Alþýðublaðið - 16.05.1995, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ1995
m i i n n i i n sd
Eggert G. Þorsteinsson
Eggert G. Þorsteinsson var á
marga lund mjög sérstakur mað-
ur. Hann var einn þeirra fáu, sem
mönnum verður hlýtt til þegar
við fyrstu kynni. Viðmót hans,
jafnvel við ókunnuga, var þannig,
að ekki gat dulist, að þar fór góð-
viljaður maður, sem vakti traust
og menn vildu gjaman eiga nán-
ari skipti við. Þeir, sem kynntust
honum betur, að ekki sé talað um
þá, sem urðu nánir vinir hans,
gerðu sér ljóst, að þar fór sérstak-
ur mannkostamaður, sem vildi
öllum vel, var það í blóð borið að
vilja láta gott af sér leiða, ekki af
því að hann skoðaði það skyldu
sína eða í samræmi við einhveija
þjóðmálastefnu, heldur einfald-
lega af því, að það var í samræmi
við eðli hans og aila hugsun.
Eggert G. Þorsteinsson lagði
stund á iðnskólanám í æsku og
lauk sveinsprófi í múrsmíði árið
1947. Þá iðn stundaði hann í
nokkur ár. En hjá því gat ekki far-
ið, að slíkum manni, þótt ungur
væri, yrðu falin trúnaðarstörf í
stéttarfélagi sínu og innan verka-
lýðshreyfingarinnar. Síðar urðu
húsnæðismál starfsvettvangur
hans. Rúmlega þritugur var hann
kosinn í húsnæðismálastjórn,
varð fljótlega formaður og
nokkru síðar skrifstofustjóri
hennar.
Eggert var fyrst kosinn á Al-
þingi 1953 og var forseti efri
deildar 1959. Þegar Guðmundur
f. Guðmundsson, utanríkisráð-
herra Viðreisnarstjórnarinnar,
varð sendiherra í Lundúnum
1965 og Emil Jónsson varð utan-
ríkisráðherra, tók Eggert G. Þor-
steinsson við störfum hans sem
sjávarútvegs- og félagsmálaráð-
herra. Hann var þá yngstur ráð-
herranna.
f báðum stjómarflokkunum
var þátttaka hans í ríkisstjóminni
talin styrkja hana, vegna tengsla
hans við verkalýðshreyfinguna
og þess mikla trausts, sem hann
naut þar. Þegar Viðreisnarstjómin
lét af stjóm, gerðist hann fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra og síðar, 1979,
forstjóri Tryggingastofhunar rík-
isins.
Um feril hins unga múrara,
sem lauk iðnnámi sínu 1947,
verður það sagt með sanni, að
hann hafi verið farsæll. Hvar-
vetna, þar sem hann starfaði, naut
hann vinsælda. Hann átti ekki að-
eins vini í flokki sfnum, heldur
einnig meðal þeirra, sem hann
átti ekki samleið með í stjómmál-
um. En Eggert aðhylltist jafnað-
arstefnu frá æskuárum sínum.
Tveimur ámm eftir að hann lauk
iðnnámi var hann kjörinn for-
maður Félags ungra jafnaðar-
manna og síðar Sambands ungra
jafnaðarmanna. Ári áður en hann
gerðist forystumaður ungra jafn-
aðarmanna hafði hann verið kjör-
inn í miðstjóm Alþýðuflokksins
og átti þar sæti í fjörutíu ár.
Eggert G. Þorsteinsson var tví-
mælalaust í hópi vinsælustu for-
ystumanna Alþýðuflokksins.
Honum svipaði að ýmsu leyti til
þeirra leiðtoga jafnaðarmanna á
Norðurlöndum og víðar, sem
sprottnir vom úr jarðvegi hins al-
menna manns í þjóðfélaginu,
hugsaði eins og hann og talaði
það mál, sem hann skildi. Traust
það, sem Eggert G. Þorsteinsson
naut, átti ekki rót sína að rekja til
þess, að hann væri lærður maður
í þjóðfélagsmálum eða fróður um
fjörbreytilegar kenningar í þeim
efnum, enda gaf hann aldrei í
skyn, að svo væri. En hann hafði
hjartað á réttum stað. Og kannski
skiptir það mestu máli.
Gylfi Þ. Gíslason.
Eggert G. Þorsteinsson naut
alla tíð óbrigðulla vinsælda með-
al alþýðuflokksfólks og trúnaðar-
manna Alþýðuflokksins á flokks-
þingum og í miðstjórn. Mig
minnir hann hafi jafnan verið í
hópi þeirra sem flest atkvæði
fengu við kjör til trúnaðarstarfa í
röðum flokksmanna. Og það sem
meira var; mönnum bar yfirleitt
saman um að þetta væru verðugar
vinsældir. Eggert var einfaldlega
góður maður, fullur velvildar í
garð samferðarmanna og um-
hyggju fyrir því fólki, sem þurfti
6 . j u I i
á liðsinni að halda. Þessa naut
hann í ríkum mæli. Ekki sakaði
að hann var hinn vörpulegasti á
velli og allra manna alúðlegastur
í framgöngu. Áratugum saman
var litið á Eggert sem fulltrúa
verkalýðshreyfingarinnar í Alþ-
lýðuflokknum. Og þá Verkalýðs-
hreyfingarinnar með stómm staf.
Eggert var kominn af nafhtog-
uðum og harðsnúnum sjósóknur-
um suður með sjó. En fjölskylda
hans hafði fært Ægi konungi
þungbærar fórnir. Skipið sem
faðir hans stýrði fórst með allri
áhöfn á stríðsárunum (1940).
Sagan segir að Margrét móðir
Eggerts hafi tekið af honum lof-
orð um að feta ekki í fótspor föð-
urins. f staðinn lá leið hans í Iðn-
skólann þar sem hann lærði múr-
verk. Það má því segja að bygg-
ingaiðnaðurinn hafi orðið hans
starfsvettvangur allt ftá því hann
stundaði múrverk, sat lengi í
stjóm Húsnæðisstofnunar ríkisins
og var ráðherra húsnæðismála í
sex ár, á seinni hluta viðreisnar.
Húsnæðismál, vinnumarkaðsmál
og málefhi þeirra, sem af ýmsum
ástæðum þurftu á að halda félags-
legri aðstoð, vom honum alla tíð
hugstæðust. Þessi áhugamál mót-
uðu starfsferil hans allan.
Eggert óx upp til áhrifa í Al-
þýðuflokknum úr röðum verka-
lýðshreyfmgarinnar í Reykjavík.
Tæplega hálfþrítugur að aldri
valdist hann til foiystu í Múrara-
félaginu í Reykjavík og var sam-
tímis formaður FUJ og síðar SUJ,
Sambands ungra jafnaðarmanna.
Hann var einn þeirra ungu manna
sem studdu Hannibal til for-
mennsku á átakamiklu flokks-
þingi 1952. Það hefur hann vænt-
anlega gert vegna þess að hann
vildi að kjarabarátta verkalýðs-
hreyfingarinnar setti meira svip-
mót á stefnu og störf Alþýðu-
flokksins en verið hafði þá um
skeið. f kosningunum 1953 náði
hann kjöri sem þingmaður Al-
þýðuflokksins á Seyðisfirði, þá
aðeins 28 ára gamall. Það varð
upphafið að aldarfjórðungs ferli
sem þingmaður og loks ráðherra.
Þegar Guðmundur í. Guð-
mundsson hætti afskiptum af
stjómmálum árið 1965 færði Em-
il Jónsson, þáverandi formaður
Alþýðuflokksins, sig yfir í stól
utanríkisráðherra. Valið um eftir-
mann Emils sem sjávarútvegs- og
félagsmálaráðhetra stóð þá milli
þeirra Eggerts og Benedikts
Gröndals, sem þá þóttu álitlegast-
ir hinna yngri manna. Eggert varð
fyrir valinu með þeim rökum að
það myndi styrkja tengsl flokks-
ins og ríkisstjórnarinnar við
verkalýðshreyfinguna. Þessum
ráðherraembættum gegndi Eggert
í tæp 6 ár og heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu að auki,
síðasta árið (1970 til 1971) sem
viðreisnarstjómin hélt velli.
Á þriðja og seinasta kjörtíma-
bili Viðreisnarstjórnarinnar frá
1967 reið mikil kreppa yfir fs-
lenskan sjávarútveg og þar með
þjóðfélagið í heild. Ofveiði reið
sfldarstofninum að fullu. Við það
helminguðust útflutningstekjur
þjóðarinnar á örskömmum tíma
og stór hluti skipastólsins varð
verkefnalaus. Viðreisnarstjómin
vann sig hægt en örugglega út úr
vandanum og skilaði að lokum
góðu búi. En hrun uppistöðu
sjávarútvegsins á landsbyggðinni,
atvinnuleysi og landflótti í kjöl-
farið og síðast en ekki síst, að-
gerðaleysi í landhelgismálum
varð Viðreisnarstjóminni að lok-
um að fjörtjóni. Eftir á að hyggja
undrast maður hversu sjávarút-
vegsráðheirann virtist sigla lygn-
an sjó í öllum þessum umbrotum.
Það lýsir ffemur manninum Egg-
ert G. Þorsteinssyni en þeim ytri
kringumstæðum sem við var að
fást.
Það er frægt í stjómmálasög-
unni að undir lok Viðreisnarsam-
starfsins réði Eggert G. Þorsteins-
son því með oddaatkvæði sfnu á
Alþingi að fella stjómarfmmvarp,
sem þar að auki var flutt af þáver-
andi formanni flokksins og við-
skiptaráðherra Gylfa Þ. Gíslasyni,
við atkvæðagreiðslu í efri deild.
Þess em mörg dæmi að stjómar-
fmmvörp dagi uppi eða þau nái
ekki fram að ganga. Hitt mun
1 9 2 5 - 9 . m
einsdæmi að stjómarfrumvarp
falli fyrir atbeina ráðherra og með
oddaatkvæði hans, án þess að það
varði stjómarslitum.
Þetta einstaka atvik í stjóm-
málasögunni hefur löngum síðan
orðið stjómmála- og fræðimönn-
um undrunar- og umræðuefhi og
sýnist sitt hveijum. Málið snerist
um aukið fijálsræði í verðmynd-
un og afnám verðlagsákvæða og
var því mjög í anda þeirrar stefnu
sem Alþýðuflokkurinn fylgdi frá
viðreisnarámnum. Ég hef aldrei
fengið upplýst hvort þetta var
gert af ráðnum hug eða hvort
menn þóttust hafa vissu fyrir
stuðningi einhverra þingmanna
Framsóknarflokksins, sem myndi
nægja til að tryggja málinu fram-
gang. Alla vega varð það ekki
stjómarslitatilefni. Vandséð er
hvort stjómarmyndun hefði getað
tekist af þessu tilefni án kosninga
og eins er mikil spuming, hvort
flýting kosninga um tæpt ár hefði
ef til vill einhverju breytt um
stjórnarmyndun og samstarf
flokka í ffamhaldinu.
Alþýðuflokkurinn var í mikilli
lægð næstu árin (1971 til 1978).
Það var ekki fyrr en með kosn-
ingunum 1978 og þá fyrir atbeina
nýirar kynslóðar, sem skipaði sér
undir gunnfána nútímalegrar jafn-
aðarstefnu, að flokkurinn náði sér
aftur á strik á ný. Þegar hér jer
komið sögu hafði Eggert G. Þor-
steinsson hætt afskiptum af
stjómmálum og sest á friðarstól
sem forstjóri Tryggingastofhunar
ríkisins, en því starfi gegndi hann
ffarn á seinasta ár. Þá átti Eggert
að baki 40 ára feril sem mið-
stjómarmaður í Alþýðuflokknum.
Líf hans var því afla tíð samofið
sögu Alþýðuflokksins, verkalýðs-
hreyfingarinnar og þess velferð-
arríkis sem þessar hreyfíngar hafa
byggt upp á undanfomum áratug-
um.
Árið 1970 þegar Eggert var
staddur á norrænum ráðherra-
fundi í Visby á Gotlandi bar hann
gæfu til að bjarga ungum dreng
frá dmkknun þar í höfninni með
snarræði við tvísýnar aðstæður.
Þessi atburður má heita táknrænn
fyrir viðleitni Eggerts G. Þor-
steinssonar á hérvistardögum
hans; að reyna að verða öðram að
liði og leggja þeim þannig líkn
með þraut.
Að leiðarlokum vil ég fyrir
hönd okkar íslenskra jafnaðar-
manna þakka Eggert G. Þor-
steinssyni samfylgdina um leið
og ég færi eftirlifandi konu hans,
Helgu Einarsdóttur, afkomendum
Eggerts, vinum og vandamönn-
um, okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Jón Baldvin Hannibalsson.
Við andlát og útför vinar míns,
Eggerts G. Þorsteinssonar, leitar
hugur minn til þess tíma, er ég
heyrði hans fyrst getið. Það var
að vori til árið 1948, ég var 16 ára
gamall og kominn í byggingar-
vinnu í birgðastöð, sem var verið
að reisa fyrir Oh'uverslun fslands
hf. í Reykjavík. Þar var fjöldi
manns að störfum, einkum verka-
menn, iðnaðarmenn og náms-
menn. Nokkrum vikum áður
hafði ég loksins náð lágmarks-
aldri til að geta gengið í Félag
ungra jafnaðarmanna í Reykja-
vík; enda sannfærður jafnaðar-
maður frá bamsaldri; og lét það
ekki dragast! Og þama frétti ég af
ungum múrara, sem ég vissi að
var einn helsti forystumaður
ungra jafnaðarmanna. Það var
Eggert G. Þorsteinsson. Samt
kynntumst við ekkert að gagni
fyrr en um haustið, að félagsstarf-
ið hófst. Síðan hafa leiðir okkar
legið saman. Það er því af mörgu
að taka, þegar kynnin era rifjuð
upp.
Þótt Eggert hafi snemma hafið
afskipti af verkalýðsmálum, og
ungur valist til formennsku í
Múrarafélagi Reykjavíkur, var
það tæpast fyir en með framboð-
inu á Seyðisfirði, sem hann varð
nafnkunnur um land allt. Þetta
var í formannstíð Hannibals
Valdimarssonar í Alþýðuflokkn-
um, haustið 1953, og alþýðu-
flokksmenn eystra áttu í miklum
vandræðum með að koma sér
saman um eitt framboð. Lengi vel
a í 19 9 5
vora allar horfur á að þau yrðu
tvö, en loks tókst að stilla til frið-
ar og fá menn til að sameinast um
eitt. Frambjóðandinn, sem varð
til þess, að menn shðraðu sverð-
in, var einmitt Eggert G. Þor-
steinsson. Mér finnst, sem þá hafi
hann fyrsta sinni komið ffarn sem
mannasættir, en því hlutverki átti
hann síðan oft eftir að gegna um
ævina; og var þó ótrauður bar-
áttumaður, ef því var að skipta. Á
Seyðisfirði kom hann, sá og sigr-
aði. Síðan fóra í hönd nokkur ár
þingmennsku fyrir þá Seyðfirð-
inga, auk þess, sem hann vann
gjarnan við múrverk á sumrin,
jafnframt því að vera önnum kaf-
inn í störfum fyrir verkalýðs-
hreyfinguna. En flokksstörfin
urðu ekki útundan. í nokkur sum-
ur fór hann um landið sem erind-
reki flokksstjómarinnar og flaut
ég þá stundum með, sem fúhtrúi
ungra jafnaðarmanna; nokkram
sinnum kom með okkur Jóna
Jónsdóttir, fyiri kona hans, og var
þá oft glatt á hjaUa. Ég á margar
góðar minningar frá þessum ferð-
um, sem hafa orðið mér eftir-
minnilegar og lærdómsríkar á
ýmsan veg. En þegar fram liðu
stundir gerðist Eggeit þingmaður
okkar Reykvíkinga og síðan ráð-
herra í Viðreisnarstjóminni. Enda
naut hann þá orðið almenns
trausts og var orðinn einn vinsæl-
asti og virtasti forystumaður
flokksins.
Eggert valdist ungur til setu í
húsnæðismálastjóm (1957), sem
fulltrúi Alþýðuflokksins. Þar sat
hann í mörg ár; í nokkur ár var
hann formaður hennar (1960 til
1965) og gegndi jafhframt starfi
skrifstofustjóra, sem hann hlaut
skipan í. A þeim árum var sá
embættismaður nánast annar
framkvæmdastjóri stofnunarinn-
ar, ekki síst þegar í hlut átti mað-
ur, sem jafhframt var stjómarfor-
maður hennar. Engu að síður
kom sú tíð, síðla sumars 1965, að
hann hlaut að láta af þeim störf-
um þar sem hann hafði tekið við
embætti félagsmálaráðherra. Og
þá gerðist það, harla óvænt, að
undirritaður var fenginn til að
gegna skrifstofustjórastarfinu
meðan Eggert væri í raðherrastól.
Enginn efaðist um, að þar væri
réttur maður á réttum stað, er
Eggert tók við embætti félags-
málaráðherra. Enda hafði hann
fuUan hug á að taka til hendinni á
sínu sviði. Sem hann og gerði,
þrátt fyrir afar örðugar aðstæður í
efnahagsmálum landsmanna,
þegar síga tók á sjöunda áratug-
inn. Verkalýðsmálin vora honum
afar hugleikin og málefni vinn-
andi fólks. Má í því sambandi
geta þess tU fróðleiks, ef ég man
rétt, að hann fékk ríkisstjómina til
að samþykkja að l.maf skyldi
vera lögboðinn frídagur, svo að
nokkurt dæmi sé tekið. En hús-
næðismálin vora honum líka of-
arlega í huga, svo sem nærri má
geta. f hans ráðherratíð vora tvö
stórvirki unnin, sem hann gat
sannarlega verið stoltur af, þótt
hann hreykti sér aldrei af þeim.
Verður þeirra nú getið að nokkra.
f „Júlí-samningunum 1965“
gerðu verkalýðshreyfingin og
vinnuveitendur með sér stór-
merka samninga, með aðUd ríkis-
stjórnarinnar og Reykjavíkur-
borgar, um byggingu 1250 íbúða
fyrir launafólk á Reykjavíkur-
svæðinu, eflingu almennra íbúða-
lána frá Húsnæðisstofhun og upp-
töku launaskatts til eflingar fjár-
hag hennar. Með þessum ákvörð-
unum var Byggingaáætlun ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar stofn-
sett, sú langstærsta, sem nokkra
sinni hefur verið sett á laggimar
hérlendis. Sennilega er þetta eina
stóra samkomulagið á lýðveldis-
tímanum þar sem þessir fjórir öfl-
ugu aðilar taka saman höndum
um stórfelldar úrbætur í þágu
þúsunda manna á tilteknu þjóðfé-
lagssviði. Eggert hafði ekki að-
eins verið einn helsti áhrifamað-
urinn um gerð þessara samninga,
bæði sem verkalýðsforingi, al-
þingismaður og formaður hús-
næðismálastjómar, heldur kom
nú líka í hans hlut sem félags-
málaráðherra að bera pólitíska
ábyrgð á framgangi málsins, í fé-
lagi við Geir Hallgrímsson, borg-
arstjóra. Þótt hér væri um ffarn-
kvæmdir að ræða, sem í dag
myndu kosta 7 til 8 milljarða
króna, vafðist ekki fyrir Eggerti
að setja þær af stað. Áður en við
var litið hafði hann fengið Al-
þingi til að samþykkja örstutta
lagagrein, sem heimilaði fram-
kvæmdir og lánveitingar; og
tveimur til þremur vikum síðar
höfðu þeir Hjálmar Vilhjálmsson,
ráðuneytisstjóri, samið og gefið
út reglugerð, er kvað nánar á um
hvemig staðið skyldi að málum.
Síðan tóku ffamkvæmdimar heil-
an áratug en aldrei þurfti að
breyta stafkrók í lögum eða
reglugerð. Oft hefur mér orðið
hugsað til þessa síðan, af ýmsu
tilefni. En auðvitað var ekkert
léttaverk að sjá þessari miklu
byggingarstarfsemi farborða.
Kreppan 1967 til 1969 varð
landsmönnum afar þungbær og
olli miklum erfiðleikum í efna-
hagsmálum landsmanna. Reiknað
hafði verið með, að Fram-
kvæmdasjóður íslands tæki vera-
legan þátt í fjármögnun „Breið-
holtsfiamkvæmdanna", en af því
varð aldrei neitt, að heitið gæti,
og stóð því Byggingasjóður ríkis-
ins einn uppi með þær. Skulda-
bréfakaup lífeyrissjóða af stofn-
uninni vora í lágmarki á þessum
árum, þar sem ekki náðust samn-
ingar þar um, og gerði það málið
ekki auðveldara viðfangs. Auð-
vitað bitnaði þetta á almennum
húsbyggjendum um skeið. En
það var enginn bilbugur á Egg-
erti, ffamkvæmdimar vora hafðar
í fyrirrúmi og voru allan tímann á
fullri ferð, meðan hans naut við í
ráðherraembættinu. Sem og síðar.
Og þegar upp var staðið og á allt
er htið fer ekki á milli mála, að
þessar byggingaframkvæmdir
tókust eins vel og frekast varð á
kosið og urðu þúsundum, og þó
ftekar tugþúsundum manna, til
mikilla blessunar.
Mér er minnisstætt þegar Egg-
ert hringdi í mig úr félagsmála-
ráðuneytinu, einn góðan veður-
dag í maí 1970, og sagði:“Jæja,
nú er komin lagaheimild sem á að
duga til þess, að gamall draumur
okkar húsnæðismálamanna geti
ræst“. Ég rak upp stór augu og
hváði. Þá hafði honum tekist að
fá Alþingi til að samþykkja laga-
heimild sem leyfði, að Húsnæðis-
stofnun gæti hafið lánveitingar til
almennings, vegna kaupa á eldri
íbúðum. Og þar með hófst veiting
þeirra lána, sem síðan hafa stór-
um auðveldað öllum almenningi
kaup og sölu á eldri íbúðum; og
gert þau miklu léttbærari fyrir
fjölskyldur þær, sem í hlut eiga.
Ékki var lagagreinin margorð,
ffekar en fyrri daginn, og samn-
ingu reglugerðarinnar var ekki
hraðað sérstaklega; en allt var
það til bóta, þessi starfsemi hefur
alla tíð verið afbragðs vel heppn-
uð og lánin era fyrir löngu orðin
einn stærsti þátturinn í lánveiting-
um stofnunarinnar. Ég heyrði
Eggert aldrei þakka sér það, að
þessi mikilvæga lagaheimild var
samþykkt á Alþingi, frekar en
annað, sem hann gerði vel. Hann
var ekkert fyrir það gefinn að
hreykja sér af verkum sínum. En
þau mega ekki liggja í láginni,
nú, þegar hann er kvaddur.
Forystumönnum Alþýðu-
flokksins hefur löngum verið bor-
ið það á brýn, að þeir séu rótslitn-
ir og ekki í tengslum við það
vinnandi fólk, sem þeir vilji vinna
fyrir. Ekki ætla ég að fjalla um
það hér, heldur hitt, að engan
mann vissi ég í jafn nánum
tengslum við upphaf sitt og ein-
mitt Eggert G. Þorsteinsson. í þvf
efni var hann óbreyttur alla sína
ævi. Hann var maður fólksins og
var samstiga því. Þar var hann
mest og best heima. í Alþýðu-
flokknum var hann líka leiðtogi
þess, lengst af; og var alla tíð í
nánum tengslum við forystumenn
flokksins í verkalýðssamtökunum
í landinu. Flestum þeirra fannst
lengst af sem engum góðum ráð-
um yrði ráðið án samráðs við
hann. Ég sé hann fyrir mér, glað-
an á góðri stund, í hópi félaga
sinna í verkalýðsfélögunum: Jó-
hönnu Egilsdóttur, Jónu Guðjóns-
dóttur og Þóranni Valdimarsdótt-
ur í Verkakvennafélaginu; Sigfús
Bjamason og Hilmar Jónsson í
Sjómannafélaginu; Jón Ágústs-
son í HÍP; ásamt fjölmörgum
öðrum. Þau stóðu öll saman í
blíðu og stríðu, fögnuðu oft sigri
og tóku ósigri með jafnaðargeði.
Þetta fólk er nú farið yfir móðuna
miklu, en við höfúm ekki gleymt
því eða öllu því, sem það gerði
fyrir félagsmenn sína og vinnandi
fólk
Við Eggert höfum verið sam-
ferðamenn, allt frá því forðum
daga, að leiðir okkar lágu saman í
byggingavinnunni. Og venjuleg-
ast snúið bökum saman. Það kom
í minn hlut að vera sporgöngu-
maður hans, bæði í húsnæðismál-
unum og á pólitíska sviðinu.
Margs er að mirmast, ekki síst af
hinu síðartalda. Árið 1970 átti Al-
þýðuflokkurinn óvenju erfitt. Þá
var Gylfi Þ. Gíslason í efsta sæti
A-listans í Reykjavík, Eggert í
öðra sæti hans og ég í því þriðja.
Með ítrasta atfylgi tókst okkur að
fá Gylfa kjörinn, sem var líka
eins gott, því að enginn annar al-
þýðuflokksmaður fékkst kjör-
dæmakosinn í Iandinu; Eggert og
þeir hinir urðu landskjömir þing-
menn. Svo hart var að okkur sótt,
að ekki skakkaði nema nokkram
hundruðum atkvæða að Gylfi
næði ekki kjöri. Hefði það gerst
hefði Alþýðuflokkurinn horfið af
þingi. Sennilega er þetta einn
mesti lífsháski af mörgum, sem
Alþýðuflokkurinn hefur lent í.
Það er þess vegna ekki undarlegt
þótt þessi mikla barátta og úrslit
hennar séu mér eftirminnileg og
hugstæð. Mér var hlýtt til Eggeits
og Gylfa fyrir þessar kosningar,
en eftir þær var mér hálfu hlýrra
um hjartarætumar.
Þegar Eggert hefur nú kvatt
okkur gerir hann það með fullri
reisn og sóma. Meðan hann starf-
aði að húsnæðismálum naut hann
mikilla vinsælda meðal almenn-
ings fyrir réttsýni sína og hjálp-
semi. Og í Alþýðuflokknum naut
hann dæmafárra vinsælda, sem
verkalýðssinni og glæsimenni,
fyrir sanngimi sína og sáttfýsi,
glaðværð og elskusemi við hvem
mann. Aldrei krafðist hann neins
sér til handa, í krafti þess mikla
velvilja, sem hann naut hvar-
vetna. Hann hlaut mikinn pólit-
ískan frama, en hann varð lflca að
sætta sig við ósigra, rétt eins og
við hinh, og Iét það gott heita.
Alla ævi hafði hann mjög erfið
og annasöm störf með höndum í
verkalýðshreyfmgunni, á Alþingi,
í ríkisstjórn og síðustu árin í
Tryggingastofnun. Því óskaði
maður þess, að hann og Helga
fengju nú mörg góð ár saman. En
örlögin vildu annað. Góðu heilli
hitti ég hann alltaf, af og til, síð-
ustu misserin, einkum í Frfldrkj-
unni, sem hann sótti gjaman. Síð-
ast vorum við þar við páska-
messu, þriðjudagskvöldið fyrir
páska. Þá virtist mér hann glaður
og hress, eins og jafnan, en ekki
er alltaf allt sem sýnist. Andlát
hans bar brátt að og sannarlega
söknum við félagamir nú vinar f
stað. Mestur er þó missir eigin-
konu hans, Helgu Einarsdóttur,
bama hans og fjölskyldna þeirra.
Við biðjum þeim blessunar og
munum ætíð geyma mynd hans í
huga okkar.
Sigurður E. Guðmundsson.
Eggert G. Þorsteinsson var far-
sæll og heilsteyptur maður. Hann
sýndi það meðal annars með því
að komast til æðstu metorða í op-
inbera h'fi. Hógværð og ljúf frarn-
koma var honum eðlislæg. skipti
þá engu hver átti í hlut, viðmótið
breyttist ekkert, þó hann gengi af
fundi yfirmanns til verkamanns-
ins. Eggert G. Þorsteinsson var
jafnaðarmaður í bestu merkingu
þess orðs.