er-
indi í tjaldið nema við ætlum að fá
okkur bjór og engin hætta er á að
maður þurfi að beijast við þá freist-
ingu: við finnum ekki tjaldið og þaraf-
leiðandi finnum við ekki bjórinn.
Það var einnig með herkjum að
tókst að afstýra því að bjórauglýsingar
fengju að berja sér leið inn í undir-
meðvitund okkar. Á síðustu stundu
var þeim breytt í léttölsauglýsingar og
léttöl er að sjálfsögðu ekkert hættulegt
fyrir okkar. Hver býst við því að við
þessa heimska þjóð föttum samhengið
milli Warsteiner-léttöls og Warstein-
er-bjórs?
Með þessum frækilega vamarsigri
stjómvalda yfir illum spillingar- og
fijálsræðisöflum tókst að afstýra því
að ahir íslendingar fæm á fyllerí í til-
efni af heimsmeistarakeppninni. Og
enn einu sinni þurftum við ekki einu
sinni að hafa fyrir því að velja sjálf,
frábært!
Stjórnvöld hafa margsinnis sýnt
okkur snilh sína í þessum efnum með
alveg hreint brilljant aðgerðum. Dæmi
um það er opnunartími skemmtistaða
sem er takmarkaður svo við föllum
ekki í þá gryíju að skemmta okkur of
lengi. Við þurfum heldur ekki að hafa
áhyggjur af því að velja milli fram-
leiðenda á mörgum vömm, til dæmis
mjólk, kjöti og öðmm landbúnaðar-
vörum. Persónulega er ég einna
ánægðastur með að hafa verið vemd-
aður fyrir ásókn hins illa og stórhættu-
lega nammis, M&M.
. Gmndvallarmálið hlýtur auðvitað
alltaf að vera það að vegna heimsku
okkar þegnanna getum við ekki tekið
ábyrgð á lífi okkar og því verða
stjómvöld að bera þá byrði: þessari
hræðilegu kvöð hefur verið lyft af
herðum okkar. Og það besta er að við
getum verið viss um það að þeir sem
velja lífi okkar farveg á hveijum tíma
em alltaf skynsamastir okkar allra og
ávaht með hag þegnanna efst í huga.
Með því að láta okkur aldrei standa
í því að velja okkur lífsform hefur
stjórnvöldum líka tekist að Iétta af
okkur þeim að þurfa vesenast í því að
hafa áhrif á þjóðfélagið. Við látum
bara stjómvöld ákveða hvað okkur er
fyrir bestu enda getum við treyst þeim
fýlhlega. Við erum laus við það arga-
þras sem felst í að breyta heiminum
og við þurfum ekkert að eyða tíma
okkar í að efast um hæfhi stjómvalda.
Á þennan hátt hefur tekist að skapa
þjóðfélag þar sem fínumar em skýrar
og allir lifa sáttir við sitt.
Spáiði í ógæfuna sem myndi fýlgja
ákvörðunarrétti okkar yfir eigin lífi:
við myndum örugglega alltaf vera
blindfull á handboltaleikjum og far-
andi okkur sjálfum að voða að
minnsta kosti tvisvar í viku. Ennfrem-
ur myndum við vitaskuld fara að
myndast til að byggja upp ábyrgðartil-
finningu innra með okkur og fæmm
að skipta okkur af hlutum sem okkur
koma ekki við og þá væri nú iha kom-
ið fyrir þeirri fallegu og góðu ímynd
sem þjóðfélag okkar hefur. Og það
sem verst væri - það myndi kannski
eitthvað breytast.
Hvar stæðum við þá?
Höfundur er félagsráðgjafarnemi.
Innan Alþýðubandalagsins
eru uppi vangaveltur um
framtíð Ólafs Ragnars
Grímssonar í stjórnmálum.
hann verður samkvæmt lög-
um flokksins að láta af for-
mennsku í haust. Ýmsir töldu
að með tilkomu óháðra
myndi Ólafur láta á það reyna
hvort ákvæðin sem takmarka
formennsku við sex ár væru
ekki tæknilega fallin úr gildi
þarsem Alþýðubandalagið
og óháðir væru í raun nýr
stjórnmálaflokkur, og hann
gæti því látið endurkjósa sig
önnur þrjú ár. Enginn vilji er
til þess innan flokksins, enda
eru flokksmenn fremur
óhressir með frammistöðu
formannsins í kosningabarátt-
unni. Ljóst er því, að liklega
verður Margrét Frímanns-
dóttir eða Steingrímur J.
Sigfússon næsti formaður
flokksins. Þá er hins vegar
engin áhrifastaða laus fyrir
Ólaf Ragnar, enda Svavar
Gestsson nýlega orðinn for-
maður þingflokksins. Ýmsir í
flokknum telja því ekki ólíklegt
að Ólafur hverfi af þingi á
kjörtímabilinu og muni leita
fyrir sér um áhrifastöður á er-
lendum vettvangi, meðan
hann er enn á góðum aldri og
í fullu fjöri. Efalítið gæti hann
orðið sendiherra ef hugur
hans stæði til þess og nefna
menn þá oftast New York, þar
sem tengsl hans innan Sam-
einuðu þjóðanna kæmu að
góðum notum. Ekki er heldur
talið ólíklegt, að Ólafur kynni
að hverfa til starfa hjá ýmsum
þeirra alþjóðasamtaka sem
hann hefur komið nálægt, og
nefna menn þá helst selskap-
inn Parliamentariansfor
Global Action...
'T’alsverður vandræðagang-
I ur hefur verið á nýju ráð-
herrunum sem Framsókn
setti inn í ríkisstjórnina. Eink-
um hefur Finnur Ingólfsson
verið laginn við að hrasa um
bananahýðin. Á föstudaginn
komst hann í fréttirnar þegar
innheimtumenn ríkissjóðs
klipptu númerið af bílnum
hans, þar sem hann stóð und-
ir húsvegg Arnarhváls, vegna
vangoldins þungaskatts. Þótti
mörgum skondið að sjálfur
viðskiptaráðherra skyldi lenda
í klóm kollega síns í fjármála-
ráðuneytinu með þessum
hætti. Áður hafði Finnur
gefið yfirlýsingar um vaxta-
mál sem leiddu til þess að
innan bankaheimsins
gengur nýi vaxtamálaráðherr-
ann undir nafninu
vaxtaflóniö...
Ritstjóri Tímans, Jón Krist-
jánsson alþingismaður,
ætlaði í snöfurmannlegri
grein að koma kollega sínum
til varnar en varð það á að
kalla Finn Ingólfsson úlf-
alda. Innan Framsóknarflokks-
ins er því haldið fram, að
þetta hafi verið með ráðum
gert hjá Jóni, sem er laun-
hæðinn. Eftir að kom í ráðu-
neytið hafi fótaburðurinn hjá
Finni nefnilega verið klaufa-
legur, að helst hafi minnt á
úlfalda á gelgjuskeiði. Þar að
auki sýni yfirlýsingar hans um
vaxtamál að þekking hans á
því sviði minni helst á eftir-
lætisumhverfi úlfaldans, sem
er jú eyðimörk...
"FarSido" eftlr Gary Larson.
„Hvað er eiginlega á seyði í þessum stjórnmálaflokki7 A
virkiiega að taka lúðaleppann Pál Pétursson fram fyrir mig
og hækka hann í tign? Það kemur sko ekki til greina undir
neinum kringumstæðum að ég fari að taka við skipunum
frá einhverjum djö.. dreifbýlisvargi!“
f i m m
f ö r n u
Hverjir eru þrír bestu leikmenn íslenska handknattleikslandsliðsins?
Örlygur Smári, alltmögu-
legtmaður: Patrekur Jóhann-
esson, Valdimar Grímsson og
Geir Sveinsson.
Sigurður Örn Jónsson,
nemi: Valdimar Grímsson,
Geir Sveinsson og Patrekur Jó-
hannesson.
Dómhildur Karlsdóttir,
húsmóðir: Júlíus Jónasson,
Valdimar Grímsson og Geir
Sveinsson.
Ingibjörg Anna Arnars-
dóttir, verslunarmaður:
Jón Kristjánsson, Patrekur Jó-
hannesson og Geir Sveinsson.
Kristín Magnúsdóttir,
Mokka-mær: Olafur Stefáns-
son, Geir Sveinsson og Dagur
Sigurðsson.
v i t i m e n n
Klisjan um að konur eigi ekki að
fá störf eða völd „bara af því að
þær eru konur“, var búin til af
klókum karli til að sleppa við
samkeppni kvenna. -
Valgerður Bjarnadóttir, starfsmaður EFTA, í
Mogga-grein í gær þarsem hún veltir fyrir sér
konum og völdum og segir Kvennalistann enn
nauðsynlegan þegar öllu sé á botninn hvolft.
Uppreisnarleiðtogi Kúrda:
Segist ekki hafa verið drepinn.
Tíminn í gær sýndi og sannaði að þar á
bæ eru menn óðum að komast aftur á flug í
fyrirsagnasmíðinni.
Þær tilskipanir Evrópusambands-
ins um jafnrétti og jöfn laun
kvenna og karla, sem eru hluti
af samningnum um Evrópskt efna-
hagssvæði, ganga iengra en íslensk
jafnréttislöggjöf. Ástæða er því
til að jafnréttislöggjöfin verði
endurskoðuð sem fyrst
Haft eftir Elsu B. Þorkelsdóttur, framkvæmda-
stjóra Skrifstofu jafnréttismála. Mogginn í gær.
Eflaust gerir Jón Baldvin
nú allt sem hann getur til að halda
stjómarsamstarfinu við
Sjálfstæðisflokkinn áfram.
Frekar síðbúin grein Guðmundar P. Valgeirsson-
ar bónda sem birtist í Tímanum í gær.
...barnaskóli hér fær eigi staðist
nema með þvingun, og í annan
stað, þar sem bæjarbúar hafa eigi
sjálfkrafa stofnað neina bama-
skólamynd, er það hin ljósasta
sönnun þess, að mönnum þykir
eigi þörf á bamaskóla eða flnni
til þeirrar þarfar.
Tilvitnun í nýjasta tölublaöi Kennarablaðsins
í ræðu sem haldin var á Alþingi á því
herrans ári 1859.
Eftir ítarlegar umræður síðustu
ára um stöðu kvenna og sjálfsmynd
konunnar hefur mörgum þótt
tímabært að karlar tækju sig sam-
an í andlitinu og litu f eigin barm.
Ofurmeðvitað smáspjall um karlaráöstefnuna
í Stokkhólmi (maítölublaði
Vinnunnar - tímarits ASÍ.
V e f n u m
halda áfram
krossferð
sinni gegn
klámi á Net-
inu: Nálægt
botni sorans
er http:
I / w w w .
well.com/us
er/jef/nu
de.html þar
sem gefur nú
á að líta kviknaktar en þó sakleysis-
legar teiknimyndafígúrur og þaraf er
ein þeirra með svipu sem kynlífs-
leikfang. Hér eru síðan nokkur
hrikaleg Vefföng til viðbótar sem
gott væri ef lesendur settu sig í sam-
band við og lýstu andúð sinni:
■ MUNNMÖK http://www.io.
orgl~excelslors.html BSJÁLFS-
FLEKUN http://www.yahoo.
com/Society-and-Culture/
Sex/Masturbation/ ■KLÁMTÍMA-
RITIÐ HUSTLER http://hustler.
onprod.com/. Hversu lágt ætlar
tölvuheimurinn eiginlega að sökkva
áðuren...
Að minnsta kosti tuttugu og einn
maður fét lífið í sýrópsflóðbylgju í
Boston í Bandaríkjunum árið 1919.
Þannig háttaði til að rúmlega átta
milljónir lítra - tæp fjórtán tonn - af
bráðnum sykri voru geymd í tanki við
höfnina í Boston og af óvissum
ástæðum kom rifa á hann. Afleiðingin
varð sú að tæplega tuttugu metra
breið sýrópsflóðbylgja gjörsamlega
kaffærði átta byggingar og varð völd
að fyrmefndu mannfalli.
Byggt á tsaac Asimov's
Book Of Facts.