Alþýðublaðið - 01.06.1995, Síða 2

Alþýðublaðið - 01.06.1995, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ1995 ÍIMDIIIILfÐID 20927. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566 Útgefandi Alprent Ritstjórar Hrafn Jökulsson SigurðurTómas Björgvinsson Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín Umbrot Gagarín hf. Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 625566 Fax 629244 Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Gabb-samningurinn Með Gatt-samningnum var formlegt bann við innflutningi landbúnaðar- vara numið úr gildi. Fjölmargir bundu því miklar vonir við að aukin sam- keppni og verðlækkun vegna innflutnings á vömm úr landbúnaði myndi stórauka kaupmátt neytenda, og Gatt-samningurinn gæti því reynst kjara- bót. Nú hefur forsætisráðherra lagt fram frumvörp sín sem sýna, hvemig ríkis- stjómin ætlar að útfæra samninginn. Niðurstaðan er vægast sagt dapurleg. Jöfnunartollar, sem heimilaðir em samkvæmt samningnum til að vemda innlendan landbúnað, em svo gróflega misnotaðir, að ólíklegt er að inn- flutningur verði að nokkm marki. Hagur neytenda mun því vænka lítið, og ekkert í líkingu við það sem unnt hefði verið. Framsóknarflokkurinn samþykkti á sínum tíma, að fara bæri leið hinna svokölluðu ofúrtolla, sem í raun ónýta gildi samningsins fyrir neytendur. Undir það tók framsóknararmur Sjálfstæðisflokksins, sem nú hefiir fundið nýjan liðsmann í Davíð Oddssyni. Niðurstaðan er nánast í anda hörðustu stefnu Framsóknarflokksins, þó forysta Sjálfstæðisflokksins reyni að halda öðra ffarn. Harður andróður Afþýðuflokksins gegn ofurtollunum leiddi að vísu til þess, að ofurtollamir em faldir með hugvitsamlegum hætti. Sjálfur tollurinn er ekki svo ýkja hár samkvæmt frumvörpunum, en hins vegar er bætt ofan á hann magntollum, sem er gríðarlega hár. Þannig er reynt að sigla undir fölsku flaggi, og því haldið fram, að ofurtollunum hafi verið hafnað. Niður- staðan er sú sama. Raunvemlegir tollar verða svo háir, að innflutningurinn mun engu skipta, og líklega verða afar lítill að vöxtum. Jón Baldvin Hannibalsson tók kjúklinga sem dæmi: Hér kostar hann út úr búðum Hagkaups um 670 krónur. I Evrópu kostar kjúklingurinn sums stað- ar um 100 krónur kílóið. Með ofurtollum Sjálfstæðisflokksins mun hann kosta, kominn í verslanir á íslandi, um 1.250 krónur. Hvaða hag hafa neyt- endur af svona samningi? í meðföram Davíðs Oddssonar hefur Gatt-samningurinn breyst í sann- kallaðan Gabb-samning. Nja... Alþýðubandalagsmenn héldu miðstjómarfund um helgina þarsem ffam kom mikil og sár gremja út í Framsóknarflokkinn. í samtali við dagblaðið Tímann í fyrradag sagði Ólafur Ragnar Grímsson að mikið hefði verið rætt um þau þáttaskil sem hefðu orðið þegar Framsókn neitaði mjög eindregið öllum vinstri tengslum en gekk þess í stað til samstarfs með Sjálfstæðis- flokknum. Þá sagði Ólafur Ragnar að það skapaði að mörgu leyti nýja stöðu þegar Framsóknarflokkur yfirgæfi „sveit félagshyggjufólks með svo skýr- um hætti.“ Með leyfi að spyija: Hvenær skipaði Framsóknarflokkurinn sér í sveit fé- lagshyggjufólks? Síðan 1974 hefur Framsókn í þrígang myndað helminga- skiptastjóm með Sjálfstæðisflokknum. Er það til marks um sérstaka ást Framsóknar á félagshyggju Ólafs Ragnars? Framsóknarmenn hafa ævinlega verið reiðubúnir að henda stefnumálum sínum rakleitt í mshð ef þeir fá í staðinn nokkra stóla í stjómarráðinu. Foringjar flokksins hafa gert pólitíska hentistefnu að list, og dansað frá hægri til vinstri einsog vindurinn blæs hveiju sinni. Þetta ætti doktor Ólafúr Ragnar Grímsson stjómmálafræðingur að vita manna best - enda hóf hann litríkan feril sinn í stjómmálum í beitar- húsum Framsóknar á sjöunda áratugnum. Einar Karl Haraldsson framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins - sem reyndar á rætur í Framsókn einsog Ólafur Ragnar - lýsti einnig hneýkslun sinni í samtaU við Tímann:, J>að er einsog Framsókn hafi ekki lengur metn- að til að hafa forystu í íslenskum stjómmálum. Það er engu líkara en ffarn- sóknarmenn vUji sitja í stjómarráðinu uppá hvaða býti sem er.“ Vissulega er meira en sannleikskom í þessum fúllyrðingum - en þetta em bara engar nýjar fréttir. En svo kemur rúsínan í pylsuendanum. Blaðamaður Tímans spyr Einar Karl: En vildi Alþýðubandalagið ekki fyrir stuttu ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Framkvæmdastjórinn svarar: „Nja, einsog Davíð Oddsson hefúr sagt þá vora engin formleg skilaboð í gangi um það og raun- ar engin skilaboð. Þetta er eitthvað sem heyrir til djúpsálarfræðinni." Nja? Allir vita að Ólafur Ragnar var einsog yxna kvíga á eftir Davíð Oddssyni. Það er líka á margra vitorði að síðla sumars í fýrra vom viðræður bakvið tjöldin langt komnar miUum foiystumanna Sjálfstæðisflokks og Al- þýðubandalags. Ólafur Ragnar Grímsson var reiðubúinn að „yfirgefa sveit félagshyggjufólks með skýmm hætti“ um leið og tækifæri gafst. Hann fékk bara aldrei tækifærið sem hann hafði beðið eftir. Tvískinnungur er aðalsmerki Ólafs Ragnars. Heilög vandlæting hans í garð Framsóknar er þessvegna harla brosleg. ■ Ein Iftil fréttaskýring Ég lenti í óvenjuskemmtilegum úreiðartúr á föstudaginn. Þar voru á ferð fjórir brezkir lög- fræðingar. Gamanið kárnaði þegar ég átti að segja þeim frá íslenzkri pólitík. Það var leitt að geta ekki sagt þessum brezku gestum að eitthvað myndi gerast sem kippti þessu [stjórnmálaástandi] í liðinn. Nema að umorða Skakespeare gamla: The first thing we do is kill all the politicians." Ég lenú í óvenjuskemmtilegum út- reiðartúr á föstudaginn. Þar voru á' ferð fjórir brezkir lögffæðingar hingað komnir á samevrópska lögfræðinga- ráðstefnu og í stað þess að eyða föstu- dagseftirmiðdegi í að skoða einhveqa lögmannsstofú úti í bæ, eins og koll- egar þeirra gerðu, ákváðu þeir að bregða sér á hestbak. Þetta leit strax vel út þegar þeir stungu upp á því sjálfir að þeir fæm hjálmlausir í túrinn, því hver myndi sakna fjögurra lögfræðinga þótt þeir fæmst í óbyggðum? Hvað sagði ekki Shakespeare í Kaupmanninum í Fen- eyjum: The first thing we do is kill all the lawyers. En gamanið kámaði þegar að því kom í samtali okkar að ég átti að segja þeim frá íslenzkri pólitík. Ég fékk léttan sting í magann. En laggó: „Sko, það em sex flokkar á þingi, einn hægriflokkur, einn miðjuflokkur og fjórir vinstri flokkar." So far, so good. Gestaboð | ,JHér em alltaf samsteypustjómir og í ríkisstjóm núna era hægri- og miðju- flokkurinn. Vinstri menn sem sagt í stjómarandstöðu." Og hvemig eru þessirflokkar? Fyr- ir hvað standa þeir? „Hægriflokkurinn er venjulegur hægriflokkur, ver hagsmuni atvinnu- rekenda og kapítalista og vill mark- aðslausnir í eftiahagslífi. Og þó. Þar var að finna einhveija sterkustu and- stöðuna við fijálst flæði vara, þjón- ustu, peninga og vinnuafls á milli fs- lands og Evrópu. Hægrimenn bera líka með öðrum meginábyrgð á ríkis- vemdarkerfi sem er að drepa landbún- aðinn og neita að afnema það. Þeir hafa líka verið manna duglegastir við að veita ríkislán í alls kyns atvinnu- starfsemi sem ekkert gagn er að og tapa þannig milljörðum af skattfé. Með augun galopin." En þeir vilja vœntanlega lœkka skatta og ajhema velferðarprógrömm eins og aðrir hœgriflokkar? ,Ja, nei, ekki endilega. Jú, þeir vilja lægri skatta, en þeim hefur reynzt ómögulegt að standa að niðurskurði til að mæta því. Og eina athugasemdin sem þeir gera við velferðarkerfið er að það sé eytt of miklum peningum í það. Við íslendingar höfum eiginlega ekki átt nema einn ekta hægrimann, en hann er allur að linast eftir að hann varð sjónvarpsstjama." Well, en þessi miðjuflokkur? „Hann, já. Hmm. Það er kannske ekki alveg nákvæmt að kalla hann miðjuflokk. Nema miðjustefna felist í því að eyða peningum á alla kanta - hvorki til hægri né vinstri, heldur út um allt - án þess að neitt af því skili sér til baka. Við höfum horft á eftir nokkrum tugmilljörðum þannig. Lykilorðin við þennan miðjuflokk eru raunar þjóðremba, íhald og jafnv.el afturhald. Æ, þú myndir aldrei skilja þetta.“ Allt í lagi. En þessir vinstri flokkar? Afhverju eru þeir jjórir? , Jú, það er sósíaldemókrataflokkur- inn. Hans stefna einkennist af tvennu síðustu árin: markaðshyggju við lausn efnahagsmála og niðurskurði í vel- ferðarkerfmu." Þetta hljómar ekki eins og sósíal- demókrataflokkur. „Ekki það? Svona er þetta nú samt, meira eða minna. Afsökun þeirra er að einhver verði að gera þetta; ekki fáist hægrimenn til þess. Svo er það hinn sósíaldemókrataflokkurinn. Þar er í forystu kona sem var í fyrri sósíal- demókrataflokknum en fór þaðan af því að hún þoldi ekki formann hans. Hún vill eyða meiri peningum í vel- ferðarkerfið og vera í flokki með vinstrimönnum í hinum flokkunum þremur. Til þess fór hún úr flokknum sínum. Hinir í flokknum fóm flestir líka úr sínum flokkum til að sameinast þeim aftur.“ Það var farið að teygjast á svipnum á þessum greindarlegu lögfræðmgum, en það varð ekki aftur snúið: „Svo em það sósíalistamir. Þeir em reyndar ekki allir sósfalistar, heldur einhvers konar sósíaldemókratar. Nema þeir sem aðhyllast stefnu miðjuflokksins í landbúnaðarmálum og þeir sem vilja að ísland fari úr Na- tó. Og þeir sem hafa alltaf verið á móti því að verzlanir keppi um að fá til sín viðskiptavini með fijálsri verð- lagningu. Svo em nokkrir sem halda enn að Hoenecker og félagar hafi bara haft rétt fyrir sér í gmndvallaratriðum; það hafi verið úrfærslan sem klikkaði. En þeir hafa hægt um sig núna.“ I see. Bretar em afar kurteist fólk. , Já og svo er það femínistaflokkur- inn. Hann var stofnaður til að koma sjónarmiðum og reynslu kvenna að í pólitík, nota kvennalausnir en ekki kallalausnir. Praktískt talað þýðir það að þær vilja jöfn laun karla og kvenna, óbreytt ástand í helztu atvinnuvegum og þær em á móti öllu Evrópusukki. Þar ráða kallar, skilst mér. Nema þær sem vilja að Island gangi í ESB og þær sem gætu vel hugsað sér að vera í hinum vinstriflokkunum, ef þar væm ekki alltof margir kallar.“ Mér fannst ég geta lesið úr svip- brigðum lögffæðinganna að kannske væri íslenzki hesturinn greindari en húsbændur hans; að minnsta kosti virtust þeir hafa misst áhugann á ís- lenzkri pólitík eftir þessa litlu frétta- skýringu og snem sér að útreiðinni. Það var líka leitt að geta ekki sagt þessum brezku gestum hvers vegna þetta væri svona og að kannske stæði þetta nú til bóta, eitthvað myndi gerast sem kippti þessu í liðinn. En nákvæm- lega hvað það ætti að vera var ekki ljóst. Nema að umorða Skakespeare gamla: The first thing we do is kill all the pohticians... Höfundur er hestasveinn. u n i Atburðir dagsins 1967 Bídamir gefa út Sergeant Pepper's Lonely Heart’s Club Band. 1968 Helen Keller deyr, 88 ára að aldri. Hún varð blind og heymarlaus aðeins tveggja ára gömul en gerðist eigi að síður rithöfundur og kennari. 1976 Síðasta þorskastríðinu lýkur með samningum við Breta. 1983 Framfærsluvísitala á íslandi hækkaði um 25,1% á þremur mánuðum. Það jafngilti 158,9% verðbólgu á ári, sem er íslandsmet. Afmælisbörn dagsins Jún Stefánsson alias Þorgils gjallandi rithöfundur, 1851. Marilyn Monroe þokkagyðja 20. aldar, 1926. Edward Woodward enskur leikari, kunnastur fyrir aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum um Bjarg- vœttinn, 1930. Pat Boone bandarískur leikari og söngv- ari,1934. Annálsbrot dagsins Datt maður af hestbaki á Lambhaga á Rangáivöllum og handleggsbrotnaði. Á sama bæ datt og maður af baki hjá tún- inu og dó strax. Daginn eftir átti systir þess bráðkvadda manns bam og lýsti ókenndan mann föðurinn með niður- brotna hettu. Setbergsannáll, 1694. Gamansemi dagsins Gamansemi Steins var oft ill- kvittnisleg, en hún var smit- andi, og manni þótti hún á ein- hvern undarlegan hátt skemmtileg, jafnvel þó hún kæmi niður á manni sjálfum. Jón Óskar um Stein Steinarr. Málsháttur dagsins Betra er að vera laukur í lítilli ætt en strákur í stórri. Orð dagsíns Víst er fagurt vor í skóg, veglega júní múlar. Fegurst alls hins fagra þó . erfegurð stórrar sdlar. Skák dagsins Þau ófyrirgefanlegu mistök urðu við vinnslu Alþýðublaðs- ins í fynrakvöld, að stöðumynd gærdagsins féll út. Við endur- birtum þvíþá skák hér á eftir - með stöðumynd: Rússinn Lev Psakhis teflir nú undir fána ísraels einsog svo margir aðrir rússneskir gyðingar. Hér sjáum við hvemig hann snýr laglega á Georgíumanninn Efimov. Psakhis hefur hvítt og á leik. 1. Rb6+! Dxb6 2. Dg4+ Kb8 3. Hxd8+ Ka7 4. c5 Efimov gafst upp.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.