Alþýðublaðið - 16.06.1995, Side 4

Alþýðublaðið - 16.06.1995, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995 NÝRTOPPUR m e n n i n ■ Fjölskylduhátíðin / hjartans einlægni með jarðárberjum og musli með jarðarberjum og musji iarðarbe andmælt... i og barferðum Látum ekki aðra hafa ofan fyrir okkur. eru skilaboð Sólstöðuhópsins. Hvem langar ekki til að láta drauma sína rætast, en veit ekki hvemig hann á að fara að því? Ef þú ert einn af þeim þá er í hjartans einlœgni kannski hátíð fyrir þig, því eitt af námskeiðunum sem þar verða í boði dagana 30. júní til 2. júlf að Laugalandi í Holtum ber ein- mitt yfirskriftina „Að láta draumana rætast". I hjartans einlægni er fjöl- skylduhátíð Sólstöðuhópsins, þess sama og gengst fyrir mánaðarlegum fyrirlestrum í Norræna húsinu í vetur. Að sögn framkvæmdastjóra hátíðar- innar Inga Rafns Bæringssonar, þyk- ir Sólstöðuhópnum trmi til að andmæla sjónvarpsglápi og barferðum og bjóða heldur upp á eitthvað uppbyggilegt. „Þessi mötun í þjóðfélaginu dregur úr frumkvæði. Fólk er svipt tækifærum til að gefa eitthvað skapandi en situr þess í stað bíður eftir því að aðrir hafi ofan af fyrir því,“ segir Ingi Rafn og neitar því að þau séu að taka slr'kt frumkvæði af fólki með hátíðinni. „Við reyndar tökum ákveðið frum- kvæði því við búum til ramman, en síðan gefúm við fólki færi á að velja úr þeim námskeiðum." Ingi segir að kalla megi hreyfinguna grasrótarhreyfingu, því þau séu að þessu að hugsjón en ekki í hagnaðar- skyni þótt aðgangseyrir sé að vísu inn á svæðið. I Sólstöðuhópnum með Inga Rafni eru sál- fræðingarnir S i g u r ð u r Ragnarsson, Inga Stefáns- dóttir og Andr- és Ragnarsson og leikkonan Ása Helga Ragnarsdóttir. Þar sem um fjölskylduhátrð er að ræða verð- ur fyrir utan námskeiðin boðið upp á barna- og ung- lingadagskrá. Dagskráin ber nokkum keim af yfirskriftinni, námskeiðin fjalla um vellíð- an og uppbygg- ingu einstak- hngsins og fjöl- skyldunnar, þau fjalla um listina að Ufa og elska, aga og uppeldi og leiðir til sjálfshjálpar svo eitthvað sé nefnt. Önnur námskeið tengjast náttúrunni, mataræðinu, bjóða upp á leikUst og dans eða ijalla um trú- arleg efhi. Ingi Rafn Bæringsson: Grasrótar- hreyfing. A-mynd: E.ÓI. Nánari upplýsingar um þátttöku er hægt að fá með því að hringja í síma 562-1747. Eyjaskeggjar í Ameríku Um þessar mundir stendur yfir sumarsýning Nýlistasafnsins. Sýning- in ber yfirskriftina New York-Nýló/ 10 eyjaskeggjar í Ameríku. Eftirfar- andi listamenn taka þátt í sýningunni: Ana Annex Burgos, Arnaldo Mora- les, Carmen Olmo, Charies Juhasz- Alvarado, Hrafnhildur Arnardóttir, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Kristín Hauksdóttir, Magnús Sigurðsson, Rosa Rivera Marrero og Stefán Jónsson. New York-Nýló/10 eyja- skeggjar í Ameríku er samsýning 5 ís- lenskra myndlistarmanna og 5 mynd- listarmanna frá Puerto Rico, en þau eiga það sameiginlegt að vera öll bú- sett í New York. Sýningin er sjálfstætt framhald sýningar af sama tagi sem haldin var á Puerto Rico árið 1994. Form og efnistök eru margbreytt, en York-Nýló/10 eyjaskeggjar í Amer- íku í Nýlistasafninu. A-mynd: E.ÓI. myndlistarmennimir vinna með inn- setningar, skúlptúra og málverk. Sýn- ingin í Nýlistasafhinu við Vatnsstíg er opin alla daga frá klukkan 14:00 til 18:00 og lýkur henni sunnudaginn 25. júní. Sumarsýningin Islensk myndlist verður opnuð með lúðrablæstri á Kjarvalsstöðum á morgun, 17. júní. Hér er um að ræða yfir- litssýningu á íslenskri tuttugustu aldar myndlist úr eigu Listasafns Reykjavíkur. Birgir Snæbjörn Birgissonvar í gær á fullri ferð við að koma sýningunni upp. Framlag Alfreðs Flóka heitins hvílir í forgrunni. A-mynd: E.ÓI. ■ Kirkjulistahátíðin í Hallgrímskirkju 130 Svíar mæta til leiks Síðasta atriði Kirkjulistahátíðar 1995 í Hallgrímskirkju er flutningur Sálumessu og Te Deum eftir sænska tónskáldið Otto Olsson. Það eru Óra- toríukór Gustavs Vasa kirkjunnar í Stokkhólmi og Óperuhljómsveitin sem flytja verkin í Hallgrímskirkju á sunnudaginn klukkan 20:00. Það eru samtals 130 úrvals tónlistarmenn frá Svíþjóð sem hafa lagt á sig mikla vinnu og fjársöfnun til að komast í ís- landsferðina. f þessum hópi eru þekkt- ir söngvarar og meðal hljóðfæraleikara er Einar Sveinbjörnsson víóluleikari. Otto Olsson er af ýmsum talinn mesú kirkjutónsmiður Norðurlanda. Hann var organisti í Gustav Vasa kirkjunni í hálfa öld og jafnframt prófessor við Tónlistarakademíuna í Stokkhólmi. Sálumessan var æskuverk sem Olsson lifði ekki að heyra frumflutta. Hún var fyrst flutt 1976 en hefur síðan verið flutt af kórum og hljómsveitum víða um heim. Aðgangseyrir að tónleikun- um er 1.800 krónur en aldraðir, náms- menn og hópar greiða 1.200 krónur. Miðasala og pantanir í Hallgríms- kirkju. ■ Bandarísk djasshljómsveitin The Shenandoah Conserva- tory Jazz Ensemble heldurtón- leika á Kaffi Reykjavík í kvöld Uppeldisstöð stórmeistara djassheimsins Djassunnendur fá í dag óvæntan glaðning á Kaffi Reykjavík klukkan 19:00 því bandaríska djasshljómsveit- in The Shenandoah Conservatory Jazz Ensemble ætlar að gera þar stuttan stans á leið sinni heim eftir velheppn- aða tónleikaferð um gjörvallt Þýska- land. Hljómsveitin kemur frá Shen- andoah-háskólanum í Virginíu-fylki og er skipuð tuttugu úrvals hljóðfæra- leikumm. Á efnisskrá hljómsveitarinnar eru lög eftir marga helstu lagasmiði djass- ins, svosem Duke Ellington, Lester Young, Dizzy Gillespie, Bob Mintz- er og Mike Tomaro. Þess má geta að með hljómsveitinni ætlar að spila gamall nemandi skólans og fyrrum meðlimur sveitarinnar, nefnilega Jón Halldór Finnsson bás- únuleikari. Það var hann sem átti frumkvæðið að spilamennsku bands- ins hér á landi því að stjómandi þess er jafnframt fyrrum kennari hans. í gegnum hann frétti Jón Halldór síðan af tónleikaferðalaginu í Þýskalandi og því að þeir ætluðu að millilenda hér í nokkrar klukkustundir. Hljómsveitin tók afar ljúfmannlega í þá bón að skella hér upp svosem einsog einum tónleikum fyrir milligöngu Jóns Hall- dórs og Hins hússins. Hljómsveit þessi hefur verið mikil uppeldisstöð fyrir djassheimsins. Meðal frægra nemenda og fyrrum hljómsveitarmeðlima má nefna djass- meistara á borð við trommarann Billy Drummond, lagahöfundinn Greg McKenzie og útsetjarann Allen Baylock.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.