Alþýðublaðið - 16.06.1995, Síða 3

Alþýðublaðið - 16.06.1995, Síða 3
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n Um hvað Klukkan er 8:15 að morgni. Fundur settur. Þau tínast inn, hvert á fætur öðru, fulltrúar verslunar og viðskipta og almannasamtaka: Hagkaup, Bónus, íslensk verslun, Samtök iðnaðarins, Samtök veitinga- og gistihúsa, Neyt- endasamtökin- og fulltrúar ýmissa stéttasamtaka. Þau eru spurð spjörun- um úr. Hvaða áhrif hafa GATT-frum- vörp forsætisráðherra á verðlag og samkeppni í framleiðslu, vinnslu og verslun með landbúnaðarafurðir? Svörin eru orðin ansi einhæf um það er lýkur. Einn viðmælenda nefndarinn- ar hitti naglann á höfuðið þegar hann sagði: Þetta er ekki GATT; þetta er GABB. Niðurstaða flestra var á eina og sömu lund. Engin áhrif. Það verður enginn innflutningur. Það verða engin viðskipti. Þar af leiðandi verður engin samkeppni. Það verður óbreytt ástand. ^^ðíð | Það er síminn. Röddin á hinum enda línunnar lýsir einhvers konar sam- blandi af forundran, gremju, reiði - eða blöndu af öllu þessu. Og símtölunum fjölgar. Hveijir eru á hinum endanum? Aðallega fólk sem segist hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn. Það segist ekki trúa því að formaður Sjálfstæðisflokks- ins flytji slíkt mál. Maður hélt nú að þeir meintu eitthvað með því sem þeir segja. Um samkeppnina og markaðinn og þetta að vera á móti ríkisforsjánni, einokuninni og skömmtunarkerfunum. Mörg er mannsins mæða. Þetta er ótta- legur sífurtónn. En sumir reyna að herða upp hugann og horfast í augu við staðreyndimar. Þeir höfðu verið blekkt- ir. Hafðir af fíflum. Dregnir á asnaeyr- unum. Þeir skyldu sko aldeilis láta sér þetta að kenningu verða. Læra af I„Kosningarnar fóru eins og þær fóru. Menn treystu því í stórum stíl að forysta Sjálfstæð- isflokksins myndi aldrei beygja sig fyrir kröfum einokunarsinna í Framsóknarkerf inu. En nú vita menn betur. Það er búið að lögfesta ofurtollana. Það verður engin samkeppni. Þeir munu standa vörð um óbreytt kerfi. Þeir gera það í krafti atkvæðanna ykkar ... Þú kýst ekki eftirá." Að þá yrði hér óbreytt ástand. óbreytt kerfi. Þeir gera það í krafd at- var kosið? reynslunni. Varast að endurtaka mis- tökin. Aldrei aftur, og svo ffamvegis. Vorþingið er búið. Forsætisráðherra tilkynnti í upphafi að það ætti að standa í 10 daga. Það stóð í 30 daga. Band- ormurinn um GATT - það sem allir þessir sjálfstæðismenn nú kalla apríl- gabb Davíðs - var lang stærsta mál þingsins. Það sem vakti heitastar ástríð- umar var atlaga Þorsteins Pálssonar að trillukörlum. í þeim sviptingum var staðfest í beinni útsendingu að kosn- ingaloforð þingmanna Sjálfstæðis- flokksins á Vestfjörðum (Einaranna beggja) og Framsóknarþingmannanna á Suðumesjum vom fokin út í veður og vind. Með sama hætti og kosningagabb Sjálfstæðisflokksins í GATT-málinu. Munið þið eftir umræðunum um mat- arkörfuna? Kratamir sögðu: Við kjós- um með annars um matarkörfuna - þú lætur atkvæðaseðil þinn í matarkörf- una. Þannig reyndum við á táknrænan hátt að vekja athygli almennings á því að kosningamar snémst um h'fskjörin. Að lífskjörin snémst líka um verðið á lífsnauðsynjunum. Við birtum töflur með samanburði á smásöluverði á landbúnaðarvörum hér á landi og ann- ars staðar. Við birtum upplýsingar frá Hagfræðistofnun Háskólans. Frá Sam- keppnisstofhun. Frá Utanríkisráðuneyt- inu. Og við.vöruðum kjósendur við. Við skýrðum frá því að landbúnað- arráðherra Sjálfstæðismanna, Halldór Blöndal, og fulltrúar hans hefðu mán- uðum saman barist fyrir því að ofúrtoll- ar yrðu lögfestir í framhaldi af GATT- samningnum. Við lýstum því hveijar væm tillögur Alþýðuflokksins: Verð- jöfnun milli innflutningsverðs og inn- anlandsverðs plús fjarlægðarvemdin. Við skýrðum frá því að fjármálaráð- herra hefði lagt fram málamiðlunartil- lögu sem byggði á tillögum Alþýðu- flokksins plús 20%. En við vömðum sérstaklega við áformum Framsóknar- arms Sjálfstæðisflokksins. Ef þær til- lögur næðu firam að ganga væri vonin um það að fyrstu skrefin yrðu stigin í átt til samkeppni á aðlögunartíma GATT-samningsins (6 ámm) fyrir bí. Sjálfstæðismenn sóru og sárt við lögðu, að þeir vildu enga ofurtolla. Þeir myndu taka fullt tillit til hagsmuna neytenda. Nú stöndum við frammi fyrir orðnum hlut. Kosningamar fóm eins og þær fóm. Menn treystu því í stórum stíl að forysta Sjálfstæðisflokksins myndi aldrei beygja sig fyrir kröfum einokunarsinna í Framsóknarkerfinu. En nú vita menn betur. Það er búið að lögfesta ofúrtollana. Það verður engin samkeppni. Þeir munu standa vörð um kvæðanna ykkar. Og þingmenn Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík og Reykja- nesi lyftu hvorki hönd né fæti ykkur til varnar. Sá sem helst skírskotaði til markaðshyggju og ftjálslyndis, doktor Pétur Blöndal, hlaut eldskífn sína sem talsmaður og „apologist“ fyrir landbún- aðarhagfræði Egils á Seljavöllum. Um hvað var kosið? Þú kýst ekki eftirá. ■ Höfundur er alþingismaður og formaður Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands. að vakti athygli við af- greiðslu sjávarútvegs- frumvarps Þorsteins Páls- sonar að allir andófsmenn stjórnarflokkanna voru stillt- ir og prúðir - nema einn. Sá heitir hvorki Einar Oddur Kristjánsson né Siv Frið- leifsdóttir, þaðan af síður Kristján Pálsson eða Ein- ar Kristinn Guðfinnsson. Varaþingmaður Einars Krist- ins, Guðjón A. Kristjáns- son gekk að vísu í berhögg við Þorstein í einstaka máli, en senuþjófurinn var Guð- jón Guð- mundsson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins á Vesturlandi. Hann hafði ekki geipað mikið í fjölmiðlum einsog sum hinna fyrrnefndu, en þegar á hólminn var komið var hann sá eini sem þorði að standa uppi í hárinu á Þorsteini og Kristjáni Ragnarssyni yfirráðherra. Guðjón, sem setið hefur á þingi síðan 1991, hefur verið kallaður „best geymda leyndarmálid á Alþingi" enda lætur hann allajafna ekki mikið til sín heyra, og einhvernveginn hefur það að mestu farið framhjá þjóð- inni að hann taki þátt í að setja henni lög. En nú var semsagt stund Guðjóns runnin upp... Klúður meirihlutans í Hafnarfirði á sér ákaflega langdregna sögu, einsog þjóðin hefur verið neydd að fylgjast með. Það kom ýms- um á óvart þegar Ellert Borgar Þorvaldsson bæj- árfulltrúi snerist í lið með Jóhanni Gunnari Berg- þórssyni kollega sínum og lenti þannig í algerri and- stöðu við Magnús Gunn- arsson oddvita flokksins. í Hafnarfirði er hinsvegar löng hefð fyrir klofningi í röðum sjálfstæðismanna, og við vitum að nú er mikið rætt um að í næstu kosning? um verði enn á ný boðnir fram tveir listar Sjálfstæðis- flokksins. Magnús Kjart- ansson varabæjarfulltrúi styður uppreisnina, og hann ætti að vita hvað hann syng- úr... Lítið heyrist af formanns- slagnum í Alþýðubanda- laginu, enda hafa frambjóð- endur verið uppteknir af þingstörfum. Nú þegar þeim er lokið er búist við að þau Margrét Frímannsdóttir og Stein- grímur Sig- fússon fari á fulla ferð. Úr herbúðum beggja heyr- um við að framundan séu mikil ferðalög, og reynd- ar eru stuðningsmenn Margrétar langt komnir með að skipulegggja „landsnet- /ð"- og þurfa víst hvergi að kvarta undan móttökum. Jafnvel ekki í kjördæmi Steingríms... "FarSido” eftir Gary Larson. „Farid það fjandans til! Þessi leiðarvísir er gjörsamlega einskis virði. Hér segir bara að þessi ættflokkur hafi tilbeð- ið tvo guði; einn sem vissi allt og annan sem sá allt - en það stendur ekkert hérna um hvor er hvað... Ingunn mín, mér sýnist það augljóst eftir raunir dagsins, að við hefðum betur aldrei yfirgefið baðströndina í Cancun! Hvenær var Jón Sigurðsson fæddur? (Réttsvar: 17.jún/ isid Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunarkona: Jón Sigurðs- son fæddist 17. júní 1811! Eyjólfur Sturlaugsson, kennari: Jón Sigurðsson fæddist 17.júní 1811! Elma Lísa Gunnarsdóttir, fyrirsæta: Guð hvað þú ert með leiðinlega spurningu... Hann var fæddur 17. júní 1805. Kristófer Lund, Ijósmynd- ari: Var það ekki 17. júní 1870? Alda Ólafsdóttir, banka- maður: Hann fæddist 17. júní, en ég hef ekki hugmynd um hvaða ár það var. v i t i m e n n Umboðsmaðurinn vakir alltaf lengst yfir þeim Radíusbróður sem lengur uppi vakir og taiar illa um þann sem er sofnaður. Þannig byggir hann okkur upp því í geð- vonskunni fæðist fyndnin. Davíö Þór Jónsson og Steinn Ármann Magnús- son voru hæstánægðir með umbann sinn, Atla Geir Grétarsson, í Helgarpósti gærdagsins. Þjóðhátíðardagurinn þurrkaður út Fyrirsögn í HP í gær. Sameinuöu þjóðirnar hafa ákveðið að 17. júní sé alþjóðlegur „Dagur eyðimerkurinnar". Ég hlustaði á viðtal við einn af stór- tækustu umboðsmönnum hljóm- sveita hins íslenska bítlatíma í út- varpi um síðustu helgi. - Spyriliinn vildi fá að vita hvaða lærdóm við- mælandinn teldi mikilvægastan frá þessum fyrirrennara sínum og það kom vissulega skemmtilega á óvart þegar svarið var að það hefðu verið leiðbeiningar um íslenskt mál. Leó E. Löve var himinlifandi meö málræktar- áhuga Ámunda Ámundasonar í Tímanum í gær. Ámundi er nefnilega þekktur fyrir snilldartilþrif í orðalagi einsog: Þegar hrafninn flýgur sest Einar Oddur á jörö. [Vilhjálmur S. Vilhjálmsson] var bæklaður. Hann var krypplingur - [með] líkama sem var eins og fífú- kveikur. Hann var nemandi föður míns. - Hann var ákaflega vel gef- inn. - Hann var kommúnisti, loks Alþýðuflokksmaður og endaði sem ritstjóri Alþýðublaðsins. Hann skrifaði fjölda bóka. - Ég dái hann. - Hann var þrekmenni. Hann var ofurhugi. Hann hét Vilhjálmur Sigursteinn. Pétur Pétursson þulur átti ekki í nokkrum erfið- leikum með að nefna athyglisveröasta mann sem hann hefur kynnst. HP í gær. VÍÍÍtlr á Vefnum ■ This just in - Þetta var að koma inn nefnist þrælskemmtilegt viku- blað á Internetinu er hefur undirtitil- inn True Internet Stories - Sannar Internet-sögur. Sögunum er safnað saman af sniðugum kappa að nafni Randy Cassingham og áskrift fæst með því pikka inn línuna „subscribe this-just-in" og senda rakleiðis með e-mail til listserv&netcom. Og hér kemur ein furðusagan: „Yfirvöld í Ohio eiga nú í megnustu erfiðleikum með afar sérkennilegt leigumorðingjamál: Lögreglan hefur ákært Clarence Wilkinson um að bjóða Chris Brown (19 ára) 800 þúsund fyrir að myrða Melissu Frances, fyrrum eiginkonu Wilkin- son. Brown tók tilboðinu, fékk greiðsluna fyrirfram, en samdi sam- stundis við Melissu um að myrða Clarence fyrir eina milljón. Henni snerist hinsvegar fljótlega hugur og bað um endurgreiðslu. Brown þver- neitaði, en til að sýna gott hjartalag sitt bauð hann Melissu að greiða sér 800 þúsund til viðbótar fyrir að myrða Wilkinson ekki. Vitaskuld komst allt upp þegar málsaðilar fóru að klaga hvorn annan fyrir sameigin- legum vinum. Brown hefur nú játað á sig fjárkúgun og horfir framá 10 ára fangelsisvist. Wilkinson hefur afturámóti verið ákærður fyrir að „koma á ringulreið". Á meðan hefur Frances játað á sig öllu minni sakir, var dæmd fyrir vikið í sex mánaða fangelsi og til'að greiða rúmar 300 þúsund í sekt. Svo ótrúlegt sem það nú er, þá hefur lögregluyfirvöldum þó enn ekki hugkvæmst að ákæra neinn þremenninganna fyrir morðtil- raun." TAKE THAT! veröld ísa Forsetar (rektorar) Harvard-háskóla í Bandaríkjunum hafa löngum þótt prinsippfastir og dygðum prýddir menn með afbrigðum. Þannig lýsti einn þeirra, Edward nokkur Everett, því yfir að ef hvítir nemendur í Har- vard kysu að hætta námi vegna þess að skólinn hafði ákveðið að veita svörtum nemanda inngöngu þá „mun öll peningainnkoma skólans verða notuð til að kosta menntun hans.“ Því miður fór svo illa að umræddur blökkumaður, Beverly G. Williams, lést árið 1847 áðuren honum gafst færi á að innrita sig í skólann. Byggt á Isaac Asimov's Bookof Facts.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.