Alþýðublaðið - 22.06.1995, Side 8
Fimmtudagur 22. júní 1995 92. tölubiað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Stjórnvöld í Rússlandi sitja undir vaxandi gagnrýni vegna klofnings og ráðaleysis.
Sæmundur Guðvinsson ræddi ástandið austur þar við Árna Bergmann rithöfund
Jeltsín sýnistfullkomlega ráðalaus
Forsetinn hjarir á því að enginn annar kostur virðist vera fyrir hendi.
„Það eru allir sammála um það að
Bóris Jeltsín stendur tæpt en hann
hjarir á því að á Vesturlöndum finnst
mönnum enginn annar kostur vera fyr-
ir hendi og í Rússlandi finnst mörgum
það sama. Þó er andstaðan gegn Jelt-
sín orðin mjög öflug þegar að margir
úr þeim flokkum sem studdu hann til
valda eru núna tilbúnir að lýsa frati á
hann,“ sagði Arni Bergmann rithöf-
undur í spjalli við Alþýðublaðið um
ástandið í Rússlandi.
Öll helstu blöð í Rússlandi gagn-
rýna harðlega frammistöðu stjómvalda
í gíslamálinu í Budennovsk. Þing-
flokkur kommúnista hefur ákveðið að
hefja undírskriftasöfnun í rússneska
þinginu til að freista þess að velta Jelt-
sín úr stóli.
„Mönnum finnst Jeltsín vera full-
komlega ráðalaus bæði í þessu Tét-
sjeníumáli og efnahagsmálum og svo
andspænis því að ríkið og stjómvöld
eru afskaplega vanmáttug gagnvart
þeim tökum sem mafíumar hafa á fjár-
hag landsins. Þetta gæti þýtt ósigur í
kosningum þegar og ef þær verða eða
þá að Jeltsín hrökklast beinlínis frá. En
það er eins með hann og Mikhail
Gorbatsjov að Vesturveldin settu sitt
traust á þessa menn, hvom með sínum
hætti. Fyrstu viðbrögð manna á Vest-
urlöndum við bröltinu í Jeltsín voru
mjög neikvæð og hann talinn trufla
Gorbatsjov í hans umbótastarfi. Síðan
hafa menn veðjað á Jeltsín og hann átti
að vera þessi klettur sem ekki bifast og
á honum myndi brotna bæði vinstri
villa og þjóðemisvilla Zhírínovskís.
Boris Jeltsín hangir einna helst á því,
en mjög rúinn öllu trausti innanlands. I
þriðja lagi hangir hann á því heima
fyrir að það er enginn greinilegur val-
kostur."
Hafa ekki heyrst einhver nöfn
hugsanlegra arftaka?
„Það er nú alltaf verið að tala um
þennan hershöfðingja, Lébed, sem
sagði af sér á dögunum. Hann var yfn-
maður þessa rússneska hers sem hefur
ráðið yfir hluta Moldavíu sem er mik-
ið byggð Rússum. Þegar menn hafa
verið að velta því fyrir sér að kannski
yrði sú freisting að kalla á sterkan
Árni Bergmann: Mönnum finnst Jeltsín vera fullkomlega ráðalaus bæði í
þessu Tétsjeníumáli og efnahagsmálum og svo andspaenis því að ríkið og
stjórnvöld eru afskaplega vanmáttug gagnvart þeim tökum sem mafíurn-
ar hafa á fjárhag landsins. Þetta gæti þýtt ósigur í kosningum þegar og ef
þær verða eða þá að Jeltsín hrökklast beinlínis frá.
Nýjar vörur áútsöluverði
Gerðu ævintýralegagóð kaup
- hwtuvr sem nl
IWGMN
sjá Kringlukastsblað sem fylgdi
Morgunblaðinu i vikunni
mann eða að honum yrði ekki veitt
veruleg mótspyma, þá hefur nafn hans
borið á góma. En maður veit ákaflega
lítið um Lébed. Helst einhverja al-
menna lýsingu um að þetta sé ákveð-
inn maður, harðfenginn og greindur.
En hvað hann mundi gera við einhvers
konar alræðisvald vita menn ekki.“
Er hœgt að segja að Rússland se' í
dag sambandsríki?
„Þetta er eiginlega tvöfalt kerfi.
Annars vegar er það sem kallað er
rússneska sambandslýðveldið og það
eru um 80 stjómsýslueiningar sem em
aðilar að því. Þar er um að ræða sér-
stakar einingar eins og stórborgimar
Moskvu og Pétursborg, hémð Rúss-
lands sem em heil ríki að stærð og síð-
an það sem áður hét sjálfstjómarlýð-
veldi í Sovétríkjunum. Það em þá þau
svæði þar sem að einhver þjóð sem
ekki er rússnesk er fjölmenn. Eitt af
því sem Jeltsín gerði þegar hann var
að koma til valda var að láta þó nokk-
uð undan kröfum sjálfstjómarlýðvelda
um mikil réttindi þeirra og þá ekki síst
forræði yfir auðlindum. Þetta er eitt af
því sem hefur veikt miðstjómina. Hún
hefur enn minni fjárráð heldur en ella
þegar utanríkisverslun með til dæmis
olíu og demanta er svona mikið í
höndum heimamanna. Fyrir nú utan
það sem maffumar taka til sín af þessu
öllu.
Svo er á hinn bóginn til eitthvað
sem heitir samband sjálfstæðra ríkja.
Það er losaralegt samband rúsSneska
sambandsins við önnur fyrrverandi
Sovétlýðveldi öll, nema Eystrasalt-
slöndin og kannski Armeníu og Ge-
orgíu. Það hefur stundum verið talað
um að alla vega úr þessum slavnesku
ríkjum, Rússlandi, Ukraínu og Hvíta-
Rússlandi og kannski Kasastan, gæti
orðið nýr kjami sem myndaði nokkurs
konar rússneskt efnahagsbandalag.
Hvít-Rússland hefur til dæmis stigið
skref í þá átt og eitthvað þess háttar er
■ íslensk bókaskrá
Nær 1700 rit
Út er komin íslensk bókaskrá fyrir
árið 1992, sem er skrá yfir alla bóka-
útgáfu þess árs. Skráin er unnin í nýju
tölvukerfi, Gegni. Skráin er nú í fyrsta
sinn gefin út af hinu nýja sameinaða
safni, Landsbókasafni Islands - Há-
skólabókasafni. íslensk bókaskrá fyrir
1993 kemur út eftir nokkrar vikur og
skráin fyrir 1994 í ágúst. Vonast er til
að skráin fyrir 1995 komi út snemma
á næsta ári. Á árinu 1992 komu alls úr
1.695 rit, eða 1.093 bækur og 602
bæklingar. Fmmútgáfur em alls 1.250.
Barnabækur eru 243 að tölu og
kennslubækur 319. Um 455 rit vom
að gerast í Úkraínu. Þrátt fyrir allt
þetta ráðleysi og veika stjórn í
Moskvu þá er tvennt í gangi. Annars
vegar þessi upplausn eins og suður í
Kákasús þar sem er mikið kraðak af
þjóðum og mörg sjálfstjómarlýðveldi,
en þar heldur upplausn Sovétríkjanna
áfram. Hins vegar er viss efnahagsleg
nauðsyn í gangi sem gæti hugsanlega
eflt þetta samband sjálfstæðra ríkja til
fleiri hluta en núna er. Þessi gömlu
Sovétlýðveldi em mörg hver dæmd til
þess efnahagslega að hafa mjög náin
samskipti. Það er líka vegna þess að
efnahagslífið í Sovétríkjunum var svo
mikið byggt á stórum einingum þar
sem mikið af því sem stórfyrirtæki í
Rússlandi þurfa kemur frá Úkraíhu og
öfugt. Sumir hlutir voru framleiddir
fyrir allt ríkið á einum eða tveimur
stöðum. ÞeSsi ríki vita líka æ betur að
það er erfitt að koma með eitthvað
annað en hráefni á heimsmarkaðinn.
Ef þau vilja gera einhvem útflutnings-
mat úr því sem þau vinna þá er það
helst með viðskiptum sín í milli. Það
eru því þessir tveir möguleikar; að
vanmáttur Jeltsíns sjálfs og rússnesku
miðstjómarinnar, sem er háð því sem
gerist í einstökum hlutum ríkisins,
leiði til áframhaldandi upplausnar og
kannski afnáms þingræðis og einhvers
herstjóra sem verður alráður forseti
um tíma. Síðan á hinn bóginn ef tekst
að sneiða hjá því þá er margt í efna-
hagslegum aðstæðum þessara ríkja
sem áður voru í Sovétríkjunum sem
gætu bundið þau saman í einhvers
konar nýtt efnahagsbandalag, að und-
anskildum Eystrarsaltslöndunum."
En er heriitn undir einnistjóm?
„Það er nú ein gátan hvað samloðun
efnisins er sterk í honum. Það er ekki
gott að vita. Það er enginn kominn til
að segja að þótt Lébed hugsaði sér til
hreyfings hefði hann stuðning alls
hersins. Það veit enginn," sagði Ámi
Bergmann. ■
gefin út 1992
þýdd á íslensku úr öðmm tungumál-
um, aðallega ensku, eða 263 rit, en 54
úr sænsku, 39 úr dönsku og 30 úr
norsku. Um 28 rit voru þýdd úr ís-
lensku á önnur tungumál.
íslenskri bókaskrá fylgir ennfremur
íslensk hljóðritaskrd 1992, þar sem
skráð er með nákvæmum hætti allt
efni gefið út á hljómplötum, geisla-
diskum og snældum. Fjöldi slíkra út-
gáfa var 139 á árinu 1992, miðað við
130 árið á undan. Ritstjóri ofan-
greindra skráa er Hildur G. Eyþórs-
dóttir. Skrámar em seldar í Þjóðar-
bókhlöðu.