Alþýðublaðið - 01.06.1995, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Stóllinn ofar stjórnarskrá
Ástæður þess að menn hefja þátt-
töku í stjómmálum eru jafn mismun-
andi og þeir eru margir einstakling-
amir sem þar eiga í hlut:
-Sumir hefja þátttöku af hugsjón
og telja að þær hugmyndir um breyt-
ingar og þróun samfélagsins sem þeir
bera í bijósti eigi erindi.
-Aðrir telja stjórnmálaþátttöku
sína eðlilegt framhald af stjómmála-
flokkum.
-Og svo em þeir sem taka þátt í
Pallborðið |
Lúðvík
„Þessi hegðun verður einungis skilin svo að Páll Pétursson hafi nú
náð sínu pólitíska nirvana stigi, hann sé orðinn ráðherra með bílstjóra
völd og áhrif. Slíkri alsælu mun hann ekki aflétta af sjálfsdáðum.
Fyrr skal víkja samviska, sannfæring og eiðurinn að stjórnarskránni,
en að staðið verði upp úr stólnum."
skrifar
L____________________
pólitík einungis til þess að komast til
valda í því skyni að skara eld að eig-
in köku.
Ég held að sjaldan eða aldrei hafi “
nokkur stjómmálamaður afhjúpað til- *
gang sinn og tilveru í pólitík á jafn o
áhrifamikinn hátt og hæstvirtur fé- z
lagsmálaráðherra, Páll Pétursson, «
gerði í umræðum á Alþingi síðastlið-
inn mánudag.
Þar mælti ráðherrann fyrir frum-
varpi til laga um ftjálsa för launþega
á Evrópska efnahagssvæðinu, en lýst
því jafnframt yfir að hann væri á
móti því frumvarpi sem hann væri að
mæla með, en yrði að mæla með því
sökum þess að Alþingi hefði fyrir
tveimur ámm lögfest EES-samning-
inn. En lögfesting hans, að hans mati
jafnt nú eins og fyrir tveimur ámm,
væri hinsvegar brot á stjómarskránni.
í stjómarskrá lýðveldisins kemur
fram að alþingismenn séu einungis
bundnir við sannfæringu sína, en
jafnframt er þeim gert að vinna eið
eða drengskaparheit að stjórnar-
skránni þegar þeir setjast á þing.
í lögum um ráðherraábyrgð er
kveðið á um að sá ráðherra skuli sæta
ábyrgð gagnvart lögum ef hann sjálf-
ur framkvæmir, fyrirskipanir eða læt-
ur nokkuð það viðgangast í stjómar-
athöfnum sínum sem fer í bága við
stjómarskrá.
í ljósi ákvæða stjómarskrár og laga
um ráðherraábyrgð er erfitt að sjá
hvemig ráðherrann getur setið áfram
við völd, einkum þegar hefðar em í
huga margítrekaðar yfirlýsingar hans
um að lögfesting samningsins um
EES hafi verið brot á stjórnarskrá
lýðveldisins.
Að minnsta kosti myndi áfram-
haldandi seta á ráðherrastóli og að-
gerðir af hans hálfu til framgangs
samningnum benda til einbeitts og
huglœgs brotavilja gagnvart stjómar-
skránni.
Framganga félagsmálaráðherra í
þessu máli hefur verið honum til háð-
ungar og erfitt að draga aðra ályktun
en að hann hafi verið að draga dár að
eiðstaf sínum að stjómarskránni þeg-
ar hann fyrst, með óbrostinni röddu,
mælir fyrir frumvarpi sem tryggir
EES-samninginn enn frekar í sessi,
en lýsir því síðan yfir við sömu um-
ræðu að lögfesting EES-samningsins
sé jafnt nú sem fyrr stjómarskrárbrot.
Þessi hegðun verður einungis skil-
in svo að Páll Pétursson hafi nú náð
sínu pólitíska nirvana stigi, hann sé
orðinn ráðherra með bflstjóra, völd
og áhrif.
Slíkri alsælu mun hann ekki aflétta
af sjálfsdáðum. Fyrr skal víkja sam-
viska, sannfæring og eiðurinn að
stjórnarskránni, en að staðið verði
upp úr stólnum.
Höfundur er alþingismaður
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmanna-
flokks (slands.
Bergvinsson
Bullandi óánægja er
meðal margra sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði
með samstarfið við Al-
þýðubandalagið. Óánægj-
an beinist einkum að
Magnúsi Jóni Árnasyni
bæjarstjóra en hann þykir
hygla um of flokkssystkin-
um og venslamönnum, og
auk þess vera erfiður í sam-
skiptum. Mikil deyfð er í
bænum enda sáralitlar
framkvæmdir á vegum nú-
verandi meirihluta, og þykir
mönnum mikil umskipti
hafa orðið miðað við það
sem áður var. Ýmsir sem
skipuðu framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í fyrra
eru jafnvel komnir á þá
skoðun að rifta eigi meiri-
hlutasamstarfinu. Magnús
Jón hefur enda einkum ver-
ið upptekinn við að kæra
fyrrverandi meirihluta, og
þykir mörgum að þrá-
hyggja hans á þessu sviði
sé farin að skaða bæjarfé-
lagið...
Félagsmálaráðherrann
nýi, Páll Pétursson,
hefur ekki átt sjö dagana
sæla. Hann hefur staðið í
ströngu við að leggja fram
frumvörp vegna EES-samn-
ingsins, en Páll var helstur
andófsmaður gegn þeim
samningi síðasta kjörtíma-
bil. Þegar Jón Baldvin
Hannibalsson formaður
Alþýðuflokksins tók sig til á
mánudaginn og las fyrir
þingheim úrval úr ræðum
og greinum Páls gegn EES
var mörgum skemmt. Við
heyrum úr herbúðum
Framsóknar að kátínan hafi
náð þangað, enda varð
helmingur þingflokks þeirra
viðskila við Pál og félaga í
andstöðunni við EES. Þá er
vert að hafa í huga að að-
eins fjórir af tíu óbreyttum
þingmönnum Framsóknar
studdu Pál til ráðherra-
dóms, enda þykir hann ekki
alveg standa undir því að
vera hið „nýja andlit Fram-
sóknar" sem boðaö var fyr-
ir kosningar...
Sjálfstæðismenn af Vest-
fjörðum hafa heldur
misst flugið í yfirlýsinga-
gleði upp á síðkastið. Nú er
Ijóst að búið er að valta yfir
þá í sjávarútvegsmálunum,
og að í engu verður komið
til móts við þeirra sjónar-
mið. Á Alþingi hafa menn
orð á því að bjargvætturinn
að vestan, Einar Oddur
Kristjónsson, sé einsog
vængbrotinn fugl sem
Davíð Oddsson hafi í vas-
anum. Ekki er langt síðan
Einar Oddur var jafnvel
orðaður við formennsku í
Sjálfstæðisflokknum en nú
er hann smáðurfótgöngu-
liði sem enginn hlustar á...
"FarSide” eftir Gary Larson.
Allt þartil henni var loksins skipt útaf framleiðslulínunni fyrir öllu
banvænni - og þarmeð vitaskuld mun vinsælli - frænda sinn var
Bowie-skeiðin langalgengasta vopnið sem menn notuðust við f
Villta Westrinu til að gera útum ágreining sfn f millum...
fimm á förnum vec
Hvernig fer knattspyrnulandsleikur íslands og Svíþjóðar í kvöld?
Berglind Jóhannsdóttir,
húsmóðir: ísland vinnur
óvænt: 1-0.
Friðrik Þór Halldórsson, Jenný Björk Þorsteins- Sólveig Thorlacius, nemi: Birgir Hinriksson, húsa-
geimfari: Svíar sigra 2-1 og dóttir, nemi: fsland vinnur Ég hef ekki guðmund um það. smiður: Svíþjóð vinnur ör-
Amór Guðjohnsen skorar eina 2-1 og Amór Guðjohnsen og uggan sigur: 3-1.
markokkar. Bjarki Gunnlaugsson skora
sitthvort markið.
Fyrirhugað er að stórt kvcnfélag
fari til Kína. Mig sem skipstjóra
hefur alltaf langað að fara þangað
og skoða fiskeríið hjá þeim. Mér
finnst að kvenfélagskonur ættu að
gera hreint fyrir sínum dyrum áð-
ur en þær fara til Kína til að funda
um jafnréttismál. Nóg er nú hórarí-
ið þótt kvenfélagskonur geri ekki
allt vitlaust þar.
Kostulegt lesendabréf Kristjáns Snæf. Kjartans-
sonar í DV í gær. Þess skal getið að íslenska
orðabókin Máls og menningar frá 1992 lætur
ekkert uppi um orðið „hórarí".
Jón Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, staðfesti í við-
taLsþætti í Ríkisútvarpinu...að
hann hefði ekki áhuga á að tala um
brennivín, og var ekki laust við að
talsverðrar fyrirlitningar gætti í
tóninum...Reyndar er engu líkara
en talsverðar persónuleikabreyt-
ingar hafi orðið hjá Jóni í kjölfar
stjómarskiptanna...Formaður Al-
þýðuflokksins er skyndilega orðinn
að einhverjum naívista...Veruleik-
inn er síbreytilegur og pólitískar
aðstæður geta tekið miklu breyt-
ingum...Jón Baldvin var einu sinni
í Alþýðubandalaginu, en það þýðir
ekki að hann hafi með eðlilegum
hætti getað gengið í Alþýðuflokk-
inn og gerst þar formaður.
Leiöarahöfundur Tímans glímdi greinilega viö
óvenju heiftarlega geölægö þegar hann hamr-
aði inn leiðarann í gær. Verst aö því fyigdi „ak-
út" greindarþoka og ruglumbullaveiki.
Villtir
Við Villtir erum viðkvæmar sálir og
verðum að hafa ákveðna fastpunkta í
tilverunni, annars raskast hið brot-
hætta jafnvægi sem við höfum náð að
koma á líf okkar eftir áralangt tvístig á
barmi siðblinduupplausnar. Eitt af
þessum föstu hnitum eru beibin á Sól-
on og þangað röltum við í fyrrakvöld í
fullkomnu grandvaraleysi eftir anna-
saman dag og sjá: þar voru éngin
beib, bara þreytulegar konur að stelast
út eftir kvöldmat og menntaskóla-
mengaðir sætabrauðsdrengir með
þvældan Jack Kerouac sem þeir
störðu á skilningsvana fermingaraug-
unum. Áfallið var hrikalegt! Nörda-
prinsinn Hallgrímur Helgason sagði
eitt sinn: Þar sem engin eru beibin,
þar er eitthvað að. Og hvað tókum við
Villtir til bragðs þegar beibin skorti til
áhorfs? Jú, við fórum óvart að reyna
halda uppi samræðum við starfsfélag-
ana sem enduðu á gamla skelfingar-
skapvonskumátann: með svívirðilega
grunnhyggnum tilvistarkrísuanalýsum
og tómum flamberingum. Það er eins
gott að veitingastjórar Sólons verði
ekki aftur uppvísir að slíkum beib-
skorti. Til áréttingar á grafaralvöru
málsins munu Villtir ekki eina vitund-
arögn fjalla um Netið fyrren Sólon-
stjórar hafa séð til þess að beibin snúi
aftur og beina aukþess viöskiptum
okkar alfarið til Einars Sæber-Arnar
meðan úrbætur standa yfir.
That'll teach you...
v e r ö I d í s a
Vísindaskáldsagnajöfúrinn Isaac
Asimov hefúr grafið upp og safnað
þúsundum furðulegra staðreynda og
margar þær „skemmtilegustu" tengj-
ast hemaði. Vissuð þið til dæmis að
orrustan um New Örleans - sú hin
sama og gerði Andrew Jackson að
þjóðhetju - var háð tveimur vikum
eftir að stríðinu lauk og heilum mán-
uði eftir að fregnir um að því væri
lokið bámst til Louisiana? Og hvað
með þetta: Bandaríski utanríkisráð-
herrann og ljóðskáldið John Hay
kallaði Spánsk-ameríska styijöldina
„alveg hreint indælis lítið stríð“. En
fjölskyldum 5.462 bandarískra her-
manna sem týndu lífinu - mestmegn-
is vegna sjúkdóma - fannst styijöldin
vafalítið fremur óyndisleg...
Byggt á tsaac Asimov's
Book of Facts.