Alþýðublaðið - 16.06.1995, Side 1
■ Kvótafrumvarpið samþykkt með nokkrum breytingum
Kostir róðrardaga eyðilagðir
- segir Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis.
„Ég er mjög ósáttur við að menn
skyldu ekki manna sig upp í að taka
skrefið til fulls og lögfesta almennilegt
róðrardagakerfi með 90 til 100 daga
sem lágmark. Meginkostir þessa kerfis
eru að gefa mönnum frjálst val til að
ráða sókninni innan ársins en þeir eru
eyðilagðir með þessum tímabilum og
gjaldfellingu á dögum sem fluttir eru
milli tímabila," sagði Steingrímur J.
Sigfússon, alþingismaður og formað-
ur sjávarútvegsnefndar Alþingis, í
samtali við Alþýðublaðið.
Stjómarfrumvarpið um stjóm fisk-
veiða var samþykkt í fyrrinótt eftir
nokkrar breytingar frá þvf sem lagt var
til í upphafi. Ríkisstjórnin féll frá
banndagakerfi en þess í stað verður
róðrardagakerfi með 86 sóknardögum
sem skiptast á fjögur tímabil ársins.
Heildarafli smábátanna má ekki fara
upp fyrir 21.500 tonn. Sighvatur
Björgvinsson og fleiri vildu að róðr-
ardagakerfið yrði gefið frjálst og há-
marksaflinn aukinn upp í 31.500 tonn
en stjórnarliðið felldi þær tillögur.
Frumvarpið var samþykkt með 33 at-
kvæðum en 20 þingmenn greiddu ekki
atkvæði.
Steingrímur J. Sigfússon sagði mál-
ið hafa skánað í meðfömm þingsins
en þetta róðrardagakerfi væri í sköm-
líki. Arthur Bogason formaður
Landssambands smábátaeigenda segir
ntjög slæmt að tímabilsskiptingin hafi
farið inn í lögin og að ekki tókst að
lyfta þakinu á aflamarkinu. Kristján
Ragnarsson formaður LIÚ fagnar því
að smábátamir fengu ekki meiri afla-
heimildir. - Sjá baksíðu.
■ Lúðraþytur
r á Kjarvalsstöðum
Islensk
myndlist
á 20. öld
Það verður líf og fjör á Kjarvals-
stöðum á morgun, 17. júní, þegar
sumarsýningin Islensk myndlist verð-
ur opnuð með lúðrablæstri klukkan
16:00. Allt húsnæði Kjarvalsstaða er
lagt undir þessa sýningu.
Hér er um að ræða yfirlitssýningu á
íslenskri tuttugustu aldar myndlist úr
eigu Listasafhs Reykjavíkur. Sýning-
unni er ætlað að bregða ljósi á þróun
íslenskrar myndhstar ífá byijun þess-
arar aldar til dagsins í dag og jafn-
framt að vera kynning á listaverkaeign
Listasafns Reykjavíkur. Á sýningunni
eru olíumálverk, grafík, textílverk,
leirlist, innsetningar og verk unnin
með blandaðri tækni eftir mikinn
fjölda íslenskra myndlistarmanna.
Sýningin verður opin daglega til
hausts.
Kenjar
Steins
„Steinn Steinarr gat verið
kenjóttur og þá tekið einhvern
viðstaddan fyrir. Fór það dálítið í
taugarnar á mér. Bar ég í fyrstu
blak af þeim, sem hann veittist að.
Af því vandist ég fljótt Steinn var
feiknarlega laginn skylmingamað-
ur á þessu sviði og erfitt að standa
honum snúning. En það gat verið
gaman að honum, þegar sá gáll-
inn var á honum, segir Bergsteinn
Jónsson prófessor meðal annars í
viðtali við Harald Jóhannsson hag-
fraeðing.
- Siá blaðsíður 6 og 7.
■ Röskva (Félag fátækra
stúdenta): „Kæra þjóð,
vérbjóðumyðurtil
samfagnaðar"
Þjóðhátíðar-
fögnuður stúd-
enta í kvöld
Þjóðhátíðardagur Islendinga hefur löngum verið Steingrími Eyfjörö Kristmundssyni hugstæður, en
hann er einmitt höfundur teikningarinnar sem prýðir forsíðuna. Afmælisdagur hinnar umdeildu þjóðhetju okkar íslendinga, Jóns
Sigurðssonar, er semsagt á morgun, 17. júní, og. um leið höldum við upp á lýðveldisstofunina einsog okkur er einum lagið - samanber
hressilega sýn myndlistarmannsins. Alþýðublaðið vonast tii að lesendur blaðsins og aðrir landsmenn hafi það sem allra náðugast yfir
helgina. Við skulum um helgina vera samstiga í því að ganga iöturhægt um gleðinnar gátt svo öll óþægindi fái haldist sem fjærst...
■ Hinn heimsþekkti Nicola Rescigno stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni 22. júní
Maðurinn sem kom
Mariu Callas á framfæri
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar-
innar í Háskólabíói fimmtudaginn 22.
júm' mun óperusöngvarinn Ólafur Á.
Bjarnason syngja undir stjórn hins
þekkta hljómsveitarstjóra Nicola
Rescigno. A tónleikunum verða fluttar
nokkrar af perlum óperutónbókmennt-
anna. Nicola Rescigno er fæddur árið
1916 og af tónlistarfólki kominn. Faðir
hans var trompetleikari við Metropolit-
an-óperuna í New York og því lá það
beint við að hann færi í nám og starf
sem tengdist óperunni. Frumraun sína
sem stjómandi þreytti hann árið 1943
þegar hann stjómaði uppfærslu á La
Traviata í New York. Síðan hefur
hann stjórnað uppfærslum í öllum
þekktustu ópemhúsum heims. Þess er
vert að geta að það var Nicola Resc-
igno sem kom stórsöngkonunni Mariu
Callas fyrst á framfæri í Bandaríkjun-
um og var samstarf þeirra afar náið
uppfrá því. Einsöngvarinn Ólafur Á.
Bjamason er Reykvíkingur sem hefur
víða komið fram á tónleikum, bæði hér
á landi og erlendis. Undanfarin íjögur
ár hefur hann verið fastráðinn sem
fyrsti tenór við óperuhús í Þýskalandi.
Olafur Á. Bjamason hefur hlotið fjölda
viðurkenninga íyrir söng sinn.
Nicola Rescigno: Margreyndur
snillingur.
Röskva - samtök félagshyggjufólks
við Háskóla íslands - gengur í endur-
nýjun lífdaga sinna í kvöld á Bíóbam-
um undir dulnefninu Félag fátœkra
stúdenta. Tilefnið er „Þjóðhátíðar-
fögnuður stúdenta“, en það þótti við
hæfi að taka forskot á sæluna og fagna
afmælisdegi sjálfstæðishetjunnar Jóns
Sigurðssonar kvöldið fyrr.
Dagskráin samanstendur af „tónlist,
ræðuhöldum og almennu djammi,“ að
sögn aðstandenda og hefst klukkan
23:00 með strengjastrokum og
trumbuslætti. Leikar munu standa til
03:00 á laugardagsmorgni og sjálfsagt
færast í heimahús villtra að því loknu.
- Allur er þessi fögnuður aðvífandi að
endurgjaldslausu.
Yr
Iggr ...og Jiú lækkar
Hl li,Mlr*I,inlm11
bensmkostnaöinn
uw
OllS
2á