Alþýðublaðið - 16.05.1995, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n i r
Staðfast stefnuleysi
I„Það eina sem eftir stendur við lestur stjórn-
arsáttmálans er hversu illa hann er skrifaður,
hversu málfarið er vont og hugsunin óskýr.
Það boðar ekki gott."
í dag kemur Alþingi saman til vor-
þings. Hinn nýi Sólkonungur Sjálf-
stæðisflokksins og ábyrgðarfulli
landsfaðir, Davíð Oddsson, mætir til
leiks með nýju ríkisstjórnina sína,
sterka tveggja flokka stjórn eins og
lofað var í kosningabaráttunni. I takt
við foringja sinn munu framsóknar-
menn marsera þungbrýndir mjög í
þingsal - allir nema Páll Pétursson að
Pallborðið
Ijjfll Birgir
Hermannsson
m ii 'skrifar
sjálfsögðu, sem loks varð ráðherra eft-
ir langa bið. Okkur er tjáð að ríkis-
stjómin sé sterk eins og foringjamir,
en til hvaða verka þessi meinti styrk-
leiki verður notaður er með öllu óljóst.
Davíð Oddsson var afar ánægður
með stjómarsáttmálann. Það er ekki
skrýtið. Helsta vörumerki hans í
stjórnmálum er stefnuleysi í mikil-
vægum málum: því meiri moðsuða,
því betra fýrir flokkinn. Erfið mál ber
að þegja um eða lofa því að hlusta á
allar skoðanir eins og konunglegum
landsföður sæmir. í stjómarsáttmálan-
um segir því ekki neitt sem hönd er á
festandi. Það eina sem eftir stendur
við lestur sáttmálans er hversu illa
haxm er skrifaður, hversu málfarið er
vont og hugsunin óskýr. Það boðar
ekki gott.
Á vorþinginu mun stjómarandstað-
an að sjálfsögðu gera sitt besta til að
draga stefnuna upp úr nýbökuðum
ráðhermm, en væntanlega verður fátt
um svör, nema hvað ríkisstjómin hef-
ur að líkindum komið sér saman um
að pína neytendur með ofurtollum á
innfluttar landbúnaðarafurðir.
Ráðherramir ætla sér að nota sum-
arið til að skrifa hinn raunverulega
stjórnarsáttmála, verkefnaskrá fyrir
einstök ráðuneyti. Stjómarmyndunar-
viðræðurnar munu því standa fram
eftir sumri og verður ffóðlegt að sjá
hvort Framsóknarflokkurinn gengst
þar endanlega inn á stefnuleysi forsæt-
isráðherra og gleymir loforðum sínum
í kosningabaráttunni.
I stjóranarsáttmálanum er því heitið
að reka ríkissjóð án halla við lok kjör-
tímabilsins. Þetta er göfugt markmið,
en í stjómarsáttmálanum er ekkert að
finna um það hvemig þessu markmiði
verði náð. Síðasta ríkisstjóm stóð í
miklu stríði við að lækka ríkisútgjöld
og varð vel ágengt í þeim efnum þrátt
fyrir erfitt árferði.
Framsóknarflokkurinn gagnrýndi
síðustu ríkisstjóm harðlega fyrir nið-
urskurð og beindi þar spjótunum sér-
staklega að heilbrigðis- og mennta-
málum. Sighvatur Björgvinsson var
hvað eftir annað sakaður um að vinna
skem'mdarverk á heilbrigðiskerfinu,
meðal annars af Ingibjörgu Pálmadótt-
ur. Af yfirlýsingum nýrra ráðamanna
er ljóst að menntamálaráðherra og
heilbrigðisráðherra munu ekki standa
að frekari niðurskurði í sínum ráðu-
neytum.
Síst ber að gagnrýna aukinn hlut
menntamála í ríkisútgjöldum, en það
hlýtur óhjákvæmilega leiða til þess að
markmið ríkisstjómarinnar í ríkisfjár-
málum nást ekki, nema skorið sé niður
annars staðar á móti. Ekkert bendir til
þess að um slíkt sé samstaða innan
flokkanna eða á milli þeirra.
Áffam þarf að standa á bremsunni í
heilbrigðis- og tryggingamálum. Um
stefnuna í þeim málum verður ekki
mikið sagt fyrr en íjárlagafrumvarpið
kemur frarn í haust. Það er þó ljóst að
nýi heilbrigðisráðherrann getur ekki
tekið sér staðfast stefhuleysi forsætis-
ráðherra til fyrirmyndar vilji hún lifa
af í embætti, þó stjórnarsáttmálinn
bendi eindregið til þess að sú verði
raunin. Hvergi nær stjómarsáttmálinn
meira flugi en í kaflanum um utanrík-
ismál. Þar stendur alls ekkert sem máli
skiptir. Davíð Oddsson hefur löngum
haft þá stefnu að þegja beri um Evr-
ópusambandið líkt og það sé ekki til
og komi okkur ekki við. Þeirri stefnu
er fylgt í stjómarsáttmálanum. Því ber
þó að fagna að hin fjarstæðukennda
umræða um aðild fslands að NAFTA
ber ekki á góma, en ríkisstjómin vill
þess í stað kanna hugmyndir sem ffam
hafa komið „um fríverslunarsamstarf
Bandaríkjanna og annarra Atlantshafs-
ríkja og hvort í þeim felist sóknarfæri
fyrir íslensk fýrirtæki." Hér er auðvit-
að verið að tala um ffíverslunarbanda-
lag ESB og NAFTA.
Er hægt að sökkva dýpra í staðfast
stefhuleysið?
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Seinna á árinu stendur til
að halda veglegt mót í
tilefni sextugs-
afmælis Frid-
riks Ólafsson-
ar, fyrsta stór-
meistara íslands
í skák. Þangað
átti að bjóða
ýmsu gömlu skákbrýni, og
voru nöfn á borð við Lar-
sen, Gligoric, Smyslov og
Korchnoji nefnd. Þá ætluðu
allir íslensku stórmeistararn-
ir að tefla, meira að segja
Guðmundur Sigurjóns-
son, sem dró sig í hlé frá
taflinu fyrir nokkrum árum.
Friðrik sjálfur ætlaði vita-
skuld að vera meðal þátttak-
enda, þótt langt sé um liðið
síðan hann tefldi síðast á al-
vöru mótum. En nú ervíst
komið babb í bátinn og jafn-
vel talað um að ekkert verði
úr afmælismótinu. Sem
kunnugt er fleygir skákfræð-
um mikið fram á hverju ári,
og ekki að ófyrirsynju sem
það er talið fullt starf að vera
stórmeistari í skák og fylgj-
ast með nýjungum og þró-
un. Ýmsir óttast semsagt að
sjálft afmælisbarnið sé
hreinlega ekki í stakk búið til
að tefla á sterku skákmóti,
að minnsta kosti sagði okkur
heimildamaður úr skák-
hreyfingunni að nú væri leit-
að logandi Ijósi að „nógu
veikum andstæðingum"...
Sá sem verður undir í for-
mannsslag í Alþýðu-
bandalaginu getur ekki orð-
ið varaformaður, þarsem
kosið er samtímis bréflega í
þessi embætti. Steingrím-
ur J. Sigfússon er núver-
andi varaformaður og því er
Ijóst að nýr maður mun
skipa embættið - hvort sem
Steingrímur verður formað-
ur eða ekki. Væntanlegur
varaformaður kemur næst-
um örugglega af höfuðborg-
arsvæðinu, þarsem bæði
Steingrímur og Margrét
Frímannsdóttir eru af
landsbyggðinni. í þessu
sambandi hefur verið staldr-
að við nöfn Bryndísar
Hlöðversdóttur og Helga
Hjörvar. Þau er bæði ung
og þykja eiga mikla pólitíska
framtíð fyrir sér. Þá höfum
við heyrt nafn Ögmundar
Jónassonar, en þá þarf
hann vitaskuld að ganga í
Alþýðubandalagið. Hann er
óháður, sem kunnugt er, og
hefur því ekki einu sinni
kosningarétt í formanns-
kjöri...
Eyrbekking-
um bætist
um þessar
mundir drjúg-
ur liðsauki í
vaxandi bæ.
Hjónin Guð-
rún Ágústsdóttir og Svav-
ar Gestsson hafa fest kaup
á húsi á Eyrarbakka og
hyggjast vera þar að
minnsta kosti með annan
fótinn. Engu skal spáð um
pólitískar afleiðingar þess-
ara fasteignaviðskipta, en
Svavar verður nú nágranni
Margrétar Frímannsdótt-
ur sem ríkir á Stokkseyri...
’FarSide" eftir Gary Larson.
10. 'l=iKlar
SJÁEHDA
h i n u m e 9 i n
Þingið tókst vel að öllu leyti nema því að örlítil spenna
greip um sig á lokakvöldinu vegna þess - sem ekki var
hægt að sjá fyrir - að allar mættu þær í eins kjólum.
Árni Briem, starfsmaður
Pósts og síma: Já, ég held
við vinnum 24:23.
Margrét Rögnvaldsdóttir,
verslunareigandi: Við eig-
um alltaf möguleika þegar bar-
áttan er íýrir hendi.
Knútur Óskarsson, starfs-
maður FRÍ: Ef við spilum
ekki undir getu og allt smellur
saman þá vinnum við 23:22.
Hjalti Guðmundsson,
nemi: Nei, það held ég ekki.
Rússarnir vinna okkur með
töluverðum mun.
Kristbjörg Clausen, nemi:
Já, við vinnum 24:22.
Dætur mínar og vinkona þeirra,
sem eru nú orðnar 17 og 22 ára,
voru á sundi í lóninu um hádegis-
bilið á sunnudaginn þegar þær
syntu fram á par sem var að eðia
sig á fullri ferð niðri í vatninu.
Samfarirnar stóðu yfir í einar
fjörtíu mínútur og þama urðu
þær vitni að öllum hugsanlegum
samfaraaðferðum sem parinu
var unnt að finna upp á.
Ágúst Ágústsson greinir hér frá ferð dætra
sinna í Bláa Lónið þar sem þær fylgdust greini-
lega spenntar í tæpan klukkutíma með pari í
. samförum... Mánudagspósturinn í gær.
Ég fékk auðvitað áfaU þegar
ég komst að því að dóttir mín
hafði eyðilagt vinninginn.
Þetta hlýtur að vera dýrasta
bam íslandssögunnar.
Þrítug húsmóðir á höfuðborgarsvæöinu er
skiljanlega svekkt eftir að þriggja ára dóttir
hennar eyðilagði 7,6 milljóna króna
lottó-vinningsmiða... DV í gær.
Afbrotahneigðin Uggur í eðU okkar
aUra, en víkingablóðið er mislægt í
okkur sem gerir fólk misjafnlega
kjarkmikið tU gerðar slíkra hluta.
Við erum semsagt öll krimmar... Gunnar
Bjarnason ráðunautur. MP í gær.
Við héldum í fyrstu að þetta
væri kona sem drykki kaffi úr glasi
og reykti filterslausar camelsígar-
ettur en eftir á að hyggja gæti
þetta hafa verið karlmaður.
Þriggja manna fjölskylda varð fyrir
símaónæði fyrr í vetur í tengslum við meinta
misnotkun á símastefnumótslínunni
Einn plús einn... DV í gær.
Við verðum bara að vinna titUinn
aftur á næsta ári, sagði Jack
Walker, einn aðaleigandi Black-
burn, við fréttamenn eftir leikinn
við Liverpool í gær, en Walker
segir að samkvæmt áætlun
hafi Blackburn átt að vinna
titiUnn á næsta ári.
Þeir gætu nú alltaf afsalað sér titlinum núna ef
þetta er svona mikið svekkelsi... MP í gær.
En er það svo með skólakerfið að
það hafi efni og aðstöðu til að taka
við mönnum sem hafa ekki komið í
kennslustofu í hálfan annan áratug
og dubba þá upp sem skólastjóra?
Er það allur metnaðurinn í
fræðslukerfinu? Var ekki verið að
blása tU sóknar í menntamálunum?
Ritstjórinn Ellert B. Schram er ekki ýkja hrifinn af
endurráðningu Ólafs Þ. Þórðarsonar... DV í gær.
veröld ísaks
Johann Sebastian Bach var mikill
göngugarpur og setti ekki fyrir sig
vegalengdimar ef eitthvað vakti
áhuga hans. Hann gekk til að mynda
frá Amstadt til Lubeck í Þýskalandi
til að hlýða á organistann Buxtehude,
en það er vegalengd uppá 320
kílómetra. Og eitt sinn gekk hann
liðlega 37 kílómetra til Halle í
von um að hitta Hándel en
þegar hann komst á leiðarenda
var Hándel nýfarinn af svæðinu.
Byggt á Isaac Asimov's
Book ofFacts.