Alþýðublaðið - 25.05.1995, Síða 11

Alþýðublaðið - 25.05.1995, Síða 11
HELGIN 25. - 28. MAÍ1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 11 5 n a s ■ Þjóðsagan og sannleikurinn um andlát Jónasar Hallgrímssonar var. Og Óttar heldur áfram: „Á sjúkrahúsinu elnar honum sótt- in og fær hann drep í fótinn og blóð- eitrun sem veldur sýkingu í bijóst- himnu og heila. Áfengisvíman rennur af honum og hann fær delirium tre- mens eins og stundum gerist eftir mikla og langvinna drykkju. Jónas deyr síðan af völdum þessa, hann er fársjúkur af sýkingum, frávita af del- irium og drep hleypur upp fótinn. Þetta er óravegu frá rómantískri lýsingu Konráðs og túlkun Tómasar Guðmundssonar á því hvemig dauða hans bar að höndum. En frásögn Konráðs leiðir athygli ffá drykkju- skap skáldsins og hörmulegum af- leiðingum hans og beinir sjónum á aðrar brautir. Tryggð Islendinga við þjóðsöguna er skýrt dæmi um afheit- un heillar þjóðar á alkohólisma ástæl asta skálds síns. Hann hverfur út úr íslenskum bókmenntum á þroska- braut sinni miðri. Bakkus karlinn kóngur hafði enn einu sinni greitt ís- lenskri menningu þungt högg.“ ■ Sveinn Yngvi Egilsson n. i*>5o» Konráð: Jónas var vel málhress og lífvænlegur yfirlitum. Konráð en lyftir frásögninni enn frekar á flug skáldskaparins. Þegar Fjölnismenn stofnuðu bind- indisfélag fengu þeir Jónas til að ganga í félagið. Hann lýsti þó þeirri skoðun sinni að ffekar bæri að stefha að hófsemd í neyslu víns en algjörs bindindis. Enda fór svo að hann hætti bindindinu og bytjaði að drekka á nýjan leik. Ofdiykkja varð honum síðan að bana og lokadægrin vom með öðmm hætti en Konráð lýsti. Hreinn uppspuni Árið 1945 reit Gunnlaugur Clae- sen læknir grein í tímaritið Heilbrigt h'f þar sem hann segir sannleikann um andlát Jónasar. Sú grein hafði þó takmörkuð áhrif til að kveða niður þjóðsögu Konráðs. Árið 1992 kom út bókin Tíminn og tárið eftir Óttar Guðmundsson lækni. Þar greinir hann ffá ævilokum Jónasar án þess að draga nokkuð undan og það fór hrollur um þá höfðu trúað Konráð. Óttar telur sennilegast að ffásögn Konráðs sé hreinn uppspuni til að halda minningu Jónasar sem feg- urstri. Sjúkraskrá Jónasar er geymd í Tómas: Drykkja Jónasar orðum aukin. Óttar: Jónas deyr frávita af deliri- um. Vel málhress eða ^ frávita afdel[rium mssonar um insku cir bama- Dauðdagi Jónasar Hallgrímssonar hefur verið sveipaður ljúfsámm ljóma æðmleysis og karlmennsku listaskáldsins góða. Ljóðelskir bama- kennarar komast við þegar þeir rifja upp fyrir bömum banalegu Jónasar þar sem hann eyddi síðustu stundum hfs síns við bóklestur og tedrykkju, kvahnn af fótbroti. Margir hafa því átt erfitt með að kyngja þeirri stað- reynd að skáldið fótbrotnaði í ölæði og lá síðan örvita af drykkjuæði á sjúkrahúsi þar til yfir lauk. Það var að kvöldi 15. maí 1845 að Jónas, sem þá var 37 ára, var að pau- fast upp stiga til herbergis síns að St. Pétursstræti í Kaupmannahöfn. Hann missteig sig illa með þeim afleiðing- um að hann hlaut opið fótbrot. Engu að síður tókst honum að komast til herbergisins og lá þar af nóttina. Frásögn Konráös Þjóðsagan af banalegu Jónasar er komin ffá vini hans og félaga, Kon- ráði Gíslasyni. f eftirmælum sem hann ritaði um Jónas í Fjölni segir svo: „Þegar inn var komið til hans um morguninn og hann var spurður því hann hefði ekki kallað á neinn sér til hjálpar, sagði hann að sér hefði þótt óþarfi að gjöra neinum ónæði um nóttina af því að hann vissi, hvort sem væri að hann gæti ekki lifað. Því næst lét hann flytja sig í Friðriksspít- ala, en ritaði fyrst til etasráðs Finns Magnússonar til að fá hann til ábyrgðarmanns um borgun til spítal- ans. Þegar Jónas var kominn þangað og lagður í sæng, var fóturinn skoð- aður og stóðu út úr beinin; en á með- an því var komið í lag og bundið um, lá hann grafkyrr og var að lesa í bók, en brá sér alls ekki. Þar lá hann fjóra daga, vel málhress og lífvænlegur yfirlitum. En fjórða daginn að kveldi, þegar yfirlæknirinn gekk um stofum- ar, sagði hann við aðstoðarmenn sína, þegar hann var genginn ffá rúmi Jón- asar: „Tækin verða að bíta í fyrramál- ið, við þurfum að taka af lim.“ Hafði læknirinn séð að drep var komið í fótinn, en hins varði hann ekki, að það mundi dreifast eins fljótt um all- an líkamann og raun varð á. Jónas bað, að ljós væri látið loga hjá sér um nóttina. Síðan vakti hann alla þá nótt og var að lesa skemmtunarsögu sem heitir Jakob Ærlig - eftir enskan mann Marryat að nafni - þangað til að aflíðandi miðjum morgni. Þá bað hann um te og drakk það, fékk síðan sinadrátt rétt á eftir, og var þegar lið- inn. Það var hér um bil jöfnu miðs morguns og dagmála. - Hann var grafmn í Hjástoðar-kirkjugarði, sem kallaður er. Það var 31. maí, í góðu veðri og blíða sólskini. AJlir þeir ís- lendingar, sem þá voru hér í Kaup- mannahöfh og nokkuð þekktu hann til muna, fylgdu honum og báru kist- una ffá líkvagninum til grafarinnar; hörmuðu þeir forlög hans og tjón ætt- jarðar sinnar, hver sá mest, er honum var kunnugastur og best vissi, hvað í hann var varið.“ Vínhneigð Jónasar Þessi ffásögn Konráðs af andláti Jónasar Hallgrímssonar hefur síðan lifað með þjóðinni. Þó hafa komið ffam aðrar upplýsingar um ævilok Jónasar sem eru mjög á annan veg og öllu nömrlegri en skáldleg lýsing Konráðs. Þar er ofdrykkja skáldsins talin hafa leitt hann til dauða. Ýmsar heimildir eru til um vfn- hneigð Jónasar. Sumir hafa þó talið að hann hafi ekki verið jafn drykk- felldur og sögur herma. Menn hafa bent á afköst hans á sviði náttúruvís- inda og ljóðagerðar á skammri ævi því til sönnunar, líkt og Tómas Guð- mundsson gerir í formála að verkum Jónasar árið 1948. Þar segir Tómas frá dauða Jónasar á sömu nótum og Stud. jur. Jónas Hallgrímsson er í skemmtiferð um danskar sveitir dandyish. Pípureykjandi tigris. Arrrgh. Færir allt inn í dagbók: „Konan er hér um bil 17 vetra, lítil og snyrtileg og glaðleg, ég uppgötvaði hana í morgun í eldhúsinu.“ Kona kráareigandans, naturligvis. Eiginmaðurinn órólegur. Tígurinn reykir við borð. Horfir. Bíður. Konan óþarflega glaðleg: karlinn gerir sér upp erindi, er voðalega upptekinn einmitt þarna mitt á milli þeirra. Reiknar, krotar í kladda. Neyðist svo til að bregða sér frá drjúga stund: þarf að sinna kalli náttúrunnar. Tígurinn líka. skjalasafni Kaupmannahafnar og Ótt- ar vitnar í lýsingu spítalalæknanna: „Vinstri fótleggur var í sundur, og það svo illa, að ekki einasta var sjálft brotið opið, heldur líka ökklaliður- inn.“ Og Óttar heldur áfram: „Þess er getið, að erfiðlega hafi gengið að koma beinbrotinu í æskilegar stell- ingar, svo ekki hefur sjúklingnum verið næðissamt við að lesa bók á meðan. Læknamir taka ffam, að slas- aði sé vöðvamikill og samanrekinn að líkamsvexti. - Um andlátið segir: ...hvor han under Tilf. afdelir. trem. og gangraena incipiens [byrj- andi drep] i den ajficierade Extremi- tet dode d. 26. mai... Líkið var krufið sólarhring eftir andlátið, og er skráð um það löng og nákvæm skýrsla. Helstu atriðið henn- ar eru þessi: Drep var komið í brotinn sköflunginn og blóðeitrun þaðan út um lfkamann. Svæsin lungnabólga var í vinstra lunga með graftarígerð í bijósthimnunni. Höfuðkúpan var opnuð og kom þá í ljós byijandi heilabólga. Lungnabólga hefur magnast heiftarlega og svo bætist heilabólga við. Líkið var innanfeitt og lifrin nærri tvöfalt stærri og þyngri en heilbrigt er, 2875 grömm. Svona mikil fítulifúr er mjög fátíð nema eft- ir langvinna áfengiseitrun og kemur það heim við umsögn læknanna um ástandið í legunni þar sem gefið er upp, að sjúklingurinn hafi fengið del- irium tremens." Frávita af delirium Með tilliti til þessara skýrslu telur Óttar Guðmundsson að hægt sé að gera sér grein fyrir síðustu dögum Jónasar. Hann hafi drukkið lengi þeg- ar hann hrasaði í stiganum. Enginn reyni að ganga á brotnum ökkla nema hann sé viti sínu fjær. Jónas hafi því verið mjög drukkinn þegar hann datt og engan veginn gert sér grein fyrir því hve alvarlegt slysið Salthólmsferð

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.